Morgunblaðið - 09.01.2003, Blaðsíða 25
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 25
Útsalahafin
Allt að 60% afsláttur
Nýtt kortatímabil í dag
Jakkar
Buxur
Pils
Skyrtur
Bolir
Toppar
Kápur
Fallegar vörur
Stærðir 32-46
InWear - Part Two - Jackpot
Opið til kl. 21 fimmtudaga
KRINGLUNNI - 588 0079
eva
Laugavegi 91, 2. hæð
sími 562 0625
ÚTSALA
hafin
nýtt kortatímabil
í dag
KRINGLUNNI, S. 568 9017
KRINGLUNNI
nýtt kortatímabil
í dag
allt að
50%
afsláttur
LAUGAVEGI 91, S. 511 1717
opið til kl. 21
ÚTSALA
hafin
HAUKUR Tryggvason, sem rekið
hefur skemmtistaðinn Við Pollinn
á Akureyri í rúm fjögur ár, hætti
um áramót þegar reksturinn var
seldur keppinaut, þ.e. rekstrarað-
ilum Oddvitans.
Veitingastaðurinn Pollurinn við
Strandgötu á Akureyri hefur verið
starfandi um árabil, en Gránu-
félagið átti húsnæðið. Félagið
missti eignir sínar á uppboð í lok
nóvember og keypti Landsbank-
inn þær og seldi strax að sögn
Hauks. Var honum í kjölfarið, eða í
byrjun desember sagt upp leigu-
samningi með þriggja vikna fyr-
irvara.
Veitingastaðurinn var auglýstur
til sölu á liðnu hausti, en kaupandi
fannst ekki á þeim tíma. „Ég vissi
að þetta var falt og hefði eflaust
mátt kynna mér betur hvaða kjör
voru í boði, en það kom gjörsam-
lega flatt upp á mig að staðurinn
skyldi seldur svo skyndilega,“
sagði Haukur. Hann hafði 15
manns í vinnu og sagði að upp-
sagnarfrestur þess væri að jafnaði
tveir mánuðir, „en ég er svo lán-
samur að mitt starfsfólk ætlar
ekki að krefjast launa fyrir þennan
tíma vegna þess hvernig að málum
var staðið.“
Lagði í umtalsverðan
kostnað vegna breytinga
Fyrir tveimur og hálfu ári hófst
Haukur handa við umfangsmiklar
breytingar á staðnum, opnaði upp
á ris og stækkaði staðinn og lag-
færði. Kostnaður við breytingarn-
ar nam um 5 milljónum sem Hauk-
ur sagði tapað fé. „Þetta þurrkast
bara út, ég á engan rétt, má taka
borð og stóla,“ sagði hann en engir
samningar haldi þegar eignir séu
seldar á uppboði.
Hann kvaðst afar óánægður
með hvernig málið bar að og hefði
kosið lengri uppsagnarfrest,
„bankinn hefði ekki tapað neinu þó
hann hefði leigt mér reksturinn
fram á sumar og gefið mér þannig
lengri frest,“ sagði Haukur, en
hann var búinn að bóka hljóm-
sveitir til að leika á staðnum fram
á vorið, auk þess sem hann hafði
leigt staðinn undir afmælis- og
fermingarveislur og aðra mann-
fagnaði nú á komandi mánuðum.
„Þessu var öllu kippt í burtu á
einni nóttu, ef svo má segja.“ Hann
sagði það einnig vissulega súrt í
broti að hafa ráðist í breytingar á
staðnum og lagt í þær umtalsvert
fé sem nú sé tapað, „það hefði ég
auðvitað aldrei gert hefði ég vitað
að mér yrði hent út svo skömmu
síðar,“ sagði Haukur. Hann sagði
viðbrögð bæjarbúa og gesta sinna
mikil við því hvernig mál hefðu
þróast.
Haukur sagði að hann myndi
halda áfram í veitingarekstri á Ak-
ureyri, hann væri að leita að heppi-
legu húsnæði undir skemmtistað
og það myndi væntanlega skýrast
innan tíðar hvað út úr því kæmi.
Hættir rekstri Pollsins eftir að
eignir voru seldar keppinaut
Öllu kippt burtu
á einni nóttu
BÚMENN afhentu skömmu fyrir
jól fyrstu íbúðirnar á nýju svæði
við Lindasíðu í Glerárhverfi. Alls
var um að ræða 8 íbúðir, flestar
rúmlega 90 fermetra að stærð
auk þess sem sumum þeirra
fylgir bílskúr. Íbúðirnar eru í
raðhúsum á einni hæð.
Bjarni Jónasson, formaður Bú-
manna á Akureyri, sagði að ætl-
unin væri sú að afhenda 9 íbúðir
í viðbót kringum næstu áramót,
2003–2004. „Framhaldið verður
svo skoðað eftir þá úthlutun,“
sagði Bjarni spurður um frekari
áform Búmanna varðandi íbúðar-
byggingar á Akureyri. Búmenn
eiga alls 24 íbúðir í bænum, en
auk þeirra 8 nýju íbúða við
Lindasíðu er félagið með 16 íbúð-
ir í Teigahverfi á Eyrarlands-
holti. Félagið á að sögn Bjarna
um 160 íbúðir í nokkrum sveit-
arfélögum. „Það eru allir ánægð-
ir með nýju íbúðirnar sínar, enda
eru þær alveg prýðilegar,“ sagði
Bjarni. Hann sagði Búmenn vera
félagsskap á landsvísu, þannig að
menn gætu flutt búseturétt sinn
milli landshluta kysu þeir svo.
Búmenn eru fyrir fólk 50 ára og
eldra.
Nýjar íbúðir
við Lindasíðu
SIGRÚN Björk Jakobsdóttir, for-
maður menningarmálanefndar Akur-
eyrarbæjar, segir að Listasafnið á
Akureyri fái ekki efstu hæð hússins
sem það er í við Kaupvangsstræti fyrr
en tekist hefði að finna handverks- og
tómstundamiðstöðinni Punktinum
annað húsnæði. Í viðtali við Hannes
Sigurðsson, forstöðumann Lista-
safnsins á Akureyri, í Morgunblaðinu
síðastliðinn sunnudag, kom fram að
draumur hans væri sá að safnið fengi
efstu hæð hússins til umráða, svo sem
lofað hefði verið.
Handverks- og tómstundamiðstöð-
in Punkturinn hefur verið þar til húsa
síðustu þrjú ár en að sögn Sigrúnar
fylgdi það loforð að miðstöðin fengi
umrætt húsnæði til umráða í fimm ár.
Hugmyndir hafa komið upp um að
Punkturinn færði sig um set yfir í
húsnæði gamla Barnaskólans þegar
byggt hefði verið við Brekkuskóla en
það verður ekki fyrr en árið 2005 sem
þeim framkvæmdum verður lokið. Þá
hafi komið fram hugmynd um að
flytja starfsemina á Bjarg en hún ekki
átt fylgi að fagna. „Við skoðum alla
möguleika á að finna húsnæði fyrir
Punktinn og að því loknu mun Lista-
safnið fá þessa hæð fyrir sig, þetta er
frábært húsnæði og mun sóma sér vel
sem listasafn,“ sagði Sigrún.
Húsnæði við Kaupvangsstræti
Punktinn út fyrir
Listasafnið
KVENFÉLAGIÐ Hjálpin í Eyja-
fjarðarsveit færði Kristnesspítala
75 þúsund króna peningagjöf í til-
efni 75 ára afmælis spítalans á dög-
unum. Peningunum skal varið til
kaupa á útivistarbekkjum. Kven-
félagið Hjálpin er arftaki hjúkr-
unarfélagsins Hjálparinnar í gamla
Saurbæjarhreppi en það var hjúkr-
unarfélagið sem beitti sér fyrir því
árið 1918 að hafin yrði fjársöfnun
um Norðlendingafjórðung til bygg-
ingar heilsuhælis fyrir Norðurland.
Hvatinn að þessari samþykkt var
að berklarnir herjuðu þá svo að
heilar fjölskyldur hrundu niður og
heimili sundruðust.
Sigríður Bjarnadóttir, formaður
Kvenfélagsins Hjálparinnar, af-
henti Ingvari Þóroddssyni, deild-
arlækni á Kristnesspítala, peninga-
gjöfina.
Hjálpin styrkir
Kristnesspítala
Hefðbundið áramótanámskeið Skák-
skóla Íslands fer fram á Akureyri
um komandi helgi, dagana 11. og 12.
janúar. Námskeiðið er haldið í sam-
starfi við Skákfélag Akureyrar og í
húsakynnum þess í Íþróttahöllinni.
Námskeiðið hefst kl. 11 11. janúar og
stendur til kl. 17.30 en á sunnudag frá
kl. 10 til 17.30. Aðalkennari verður
Helgi Ólafsson stórmeistari og skóla-
stjóri Skákskóla Íslands en honum til
halds og trausts verður Hannes Hlíf-
ar Stefánsson stórmeistari. Nánari
upplýsingar hjá Skákskólanum eða
Rúnari Sigurpálssyni.
Á NÆSTUNNI