Morgunblaðið - 09.01.2003, Blaðsíða 9
ÁHÖFN frystitogarans Hrafns
Sveinbjarnarsonar GK 255, sem er í
eigu Þorbjarnar Fiskaness hf., voru
afhent gæðaverðlaun Icelandic
USA í sjötta skiptið, nú í ársbyrjun.
Jón Friðjónsson innkaupastjóri Ice-
landic USA gerði grein fyrir starf-
semi þess í Bandaríkjunum og mik-
ilvægi gæða á kröfuhörðum
markaði. Jón Jóhannesson starfs-
maður Icelandic USA á Íslandi
sagði frá því hvaða gæðakröfum
þyrfti að fullnægja til að fá verð-
laun. Hann sagði einnig að hátt
verð væri aðeins hægt að greiða
fyrir hágæðaframleiðslu. Hermann
Waldorf vinnslustjóri tók við verð-
laununum fyrir hönd áhafnar og
þakkaði árangurinn samstilltri
áhöfn sem legðist á eitt um að
halda uppi gæðum. Boðið var upp á
kaffihlaðborð í tilefni dagsins.
Gæðaverðlaun
afhent í
Grindavík
ÖRFIRISEY RE, frysti-
togari Granda hf., hlaut
gæðaverðlaun Icelandic
UK sem afhent voru á ár-
legum sjófrystifundi Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihús-
anna hf. fyrir skömmu.
Fundurinn er haldinn fyrir
framleiðendur SH á sjó-
frystum afurðum.
Á fundinum var farið yf-
ir stöðu á helstu botn-
fiskmörkuðum og gæða-
og framleiðslustefnu SH.
Eins voru ræddar staða og
horfur í grálúðuveiðum á Íslands-
miðum.
Icelandic UK, dótturfélag SH í Bret-
landi, afhenti í fyrsta sinn viðurkenn-
ingar fyrir góða framleiðslu og gæði á
sjófrystum þorsk- og ýsuflökum fyrir
Bretlandsmarkað. Það var áhöfn Örfir-
iseyjar RE sem hlaut fyrstu verðlaun
fyrir afburðaárangur í gæða- og fram-
leiðslumálum í þorsk- og ýsuflökum
fyrir Icelandic UK árið 2002. Nið-
urstaðan er byggð á skoðunum hjá SH
þjónustu hér heima á öllum afurðum
skipa sem selja til SH á síðustu 12
mánuðum og viðbrögðum kaupenda
Icelandic UK á gæðum sem þeir selja.
Áhafnir Júlíusar Geirmundssonar ÍS og
Kleifabergs SI hlutu einnig viðurkenn-
ingar fyrir góðan árangur í gæða- og
framleiðslumálum á árinu.
Þá afhenti Icelandic USA, dótt-
urfélag SH í Bandaríkjunum, áhöfnum
fjögurra frystitogara gæðaverðlaun fé-
lagsins fyrir árið 2002; Júlíusi Geir-
mundssyni ÍS, Kleifabergi ÓF, Arnari
HU og Hrafni Sveinbjarnarsyni GK.
Icelandic USA hefur einnig veitt fjór-
um landvinnslum viðurkenningar fyrir
gæðaframleiðslu; Ísfiski ehf. í Kópa-
vogi, Odda hf. á Patreksfirði, Egilssíld
ehf. á Siglufirði og Útgerðarfélagi Ak-
ureyringa hf.
Örfirisey RE fær viðurkenningu
Morgunblaðið/Árni Torfason
Frá afhendingu gæðaverðlauna Icelandic UK. F.v. Hans
Ágúst Einarsson, deildarstjóri sjófrystideildar SH þjón-
ustu, Ómar Ellertsson, skipstjóri á Júlíusi Geirmundssyni
ÍS, Gunnar Arnórsson, skipstjóri á Júlíusi Geirmundssyni
ÍS, Víðir Jónsson, skipstjóri á Kleifabergi ÓF, Þór Þór-
arinsson, stýrimaður á Örfirisey RE, og Magni Þór Geirs-
son, framkvæmdastjóri Icelandic UK í Bretlandi.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 B 9
NÚR VERINU Scania vörubifreiðar voru mest
seldu vörubifreiðarnar
á Íslandi annað árið í röð*
*Samkv. skráningatölum um innflutning á vörubifreiðum 16 tonn og yfir
HEKLA
þakkar viðs
kiptavinum samfylgdina á liðnu ári.
FYRSTA síldin á þessu ári barst til Vestmannaeyja
á mánudag. Þá kom Sighvatur með um 450 tonn af
fallegri síld að vestan. Þorsteinn Magnússon, vinnslu-
stjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, segir
að þessi síld sé með þeirri stærstu sem þeir hafi feng-
ið til vinnslu frá því í haust og því fari langmestur
hluti hennar í vinnslu. Síldin er ýmist fryst heil eða
flökuð. Heila síldin fer á markaði í Austur-Evrópu en
SÍF í Frakklandi kaupir flökin, en þar fara þau í
reykingu.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Fyrsta síldin til Eyja
SÁ kaupskipafloti sem nú annast
flutninga til og frá landinu getur
ekki annað flutningunum komi til
ófriðar úti í heimi, enda sigla nú að-
eins þrjú skip undir íslenskum fána.
Þetta er álit Félags íslenskra skip-
stjórnarmanna og kom fram á fé-
lagsfundi félagsins fyrir skömmu.
Á fundinum var farið yfir atvinnu-
og kjaramál skipstjórnarmanna.
Meðal þess sem rætt var á fundinum
var staða íslenskrar kaupskipaút-
gerðar. Þar kom fram að nú sigla
þrjú kaupskip og fjórar ferjur undir
íslensum fána milli Íslands og ann-
arra landa. Önnur kaupskip í förum
eru ýmist erlend skip með íslenskum
áhöfnum, að hluta eða öllu, eða er-
lend skip með erlendum áhöfnum.
Það er álit félagsins að yfirráð yfir
siglingum með afurðir á markað,
nauðsynjar til landsins og milli staða
innanlands sé forsenda viðskiptalegs
sjálfstæðis þjóðarinnar. Þessi yfir-
ráð felist bæði í nægilegum kaup-
skipastól undir íslenskum fána og ís-
lenskum mannauð með þá
siglingaþekkingu sem þarf til að
reka og stjórna kaupskipum sam-
kvæmt innlendum og alþjóðlegum
kröfum. Félagið telur að nú þegar sé
sá kaupskipafloti ekki til sem annað
geti flutningum til og frá landinu
verði sú breyting í alþjóðamálum,
t.d. vegna ófriðar á fjarlægum slóð-
um, að fánaríkin kalli þau kaupskip
sem nú annast flutningana til þjón-
ustu við sig eða bandamenn sína. Þar
að auki verði Íslendingar nú þegar
að lúta erlendu valdi um skráningu
og viðurkenningu á réttindum þeirra
Íslendinga sem manna þau erlendu
skip sem kaupskipaútgerðirnar gera
út í dag.
Landhelgisgæslan verði efld
Þá var þess krafist á fundinum að
stjórnvöld hefjist þegar handa við
vinnu við löggjöf sem skilur að veið-
ar og vinnslu og jafnframt að unnið
verði að því að ferskur fiskur verði
verðlagður á fiskmarkaði. Eins
krafðist fundurinn þess að ríkis-
stjórn Íslands beitti sé fyrir eflingu
Landhelgisgæslu Íslands og tryggði
rekstur hennar. Þannig yrði smíði
nýs varðskips ekki dregin frekar á
langinn og hugað yrði að endurnýjun
flugflota. Þá mótmælti fundurinn
þeim lagabreytingum sem orðið
hefðu til skerðingar á lífeyrisréttind-
um frá Lífeyrissjóði sjómanna.
Kaupskipaflotinn
annar ekki flutn-
ingum í ófriði
ATVINNA
Yfirvélstjóri
Yfirvélstjóri með VF1 réttindi óskast á Klakk SH
510.
Upplýsingar í símum 455 4400/894 1378 eða
í joningi@fisk.is .
RAÐAUGLÝSINGAR
BÁTAR/SKIP
Til sölu Narfi VE 108
Skipaskrárnúmer 795, 96 brl. stálskip, smíðað
í Þýskalandi 1956, hækkaður og skutlengdur
í Póllandi 1998. Skipið selst með eða án veiði-
heimilda. Ef veiðiheimildir fylgja er um að
ræða 20.000 kg af ýsu, 10.000 kg af skarkola
auk 8.400 kg uppbótarkvóta í þorski.
Upplýsingar gefur Viðar Elíasson í síma
481 3600 eða 895 1965.