Morgunblaðið - 09.01.2003, Qupperneq 49
Morgunblaðið/Árni Torfason
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta ákvað, í
stað þess að senda starfsmönnum
sínum jólagjafir fyrir síðustu jól, að
styrkja Umhyggju, félag lang-
veikra barna. Ragna K. Marinós-
dóttir, formaður Umhyggju, tók við
gjöfinni fyrir hönd félagsins. Á
myndinni afhendir Þóra Guð-
mundsdóttir, einn af eigendum Atl-
anta, Rögnu gjöfina nýverið.
Atlanta
styrkti
Umhyggju
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 49
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
„Au pair“ Svíþjóð
Hjón með 1 barn vantar sem fyrst „au pair“
í 4—6 mánuði.
Upplýsingar í síma 0046 8544 70157.
Heimilishjálp
Kona óskast í
heimilishjálp í Garðabæ.
Upplýsingar í síma 896 3850.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til leigu
Eitt glæsilegasta og best staðsetta verslunar-
húsnæði í Skeifunni. 820 fm, næg bílastæði,
áberandi staðsetning í glæsilegu ný endur-
bættu húsi. Möguleiki á lager og skrifstofum
í sama húsi. Upplýsingar í síma 588 2220 og
í 894 7997.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Vegamál á Vestfjörðum
Sjálfstæðisflokkurinn í Ísafjarðarbæ heldur al-
mennan fund um samgöngur á Vestfjörðum
— einkum vegamál. Fundurinn er öllum opinn
og eru íbúar í Ísafjarðarbæ og nágrenni hvattir
til að koma, kynna sér áherslur sem lagðar hafa
verið í vegamálum í fjórðungnum
og taka þátt í umræðum um fram-
tíðarskipulag þeirra.
Staður: Hótel Ísafjörður laugar-
daginn 11. janúar kl. 11.00—14.00.
Framsögur:
Einar Kristinn Guðfinnsson,
fyrsti þingmaður Vestfirðinga.
Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ.
Fundarstjóri: Óli M. Lúðvíksson.
Sjálfstæðisflokkurinn.
KENNSLA
Íþróttaskóli barnanna í KR
Vorönn 2003
Kennsla 3 til 6 ára barna hefst laugardaginn
11. janúar 2003. Skráning og upplýsingar eru
hjá Mörthu Sverrisdóttur í síma: 510 5314.
NAUÐUNGARSALA
Framhald uppboðs
Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum fer fram á eignunum
sjálfum sem hér segir:
Austurgata 4, Hofsósi, þingl. eign Lúðvíks Bjarnasonar, eftir kröfu
Búnaðarbanka Íslands hf., miðvikudaginn 15. janúar 2003 kl. 11.00.
Austurgata 6, Hofsósi, þingl. eign Lúðvíks Bjarnasonar, eftir kröfu
Búnaðarbanka Íslands hf., miðvikudaginn 15. janúar 2003 kl. 11.15.
Brekkupartur-Neðri, 25% hl., Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign
Helgu Rúnar Eiríksdóttur, eftir kröfu Kreditkorta hf., miðvikudaginn
15. janúar 2003 kl. 13.40.
Freyjugata 21, Sauðárkróki, þingl. eign Jóhönnu Svansdóttur og
Guðmundar Guðmundssonar, eftir kröfu Búnaðarbanka Íslands
hf., Lífeyrissjóðs Norðurlands og Greiðslumiðlunar hf.-VISA ÍSLAND,
miðvikudaginn 15. janúar 2003, kl. 13.00.
Syðri-Breið, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Kjartans Guðfinns
Björgvinssonar, eftir kröfu Íbúðalánasjóðs, miðvikudaginn 15. janúar
2003, kl. 14.30.
Vélaverkstæði, Ljótsstöðum, Sveitarfélaginu Skagafirði, talin eign
Trausta Fjólmundssonar og TB -Smiðjunnar ehf., eftir kröfu Búnaðar-
banka Íslands hf., Steypustöðvar Skagafjarðar ehf., Bykó hf. og
Rekstrarlausna ehf., miðvikudaginn 15. janúar 2003, kl. 10.00.
Þúfur, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Sigurmons Þórðarsonar,
eftir kröfu Lánasjóðs landbúnaðarins, miðvikudaginn 15. janúar
2003, kl. 11.45.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
8. janúar 2003.
UPPBOÐ
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Hörðuvöllum
1, Selfossi, þriðjudaginn 14. janúar 2003 kl. 10:00 á eftir-
farandi eignum:
Birkigrund 30, Selfossi. Fastanr. 222-6923, þingl. eig. Davíð Sigmars-
son, gerðarbeiðandi Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deild.
Fossheiði 52, Selfossi. Fastanr. 218-6025, þingl. eig. Sigurveig M.
Andersen, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki Íslands hf.
Háahlíð 29, Grímsnes- og Grafningshreppi. Fastanr. 224-9627, talin
eign gerðarþ. þb. Stefán B. Guðfinnsson, b/t Þuríður Hannesdóttir,
gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið.
Nesjar, Grímsnes- og Grafningshreppi. Fastanr. 220-9638, þingl.
eig. Kristján Kristjánsson, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið.
Slakki, Biskupstungnahreppi. Landnr. 167393, þingl. eig. Helgi
Sveinbjörnsson, gerðarbeiðandi Lánasjóður landbúnaðarins.
Sólvellir 10, Stokkseyri. Fastanr. 219-9481, þingl. eig. Jóhann Óli
Hilmarsson, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið.
Syðri-Reykir, lóð 167449, Biskupstungnahreppi, eignarhl. gerðarþ.
Fastanr. 220-5635, þingl. eig. Linda Hrönn Gylfadóttir, gerðarbeiðandi
Sparisjóður Hafnarfjarðar.
Öndverðarnes 2, Grímsnes- og Grafningshreppi. Fastanr. 220-8648,
þingl. eig. Vilhjálmur Knudsen, gerðarbeiðendur Grímsnes-og Graf-
ningshreppur, Heimilistæki hf., Skíma ehf., Tollstjóraembættið og
Vátryggingafélag Íslands hf.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
8. janúar 2003.
ÝMISLEGT
Vandaður dansherra
óskast fyrir konu um fertugt.
Byrjendanámskeið í samkvæmisdönsum hefst
sunnudagskvöldið 12. janúar. Uppl. óskast
sendar á augl.deild Mbl. eða á box@mbl.is
merktar: „Dans 2003“, eigi síðar en 11. jan. nk.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF Landsst. 6003010919 VII
I.O.O.F. 11 183198½
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20:00.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Prédikun: Kristinn Birgisson.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is
Í kvöld kl. 20.00 Kvöldvaka í
umsjón starfsfólks Flóamarkaðs-
búðarinnar og majóranna Turid
og Knut Gamst.
Happdrætti og veitingar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Baðstofukvöld á Flúðum verður haldið
föstudaginn 10. janúar í Félagsheimilinu.
Húsið verður opnað kl. 19 og mun Ólafur
Hjaltested leika á dragspil. Kl. 20.30
hefst hefðbundin dagskrá, þar verður
m.a. Gunnar Venneberg kynntur og
nokkrir glúntar sungnir af þeim Sigurði
Steinþórssyni og Hauki Haraldssyni.
Sigurður frá Keldum kveður rímur, Jón
á Kirkjulæk kemur með móður sinni,
Hákon Aðalsteinsson, Óli Magg á Flúð-
um segir frá baðstofulífi, Eyvindur Er-
lendsson mun rappa, Druslukórinn syng-
ur o.fl., segir í fréttatilkynningu.
Fyrirlestur og litskyggnusýning af
fuglalífi Otis Swisher verður með fyr-
irlestur og litskyggnusýningu af fuglalífi
frá Oregon, Alaska og Þingvöllum á Líf-
fræðistofnun á morgun, föstudaginn 10.
janúar, kl. 12.20 í stofu G-6 á Grens-
ásvegi 12. Fyrirlesturinn fer fram á
ensku.
Á MORGUN
Kynning Íslenskrar erfðagrein-
ingar á 21. árlegu ráðstefnu JPMorg-
an H&Q verður send út í beinni út-
sendingu á Netinu. Á ráðstefnunni
mun Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, kynna fyr-
irtækið og ræða um nýlega áfanga í
starfsemi þess.
Kynningin verður haldin fimmtudag-
inn 9. janúar kl. 17.30 að íslenskum
tíma, á Westin St. Francis hótelinu í
San Francisco, Kaliforníu. Bein út-
sending verður aðgengileg á Netinu á
heimasíðu Íslenskrar erfðagreiningar
(www.decode.is) og á www.map-
digital.com/jpmorgan/healthcare03.
Þeim sem áhuga hafa á að hlusta á
fundinn er bent á að skrá sig á Netinu
nokkru áður en hann hefst. Upptökur
af fundinum verða aðgengilegar á
báðum þessum síðum fljótlega eftir
fundinn og í a.m.k. viku þar á eftir.
Tourette-samtökin með opið hús í
kvöld, fimmtudagskvöldið 9. jan. kl.
20.30 að Hátúni 10b (austasta ÖBÍ-
blokkin), í kaffiteríunni á jarðhæð-
inni. Íris Árnadóttir og Jakob Þor-
steinsson, sem fóru á þing bandarísku
Tourette-samtakanna í haust, munu
segja frá ferð sinni. Opið hús eru
mánaðarlega að vetrinum, yfirleitt
fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.
Fræðsla um íslenskt samfélag fer
fram í kvöld, fimmtudaginn 9. janúar,
kl. 20.15 í Alþjóðahúsi, Hverfisgötu
18. Sérfræðingur frá ríkisskattstjóra
fjallar almennt um íslenskt skatt-
kerfi, staðgreiðslu, persónuafslátt,
framtalið o.fl. Fundurinn fer fram á
íslensku og verður túlkaður á pólsku.
Í DAG
Hættum að reykja Námskeið fyrir þá
sem vilja hætta að reykja hefst 13. jan-
úar. Námskeiðið er haldið á vegum
Krabbameinsfélags Reykjavíkur og
stendur yfir í fimm vikur. Á námskeiðinu
er m.a. fjallað um reyklaus svæði, frá-
hvarfseinkenni, langvarandi afleiðingar
tóbaksneyslu, orsök tóbaksfíknar,
streitu, hreyfingu og mataræði.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Alda Ás-
geirsdóttir, hjúkrunarfræðingur og
fræðslufulltrúi hjá Krabbameinsfélagi
Reykavíkur. Skráning í síma og á alda-
@krabb.is
Á NÆSTUNNI
Farmiðasala
Iceland Express
hefst í dag
SALA farmiða í áætlunarflugi til London
og Kaupmannahafnar hefst hjá Iceland
Express í dag, fimmtudaginn 9. janúar, kl.
9.
Farmiðar verða seldir á vefsíðunni ice-
landexpress.is, á söluskrifstofu félagsins á
Suðurlandsbraut 24 og í síma 5-500-600.
Iceland Express verður með daglegt
áætlunarflug til London og Kaupmanna-
hafnar og hefst fyrsta flug 27. febrúar
næstkomandi. Flogið verður alla daga vik-
unnar, að morgni dags til Kaupmanna-
hafnar og síðdegis til London.
Lægsta fargjald til Kaupmannahafnar
er 14.660 kr. báðar leiðir með flugvallar-
sköttum og til London 14.160 kr.
Þingmenn, framkvæmdastjóri og frambjóðendur Frjáls-
lynda flokksins verða á ferð um Suðurkjördæmi dagana 9.–
11. janúar. Sem fyrr leggur Frjálslyndi flokkurinn megin-
áherslu á að gerbreyta núverandi kvótakerfi en auk mikillar
áherslu á byggðamál hefur flokkurinn einnig skýrar
áherslur á öllum helstu sviðum þjóðmála, segir í frétta-
tilkynningu.
Fundir í Suðurkjördæmi verða sem hér segir: Opinn stjórn-
málafundur í Lundanum, Vestmannaeyjum, í dag, fimmtu-
daginn 9. janúar, kl. 20. Fulltrúar flokksins verða til viðtals í
Víkurskála föstudaginn 10. janúar kl. 12.30–13.30 og opinn
stjórnmálafundur verður í Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði
föstudaginn 10. janúar kl. 20.
Þjóðernissinnar bjóða fram Félag íslenskra þjóðernissinna
mun bjóða fram til næstu alþingiskosninga í öllum kjör-
dæmum að undanskildu Norðausturkjördæmi. Framboðs-
listar verða birtir þegar nær dregur kosningum en formaður
og varaformaður munu leiða lista í Norðvesturkjördæmi,
segir í fréttatilkynningu.
STJÓRNMÁL