Morgunblaðið - 07.01.2003, Page 1
2003 ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
HVAÐ SEGJA GAMLIR REFIR UM LANDSLIÐIÐ? B2, B3
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS
Kristján sagði við Morgunblaðið í gær aðhann hefði verið í miklu sambandi við
Danina að undanförnu. „Það eru mjög spenn-
andi hlutir að gerast í dönskum kvennahand-
bolta, félögin hafa góð fjárráð, áhuginn er mik-
ill og margir leikir sýndir í sjónvarpi.
Skovbakken/Brabrand ætlar sér stóra hluti
næsta vetur, liðið er sem stendur í fallsæti en
hefur styrkt sig mikið og kemst örugglega það-
an, og mun væntanlega leika undir nafni Århus
í framtíðinni. Danirnir hafa þrýst mjög á mig
um að svara tilboði þeirra en ég er fjölskyldu-
maður og þarf því að huga að ýmsu áður en ég
tek endanlega ákvörðun. Ég ætla því að gefa
mér lengri tíma,“ sagði Kristján. Haslum hefur
vegnað mjög vel undir stjórn Kristjáns í vetur.
Félagið lék í 1. deild fyrir áramót en vann sér
sæti í „millispili B“ og er þar í góðri stöðu. „Við
eigum góða möguleika á öðru tveggja efstu
sætanna og förum þá í úrslitakeppni með úr-
valsdeildarliðunum um norska meistaratitilinn,“
sagði Kristján.
Bækkelaget er í basli um þessar mundir, sit-
ur á botni úrvalsdeildarinnar. „Félagið hefur
bætt fjárhagsstöðu sína og er að fá til sín
sterka leikmenn, en það er sísti kosturinn af
þessum þremur að taka við Bækkelaget,“ sagði
Kristján Halldórsson.
GUÐRÚN Sigurðardóttir úr Sundfélagi Hafn-
arfjarðar fékk Sjómannabikarinn á Nýárssundi
fatlaðra barna og unglinga sem nú var haldið í
20. sinn. Guðrún fékk 629 stig fyrir 50 metra
baksund sem hún synti á 42,48 sekúndum.
Jóna Dagbjört Pétursdóttir úr ÍFR varð
önnur með 484 stig fyrir 50 metra flugsund
sem hún synti á 46,12 sekúndum og Hulda
Hrönn Agnarsdóttir, Íþróttafélaginu Firði í
Hafnarfirði, varð þriðja með 447 stig fyrir 50
metra bringusund sem hún synti á 1.01,22.
Sjómannabikarinn er bikar sem Sigmar Óla-
son, sjómaður á Reyðarfirði, gaf til þessa móts
fyrir tveimur áratugum.
Þrjú Íslandsmet féllu á mótinu. Jóna Dag-
björt setti Íslandsmet þegar hún synti 50
metra baksund á 45,14 sekúndum. Pálmi Guð-
laugsson, Firði, setti tvö Íslandsmet, fyrst er
hann synti 50 metra baksund á 1.02,18 og síð-
an þegar hann synti 50 metra með frjálsri að-
ferð á 45,13.
Á myndinni eru Jóna Dagbjört, Guðrún og
Hulda Hrönn ásamt Kristínu Rós Hákonardótt-
ur.
Morgunblaðið/Sverrir
Guðrún hlaut Sjó-
mannabikarinn Kristján á leið
til Danmerkur?
KRISTJÁN Halldórsson handknattleiksþjálfari, sem stýrir karlaliði Haslum í Noregi, er með
þrjú tilboð í höndunum. Danska félagið Skovbakken/Brabrand vill fá hann til að taka við
kvennaliði sínu fyrir næsta tímabil, Haslum vill halda honum og þá hefur honum verið boðið
að taka við kunnasta kvennaliði Noregs, Bækkelaget.