Morgunblaðið - 09.01.2003, Blaðsíða 53
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 53
Áskirkja. Opið hús á fimmtudögum
kl. 14–17 í neðri safnaðarsal kirkj-
unnar fyrir unga sem aldna. Í
tengslum við opna húsið hefur
myndst sönghópur sem syngur létt
lög sér til skemmtunar og ánægju, en
organisti Áskirkju, Kári Þormar, leið-
beinir og stýrir hópnum. Eftir sönginn
er boðið upp á kaffi og með því. Allir
eru hjartanlega velkomnir.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl.
10–12 í umsjá Lovísu Guðmundsdótt-
ur.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 14–16 í safnaðarheim-
ilinu, Lækjargötu 14a.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12. Léttur málsverður í safn-
aðarheimili að stundinni lokinni.
Landspítali Háskólasjúkrahús –
Kleppur. Guðsþjónusta kl. 13.30.
Prestur Birgir Ásgeirsson.
Arnarholt. Guðsþjónusta kl. 15.
Prestur Kjartan Örn Sigurbjörnsson.
Háteigskirkja. Taizé-messa kl. 20.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12. Gunnar Gunnarsson leik-
ur á orgel kirkjunnar frá kl. 12–12.10.
Að stundinni lokinni er léttur máls-
verður á kostnaðarverði borinn fram í
safnaðarheimilinu.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra laug-
ardaginn 11. janúar kl. 14. Nýárs-
fagnaður. Lesnar verða álfasögur og
álfalögin sungin. Þátttaka tilkynnist í
síma 511 1560 milli kl. 10 og 13 til
föstudags. Allir velkomnir. Sr. Frank
M. Halldórsson.
Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn
föstudag kl. 10–12.
Digraneskirkja. ÍAK leikfimi kl. 11 í
kapellunni á neðri hæð.
Fella- og Hólakirkja. Biblíulestur og
helgistund í Gerðubergi kl. 10.30–12.
Grafarvogskirkja. Foreldrarmorgnar
kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar
samverustundir, ýmiss konar fyrir-
lestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús
og brauð fyrir börnin.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund í kirkjunni kl. 22. Gott er að
ljúka deginum og undirbúa nóttina í
kyrrð kirkjunnar og bera þar fram
áhyggjur sínar og gleði. Bænarefni
eru skráð í bænabók kirkjunnar af
prestum og djákna. Boðið er upp á
molasopa og djús að lokinni stund-
inni í kirkjunni.
Kópavogskirkja. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag kl. 17. Fyrirbænaefnum
má koma til sóknarprests eða kirkju-
varðar.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir
ung börn og foreldra þeirra í Vonar-
höfn, safnaðarheimili Strandbergs,
kl. 10–12. Opið hús fyrir 8–9 ára börn
í safnaðarheimilinu Strandbergi, Von-
arhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund í dag
kl. 13. Kjörið tækifæri fyrir heima-
vinnandi foreldra með ung börn að
koma saman í notalegu umhverfi og
eiga skemmtilega samverustund.
Barnastarf fyrir 10–12 ára börn í dag
kl. 17.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir
10–12 ára kl. 16.30–18.
Lágafellskirkja. TTT-starf Lágfells-
kirkju er í dag, fimmtudag, kl. 16.
Mikið fjör, mikið gaman. Allir krakkar
á aldrinum 10–12 ára velkomnir.
Safnaðarstarf Lágafellskirkju. Æsku-
lýðsstarfið Sound. Æskulýðshópurinn
okkar er með fundi alla fimmtudaga
kl. 17. Frábær hópur fyrir frábært
ungt fólk í 8.–10. bekk. Safnaðarstarf
Lágafellskirkju.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld
kl. 20.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
10 mömmumorgunn í safnaðarheim-
ilinu. Sr. Kristján Björnsson. Kl. 16
Litlir lærisveinar, kl. 17.30 Litlir læri-
sveinar. Kórstjóri Guðrún Helga
Bjarnadóttir.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir
velkomnir.
Aðaldeild KFUM. Fundur í kvöld kl.
20. Gestur fundarins er hr. Karl Sig-
urbjörnsson biskup og mun hann
fjalla um stöðu og hlutverk evang-
elískrar lútherskrar þjóðkirkju. Allir
karlmenn velkomnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrir-
bænastund kl. 12. Léttur hádegis-
verður á vægu verði í Safnaðarheimili
eftir stundina.
Safnaðarstarf
BOÐIÐ verður upp á Alfa-
námskeið í Grafarvogskirkju á
næstunni. Námskeiðið, sem er
fræðslunámskeið um kristna trú,
mun standa yfir í 10 vikur, á þriðju-
dagskvöldum frá kl. 19 til kl. 22.
Hvert kvöld hefst með léttum
kvöldverði. Síðan er umræðuefnið
útskýrt og rætt í umræðuhópum.
Einu sinni á námskeiðinu er farið í
helgarferð.
Námskeiðið mun hefjast 14. jan-
úar nk. með kynningarfundi. Inn-
ritun stendur yfir á skrifstofu Graf-
arvogskirkju, frá kl. 9 til 16. Sími
kirkjunnar er 587 9070.
Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson
Grafarvogskirkja
Alfa-námskeið
í Grafarvogs-
kirkju
Smáralind - Kringlunni
Útsalan
er hafin
V I L A
Smáralind
Afmælisþakkir
Innilegt þakklæti til vina og vandamanna fyrir
heimsóknir, heillaskeyti, blóm og góðar gjafir á
80 ára afmæli mínu 29. des. síðastliðinn.
Sérstakar þakkir til Vorboða, Kórs eldri borgara í
Mosfellsbæ, Karlakórs Kjalnesinga og Söngfélags
Skaftfellinga Reykjavík fyrir frábæran söng.
Með bestu óskum um gleðilegt og heillaríkt
nýtt ár. Kærar kveðjur
Jón Vigfússon
Dalatanga 6
Mosfellsbæ
Auðbrekka 2 • 200 Kópavogi • Sími 517 5556
Netfang: estherhelga@hallo.is
Vorönn er að hefjast
Námskeið fyrir byrjendur - tvö kvöld
Námskeiðinu er ætlað m.a. að styrkja þá
sem eru að byrja í Regnbogakórnum eða einkatímum
Regnbogakórinn: Mæting mánudaginn 13. jan. kl. 19.
Góður kórhópur til að byrja í.
Dægurkórinn: Mæting miðvikudaginn 15. jan. kl. 18.30.
Fyrir lengra komna.
Dagskrá beggja kóranna samanstendur af
söngleikjatónlist, gospel og þjóðlögum.
Fyrirhuguð er söngferð til Færeyja.
Söngstjóri: Esther Helga Guðmundsdóttir.
Undirleikari: Katalin Lörincz.
35-70%
afsláttur
Kringlunni - sími 581 2300
ÚTSALA
Nýjar vörur daglega