Morgunblaðið - 16.01.2003, Page 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í F
STÓRIÐJA AFLABRÖGÐ FISKVEIÐAR
Sitt hefur sýnst hverjum
í umræðunni um arð-
semi væntanlegrar
Kárahnjúkavirkjunar.
Krókaaflamarksbátarnir
hafa veitt vel það sem
af er þessu fiskveiðiári,
alls 15.509 tonn.
Arngrímur Brynjólfsson,
skipstjóri á Vilhelm,
hefur verið fengsæll á
loðnunni nú í janúar.
ÁHÖLD/6 AUKINN/8 STEFNUM/12
LÍFEYRISSJÓÐIR heimsins töpuðu
1.400 milljörðum Bandaríkjadala á síðasta
ári, eða sem svarar til um 112.000 milljarða
íslenskra króna, samkvæmt rannsókn ráð-
gjafarfyrirtækisins Watson Wyatt. Í Fin-
ancial Times kemur fram að sumir sjóðanna
séu afar illa staddir vegna tapsins, sem staf-
ar af verðlækkun á mörkuðum heimsins. Líf-
eyrissjóðirnir hafa lækkað síðustu þrjú árin
og samanlögð lækkun hefur numið jafnvirði
um 216.000 milljarða króna. Lækkunin í
fyrra var 11%, 7% árið 2001 og 3% árið 2000.
Haft er eftir yfirmanni hjá Watson Wyatt
að eignarýrnun sjóðanna á síðasta ári sé
meiri en nokkru sinni fyrr. Þessi lækkun,
ásamt auknum skuldbindingum sjóðanna,
ylli því að skuldbindingar umfram eignir
næmu nú 200.000 milljörðum króna.
Þegar lífeyrissjóðirnir náðu hámarki árið
1999 voru eignir þeirra metnar á um
1.080.000 milljarða króna og höfðu þá tvö-
faldast á sjö árum. Í lok síðasta árs voru um
864.000 milljarðar í lífeyrissjóðum heimsins.
F J Á R M Á L
Lífeyrissjóð-
ir heimsins
stórtapa
BANDARÍSKA lágvöruverslunarkeðjan
Kmart, sem fékk greiðslustöðvun fyrir ári,
mun segja allt að 35 þúsund starfsmönnum
upp á næstunni og loka 326 verslunum.
Stjórnendur fyrirtækisins vilja með þessa
reyna að koma í veg fyrir gjaldþrot þess.
Greint var frá þessu á vefriti BBC í gær.
BBC segir að hörð samkeppni frá keppi-
nautunum Wal-Mart og Target hafi dregið
úr möguleikum Kmart á að bæta rekstur-
inn, og sumir greinendur á markaði telji að
það muni ekki takast. Sala fyrirtækisins í
desembermánuði síðastliðinum hafi verið
5,7% minni en í sama mánuði árið áður.
Þá kemur fram hjá BBC að Kmart verði
væntanlega tekið til rannsóknar vegna
gruns um að stjórnendur hafi dregið sér
milljónir Bandaríkjadala áður en sótt var
um greiðslustöðvun.
Í mars 2002 var 22 þúsund starfsmönnum
Kmart sagt upp og 283 verslunum lokað.
Kmart segir upp
35 þúsund
starfsmönnum
◆
HAGNAÐUR hjá stærstu fyr-
irtækjum Kauphallar Íslands
dregst saman um 35%–42% á milli
áranna 2002 og 2003 samkvæmt
spám greiningardeilda Búnaðar-
bankans, Íslandsbanka og Kaup-
þings um afkomu fyrirtækjanna
þessi ár.
Búnaðarbankinn spáir fyrir um
afkomu 25 fyrirtækja og sam-
kvæmt spám bankans verður
hagnaður þeirra 44,6 milljarðar
króna á síðasta ári en 27,7 millj-
arðar króna á þessu ári, sem er
38% lækkun milli ára.
Spá Íslandsbanka nær til 26 fyr-
irtækja og samkvæmt henni
minnkar hagnaður þeirra úr 45
milljörðum króna í 26 milljarða
króna milli ára, eða um 42%.
Í spá Kaupþings eru 23 fyrir-
tæki og lækkar hagnaðurinn úr
42,8 milljörðum króna í 27,9 millj-
arða króna milli ára, eða um 35%.
Verðlagning markaðarins
Þessi lækkun hagnaðar sem spáð
er að verði milli ára stafar aðallega
af töluverðum gengis- og sölu-
hagnaði á síðasta ári. Þannig segir
greiningardeild Búnaðarbankans
að gengishagnaður fyrirtækjanna
25 í fyrra sé áætlaður um 14 millj-
arðar króna, söluhagnaður Baugs
vegna sölu á hlut í Arcadia hafi
verið 8 milljarðar króna og sölu-
hagnaður Landsbankans vegna
sölu á hlut í Vátryggingafélagi Ís-
lands hafi verið 1 milljarður króna.
Greining Íslandsbanka gerir
ráð fyrir að framlegð aukist úr
9,5% í 10,5% á milli ára og að
hækkunin skýrist annars vegar af
því að rekstrareiningar með háa
framlegð, sem aðeins hafi gætt að
hluta í fyrra, komi að fullu fram á
þessu ári. Í því sambandi er bent á
að Delta er komið inn í samstæðu
Pharmaco og að sjávarútvegsstoð
hefur orðið til innan Eimskipa-
félagsins. Hins vegar skýrist
hækkunin af því að vænst sé tals-
verðs bata á milli ára eftir afar
slæmt ár í fyrra og eru fyrirtækin
Baugur og Marel nefnd í því sam-
bandi. Þegar leiðrétt hafi verið
fyrir þessum þáttum megi sjá að í
nokkrum tilfellum sé gert ráð fyrir
að framlegð versni eða standi í
stað milli ára.
Greiningardeild Búnaðarbank-
ans telur að fyrirtæki á íslenskum
hlutabréfamarkaði séu almennt
tiltölulega lágt verðlögð. Við matið
á verðlagningu á markaðnum er
reiknuð svokölluð innri ávöxtunar-
krafa fyrirtækjanna og hún borin
saman við fyrri ár og ávöxtunar-
kröfu á skuldabréfamarkaði.
Greining Íslandsbanka segir að
almennt sé ekki að vænta veru-
legrar hækkunar á verði hluta-
bréfa í Kauphöllinni á næstu mán-
uðum. Ávöxtun verði tæplega
svipuð því sem var á síðasta ári,
þegar Úrvalsvísitalan hækkaði um
tæp 17%, og spáð er um 10%
ávöxtun á íslenska hlutabréfa-
markaðnum á árinu.
Greining Íslandsbanka segir
ennfremur að ólíkt því sem verið
hafi í upphafi síðasta árs séu nú fá
áberandi góð kauptækifæri á
hlutabréfamarkaðnum. Þó beri að
líta til þess að framundan sé nokk-
urra ára samfellt hagvaxtarskeið
ef af stóriðjuframkvæmdum verði
og að reynslan sýni að slíkar að-
stæður séu til þess fallnar að ýta
undir verð hlutabréfa auk þess
sem aðgangur að fjármagni til ým-
iss konar útrásar- og umbreyting-
arverkefna verði auðveldari. Hag-
stæðari markaðsaðstæður gætu
jafnvel haft í för með sér að ný fé-
lög veltu fyrir sér skráningu í
Kauphöll Íslands.
Sameiningar
í fjármálageira
Fjármálafyrirtæki, bankar og
tryggingafélög vega þyngst í Úr-
valsvístölu Kauphallar Íslands.
Greiningardeild Búnaðarbankans
telur líklegt að ytra umhverfi
bankanna verði stöðugt á þessu ári
ólíkt því sem verið hafi undanfarin
ár og að ekki sé óvarlegt að áætla
að einhverjar breytingar verði í
rekstri Landsbanka og Búnaðar-
banka í kjölfar einkavæðingar
þeirra. Greining Íslandsbanka tel-
ur líklegt að viðskiptabankarnir
muni skila ávöxtun umfram mark-
aðinn, en það fari helst eftir þeirri
stefnu sem framfylgt verði eftir
einkavæðingu bankanna tveggja.
Greiningardeild Kaupþings seg-
ir að vegna einkavæðingarinnar
megi búast við að landslagið í fjár-
málageiranum verði nokkuð annað
en verið hafi og að mikið sé rætt
um hugsanlegar sameiningar inn-
an hans.
Hagnaður dregst saman
um 35%–42% milli ára
Skýringin á minni hagnaði er aðallega mikill gengis- og söluhagnaður á síðasta ári
Morgunblaðið/Ómar
Framlegð fyrirtækja mun aukast milli ára samkvæmt spá Íslandsbanka.
Miðopna: Áhöld um arðsemi og áhættu