Morgunblaðið - 12.01.2003, Page 1
Tölvusmiðjan
óskar eftir að ráða fólk í eftirfarandi störf
Tölvunarfræðingur — kerfisfræðingur
Verið er að leita að einstaklingi með háskóla-
menntun í tölvunarfræðum. Nauðsynlegt er
að hafa reynslu af hlutbundinni, lagskiptri for-
ritun fyrir Internet-lausnir. Starfið felst í við-
haldi og áframhaldandi þróun hugbúnaðar,
nýsmíði hugbúnaðar, þ.m.t. þarfagreiningu,
hönnun, prófunum og uppsetningu. Starfið
krefst hæfni til að vinna sjálfstætt og í hóp.
Samskipti við viðskiptavini eru einnig hluti af
starfinu.
Þjónustufulltrúi
Verið er að leita að einstaklingi til að sinna
verkstjórn og gæðastjórnun í þjónustudeild
fyrirtækisins. Helstu verkefni eru: Móttaka verk-
beiðna, verkstjórn, gæðastjórnun, upplýsinga-
gjöf, símsvörun, afgreiðsla og önnur tilfallandi
þjónusta. Mikilvægt er að vikomandi hafi þjón-
ustulund, hafi gaman að krefjandi verkefnum
og geti unnið sjálfstætt. Góð tölvukunnátta
nauðsynleg. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf fljótlega
Kerfisstjóri — netmaður
Verið er að leita að einstaklingi til að sinna dag-
legum rekstri á netþjónum og netbúnaði. Aðal-
lega er um að ræða rekstur á búnaði í hýsing-
arþjónustu og kerfisleigu, rekstur internetþjóna
s.s. vefþjóna, póstþjóna o.fl. Starfið krefst af-
burðarþekkingar á Microsft stýrikerfum og
æskilegt að viðkomandi hafi reynslu á þessu
sviði. Leitað verður eftir meðmælum og einnig
er æskilegt að viðkomandi hafi Microsoft vott-
un. Eftirfarandi kostir skipta einnig miklu máli:
Þekking á víðnetsbúnaði (aðalega Cisco),
Grunnþekking á Linux, hæfileiki til að vinna
sjálfstætt og skipulega, almennur áhugi á upp-
lýsingatækni og nýjungum á því sviði, metnað-
ur og almenn reglusemi.
Um Tölvusmiðjuna
Tölvusmiðjan er fyrirtæki í upplýsingatækni og eru helstu starfssvið
tölvuþjónusta, netþjónusta, víðnetslausnir og hugbúnaðarþróun.
Tölvusmiðjan hefur starfsstöðvar á Egilsstöðum og í Neskaupstað
og þjónustar fyrirtæki og stofnanir á miðausturlandi. Fjöldi starfsfólks
í dag er 9.
Umsóknir sendist á netfangið
starf@tolvusmidjan.is. Nánari upplýsingar
veitir framkvæmdastjóri í síma 470 2230.
Deildarstjóri
hjúkrunardeildar
HSSA
Hjúkrunarfræðingur óskast í fasta stöðu
deildarstjóra á hjúkrunardeild HSSA á
Hornafirði.
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands
(HSSA) skiptist í hjúkrunardeild, sjúkra-
deild, fæðingardeild, dvalarheimili,
heilsugæslu og heimaþjónustudeild.
Væntanlega verður til deild heilabilaðra
við stækkun húsnæðisins. HSSA varð til
þegar Sveitarfélagið Hornafjörður tók að
sér reynsluverki í heilbrigðis- og öldrun-
armálum 1996. Verkefnið fól í sér yfir-
töku verkefna frá ríkinu, þ.e. heilsugæslu
og önnur verkefni sem ríkið sér um á
landsvísu.
Samkvæmt reglum sveitarfélagsins fá
þeir einstaklingar og fjölskyldur sem
koma til starfa flutningsstyrk og hús-
næðisstyrk fyrstu þrjú árin Hafið sam-
band og kynnið ykkur önnur kjör sem í
boði eru.
Nánari upplýsingar um stöðuna veita
Guðrún Júlía Jónsdóttir hjúkrunarfor-
stjóri í síma 478 1021 og 478 1400 og Jó-
hann Ólafsson framkvæmdastjóri í síma
478 2071.
Á Hornafirði búa um 2.300 manns, flestir á Höfn. Aðalat-
vinnan er sjávarútvegur og ferðaþjónusta. Á Höfn eru þrír
leikskólar. Grunnskólinn er þrískiptur, 1.—3. bekkur fer í
Nesjaskóla, 4.—7. bekkur í Hafnarskóla og gagnfræðadeild-
in fer í Heppuskóla. Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafells-
sýslu (menntaskóli) er á Höfn í nýju húsnæði sem kallast
Nýheimar. Þar er einnig til húsa Menningarmiðstöð
(bókasafn) og Austurlandssetur Háskóla Íslands, rannsókn-
ardeild. Aðstaða til fjarnáms er til fyrirmyndar á Hornafirði.
Náttúrufegurð í héraðinu er rómuð. Auðvelt er að stunda út-
ivist af öllu tagi, s.s. kajaksiglingar, göngur, veiðar og fjalla-
ferðir eru óvíða fjölbreyttari. Samgöngur eru góðar. Áæt-
lunarflug milli Hafnar og Reykjavíkur, sumar og vetur. Veg-
asamband við höfuðborgarsvæðið er beint og breitt, eini
fjallvegurinn á leiðinni er Hellisheiði og því eru vetrarsam-
göngur mjög greiðar.
Tölvu- og
upplýsingatækni
— leitum að skipulögðum og
úrræðagóðum aðila —
Í boði er áhugavert og spennandi starf í tölvu-
og upplýsingatækni fyrir tölvunarfræðing eða
kerfisfræðing.
Starf verkefnastjóra
Starfssvið:
Umsjón með nýsmíði, hönnun og prófunum
á hugbúnaði.
Vinna í áætlanagerð og skipulagningu.
Vinna við eftirlit á framvindu verkefna og
samskipti við verktaka.
Önnur tilfallandi verkefni.
Menntun og hæfniskröfur:
Háskólapróf í tölvunarfræði, kerfisfræði eða
önnur sambærileg tæknimenntun.
Þekking á Oracle og SQL æskileg.
Öguð og sjálfstæð vinnubrögð og færni í
mannlegum samskiptum.
Nánari upplýsingar veitir Rósa Halldórsdóttir,
yfirverkefnastjóri á tölvu- og upplýsingatækni
Tryggingastofnunar, sími 560 4464, tölvupóst-
fang rosah@tr.is . Senda má upplýsingar raf-
rænt eða í pósti til starfsmannaþjónustu Trygg-
ingastofnunar, Laugavegi 114, 150 Reykjavík,
tölvupóstfang gudjonsk@tr.is . Umsóknarfrest-
ur er til 20. janúar 2003. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
liggur fyrir.
Upplýsingar um Tryggingastofnun má finna
heimasíðu: http://www.tr.is .
Starfsfólk óskast
Ferskar kjötvörur hf. óska eftir að ráða starfs-
fólk til almennra framleiðslustarfa.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar n.k.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
fyrirtækisins að Síðumúla 34, Reykjavík.
Nánari uppl. veitir Ingibjörn Sigurbergsson fram-
leiðslustjóri á staðnum milli kl. 14.00-16.00.
Bílstjóri óskast
Starfið felst í tiltekt, sækja vörur, útkeyrslu og
afhendingu vöru til viðskiptavina.
Hæfniskröfur eru að umsækjandi hafi umtals-
verða reynslu af störfum við útkeyrslu, en
meirapróf og/eða lyftarapróf er æskilegt. Rík
áhersla er lögð á reglusemi, snyrtimennsku,
nákvæmni í vinnubrögðum og lipurð í mann-
legum samskiptum. Leitað er að metnaðarfull-
um einstaklingi, sem býr yfir góðri reynslu og
er vanur að vinna sjálfstætt sem og í hópi.
Æskilegur aldur er frá 30 ára.
Upplýsingar gefur Stefán Friðþórsson milli
kl. 9 og 12 mánudag og þriðjudag á skrifstofu
í Klettagörðum 12. Upplýsingar eru ekki gefnar
í síma.
Sindra Stál.
Hjá Sindra starfa 60 manns og eru með höfuðstöðvar í Klettagörðum
12 í Reykjavík ásamt því að reka tvær verslanir í Hafnarfirði og á
Akureyri.
Organisti
Staða organista í Möðruvallaklausturspresta-
kalli er laus til umsóknar. Um er að ræða kór-
stjórn og tónlistarflutning í Möðruvallakirkju,
Glæsibæjarkirkju, Bægisárkirkju og Bakkakirkju
í Öxnadal.
Laun skv. kjarasamningi Félags íslenskra
organleikara.
Upplýsingar um starfið veitir sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir sóknarprestur í síma 462 1963
og 898 4640.
Umsóknum skal skila fyrir 10. febrúar 2003 til
formanns sóknarnefndar Sverris Haraldssonar
Skriðu Hörgárdal, 601 Akureyri.
Sunnudagur
12. janúar 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 7.168 Innlit 12.452 Flettingar 52.198 Heimild: Samræmd vefmæling