Morgunblaðið - 13.01.2003, Qupperneq 1
2003 MÁNUDAGUR 13. JANÚAR BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
LÁRUS ORRI FÉKK NÓG AÐ GERA Á MÓTI UNITED / 5
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS
NOKKUÐ ljóst virðist vera hvaða
16 leikmenn muni skipa íslenska
landsliðið á HM í Portúgal ef marka
má leikina þrjá á fjögurra landa
mótinu í Danmörku um helgina. Af
þeim átján leikmönnum sem fóru út
komu Róbert Gunnarsson, línumað-
ur, og Birkir Ívar Guðmundsson
aldrei við sögu þótt þeir fengju að
verma varamannabekkinn hvor í
sínum leiknum. Sennilegt má því
telja að þeir heltist úr lestinni þegar
HM-liðið verður tilkynnt á morgun.
Þá liggur í augum uppi að eftirtaldir
sextán leikmenn verði sendir á mót-
ið: markverðirnir Guðmundur
Hrafnkelsson og Roland Valur
Eradze. Horna- og línumennirnir
Gústaf Bjarnason, Guðjón Valur Sig-
urðsson, Róbert Sighvatsson, Sigfús
Sigurðsson og Einar Örn Jónsson og
útileikmennirnir Patrekur Jóhannes-
son, Sigurður Bjarnason, Gunnar
Berg Viktorsson, Dagur Sigurðsson,
Aron Kristjánsson, Rúnar Sigtryggs-
son, Snorri Steinn Guðjónsson, Heið-
mar Felixson og Ólafur Stefánsson.
Tólf af þessum hópi voru í íslenska
liðinu á EM í Svíþjóð fyrir ári síðan.
Guðmundur Guðmundsson, lands-
liðsþjálfari í handknattleik, vildi alls
ekki staðfesta að þetta yrðu þeir sex-
tán leikmenn sem færu til Portúgal á
HM, er Morgunblaðið ræddi við
hann í gærkvöldi. Sagðist hann ætla
að gefa sér einn til tvo daga til þess
að velta stöðunni fyrir sér áður en
haldið verður til Svíþjóðar á miðviku-
dag þar Ísland leikur síðasta und-
irbúningsleikinn fyrir HM við heima-
menn í Landskrona síðdegis á
fimmtudag.
Ljósmynd/NF
Hornamaðurinn Gústaf Bjarnason er kominn framhjá varnarmönnum Egyptalands í gær og skor-
ar eina mark sitt í leiknum á fjögurra landa mótinu í Danmörku. Ísland vann Egypta, 35:25.
Birkir og Róbert
heltast úr lestinni
Marel
lánaður til
Lokeren
BELGÍSKA 1. deildar-
liðið Lokeren hefur náð
samkomulagi við Stabæk
um að fá landsliðsmann-
inn Marel Baldvinsson að
láni til 30. júní í sum-
ar.Þrír íslenskir lands-
liðsmenn eru fyrir hjá
Lokeren Arnar Þór Við-
arsson, Arnar Grétarsson
og Rúnar Kristinsson.
„Við sáum hann leika á
móti Anderlecht í Evr-
ópukeppninni í haust og
vorum mjög hrifnir af
honum. Arnar Viðarsson
og Arnar Grétarsson
mæltu líka eindregið með
honum. Marel er stór og
sterkur leikmaður og það
er einmitt þannig leik-
maður sem við vorum að
leita eftir. Okkur hefur
tekist að ná samkomulagi
við Stabæk um að fá
hann lánaðan út þetta
tímabil með möguleikum
á kauprétti eftir það. Við
erum mjög ánægðir með
þá Íslendinga sem við
höfum og vonandi eiga
eftir að koma fleiri ,“
sagði Willy Verhoost,
framkvæmdastjóri Lok-
eren við Morgunblaðið.