Morgunblaðið - 09.01.2003, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
ótt þeir Jón Ásgeir Jóhannesson,
Hreinn Loftsson og Þorsteinn
Már Baldvinsson hafi orðið undir
þegar Straumur seldi Lands-
bankanum hlutabréf sín í Trygg-
ingamiðstöðinni og þar með misst
af tækifærinu til að ná undirtök-
unum í TM voru þeir félagar síður en svo af baki
dottnir og lögðu næst til atlögu við Fjárfesting-
arfélagið Straum, sem þeir reyndu að yfirtaka,
og gáfust ekki upp við þær tilraunir fyrr en í
fulla hnefana í ágúst í sumar.
Það var Bjarni Ármannsson sem fékk þá
hugmynd að stofna sérstakt fjárfestingarfélag á
grunni gamla Hlutabréfasjóðsins hf., eða öllu
heldur umbreytingafélag, Fjárfestingarfélagið
Straum, sem hefði sterka eiginfjárstöðu, þar
sem hugsunin væri sú að félagið keypti í skráð-
um og óskráðum félögum og ætti í þeim tíma-
bundið og seldi svo, þegar verðið væri hagstætt.
Straumur var svo stofnaður í ársbyrjun 2001 að
undirlagi Bjarna Ármannssonar. Ástæða þess
að hugmyndin féll í frjóan jarðveg var ekki síst
sú, að talið var að rými væri á markaðnum hér á
landi fyrir slíkt félag, en ekkert annað félag var
í svipaðri starfsemi hér á landi. Síðan þetta var
hafa tvö slík umbreytingafélög, Afl og Atorka,
verið stofnuð.
Umbreytingafélög
Hugsunin á bak við umbreytingafélag eins og
Straum er m.a. að kaupa fyrirtæki á lágu verði,
umbreyta þeim og selja svo á háu verði. Það
tíðkast líka í slíkum umbreytingafélögum að
selja t.d. fasteignirnar sem félögin eru í, en
halda eftir rekstri, eða selja reksturinn einnig.
Þegar staðan er metin hagstæð fyrir sölu á
nýjan leik eru fyrirtækin eða félögin ýmist seld í
hlutum, einstakar rekstrareiningar eða að öllu
leyti, allt eftir því hvað umbreytingafélagið met-
ur hagkvæmast hverju sinni – þ.e.a.s. hag-
kvæmast fyrir sig og sína fjárfestingu, ekki
endilega hagkvæmast fyrir félagið sem á hugs-
anlega að leysa upp og selja sem stykkjavöru.
Bjarni kynnti hugmynd sína fljótlega fyrir
þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Þorsteini
Má Baldvinssyni og fékk fljótt stuðning þeirra,
en þeir sáu meðal annars möguleika í því að eiga
aðild að slíku fjárfestingarfélagi, sem gæti jafn-
vel stutt þá í þeim fjárfestingum sem þeirra fyr-
irtæki stóðu fyrir, auk þess sem þeir töldu að í
höndum réttu mannanna gæti fjárfesting í fé-
lagi eins og Straumi verið arðsöm, jafnvel mjög
arðsöm.
Þórður Már Jóhannesson hóf svo í ársbyrjun
2001 störf sem framkvæmdastjóri Straums,
sem reyndar hét þá enn Hlutabréfasjóðurinn
hf. Þórður var áður starfandi hjá Kaupþingi,
rétt eins og Bjarni Ármannsson áður en hann
var ráðinn bankastjóri FBA 1997, en það var
einmitt Bjarni sem réð Þórð Má til Kaupþings,
þar sem hann starfaði sem deildarstjóri inn-
lendra hlutabréfa. Auk þess þekkjast þeir Þórð-
ur Már og Bjarni frá því í bernsku, þeir eru báð-
ir ofan af Skaga, Bjarni fimm árum eldri en
Þórður Már. Bjarni réð miklu, sennilega öllu,
um að Þórður var ráðinn.
Hluthafar upphaflega um 7.700
Straumur er stofnaður á grundvelli Hluta-
bréfasjóðsins hf., sem var um 4,3 milljarðar
króna og um 7.700 hluthafar áttu um 40% í
sjóðnum. Aðrir stórir hluthafar voru FBA
Eignarhaldsfélag ehf., Fjárfestingarfélagið
Straumur hf., Birgðir VÍB, Gísli Gestsson og Ís-
landsbanki.
Við stofnun var strax ákveðið að fara í útgáfu
á nýju hlutafé, að upphæð einn milljarður að
nafnvirði, en söluvirði var 2,8 milljarðar króna,
þannig að félagið var með eigið fé upp á 7,1
milljarð króna að loknu hlutafjárútboðinu.
Eftir útgáfu nýs hlutafjár um mitt ár 2001,
nánar tiltekið 29. júní, voru 10 stærstu hlut-
hafar í Straumi:
Íslandsbanki með 20,11%, Fjárfar ehf. (félag
í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Jóhannesar
Jónssonar, Sævars Jónssonar og hóps fjárfesta)
10,17%, Eignarhaldsfélagið ISP ehf. (félag í
eigu Ingibjargar Stefaníu Pálmadóttur, sam-
býliskonu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar) 3,57%,
Kaldbakur hf. (eignarhaldsfélag í eigu KEA,
Þorsteins Más Baldvinssonar, Lífeyrissjóðs
Norðurlands og fleiri) 3,57%, Fjárfestingar-
félagið Straumur hf. 2,99%, Dúkur hf. (í eigu
Baugs) 2,70%, Saxhóll (í eigu Nóatúnsfjölskyld-
unnar) 2,57% og Fjárfestingarfélagið Gaumur
hf. (í eigu Jóhannesar Jónssonar, 20%, barna
hans, Jóns Ásgeirs, 45%, og Kristínar, 10%, og
móður þeirra, Ásu Ásgeirsdóttur, 20%) 2,52%.
Yfir 60% félagsins eru í eigu 10 stærstu hlut-
hafanna, eins og staða mála er í dag, og þeir sem
verða stærstir í Straumi eftir að búið er að selja
bréf félaga, sem tengjast þeim Jóni Ásgeiri og
Þorsteini Má, eru Íslandsbanki, Straumur,
Sjóvá-Almennar, Skeljungur og Saxhóll.
Í dag er eigið fé félagsins um 8,5 milljarðar
króna og hefur vaxið um 1,4 milljarða króna á
einu og hálfu ári, þrátt fyrir 1,2 milljarða króna
tap á árinu 2001, þannig að um er að ræða um-
skipti upp á 2,6 milljarða króna.
Lokaátökin stóðu
um Straum
ÞEGAR LÍÐA TÓK Á SUMARIÐ 2002 VORU JÓN ÁSGEIR JÓ-
HANNESSON OG ÞORSTEINN MÁR BALDVINSSON ORÐNIR
ÞESS FULLVISSIR AÐ ÞEIR OG VIÐSKIPTAFÉLAGAR
ÞEIRRA VÆRU KOMNIR MEÐ RÁÐANDI EIGNARHLUT Í
FJÁRFESTINGARFÉLAGINU STRAUMI. ÞEGAR UPPVÍST
VARÐ AÐ ANNAR AÐALBANKASTJÓRI BÚNAÐARBANK-
ANS, ÁRNI TÓMASSON, HAFÐI GERT LEYNISAMNING VIÐ
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON UM SAMSTARF VARÐ SNARP-
UR VIÐSKIPTAJARÐSKJÁLFTI Í ÍSLANDSBANKA, SEM
LYKTAÐI MEÐ ÞVÍ AÐ BÚNAÐARBANKINN EFNDI EKKI
SAMNING SINN VIÐ JÓN ÁSGEIR. VIÐ SVO BÚIÐ ÁKVÁÐU
ÞEIR JÓN ÁSGEIR OG ÞORSTEINN MÁR BALDVINSSON AÐ
HÆTTA SLAGNUM OG ÞAR MEÐ LAUK Í RAUN ÞRIGGJA
ÁRA BARÁTTU UM VÖLDIN Í ÍSLANDSBANKA.
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Baráttan um Íslandsbanka
Eftir Agnesi Bragadóttur