Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 19
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 19 SUÐUR-kóresk sendinefnd hóf í gær viðræður við bandaríska og jap- anska embættismenn í Washington með það fyrir augum að reyna að finna lausn á deilunni um kjarnorku- áætlanir Norður-Kóremanna. Áttu S-Kóreumenn einnig viðræður um það við rússneska ráðamenn síðast- liðinn laugardag. Kjarninn í tillögu S-Kóreustjórn- ar er, að Bandaríkjastjórn taki aftur upp olíuflutninga til Norður-Kóreu gegn því, að stjórnvöld í Pyongyang standi við áður gerða samninga um kjarnorkumálin. Þá er einnig ætlast til, að Bandaríkjastjórn ábyrgist gagnvart N-Kóreu, að ekki verði ráðist á kjarnorkumannvirki í land- inu. Hafa ýmsir talsmenn banda- rískra demókrata hvatt George W. Bush forseta til að skoða þessar til- lögur af fullri alvöru. Fulltrúi stjórnvalda í Suður-Kór- eu, Kim Hang-kyung, átti einnig viðræður við rússneska ráðamenn í Moskvu á laugardag um leiðir til að leysa deiluna um kjarnorkuvopnatil- raunir Norður-Kóreumanna. Hitti Kim m.a. Alexander Losjúkov sem er helsti sérfræðingur Rússa í mál- efnum Asíuríkja. Brutu samninginn frá 1994 Norður-Kóreumenn lýstu í haust yfir því að þeir væru enn að reyna að smíða kjarnorkuvopn þótt þeir hétu því er þeir gerðu samning við Bandaríkjamenn árið 1994 að leggja af slíkar tilraunir. Einnig ætla N-Kóreumenn að hefja aftur rekstur tilraunastöðvar í Yongbyon þar sem sérfræðingar telja mögulegt að þeir geti framleitt efni í kjarnorkusprengjur. Rússar hafa þó látið í ljós efasemdir um að N-Kóreumenn hafi raunverulega getu til þess og segja að um blekk- ingar sé að ræða. Losjúkov sagði í gær að eining hefði verið um að halda áfram að vinna að því að fá deiluaðila til að setjast að samningaborðinu. Bandaríkjamenn, sem hafa öflugt herlið í Suður-Kóreu við landamær- in að Norður-Kóreu, krefjast þess að N-Kórea hætti tilraununum áður en beinar viðræður hefjist milli ríkjanna tveggja. Bandaríkjamenn hafa lagt til að beitt verði alþjóð- legum viðskiptarefsingum til að þvinga kommúnistastjórnina í norðri til að hætta kjarnorkutilraun- unum. Efnahagur N-Kóreu er á vonar- völ, á undanförnum árum hafa hundruð þúsunda manna fallið þar úr hungri og harðstjórn í landinu er grimmdarlegri en víðast annars staðar á byggðu bóli. Herinn er hins vegar stór og vel búinn vopnum. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin í Vín gaf í gær N-Kóreustjórn síðasta tækifærið til að standa við gerða samninga en tilgreindi þó ekki fyrir hvaða tíma hún yrði að gera það. S-kóresk tillaga til lausn- ar deilunni við N-Kóreu Washington. AP, AFP. . NÁMSKEIÐ Á VORÖNN 2003 Tungumál 10 vikna námskeið 20 kennslustundir Áhersla á talmál Kennt er í byrjenda – framhalds – og talæfingaflokkum ENSKA Enska I frh. Enska II Enska II frh. Enska III frh. Enska tal og leshópur I Enska tal og leshópur II DANSKA Danska I - II NORSKA Norska I - II Norska III SÆNSKA Sænska I - II Sænska III FRANSKA Franska I Franska I frh. ÍTALSKA Ítalska I Ítalska I frh. SPÆNSKA Spænska I Spænska I frh. Spænska II Spænska II frh. Spænska III frh. ÞÝSKA Þýska I Þýska I frh. ÍSLENSKA fyrir útlendinga 10 vikna námskeið 20 kennslustundir BÓKBAND 10 vikna námskeið 40 kennslustundir FRÍSTUNDAMÁLUN 8 vikna námskeið 32 kennslustundir GLERLIST 10 vikna námskeið 40 kennslustundir GLER – OG POSTUL- ÍNSMÁLUN 8 vikna námskeið 32 kennslustundir LEIRMÓTUN I 6 vikna námskeið 24 kennslustundir LEIRMÓTUN II 4 vikna námskeið 16 kennslustundir LJÓSMYNDATAKA 3 vikna námskeið 9 kennslustundir SILFURSMÍÐI 9 vikna námskeið 36 kennslustundir TRÉSMÍÐI 9 vikna námskeið 36 kennslustundir ÚTSKURÐUR 9 vikna námskeið 36 kennslustundir STAFRÆN MYNDA- TAKA Á VIDEOVÉL OG KLIPPING 1 viku námskeið 12 kennslustundir BÚTASAUMUR 6 vikna námskeið 24 kennslustundir BÚTASAUMSTEPPI Framhald 4 vikna námskeið 16 kennslustundir BÚTASAUMSKLÚBBUR 3 miðvikud. Kl. 19:30 Einu sinni í mánuði FATASAUMUR/BARNA- FATASAUMUR 6 vikna námskeið 24 kennslustundir CRACY QUILT 4 vikna námskeið 16 kennslustundir Kántrý föndur: ÍKONAGERÐ 2 vikna námskeið 8 kennslustundir HURÐARKRANS ÚR BIRKI 2 vikna námskeið 8 kennslustundir JÓLAFÖNDUR Í FEBRÚAR 2 vikna námskeið 8 kennslustundir KÁNTRÝ STENSLAR 2 vikna námskeið 8 kennslustundir Tölvunámskeið: WORD OG WINDOWS fyrir byrjendur 4 vikna námskeið 20 kennslustundir WORD II 4 vikna námskeið 20 kennslustundir EXCEL fyrir byrjendur 3 vikna námskeið 20 kennslustundir INTERNETIÐ OG TÖLVUPÓSTUR 1 viku námskeið 8 kennslustundir FINGRASETNING OG RITVINNSLA 8 vikna námskeið 16 kennslustundir BÓKHALD smærri fyrirtækja 4 vikna námskeið 24 kennslustundir FRANSKIR SMÁRÉTTIR OG BÖKUR 2 vikna námskeið 8 kennslustundir SPELT Bakað úr spelti 2 vikna námskeið 8 kennslustundir GÓMSÆTIR bauna - pasta - og grænmetis- réttir 3 vikna námskeið 12 kennslustundir MATARMIKLAR SÚPUR OG HEIMABAKAÐ BRAUÐ 2 vikna námskeið 8 kennslustundir SPENNANDI BÖKUR OG INNBAKAÐIR VEISLURÉTTIR 2 vikna námskeið 8 kennslustundir ÞJÓÐBÚNINGUR - SAUMAÐUR 10 vikna námskeið 40 kennslustundir SKRAUTSAUMUR - BALDERING Saumað með silfurþræði 5 vikna námskeið 15 kennslustundir Garðyrkjunámskeið: TRJÁKLIPPINGAR 1 viku námskeið 4 kennslustundir GRÓÐUR OG GARÐRÆKT 2 vikna námskeið 8 kennslustundir TRJÁRÆKT Í SUMAR- BÚSTAÐALANDINU 1 viku námskeið 4 kennslustundir Snyrtinámskeið: PROFESSIONAILS NAGLANÁMSKEIÐ Eitt kvöld – 4 kennslustundir HIRÐING HÚÐARINNAR Eitt kvöld – 4 kennslustundir FÖRÐUNARNÁMSKEIÐ NO NAME Eitt skipti – 4 kennslustundir Snyrtinámskeiðin eru haldin í sam- starfi við Naglaskóla Professionails og Förðunarskólann NO NAME Innritun í þessi námskeið er í síma 553 7900 kl. 10 - 18 Starfsmenntunarsjóðir ýmissa stéttarfélaga styrkja félagsmenn sína til náms í Kvöldskóla Kópavogs, t.d. BSRB, BHMR, Efling - stéttarfélag,VR og Starfsmannafélag Kópavogs. Fyrstu námskeiðin hefjast 22. janúar Innritun og upplýsingar um námskeiðin kl. 16-20 í símum 564 1507, 564 1527 og á skrifstofu Kvöldskólans í Snælandsskóla á sama tíma. Netfang: kvoldskoli@kopavogur.is Vefsíða: kvoldskoli.kopavogur.is undirfataverslun Síðumúla 3-5, sími 553 7355 OPIÐ mán.-fös. frá frá kl. 11-18, lau. frá kl. 11-15. Ú t s a l a LÍKUR á mjög víðtæku verkfalli op- inberra starfsmanna í Þýskalandi jukust í gær er viðsemjendur þeirra höfnuðu miðlunartillögu sáttasemj- ara. Kvað hún á um 3% launahækkun til þriggja milljóna launþega á hálfu öðru ári. Otto Schily, innanríkisráðherra Þýskalands og formaður samninga- nefndar ríkis og bæja, sagði, að til- laga sáttasemjara hefði verið mjög óeðlileg enda í henni tekið að mestu undir kröfur opinberra starfsmanna. Hún þýddi í raun að útgjöld hins op- inbera og sveitarfélaganna myndu aukast um meira en 1.000 milljarða íslenskra króna á næstu tveimur ár- um. Kjaradeilan kemur á mjög slæm- um tíma fyrir ríkisstjórn Gerhards Schröders en 2. febrúar nk. verða mikilvægar kosningar í tveimur sam- bandslöndum, Neðra-Saxlandi og Hessen. Er almennt litið á þær sem eins konar mælingu á stöðu stjórn- arinnar, sem stendur nú þegar mjög höllum fæti gagnvart almennings- álitinu. Samdráttur er í efnahagslíf- inu og Schröder hefur ekki getað efnt það loforð að koma atvinnuleysinu niður fyrir fjórar milljónir manna. Sveitarfélög standa illa Talsmenn ríkis og bæja segjast að- eins tilbúnir til að hækka launin í tveimur áföngum, um 0,9% og 1,2%, en það er aðeins umfram verðbólg- una. Heinrich Aller, fjármálaráð- herra í Neðra-Saxlandi, sagði að ástandið hjá mörgum sveitarfélögum væri afar erfitt og mörg „í raun gjaldþrota“. Ekki hefur komið til mikilla verkfalla í Þýskalandi frá árinu 1992. Verkföll vofa yfir í Þýskalandi Berlín. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.