Morgunblaðið - 07.01.2003, Side 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
1.458.-
Geisladiskar CD-R 25 stk
720Mb / 80 mín / 1x - 32x
Á tilboði núna
Sölumenn okkar eru við símann frá kl. 8:00 – 17:00.
Hringdu í síma 520 6666 eða líttu á úrvalið í stórverslun
okkar að Réttarhálsi 2. Opið mán. – fös. 8:00 – 18:00.
SKRIFSTOFUVÖRUR
STEFÁN Pétursson, framkvæmdastjóri fjár-
málasviðs Landsvirkjunar, segir að þær forsendur
sem Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi gefi sér
um arðsemi Kárahnjúkavirkjunar séu alrangar og
niðurstaða hans um milljarðatap af virkjuninni
eftir því. Ljóst sé að Landsvirkjun gangi ekki til
samninga við Alcoa öðruvísi en að hafa það mark-
mið og væntingar að hagnast af orkusölu frá virkj-
uninni.
Ólafur, sem er borgarfulltrúi F- lista frjáls-
lyndra og óháðra, kvaddi sér hljóðs utan dagskrár
á borgarstjórnarfundi sl. fimmtudag um Kára-
hnjúkavirkjun. Taldi hann sterkar líkur vera á því
að ein króna yrði greidd með hverri kílóvattstund
sem seld yrði frá virkjuninni og tapið yrði árlega
4,4 milljarðar króna miðað við 4.400 gígavattast-
unda raforkusölu á ári. Sagði hann orkuverðið
vera á bilinu 50–60% af því sem það þyrfti að vera
til að virkjunin bæri sig. Óskaði Ólafur jafnframt
eftir því að borgarstjóri kæmi í veg fyrir af-
greiðslu málsins innan stjórnar Landsvirkjunar á
meðan það hefði ekki verið afgreitt frá svonefndri
eigendanefnd fyrirtækisins, en Reykjavíkurborg
er sem kunnugt er eigandi að 45% hlut í Lands-
virkjun.
Leikur sér með sjónarmið
Stefán Pétursson segir að Ólafur leiki sér með
skammtímasjónarmið annars vegar og langtíma-
sjónarmið hins vegar. Villandi sé að taka eingöngu
mið af heimsmarkaðsverði á áli í dag án þess að
líta til stöðunnar á fjármálamörkuðum. Ólafur
miði við ríflega 8–9% raunarðsemiskröfu, sem
Stefán segir að sé alltof há miðað við Kárahnjúka-
verkefnið og stöðu markaða í dag. Hann segir að
þar sem fljótandi vextir á Bandaríkjadollar séu
1,4% í dag þurfi ávöxtunarkrafa á eigið fé að vera
yfir 35% til að ná þeirri meðalkröfu sem Ólafur
miðar við. Þetta sé augsýnilega úr öllum takti.
Stefán minnir jafnframt á að veruleg fylgni sé á
milli álverðs og vaxta. Því sé óvarlegt að gera á
sama tíma ráð fyrir lágu álverði og háum vöxtum.
Þetta megi m.a. sjá í ársreikningum Norðuráls á
Grundartanga, sem sé að skila góðri afkomu þrátt
fyrir lágt álverð.
„Við erum algjörlega ósammála fullyrðingum
Ólafs og teljum að hann slíti úr samhengi ýmsar
staðreyndir og upplýsingar sem fyrir liggja,“ segir
Stefán og bætir því við að honum þætti fróðlegt að
vita afstöðu Ólafs til verkefnisins ef hann sjálfur
teldi allar líkur á að virkjunin væri arðsöm.
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar um Kárahnjúkavirkjun
Ólafur F. Magnússon gefur
sér alrangar forsendur
HEIMSÓKN Brynjars Sigurðs-
sonar og Helgu Dísar Árnadóttur
til foreldra Brynjars endaði með
nokkuð óvenjulegum hætti því
Helga eignaðist barn heima hjá
tengdaforeldrum sínum. Og ekki
nóg með það heldur tóku sjúkra-
flutningamenn á móti barninu.
„Þetta er þriðja fæðingin sem ég
aðstoða við í heimahúsi en sú
fyrsta þar sem ég tek á móti og fæ
barnið bókstaflega í fangið. Og
þetta er alltaf jafn gaman, ef vel
gengur. Svona fæðing er uppbót í
starfi,“ sagði Gestur Ó. Pétursson,
slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamaður hjá Slökkviliði höf-
uðborgarsvæðisins sem tók á móti
stúlku í forstofu heimilis ömmu
hennar í Skerjafirði á sunnudags-
kvöld.
„Þetta er annað barn þessara
ungu hjóna. Konan var víst búin að
segja sínum nánustu að hún bygg-
ist við að sú stutta fæddist heima.
Þegar við Ragnar Guðmundsson
komum á vettvang var hún með
miklum verkjum en er dró úr þeim
komum við henni fyrir á sjúkra-
flutningabörum. Þá sáum við fljótt
hvert stefndi og sóttum í bílinn
fæðingarböggul en í honum er sótt-
hreinsaður búnaður sem notaður
er við fæðingar. Hjalti Már Björns-
son læknir, sem kom á vettvang um
þessar mundir með Eyþóri Leifs-
syni á neyðarbílnum, var tæpast
búinn að taka böggulinn í sundur
og að gera hann kláran er grillti í
kollinn á stúlkunni og þá var ekki
um annað að ræða en taka til
hendi,“ sagði Gestur.
„Þetta var mjög kostulegt allt
saman, við vorum eiginlega laf-
hrædd yfir að þurfa sjálf að taka á
móti. En sem betur fer birtust
sjúkraflutningamennirnir í tæka
tíð, það skeikaði aðeins nokkrum
mínútum,“ sagði Brynjar, en hann
og Helgu voru í matarboði í
Skerjafirðinum þegar stúlkan
fæddist.
Morgunblaðið/Golli
Helga Dís Árnadóttir og Brynjar Sigurðsson með dótturina sem lá svona á að koma í heiminn.
„Alltaf gaman
þegar vel gengur“
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur framlengt til 18. febrúar
gæsluvarðhald yfir karlmanni um
fertugt, sem grunaður er um að hafa
stungið konu um fimmtugt með hnífi
í íbúð í Reykjavík á aðfangadag. Úr-
skurðurinn var kærður til Hæsta-
réttar. Er þetta í annað skipti sem
kveðinn er upp úrskurður um fram-
lengingu gæsluvarðhalds yfir sak-
borningnum.
Þegar lögregla kom á vettvang
hafi konan legið á gólfinu í stofu á
heimili sínu með aðra konu stumr-
andi yfir sér. Sakborningurinn sat í
sófa í stofunni. Konan sem stungin
var hafði blæðandi áverka á síðu.
Haft er eftir vaktlækni á slysadeild
að stungan hefði hæglega getað ver-
ið banvæn.
Gæsluvarð-
hald fram-
lengt í hníf-
stungumáli
KONAN sem lögreglan í Reykja-
vík lýsti eftir 30. desember og hef-
ur verið leitað síðan, fór til Kaup-
mannahafnar 29. desember. Þær
upplýsingar komu ekki fram fyrr
en í gær.
Að sögn Jónasar Hallssonar,
aðstoðaryfirlögregluþjóns í
Reykjavík, var að kvöldi 30. des-
ember leitað eftir upplýsingum,
með aðstoð lögreglunnar á Kefla-
víkurflugvelli, um það hvort kon-
an hefði farið úr landi og fengust
þær upplýsingar að svo hefði ekki
verið. Þegar Jónas hafði samband
við farskrárdeild Flugleiða í gær
kom í ljós að hún hafði farið til
Kaupmannahafnar 29. desember.
Ekki er ljóst hvers vegna þessar
upplýsingar komu ekki fram fyrr
en leitað verður skýringa á því.
Mikil leit var gerð að konunni.
Jónas segir að sporhundar hafi
rakið slóð hennar niður í Naut-
hólsvík og beindist leitin því að
mestu leyti að sjónum og strand-
lengjunni í kringum Reykjavík.
Umfangsmest var leitin á laugar-
daginn þegar um 50–100 lögreglu-
og björgunarsveitarmenn tóku
þátt í henni. Meðal annar voru
fjörur gengnar frá Álftanesi að
Sörlaskjóli í vesturbæ Reykjavík-
ur og kafarar leituðu í höfninni.
Konan sem var leitað
Fór til Kaupmanna-
hafnar fyrir áramót
TÆPLEGA sextugur maður hefur
verið dæmdur í sjö mánaða fangelsi
fyrir að hafa slegið sambýliskonu
sína margsinnis í höfuðið, brotið disk
á höfði hennar og skorið hana í andlit
og hendur með diskabrotum.
Í niðurstöðum Héraðsdóms
Reykjavíkur segir, að brot mannsins
hafi verið hrottalegt og tilefnislaust
og hefði hæglega getað valdið mun
meiri meiðslum en raun varð á. Mað-
urinn sagðist muna lítið eftir atvik-
um sökum ölvunar en kannaðist þó
við að hafa lagt hendur á konuna.
Var hann dæmdur til að greiða henni
200.000 krónur í skaðabætur. Með
líkamsárásinni, sem átti sér stað í
heimahúsi í Reykjavík seint í apríl
sl., rauf maðurinn skilorð fimm mán-
aða fangelsisdóms sem hann hlaut
1999 fyrir skjalafals og var mann-
inum nú dæmd refsing í einu lagi fyr-
ir skjalafalsið og líkamsárásina.
Maðurinn á að baki langan sakaferil
sem nær aftur til 1962. Þá var hann
dæmdur í skilorðsbundið fangelsi
fyrir þjófnað, en þá var hann 19 ára.
Síðan þá hefur hann hlotið 35 refsi-
dóma, fyrir ýmis brot, aðallega fyrir
auðgunarbrot og skjalafals. Pétur
Guðgeirsson kvað upp dóminn. Katr-
ín Hilmarsdóttir sótti málið f.h. lög-
reglustjórans í Reykjavík en Hilmar
Ingimundarson hrl. var til varnar.
Sló og skar
sambýlis-
konuna
TVEIR menn 20 og 25 ára, hafa
verið dæmdir í fangelsi í Héraðs-
dómi Reykjaness fyrir innbrot í
gullsmíðaverslun í Hafnarfirði. Sá
yngri hlaut 15 mánaða fangelsi, þar
af voru 12 mánuðir skilorðsbundnir,
en sá eldri var dæmdur í sjö mán-
aða fangelsi.
Mennirnir brutu sér leið inn í
verslunina og stálu 48 skartgripum
aðfaranótt jóla 2001. Var verð
skartgripanna metið 2,8 milljónir
króna. Báðir eiga mennirnir tals-
verðan sakarferil að baki. Þar sem
sá yngri er hættur neyslu fíkniefna,
er í sambúð og á von á barni auk
þess sem hann stefnir á nám, ákvað
dómurinn að fresta fullnustu refs-
ingar 12 af 15 mánaða fangelsis-
refsingu í þrjú ár.
Stálu skartgripum
fyrir 2,8 milljónir