Morgunblaðið - 14.01.2003, Side 1
2003 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
SCOTTIE PIPPEN TIL LIÐS VIÐ LOS ANGELES LAKERS? / B4
Íslandsmótið
í golfi fer fram
í Eyjum
ÍSLANDSMÓTIÐ í höggleik í golfi fer fram að
þessu sinni á golfvellinum í Vestmannaeyjum.
Stjórn Golfsambands Íslands og mótshaldarar
í Eyjum hafa ákveðið að færa Íslandsmótið fram
um hálfan mánuð og fer það fram vikuna fyrir
verslunarmannahelgina. Það hefst fimmtudag-
inn 24. júlí og lýkur sunnudaginn 27. júlí.
Eins og undanfarin ár verður keppt í Toyota-
mótaröðinni og verða mótin alls sex. Það fyrsta á
Grafarholtsvelli 24. maí og það síðasta í Hvaleyr-
inni í Hafnarfirði 13. september.
GSÍ og sjónvarpsstöðin Sýn hafa skrifað undir
samning um útsendingar frá mótaröðinni og þar
mun Sýn gera mótunum skil eins og síðustu ár.
EYJÓLFUR Sverrisson, knatt-
spyrnumaður hjá þýska liðinu
Hertha Berlín, segist ekki vera
búinn að gera upp hug sinn hvort
hann leiki hér á landi í sumar en
farsælunum ferli Eyjólfs með liði
Herthu lýkur í vor. Vitað er að
Fylkir og Grindavík hafa verið í
sambandi við Eyjólf með það fyr-
ir augum að fá hann til liðs við
sig rétt eins og fyrir síðustu leik-
tíð en þá ákvað hann að láta und-
an þrýstingi forráðamanna
Herthu Berlín og framlengja
samning sinn um eitt ár sem lýk-
ur í lok maí.
„Ég hef ekki ákveðið eitt né
neitt og ekki einu sinni hvort ég
yfir höfuð spili eftir að ég flyt
heim. Ég ætla að taka mér tíma í
að ákveða þessi mál en ég hef
ekki verið í neinum samninga-
viðræðum við lið heima. Ég veit
af áhuga hjá Fylki og Grindavík
alveg eins og í fyrra en fyrst af
öllu þarf ég að gera það upp við
mig hvort ég ætli að spila og í
hvernig formi ég verð í vor,“
sagði Eyjólfur í samtali við
Morgunblaðið.
Eyjólfur er ásamt félögum sín-
um í Tyrklandi en þangað komu
þeir á sunnudag og verða þar í
æfingabúðum í vikutíma og spila
æfingaleiki við þýsk og tyrknesk
lið.
ÓLÖF María Jónsdóttir, kylfingur
úr Keili, tók í gær á móti viðurkenn-
ingu sem kylfingur ársins en und-
anfarin ár hefur GSÍ í samvinnu við
Sjóvá-Almennar staðið að útnefning-
unni. Ólöf fékk gullhúðaðan pútter í
viðurkenningarskyni en hún átti sér-
lega góðu gengi að fagna á síðast-
liðnu ári. Hún varð Íslandsmeistari í
höggleik og náði þeim frábæra ár-
angri að tryggja sér þátttöku í Fut-
ure-mótaröðinni í Bandaríkjunum
þar sem hún er búsett og er hún
fyrsta íslenska konan sem reynir
fyrir sér sem atvinnumaður sem
keppandi.
Ólöf María hélt til Bandaríkjanna í
gær en í marsmánuði hefur hún
keppni á Future-mótaröðinni og með
þátttöku á þeim mótum stefnir hún
að því að öðlast keppnisrétt á LPGA-
mótaröðinni, sem er sterkasta móta-
röð kvenna í heiminum, en þar er
keppt um háar verðlaunafjárhæðir.
„Það eru mjög spennandi tímar
fram undan hjá mér. Ég tel mig vera
tilbúna að takast á við þetta verkefni
og tel raunhæfa möguleika á að kom-
ast inn á LPGA-mótaröðina. Það
verður auðvitað gríðarlega erfitt en
ég kem til með að undirbúa mig og
taka þátt á minni mótum áður en
stóra keppnin fer af stað. Atvinnu-
mennskan hefur heillað mig og nú er
sá draumur að rætast,“ sagði Ólöf
María í samtali við Morgunblaðið í
gær á blaðamannafundi sem Golf-
samband Íslands efndi til í gær.
Á fundinum skrifaði Ólöf María
undir styrktarsamning við Búnaðar-
bankann sem kemur til með að
hjálpa henni að fjármagna keppnis-
haldið.
„Þetta er mjög kostnaðarsamt og
mér reiknast til að heildarkostnaður-
inn við að taka þátt í Future-móta-
röðinni í tvö ár verði í kringum 10
milljónir króna. Það er því mjög mik-
ilvægt að fá styrktarsamning eins og
þennan við Búnaðarbankann og
hann gerir mér kleift að taka fyrstu
skrefin. Ég hef notið velvilja hjá fyr-
irtækjum og eins heppnaðist vel
kvennakvöld sem haldið var fyrir
mig,“ segir Ólöf.
Ólöf mun eingöngu einbeita sér að
golfinu í Bandaríkjunum en hún er
búsett í Austin í Texas. Hún útskrif-
aðist með B.Sc. próf í heilbrigðisvís-
indum frá Háskólanum í Arkansas í
Little Rock í Bandaríkjunum í maí
síðastliðnum og hún reiknar með að
taka þátt í yfir 20 mótum á komandi
ári.
Draumur að rætast hjá Ólöfu
Morgunblaðið/RAX
Ólöf María Jónsdóttir með hinn gullhúðaða pútter sem hún fékk.
GORDON Taylor, for-
maður samtaka at-
vinnuknattspyrnu-
manna á Englandi.
biður Eið Smára Guð-
johnsen, landsliðsmann
Íslands í knattspyrnu
og leikmann með enska
liðinu Chelsea, að leita
sér hjálpar vegna spila-
fíknar hans.
Eiður Smári opin-
beraði sem kunnugt er í
blaðaviðtali við enska
blaðið The People um helgina spila-
fíkn sína og sagðist hafa tapað 52
milljónum króna á fimm mánuðum.
Viðtalið hefur vakið
mikla athygli á Bret-
landseyjum og víða.
„Spilafíkn og veðmál
er vanmetið vandamál.
Fólk ræðir um alkahól-
isma og fíkniefna-
vanda, en spilafíknin
gleymist. Það er er
auðvelt að missa tökin
á henni,“ segir Taylor,
en samtök atvinnu-
knattspyrnumanna á
Englandi hafa iðulega
reynt að veita leikmönnum aðstoð
sem hafa misstigið sig utan knatt-
spyrnuvallarins.
Biður Eið að
leita sér hjálpar
Eiður Smári
Eyjólfur ekki búinn að
gera upp hug sinn
KRISTJÁN Halldórsson hand-
knattleiksþjálfari hefur fengið
frest fram í næstu viku til að
svara þeim tilboðum sem hann
er með. Karlalið Haslum í Nor-
egi vill halda honum og kvenna-
lið Skovbakken/Brabrand í
Danmörku og Bækkelaget í
Noregi vilja fá hann til sín. „Ég
fer um helgina ásamt fjölskyld-
unni til Danmerkur til að skoða
aðstæður hjá Skovbakken/
Brabrand og ætla að gera upp
hug minn í framhaldi af því.“
Kristján
seinkar
ákvörðun