Morgunblaðið - 09.01.2003, Blaðsíða 24
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
24 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is
TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 310 KR / STK.
Tilboðið gildir til 31. janúar 2003
Pilot Super Grip kúlupenni
Verð 75 kr/stk
NOVUS B 200
gatar 10 blöð.
Verð 363 kr
NOVUS B4 heftari
heftar 40 blöð.
Verð 1.700 kr Borðmotturnar frá Múlalundi
Geisladiskar
í miklu úrvali
RÁÐGERT er að opna 40 herbergja
hótel í gamla Alþýðuhúsinu á horni
Hverfisgötu og Ingólfsstrætis.
Framkvæmdir eru nú í fullum
gangi og fjölmargir iðnaðarmenn að
störfum í húsinu.
Að sögn eiganda, framkvæmda-
raðila og hönnuðar hótelsins, Ingi-
bjargar Pálmadóttur, er ekki unnt
að gefa upp að svo stöddu hvenær
hótelið verður opnað en það verður
að líkindum á næstu mánuðum.
Hótelið verður á sex hæðum og
þar verður veitingastaður og bar
með útsýni sem veit að stjórnar-
ráðshúsinu.
Ýmis starfsemi hefur verið í hús-
inu á undanförnum áratugum. Með-
al annars var Alþýðublaðið þar til
húsa og Hagstofan og Skattstofan.
Á neðstu hæð hússins hafa
löngum verið veitingastaðir og
klúbbar, s.s. Ingólfscafé og Arnar-
hóll.
Morgunblaðið/Þorkell
Áður en langt um líður verður opnað hótel í gamla Alþýðuhúsinu.
40 herbergja hótel opn-
að á næstu mánuðum
Miðborg
NÝLEGA var sagt frá því að tísku-
vöruverslunin Top Shop í Lækj-
argötu væri að hætta og gert væri
ráð fyrir að versluninni yrði lokað að
loknum útsölum um miðjan febrúar.
Ekki er ljóst hvaða starfsemi verður
í húsnæðinu í framtíðinni.
Á haustmánuðum flutti skyndi-
bitastaðurinn McDonalds sig úr
Hressingarskálanum og var m.a.
haft eftir eiganda Lystar ehf., sem
rekur McDonalds-veitingastaðina, að
það væri einfaldlega staðreynd að
fólki væri að fækka í miðborginni auk
þess sem bílastæði væru fá og dýr.
Kornelíus Jónsson úrsmiður, sem
rekur úra- og skartgripaverslun í
Bankastræti, segir að miðborgin sé
hægt og bítandi að breytast í
„draugabæli“, hið opinbera sýni mið-
borginni lítið aðhald og framboð af
verslunum og þjónustu í miðborginni
fari minnkandi og hafi gert um nokk-
urn tíma. Hann hefur rekið úraversl-
un í yfir 60 ár, lengst af á Skóla-
vörðustíg en frá 1968 hefur hann
jafnframt rekið verslun í Banka-
stræti og árið 1999 flutti hann rekst-
urinn alfarið þangað. Hann hefur því
upplifað ýmislegt í verslunarrekstri.
Séð verslanir koma og fara og enn
aðrar koma í staðinn.
Kornelíus er til dæmis óhress með
svimandi háar stöðumælasektir sem
viðskiptavinir verslana sitja uppi
með. Hann bendir á að áður fyrr hafi
ökumenn sett 50 krónur í stöðumæl-
inn sem hafi dugað drjúgan tíma og í
raun hafi þeir ekki getað valið um
annað. Í dag geti fólk sett 10 og 20
kr. í mælana líka og setji þá kannski
minna í þá fyrir vikið, komi inn í
verslun til sín og bíði tvístígandi eftir
afgreiðslu, þegar svo ber undir, og
vilji helst fá hana strax.
„Þetta stuðar fólk, það lætur
skipta um batterí í úrinu fyrir 700
krónur og borgar svo 1.500 krónur í
stöðumælasekt í leiðinni.“
Kornelíus tekur fram að sér líði vel
í miðbænum og hafi liðið vel þar alla
tíð. Engu að síður er hann uggandi
um framtíð miðborgarinnar, mörg
stöndug fyrirtæki hafi horfið úr bæn-
um og nýjasta dæmið, brotthvarf
Top Shop, sé bara eitt af mörgum
dæmum.
Verslunarsvæði – ekki ölsvæði
Þórir Sigurbjörnsson kaupmaður
hefur rekið verslunina Vísi við
Laugaveg 1 í yfir 40 ár en verslunin
er mun eldri, stofnuð árið 1915, og
hefur alla tíð verið til húsa á sama
stað. Hann hefur séð ófá fyrirtækin
og stofnanir í miðbænum hverfa á
braut og keppinauta sömuleiðis.
Hann minnist þess þegar Fé-
lagsprentsmiðjan, Ísafoldarprent-
smiðja og Gutenberg voru allar í
miðbænum, Skattstofan og Alþýðu-
blaðið voru í gamla Alþýðuhúsinu á
horni Hverfisgötu og Ingólfsstrætis
og þrír bankar í Bankastræti. Kaup-
maðurinn á hinu horninu er sömu-
leiðis farinn.
„Auðvitað lagar maður sig að
breyttum aðstæðum,“ segir Þórir.
Hann segir að þau þjónustufyrirtæki
sem eftir séu í miðborginni og hafi
verið þar lengi eigi þó flest sam-
merkt að eigendur þeirra séu stað-
ráðnir í að halda rekstrinum áfram.
Hann segir skelfilegt að horfa upp á
það á sama tíma að einu fyrirtækin
sem fylli skarð þjónustufyrirtækja
sem hverfi á brott úr miðborginni
séu veitinga- og skemmtistaðir.
Hann heyri það á fólki að það vilji
ekki sjá miðborgina þróast í þá átt
sem hún sé að gera og sjálfur vill
hann sjá miðborgina fyrst og fremst
sem verslunarsvæði en ekki „öl-
svæði“.
Landsbyggðarpólitík
Thorvaldsensfélagið hefur starf-
rækt verslun í Austurstræti frá árinu
1901. Kristín Ruth Fjólmundsdóttir
verslunarstjóri segir að það skorti al-
veg stemmninguna í miðbænum.
Mikið af ferðamönnum sem komi í
verslunina spyrji hvort Austurstræti
sé ekki verslunargata og lýsi yfir
undrun á því hversu fáar verslanir
séu í sjálfri miðborginni.
„Það þarf að byrja á að finna bíla-
stæði og borga í stöðumæli,“ segir
Kristín og segir að viðskiptavinum sé
alls ekki auðvelduð aðkoman að
verslunum í miðborginni og sama
gildi í raun um kaupmenn sjálfa sem
sé ekki ívilnað með íbúakortum eða
afslætti vilji þeir á annað borð leggja
biðfreiðum sínum í grennd við vinnu-
staðinn á morgnana.
„Hvað mig snertir þá hef ég ekki
getað lagt nær miðbænum en uppi á
Landakoti,“ segir Kristín. „Ég hef
kallað þetta landsbyggðarpólitík í
miðborginni, þennan flótta verslana
úr henni,“ segir hún og bendir á að
augljóslega skorti á vilja borgaryf-
irvalda til að sporna við þróuninni.
Inn á milli séu þó merki um jákvæðar
breytingar, meðal annars uppbygg-
ing Höfuðborgarstofu í gamla Geysi-
shúsinu og hóteluppbygging í Aðal-
stræti sem muni væntanlega stuðla
að fjölgun ferðamanna á svæðinu.
Verslun komi í stað Top Shop
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
borgarfulltrúi R-lista, sem sæti átti í
miðborgarstjórn sem skipuð var árið
1999, segir mjög æskilegt að áfram
verði verslun eða þjónustustarfsemi í
Top Shop-húsinu, önnur en veit-
ingarekstur. Miðborgarstjórn starf-
aði fram á mitt síðasta ár undir for-
ystu Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur borgarstjóra og hafði það
verkefni með höndum að vinna að því
að efla miðborg Reykjavíkur.
Steinunn segir að reynt hafi verið
að tryggja að veitingaaðilar kæmu
ekki inn í verslunarpláss þar sem
hefðbundin verslun legðist af.
Samkvæmt þróunaráætlun mið-
borgarinnar sé gert ráð fyrir að á
skilgreindum götusvæðum megi ein-
ungis vera tiltekið hlutfall af veit-
ingastöðum. Þessari reglu hafi verið
beitt þegar sótt var um að opna veit-
ingastað í Lækjargötu þar sem versl-
unin 66°N er nú til húsa. Þá hafi
þessari reglu einnig verið beitt á
Laugavegi. Hún segist þeirrar skoð-
unar að ef borgin haldi ekki fast við
áætlunina muni allt verslunarpláss
fljótlega fyllast af veitingastarfsemi.
Betri skilyrði næsta sumar
Kristín Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri miðborgar, segir það
auðvitað mikið áhyggjuefni þegar
verslanir hætti rekstri í miðborginni.
Við sömu þróun hafi einnig verið að
glíma erlendis og því hafi borgaryf-
irvöld víða lagt aukna áherslu á mið-
borgina og sett hana í forgang hvað
varðar hreinsun og endurnýjun
gatna og lagfæringar af ýmsu tagi.
Kristín bendir á að í fyrra hafi ver-
ið samþykkt að lækka gatnagerð-
argjöld og dregið hafi verið úr kröf-
um um fjölda bílastæða sem
húsbyggjendur þurfa að gera ráð
fyrir á miðborgarsvæðinu. Með al-
mennum aðgerðum á borð við þessar
hafi því verið reynt að stuðla að því
að húsbyggjendur og verslunarrek-
endur sæju hag í því að standsetja
verslanir í miðborginni.
Hún segir að það hafi komið sér
mjög á óvart að Top Shop-verslunin
skuli vera á leið úr miðbænum, enda
verslunin á besta stað í bænum
„Við höfum verið að reyna að snúa
vörn í sókn með þróunaráætlun mið-
borgar sem var samþykkt í lok árs
2000. Það er verið að vinna að henni
og liður í því er að nú er verið að sam-
þykkja deiliskipulag fyrir miðborg-
ina. Þá ættu að vera möguleikar á
uppbyggingu,“ segir Kristín.
Hún segir deiliskipulagsvinnu
langt komna og að næsta sumar ættu
skilyrði fyrir uppbyggingu að vera
orðin betri. „Ég hef líka trú á að
áhersla á uppbyggingu íbúðar-
húsnæðis í nágrenni miðborgarinnar
muni efla miðborgina sjálfa. Þetta
tekur bara allt tíma. Það er það sem
er vandamálið.“
Jafn margir sækja miðborgina
Að sögn Kristínar gætir mjög já-
kvæðs viðhorfs meðal landsmanna í
garð miðborgarinnar og viðhorf
landsmanna endurspeglast í við-
horfskönnunum sem Reykjavík-
urborg lætur Gallup vinna fyrir sig
reglulega. Samkvæmt sömu könn-
unum hefur ekki dregið úr heim-
sóknum í miðborgina á síðustu miss-
erum en verslun hefur dregist saman
og áberandi margir koma í miðborg-
ina að sama skapi til að skoða sig um.
„Það er margt fólk sem kemur í
miðborgina. Ég hef miklu meiri
áhyggjur af því að verslunum fer
fækkandi.“
Um bílastæðavanda miðborg-
arinnar segir Kristín að stöðugt sé
reynt að bæta úr honum, m.a. með
því að fjölga bílastæðum. Hún bendir
á að bílastæðahúsin séu gjaldfrí á
laugardögum en fáir noti þau, sem sé
undarlegt í ljósi þess að á sama tíma
heyrist gagnrýnisraddir um að
skortur sé á bílastæðum í miðborg-
inni.
Rótgrónir kaupmenn hafa sífellt meiri áhyggjur af flótta verslana og þjónustu frá miðborginni
Morgunblaðið ræddi við nokkra kaupmenn sem eru uggandi um
þróunina. Segja að miðborgin sé fyrir löngu full af veitinga- og
skemmtistöðum og lítið eftir af hefðbundnum verslunum og
þjónustu, sem íbúar í miðborginni kvarta sáran undan.
Miðborg
Blaðamaður og ljósmyndari nældu
sér í stöðumælasekt meðan þeir
ræddu við kaupmenn í miðborginni.
Kornelíus Jónsson úrsmiður
við verslunina í Bankastræti.
Morgunblaðið/Þorkell
Þórir Sigurbjörnsson, kaupmaður í Vísi.
Kristín Ruth Fjólmundsdóttir, verslunarstjóri í Thorvaldsens-bazar.
Staðráðnir í að halda
rekstrinum áfram