Morgunblaðið - 09.01.2003, Síða 28
SUÐURNES
28 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FYRSTU loðnunni á þessari vertíð
var landað í Grindavík í gær. Vilhelm
Þorsteinsson EA lagði upp hjá verk-
smiðju Samherja hf. í gærmorgun og
eftir hádegið kom Þorsteinn EA
einnig til hafnar. Byrjað var að vinna
úr hráefninu í gær.
Vilhelm Þorsteinsson kom með
2.500 tonn og var verið að landa úr
honum fram á nótt. Þá átti að hefjast
vinna við löndun úr Þorsteini sem
kom með um 2.000 tonn. Bæði skipin
eru í eigu Samherja hf. eins og verk-
smiðjan í Grindavík.
Óskar Ævarsson, rekstrarstjóri
Samherja, var himinlifandi að fá
loðnu svona snemma árs. „Það er
ekki á hverju ári sem við fáum fyrsta
skammtinn svona snemma,“ segir
hann. Þessir fyrstu farmar til verk-
smiðjunnar í Grindavík eru um það
bil viku fyrr á ferðinni en fyrst hefur
verið áður. Á síðasta ári kom fyrsta
hráefnið til verksmiðjunnar 14. jan-
úar og á sama degi árið 2000. Óskar
segir að þar við bætist að veiðarnar
virðist byrja af heldur meiri krafti en
oft áður og var heldur bjartsýnn á
framhaldið.
30 tíma sigling til Grindavíkur
Skipin fengu loðnuna austur af
Vopnafjarðargrunni. Vilhelm veiddi
sinn afla í botnvörpu en sum skipin
voru með nót. Af miðunum er 30
klukkutíma sigling til Grindavíkur.
Mikill öldugangur var í innsigling-
unni til Grindavíkurhafnar þegar
Vilhelm Þorsteinsson kom þangað.
Vegna þess og erfiðra skilyrða fyrir
svo stór skip til að athafna sig í höfn-
inni beið skipið útifyrir í um tvo tíma
og sigldi síðan inn til hafnar á háflóð-
inu. Þorsteinn EA kom eftir hádegið
og sigldi beint inn. En hann þurfti að
bíða við aðra bryggju fram á nótt því
ekki var búist við að löndun úr Vil-
helm Þorsteinssyni lyki fyrr en um
miðja nótt.
Aflinn sem Vilhelm kom með er
fyrsta loðnan sem berst á land á Suð-
urnesjum á vertíðinni. Ekki er von á
loðnu til Sandgerðis fyrr en síðar í
mánuðinum.
Bræðsla hafin hjá fiskimjölsverksmiðju Samherja
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Landað var úr Vilhelm Þorsteinssyni við verksmiðju Samherja.
Tvö skip fyrsta daginn
Grindavík
EIGENDUR íbúðarhússins við Ara-
gerði í Vogum reikna með því að óska
eftir því að hreppsnefnd endurskoði
synjun á leyfi fyrir því að setja upp
myndbandaleigu í bílgeymslu húss-
ins. Oddviti hreppsins segir afstöðu
meirihluta hreppsnefndar óbreytta.
Félagsmálaráðuneytið telur að
staðfesting hreppsnefndar á fundar-
gerð skipulags- og byggingarnefndar,
þar sem leyfi fyrir myndbandaleig-
unni var hafnað, sé í andstöðu við
samþykkt um stjórn og fundarsköp
hreppsins og sveitarstjórnarlög. Rök-
in eru einkum þau að fundur skipu-
lagsnefndarinnar var haldinn kvöldið
fyrir hreppsnefndarfundinn og að
fundargerð hans fylgdi ekki fundar-
boði. Rétt er að taka fram og leiðrétta
að ráðuneytið ógilti ekki ákvörðun
hreppsnefndar, eins og það var orðað
í fyrirsögn fréttar blaðsins um málið í
gær, heldur telur ráðuneytið að af-
greiðsla hreppsnefndar geti ekki falið
í sér endanlega niðurstöðu málsins,
óski aðili eftir að hreppsnefnd endur-
skoði ákvörðunina.
Í bókun sem meirihluti hrepps-
nefndar lagði fram á fundi í fyrra-
kvöld er á það bent að fundargerð-
arinnar hafi verið getið í fundarboði
og að hún myndi berast hreppsnefnd-
armönnum á fyrirfram greindum
tíma sem sé innan þeirra tímamarka
sem þurfi fyrir aukafund. Það álit er
látið í ljós að ráðuneytið telji að með
strangri túlkun megi finna að formi
afgreiðslunnar og muni málið verða
tekið fyrir aftur, berist um það ósk frá
málsaðilum. Jafnframt er það tekið
fram að afstaða meirihluta hrepps-
nefndar liggi fyrir í málinu og vísað í
því efni til upphaflegrar staðfestingar
hreppsnefndar á fundargerð skipu-
lags- og byggingarnefndar.
Hreppsnefnd fól sveitarstjóra að
senda úrskurð ráðuneytisins til eig-
enda myndbandaleigunnar.
Myndbandaleigan hafði hafið starf-
semi í íbúðarhúsinu við Aragerði áður
en sótt var um leyfi fyrir henni í bíl-
geymslu hússins. Eftir að synjað var
um leyfið var henni breytt í mynd-
bandaklúbb og starfrækt þannig um
tíma. Halldór Ármannsson, annar
eigandi leigunnar, segir nú að búið sé
að loka afgreiðslunni og aðeins sinnt
einstaka pöntunum. Hann reiknar
með að sækja aftur um leyfi hjá
hreppsnefnd, ekki sé hægt að líða það
að meirihluti hreppsnefndar mismuni
íbúunum með þeim hætti sem hann
hafi gert og vísar í því efni til þess að
leyfi hafi verið veitt fyrir rafverkstæði
í öðru húsi við götuna á sama tíma og
hans umsókn var hafnað.
Jón Gunnarsson, oddviti Vatns-
leysustrandarhrepps, segir að bygg-
ingarnefnd hreppsins hafi synjað eig-
endum myndbandaleigunnar um
leyfið á sínum tíma eftir að áform eig-
endanna voru kynnt nágrönnum. Sú
ákvörðun hafi verið staðfest af meiri-
hluta hreppsnefndar. Segir Jón að
ekkert hafi komið fram sem breyti
þeirri afstöðu. Telur hann að ef erind-
ið verður lagt aftur fram fái það sömu
afgreiðslu og fyrr nema því fylgi ný
gögn sem breyti forsendum fyrri
ákvörðunar.
Ágreiningur um myndbandaleigu
Afstaða meiri-
hlutans óbreytt
Vogar
VERKTAKAR eru byrjaðir að und-
irbúa vinnu við tvöföldun Reykja-
nesbrautarinnar en framkvæmdir
hefjast eftir að fyrsta skóflu-
stungan hefur verið tekin en það er
áformað næstkomandi laugardag.
Jarðvinnuverktakarnir Háfell
ehf. og Jarðvélar sf. og bygginga-
félagið Eykt ehf. áttu lægsta tilboð í
fyrsta áfanga tvöföldunar Reykja-
nesbrautar. Auk lagningar nýs
tveggja akgreina vegar við hlið
hins gamla á rúmlega átta kíló-
metra kafla frá Hvassahrauni um
Afstapahraun og Kúagerði og upp
á Strandarheiði verða byggð tvenn
mislæg gatnamót, annars vegar í
Hvassahrauni og hins vegar við
Vatnsleysustrandarveg.
Búið er að koma upp vinnubúð-
um við Kúagerði og í gær voru
starfsmenn Háfells að grafa skurð
til að geta lagt vatn og rafmagn úr
búðunum að vinnustað við vegamót
Vatnsleysustrandarvegar.
Við verkið sem í heild er hið
stærsta sem fyrirtækið fæst við var
notað minnsta tæki fyrirtækisins,
3,5 tonna grafa. Fljótlega koma þó
alvöru tæki á staðinn en það
stærsta verður tæplega 70 tonn, að
sögn starfsmanns á staðnum, eða
um tuttugu sinnum stærra en graf-
an sem sést á myndinni.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Grafinn skurður frá vinnubúðum að vegamótum Vatnsleysustrandarvegar.
Minnsta tækið við
stærsta verkið
Reykjanesbraut
SÖNGKEPPNI SamSuð verður
haldin í kvöld á sal Fjölbrautaskóla
Suðurnesja í Keflavík. Keppnin hefst
klukkan 19 en salurinn verður opn-
aður kortéri fyrr.
Auk keppninnar sjálfrar syngur
Gígja Eyjólfsdóttir söngkona frá
Grindavík, skemmtiatriði verða frá
Truflaðri tilveru í Garðinum og
óvæntur leynigestur kemur fram.
Jón Marinó leikari verður kynnir
og Rúnar Júlíusson er formaður
dómnefndar. Meðal verðlauna eru
hljóðverstímar hjá Geimsteini og
inneign hjá Sparisjóðnum í Keflavík.
Söngkeppni
SamSuð í kvöld
Keflavík
ÞETT fer ekki illa af stað, maður
verður að vera bjartsýnn þótt byrj-
unin sé ekki eins kröftug og í
fyrra,“ sagði
Arngrímur
Brynjólfsson,
skipstjóri á Vil-
helm Þorsteins-
syni, eftir að
löndun var hafin
úr skipinu í
Grindavík-
urhöfn í gær.
Hann vildi þó
halda til haga öllum fyrirvörum,
sagði að loðnan væri dyntótt eins
og oft hefði sýnt sig.
Skipið fékk aflann á þremur dög-
um. Aflinn var jafn, að sögn Arn-
gríms, en ekkert voðalega mikið
undir, eins og hann orðaði það. Afl-
inn minnkaði svo heldur í fyrrinótt.
Arngrímur kvaðst ánægður með
að veiðin skyldi byrja þetta
snemma. Sagði að hráefnið væri
gott og mun betra að sækja það á
þessum tíma en til dæmis í mars-
mánuði.
Ekki mikið
undir
♦ ♦ ♦