Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 34
MINNINGAR 34 ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Magndís Magnús-dóttir fæddist á Bakka í Tálknafirði 12. júlí 1912. Hún lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 30. desember síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru hjón- in Magnús Friðriks- son bóndi í Stóra-Laugadal og síðar á Bakka, Tálknafirði, f. 16. maí 1879, d. 27. des. 1918, og Þórdís Guðmunds- dóttir húsfreyja, f. 22. maí 1877, d. 18. sept. 1950. Systkini hennar voru María, f. 20. des. 1903, Friðrik, f. 14. apríl 1905, Sara, f. 20. apríl 1908, Guðrún, f. 12. maí 1909, og Hall- dóra, f. 10. des. 1910. Þau eru öll látin. Hinn 21. maí 1944 giftist Magndís eftirlifandi eiginmanni sínum, Kristni J. Jónssyni, f. 19. feb. 1917, útgerðarmanni á Patreksfirði. For- eldrar hans voru Ólína Guðmunds- sonar skipstjóra, f. 10. okt. 1945, d. 10. jan. 1970, er Hugi, f. 17. des. 1969. Sambýliskona hans er Lilja Harðardóttir, f. 30. sept. 1975, son- ur Huga og Carmen Valencia er Francisco Snær, f. 7. júní 2000. Börn Auðar og Leiknis Jónssonar málarameistara, f. 22. okt. 1943, eru Bogi, f. 20. ágúst 1974, sam- býliskona hans er Lilja Kristbjörg Sæmundsdóttir, f. 16. jan. 1976, dóttir þeirra er Telma Sól, f. 15. mars 2001. Auður Magndís, f. 15. apríl 1982. Magndís missti föður sinn ung og ólst upp hjá móður sinni í Tálkna- firði til níu ára aldurs er hún flutti til Patreksfjarðar. Þar bjó hún þar til hún fluttist til Hafnarfjarðar árið 1990. Á Patreksfirði gegndi hún meðal annars ýmsum afgreiðslu- störfum og var í vist en vann síðar við hlið eiginmanns síns við útgerð og fiskvinnslu. Hún var virk í fé- lagsmálum Patreksfjarðar og var einn af stofnendum Verkalýðs- félags Patreksfjarðar, Slysavarna- félagsins Unnar og Kvenfélagsins Sifjar þar sem hún var heiðurs- félagi. Síðustu sex árin dvöldu þau hjón á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför Magndísar verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 15. dóttir, f. 17. okt. 1893, d. 5. ág. 1969, og Jón Jóhannesson, f. 4. apríl 1884, d. 18. feb.1950. Þau eignuðust tvær dætur. 1) Þórdís Bakk- mann hjúkrunarfræð- ingur, f. 6. des. 1944, búsett í Hafnarfirði, maki Samson Jóhanns- son bifvélavirki, f. 7. júlí 1943. Synir þeirra eru Kristinn, f. 1. júní 1965, kona hans er Pálína Samúelsdóttir, f. 17. maí 1969, og eiga þau dótturina Þórdísi, f. 13. jan. 1995. Jóhann, f. 8. apríl 1969, kona hans er Þórunn Stefáns- dóttir, f. 30. sept. 1971. Þeirra börn eru Ingibjörg Ýr, f. 11. ág.1995, og Samson, f. 11. ág. 1997. Magni Þór, f. 23. júní 1970, kona hans er Krist- björg Leifsdóttir, f. 1. okt. 1969, og sonur þeirra er Máni Þór, f. 22. maí. 2000. 2) Auður framkvæmdastjóri, f. 17. ágúst 1946, búsett í Kópavogi. Sonur hennar og Hreiðars Árna- Ég veit að vorið kemur, og veturinn líður senn. Kvæðið er um konu, en hvorki um guð né menn. Ég bý að brosum hennar og blessa hennar spor, Því hún var mild og máttug og minnti á – jarðneskt vor. (Davíð Stef.) Magndís Magnúsdóttir, tengda- móðir mín, lést eftir um það bil mán- aðar sjúkdómslegu, en hún hafði um nokkurn tíma glímt við fylgikvilla ellinnar og hafði orð á að hún væri tilbúin til að ljúka lífsgöngu sinni hérna megin. Magga var mjög trúuð og það var enginn efi í hennar huga að hennar biði framhald eftir þetta líf. Magga Magg eins og hún kynnti sig og var ávallt kölluð af samferða- fólki sínu var ákaflega glaðlynd og skemmtileg og hreif alla með sér, en undir bjó staðfesta og alvara. Hún var mjög félagslynd og tók virkan þátt í ýmsum félögum og var ávallt tilbúin í slaginn þegar fólk vildi koma saman til að skemmta sér, þar sem hún var ævinlega hrókur alls fagn- aðar. Magga hafði sérstakt yndi af söng og dansi, á heimili hennar var mikið sungið. Oft var brugðið undir sig betri fætinum, dansspor tekið í eldhúsinu eða stofunni, eða hvar sem var og þurfti lítið tilefni til, kannski bara fjörugt harmonikulag í útvarp- inu. Það er eftirminnilegur tími þegar fjölskylda mín dvaldi um jól fyrir vestan, en það gerðum við um árabil. Þá var sólarhringnum snúið við eins og oft vill verða um hátíðar. Magga hafði góðan frásagnarhæfileika svo unun var að hlýða á frásagnir hennar og hún kunni ógrynni af vísum og kvæðum svo undrun sætti. Margar af þessum vísum höfðu orðið til í fisk- vinnunni í gamla daga, þegar menn voru að gantast og þá væntanlega til að létta sér erfiðisvinnuna. Davíð Stefánsson skáld var henni einkar hugleikinn og notaði hún oft á tíðum tilvitnanir í ljóð hans þegar henni fannst ástæða til að auðga mál sitt. Þá gat hún mælt af munni fram heilu ljóðabálkana eftir Davíð okkur til skemmtunar. Magga fæddist á Innri-Bakka í Tálknafirði og ólst þar upp til sjö ára aldurs, en þá missti hún föður sinn. Móðir hennar, Þórdís Guðmunds- dóttir, varð að bregða búi og fluttist til Patreksfjarðar, þar sem hún bjó börnum sínum nýtt heimili. Þórdís sýndi einstakan dugnað og ákveðni gagnvart yfirvöldum í sveit sinni þegar hún neitaði að láta börnin frá sér og flutti til Patreksfjarðar, en á þeim tíma var það venja að leysa upp heimilin þegar annar makinn féll frá. Á þessum tíma var engin félagsleg aðstoð eins og tíðskast í dag, þess vegna reyndi mikið á dugnað og út- sjónarsemi til að komast af. Vafa- laust hefur sú reynsla að alast upp hjá einstæðri móður kennt henni að fjölskyldur þurfa að standa saman ef vel á að ganga, að rækta fjölskyldu- bönd stórfjölskyldunnar var hún sér- fræðingur í. Samband hennar við systkini sín og frændgarð fyrir vest- an var alla tíð mjög náið þar sem virðing og væntumþykja einkenndi samskipti þeirra. Magga bar velferð annarra fyrir brjósti, sérstaklega þeirra er minna máttu sín í lífinu. Þeir voru ófáir sem leituðu til hennar og hún aðstoðaði með ýmsum hætti. Hún minntist uppvaxtaráranna með mikilli gleði þrátt fyrir að hafa þurft að leggja hart að sér, en snemma fór hún að vinna í fiskvinnu sem var aðalatvinnan á Patreksfirði eins og víða annars staðar. Seinna fór hún í vist sem kallað var, og um tíma vann hún við matseld í hvalstöð- inni á Suðureyri í Tálknafirði. Magga var komin um þrítugt þeg- ar leiðir hennar og Kristins Jónsson- ar frá Arnarstapa í Tálknafirði lágu saman, en Kristinn var þá nýlega kominn frá Akureyri þar sem hann hafði verið við nám í Gagnfræðaskóla Akureyrar undangengin ár, en verið á síldveiðum á sumrin. Þau gengu í hjónaband 21. júlí 1944 og stofnuðu heimili sitt á neðri hæð í húsi Frið- riks bróður Möggu. Árið 1952 fluttu þau í nýbyggt hús sitt á Urðargötu 26 og bjuggu þar öll sín athafnaár. Um þessar mundir var Kristinn að stíga sín bernskuspor í útgerð, hafði keypt bát ásamt félaga sínum. Með- fram heimilisstörfum vann Magga að útgerð og fiskvinnslu þeirra hjóna og studdi mann sinn með ráðum og dáð. Hjónaband Möggu og Kristins var sérstaklega hamingjusamt og gæfu- ríkt. Ástúð, tillitssemi og gagnkvæm virðing einkenndi samband þeirra og viðmót. Það þarf engan að undra að heimili þeirra væri með eindæmum gestkvæmt, því viðmót þeirra og gestrisni var einstök og munaði um dugnað Möggu við móttöku gest- anna, þar sem hún lét sig ekki muna um að baka heilu staflana af hveiti- kökum, kleinum, vínarbrauðum o.fl. Það er til marks um dugnað hennar og alúð hvernig henni tókst að græða upp urðina kringum húsið sitt svo úr varð fallegur unaðsreitur. Þegar leið að efri árum og starfs- getan að dvína fluttu þau til Hafn- arfjarðar. Þar undu þau hag sínum vel í návist fjölskyldu sinnar og vina. Nú þegar leiðir skilur um stund vil ég þakka Möggu um 40 ára sam- fylgd. Ég vil þakka henni alla þá ást, umhyggju og ósérhlífni sem hún alla tíð sýndi okkur hjónum, sonum, tengdadætrum og barnabörnum. Mér finnst það hafa verið gæfa mín þegar ég ungur maður var boð- inn velkominn í fjölskylduna þegar ég kom til þeirra með tilvonandi eig- inkonu minni, Þórdísi dóttur þeirra hjóna. Þar kynntist ég fljótlega hversu opinská, einlæg og hreinskil- in samskipti þeirra hjóna og dætra þeirra voru. Frá fyrstu tíð hefur mér verið tekið eins og ég væri sonur þeirra. Þegar ég lít til baka finnst mér að Magga, með sinni jákvæðu lífssýn, hafi mótað ýmis viðhorf mín til góðs. Þrátt fyrir sjúkdóma sem oft fylgja háum aldri og hnignandi getu til athafna daglegs lífs hlotnaðist Möggu sú gæfa að geta búið með fullri reisn í íbúð á Hrafnistu í Hafn- arfirði ásamt Kristni manni sínum. Allt fram á síðasta dag naut hún nærveru hans, umhyggju og ástúðar. Starfsfólki hjúkrunardeildar 3b eru færðar sérstakar þakkir fyrir frábæra hjúkrun sem veitt var af hlýju og nærfærni. Blessun fylgi minningu Möggu Magg. Samson Jóhannsson. Amma mín Magndís Magnúsdótt- ir hefur nú kvatt þennan heim níræð að aldri. Eftir sitja ljúfar minningar um konu sem aldrei varð misdægurt og aldrei lét verk úr hendi falla. Ömmu kynntist ég vel en í 12 sumur dvaldi ég hjá henni og afa á Patreks- firði á Urðargötu 26. Það var spenn- ingur í hvert sinn sem einkenndi heimsóknir mínar til þeirra öll þessi sumur og í minningu eru þau sveipuð ævintýraljóma. Fyrstu sumrin hjá þeim fóru í leik og íþróttir en síðar meir í að afla tekna og vinna. Afi Kristinn Jónsson, eða Kiddi á Bakka eins og hann er oft nefndur, rak út- gerð þar sem róið var eftir grá- sleppu, hörpudisk, steinbít eða þorski, allt eftir því hvað tíðarfarið gaf af sér. Það kom í hlut ömmu að halda mannskapnum, sem hjá hon- um starfaði, í fæði og stundum klæði og var því oft margt um manninn á heimili þeirra. Ég minnist fjölda síðdegiskvölda þegar við amma og afi sátum við stofugluggann á Urðargötunni, spil- uðum rússa eða manna og spjölluð- um um heima og geima. Amma var yfirleitt ekki mikið að velta sér upp úr heimsmálunum og aldrei talaði hún neikvætt um aðra. Fjölskyldan var henni allt og segja má að hún hafi hugsað um barnabörn sín öll sem sín eigin. Fyrir mig var hún í móðurhlut- verkinu öll þessi sumur en kannski myndu ekki allir telja að uppeldis- fræði hennar gengi upp í dag. Orð eins og þetta má ekki, þetta er bann- að, eða gerðu þetta aldrei aftur voru ekki til í hennar orðaforða en í stað- inn leiðbeindi hún með góðmennsku sinni. Vissulega var hún mishrifin af sumu því sem við frændurnir, sem hjá henni dvöldum, tókum okkur fyr- ir hendur. Sérstaklega fannst henni ótækt að við færum á sjó með afa. Hræðsla hennar við sjóinn var skilj- anleg enda fá ef nokkur sjávarpláss sem ekki hafa þurft að greiða sinn toll af vályndum veðrum í gegnum tíðina. Hún gaf þó eftir, en í hvert sinn sem lagt var úr höfn bað hún okkur að fara varlega og koma fljótt heim. Allt frá því ég man eftir mér var amma fyrst á fætur á morgnana og MAGNDÍS MAGNÚSDÓTTIROkkar hjartkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSLAUG SIGGEIRSDÓTTIR húsfreyja, Skaftahlíð 14, Reykjavík, lést á Landspítalanum Landakoti föstudaginn 3. janúar. Útför hennar verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 10. janúar og hefst athöfnin kl. 13.30. Kolfinna Gunnarsdóttir, Sigurður H. Friðjónsson, Jón G. Friðjónsson, Herdís Svavarsdóttir, Ingólfur Friðjónsson, Sigrún Benediktsdóttir, Friðjón Örn Friðjónsson, Margrét Sigurðardóttir, sonabörn og aðrir aðstandendur. Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar og afi, HREINN SNÆVAR HJARTARSON, Hólmgarði 26, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 3. janúar sl. Útför hans verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 8. janúar kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á minningarsjóð hjúkrunar- þjónustunnar Karitasar, (s. 551 5606). Sólbjört Kristjánsdóttir, Arna Hreinsdóttir, Snævar Hreinsson, Vilhjálmur Thomas og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, LILJA BJÖRNSDÓTTIR, áður til heimilis í Rofabæ 29, lést á elliheimilinu Grund föstudaginn 3. janúar. Ragnheiður Th. Andersson, Hrafnhildur Þorgrímsdóttir, Björn Ingi Þorgrímsson. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR FRIÐRIK JÓNSSON fyrrverandi lögregluþjónn, Hringbraut 50, Reykjavík, lést á elliheimilinu Grund föstudaginn 3. janúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 13. janúar kl. 13.30. Júlíus Sigurðsson, Jóhanna Ellý Sigurðardóttir, Sigurður Sigurðsson, Guðríður Einarsdóttir, Jórunn Sigurðardóttir, Sigurður K. Eggertsson, Sigrún Sigurðardóttir, Gísli Már Gíslason, Jón Sigurðsson, Jónína Arnardóttir, Hilmar Steinar Sigurðsson, Þórdís Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, JÓN STEFÁN HANNESSON byggingameistari, Bollasmára 6, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi, mánudaginn 6. janúar. Droplaug Benediktsdóttir, Benedikt Jónsson, Hannes Jónsson, Kristjana Jónsdóttir, Andrea Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.