Morgunblaðið - 09.01.2003, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 55
DAGBÓK SKEMMTUN FYRIR ALLA
Í DANSHÚSINU KÓPAVOGI
danshusid@islandia.is - www.islandia.is/danshusid
Innritun til 12. januar, sími: 862 6168 eða
Dansfélagið
Hvönn
Einnig veitum við 15% afslátt
af hinum sívinsælu flugsokkum
frá Samson og Delilah
Enn meiri afsláttur af völdum pörum
Tilboðsdagar í Remedíu
15-25% afsláttur
SJÚKRAVÖRUR EHF. Verslunin Remedia
í bláu húsi v/Fákafen, sími 553 6511.
Sendum í póstkröfu!
Frábært tækifæri til að
efna nýársheitið og
öðlast óþreytta og
alsæla fætur í þýskum
og amerískum
sjúkraskóm.
Hverju seldu pari fylgir
nýtt fjölvítamín frá
Útsala
Útsala
Ítölsk barnafataverslun
Laugavegi 53, s. 552 3737
fyrir krakka frá 0-12 ára
Útsalan hefst
í dag kl. 10.00
Nýtt kortatímabil
Sigurlaug
Guðmundsdóttir
QIGONG
Orkuhreyfing
QIGONG
Orkuvinna
Námskeiðið verður haldið í Bókasafni Kópavogs á þriðjudag
og fimmtudag kl. 17.30-18.30, 10 skipti og hefst 14. janúar.
Kennd verður Qigong - hugleiðsla
kviðaröndun og qigong - æfingar
Opnir tímar á mánud. og fimmtud. kl. 12.10-12.50.
Skráning og upplýsingar í síma 554 1248.
Dásamleg slökun, hugarró og orkuleiðsla,
Þú býrð að því.
Fínar dragtir, jakkar, pils og buxur
ÚTSALA
kvenfataverslun • Skólavörðustíg 14, sími 551 2509.
30% afsláttur
Munið markaðinn í kjallaranum,
50% afsláttur
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hjálpsamur (-söm) og
gædd(ur) ríkri ábyrgð-
arkennd og átt auðvelt
með að leiða aðra.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það eru mörg verkefni á
borði þínu núna svo láttu
það vera að taka að þér fleiri
því annars drukknar þú bara
í ókláruðum hlutum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það skiptir sköpum að þú
sért skorinorður þannig að
ekkert fari á milli mála hvað
þú meinar. Sláðu á létta
strengi til að laga andrúms-
loftið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það getur verið ósköp leið-
inlegt þegar aðrir dragast
aftur úr í samstarfinu.
Reyndu að sýna þolinmæði
því við vinnum ekki öll á
sama hraða.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Einhverjir vilja pranga inn á
þig hlutum sem þú hefur í
raun og veru enga þörf fyrir.
Láttu ekki leika á þig,
skelltu á þá hurðinni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gerðu ekki meira úr hlut-
unum en nauðsynlegt er og
veltu þér ekki upp úr smáat-
riðunum. Leggðu þig fram
um að sjá málin í víðara
samhengi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Sýndu háttprýði í allri fram-
göngu því þá mun þér farn-
ast vel. Mundu að líkt laðast
að líku og þú átt nú skilið að-
eins það besta.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þér finnst allir vera í and-
stöðu við þig en láttu það
ekki brjóta þig niður. Ef vel
er að gáð reynast þeir færri
en þú heldur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sannleikanum verður hver
sárreiðastur. Reyndu samt
að draga réttar ályktanir og
þá ertu á grænni grein.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Sjálfsgagnrýni er af hinu
góða en á sér þó sín tak-
mörk. Þú veist hvar þú get-
ur best nýtt hæfileika þína
svo leggðu kapp við að
rækta þá.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Einhverjar glæringar eru í
loftinu svo þú skalt hafa
hægt um þig og segja sem
minnst. Sá tími kemur að þú
munt geta sagt hug þinn all-
an.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Láttu það ekki koma þér í
opna skjöldu þótt félagarnir
fari þess á leit við þig að þú
veitir liði ykkar forystu. Þú
ert vel að heiðrinum kominn.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ættir að skella þér á
kaffihús eftir vinnu ásamt
félaga þínum því þið hafið
um nóg að spjalla og margt
þarf að skipuleggja.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Nk.laugardag, 11. jan-
úar, verður fimmtugur Már
Ólafsson, bóndi, Dalbæ,
Gaulverjabæjarhreppi.
Hann og kona hans, Sigríð-
ur Harðardóttir, munu taka
á móti gestum á afmælis-
daginn kl. 20:30 í Fé-
lagslundi.
LJÓÐABROT
Heyr, himna smiðr,
hvers skáldið biðr,
komi mjúk til mín
miskunnin þín.
Því heit eg á þig,
þú hefur skaptan mig;
eg er þrællinn þinn,
þú ert Drottinn minn.
Guð, heit eg á þig,
að þú græðir mig,
minnst, mildingr, mín,
mest þurfum þín.
Ryð þú, röðla gramr,
ríklyndr og framr,
hölds hverri sorg
úr hjarta-borg.
- - -
Kolbeinn Tumason
1. c4 g6 2. g3 Bg7 3. Bg2
e5 4. Rc3 Re7 5. e4 Rbc6
6. d3 d6 7. h4 h6 8. h5 g5
9. f4 gxf4 10. gxf4 exf4 11.
Rh3 f3 12. Dxf3 Re5 13.
Df1 R7c6 14. Be3 Rg4 15.
Bg1 Dh4+ 16. Kd2 Dxh5
17. Rf4 Dg5 18.
Hh5 Dd8 19.
Bh3 Rf6 20.
Bxc8 Dxc8 21.
Hh4 Dd7 22.
Be3 Re5 23.
Dh1 O-O-O 24.
Hg1 Hdg8 25.
Rb5 Rfg4 26.
Rh5 Bf8 27. Hf1
a6 28. Rc3 Be7
29. Hh3 Rxe3
30. Kxe3 Bg5+
31. Ke2 Rc6 32.
Hg3 f5 33. Dh3
Hf8 34. Kd1
Rd4 35. exf5
Rxf5 36. Hgf3
Staðan kom upp í tékk-
nesku deildakeppninni 2001
þar sem Sergei Movsesjan
hafði svart gegn alþjóðlega
meistaranum Milos Jir-
ovsky. 36... Re3+! og hvít-
ur gafst upp þar sem hann
verður skiptamuni undir
eftir 37. Hxe3 Hxf1+ 38.
Dxf1 Bxe3.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Barna-
spítala Hringsins á dögunum og söfnuðu þær kr. 7.550. Þær
heita frá vinstri: Alexandra Ólöf Guðmundsdóttir, 12 ára;
Birta Björk Árnadóttir, 7 ára; Salvör Rafnsdóttir, 9 ára; Þór-
dís Rafnsdóttir, 5 ára. Allar til heimilis í Laxalind í Kópavogi.
BRESKA bridskonan Sally
Horton hefur skrifað bók
sem heitir því skemmtilega
nafni Double Trouble. Við-
fangsefni bókarinnar eru þau
vandræði sem stafa af tví-
ræðni doblsins, að vera
stundum til sektar og stund-
um til úttektar. Og jafnvel
eitthvað þar á milli. Mismun-
andi túlkun spilafélaga á
doblinu er án efa ein helsta
orsök sagnslysa, ekki síst nú
á tímum þegar doblsögninni
er beitt á frjálslegri hátt en
áður tíðkaðist. Nú er best að
lesandinn geri tilraun á sjálf-
um sér. Sagnir ganga þann-
ig:
Vestur Norður Austur Suður
1 lauf Pass 1 hjarta Pass
1 grand Pass Pass 2 tíglar
Pass Pass Dobl Pass
???
Kerfi AV er Standard með
12–14 punkta grandopnun,
sem þýðir að endursögn vest-
urs á einu grandi sýnir 15–17
punkta. En það er í sjálfu sér
aukaatriði. Hér er spurning-
in þessi: Hvað þýðir dobl
austurs á tveimur tíglum? Er
það sekt eða úttekt?
Ef að líkum lætur sýnist
sitt hverjum, enda getur dobl
hentað hér vel, hvort heldur
til sektar eða úttektar. Það
verður bara að vera á hreinu
hvort heldur er!
Norður
♠ 43
♥ ÁG3
♦ K98
♣G8653
Vestur Austur
♠ KG76 ♠ 952
♥ D102 ♥ K8764
♦ Á5 ♦ G3
♣ÁD104 ♣K92
Suður
♠ ÁD108
♥ 95
♦ D107642
♣7
Vestur Norður Austur Suður
1 lauf Pass 1 hjarta Pass
1 grand Pass Pass 2 tíglar
Pass Pass Dobl Pass
Pass Pass
Spilið er frá bridshátíðinni
í Borgarnesi um helgina,
nánar tiltekið úr síðustu um-
ferð tvímenningsins og við
sjáum að austur og vestur
lögðu hvor sinn skilninginn í
doblið. Sigurvegararnir, Gísli
Steingrímsson og Sveinn R.
Þorvaldsson, voru í NS og
það kom í hlut Gísla að spila
tvo tígla doblaða. Út kom
hjartatvistur, lítið úr borði og
kóngur. Austur spilaði spaða
til baka, Gísli lét drottn-
inguna og vestur fékk á
kónginn. Spilaði svo tígulás
og tígli. Gísli drap heima,
svínaði hjartagosa, henti
laufi í hjartaás og stakk lauf.
Tók svo spaðaás, spilaði spa-
ðatíunni og lét hana fara yfir
þegar vestur fylgdi með smá-
spili. Tíu slagir og „semitopp-
ur“ til Gísla og Sveins.
Dálkahöfundur hefur fulla
samúð með þessum misskiln-
ingi austurs og vesturs, því
staðan er sjaldgæf. En ráðið
til að komast hjá slíkum
sagnslysum er að búa til ein-
faldar þumalfingursreglur
sem hægt er að yfirfæra á
óræddar stöður.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Hlutavelta
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
80 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 9.
janúar, er áttræður Sig-
mundur Guðmundsson,
Hraunbæ 92, Reykjavík.
Hann og eiginkona hans,
Þórdís Eggertsdóttir, taka
á móti ættingjum og vinum
á heimili dóttur þeirra í
Brautarási 16, Reykjavík,
á milli kl. 18 og 21.