Morgunblaðið - 16.01.2003, Síða 1
2003 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
UPPSÖGNIN KOM KEVIN GRANDBERG MJÖG Á ÓVART / C3
Óánægður með
skipulagsleysi HM
„STAÐAN er fullkomlega óþolandi, ég hef sjald-
an eða aldrei lent í öðru eins,“ segir Morten Stig
Christiansen, íþróttafréttastjóri dönsku sjón-
varpsstöðvarinnar TV2 um þá staðreynd að ekki
hefur enn verið raðað niður og tímasettir leikir í
milliriðlum heimsmeistaramótsins í handknatt-
leik. „Það er innan við vika í að mótið hefjist og
við höfum aðeins tímasetningar á leikjum í riðla-
keppninni,“ segir Christiansen, en stöð hans hef-
ur sýningarrétt frá leikjum heimsmeistaramóts-
ins í Danmörku. Christiansen segir stöðuna vera
óþolandi því það verði að raða niður dagskrá
stöðvarinnar og það sé útilokað að vera að
hringla með hana fram á síðustu stundu. Þá sé
staðan ekki síður óþolandi gagnvart auglýsend-
um. „Ég er eiginlega orðlaus yfir þessu, þetta er
hreinlega fyrir neðan allar hellur því þarna er á
ferð heimsmeistarakeppni.“
ÓLAFUR Ingi Skúlason knatt-
spyrnumaður sem er á mála hjá
enska meistaraliðinu Arsenal, er
kominn til Noregs þar sem hann er
til reynslu hjá norska úrvalsdeild-
arliðinu Sogndal.
Ólafur Ingi verður við æfingar
hjá Sogndal í vikutíma og er ráð-
gert að hann spili með liðinu æf-
ingaleik á móti Brann um næstu
helgi. Sogndal hafnaði í fjórða
neðsta sæti í norsku úrvalsdeildinni
á síðustu leiktíð en liðið hefur rokk-
að á milli úrvalsdeildarinnar og
þeirrar fyrstu undanfarin ár.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
segist reiðubúinn að lána Ólaf Inga
sem geti þannig öðlast reynslu með
því að spila í aðalliði.
Arsenal keypti Ólaf Inga frá
Fylki árið 2001. Hann lék fyrst með
unglingaliðinu og varð enskur
meistari með því í fyrra, en færðist
upp í varaliðið í haust og skoraði
m.a. mark þess í 1:1 jafntefli á móti
Watford í nóvember síðastliðnum.
ÓVÆNT úrslit urðu í 2. umferð á
opna ástralska meistaramótinu í
tennis í fyrrinótt þegar Rússinn
Jevgeni Kafelnikov, sigurvegari frá
árinu 1999, tapaði fyrir lítt þekktum
Finna, Jarkko Nieminen. Finninn
vann tvö fyrstu settin 6:3 en þá
hrökk Kafelnikov í gang og vann tvö
næstu, 3:6 og 4:6. Flestir reiknuðu
með því að þar með væri Finninn all-
ur en svo reyndist ekki vera. Niem-
inen vann síðasta settið, 6:1, og
tryggði sér þar með sæti í 3. umferð-
inni en þetta er í annað sinn sem
hann tekur þátt í ástralska mótinu.
Kafelnikov var í hópi þeirra tenn-
isleikara sem taldir voru eiga mögu-
leika á sigri á mótinu en hann varð
eins og áður segir meistari 1999 og í
öðru sæti árið eftir.
Karlpeningurinn sem fylgist með
mótinu varð fyrir áfalli þegar rúss-
neska kynbomban Anna Kournikova
var slegin út í 2. umferð. Kourni-
kova, sem réð sér ekki fyrir kæti
þegar henni tókst loks að komast
áfram úr 1. umferðinni á stórmóti,
steinlá fyrir Justine Henin-Har-
denne, 6:0 og 6:1.
Venus Williams, sem í öðru sæti á
styrkleikalista mótsins á eftir Ser-
enu, átti ekki í vandræðum með
löndu sína, Ansley Cargill, og sigraði
í tveimur settum, 6:3 og 6:0.
Reuters
Bandaríska stúlkan Venus Williams fagnar sigri á Ansley Car-
gill í annarri umferð opna ástralska meistaramótsins í tennis.
Lítt þekktur Finni
stal senunni
Grænlendingar hafa tilkynnt 16 manna landsliðsitt sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu í
Portúgal sem hefst í næstu viku, en Grænlend-
ingar eru m.a. í riðli með Íslendingum og mætast
þjóðirnar í keppninni næstkomandi þriðjudag.
Sjö leikmenn grænlenska liðsins leika með
dönskum félagsliðum, sjö með liðum í heimaland-
inu, einn spilar í Noregi og einn með þýska ann-
arrar deildarliðinu Gelnhausen, Hans Peter Motz-
feldt, sem í eina tíð lék með FH-ingum.
Landslið Grænlendinga er skipað eftirtöldum
leikmönnum, landsleikir þeirra eru innan sviga;
markverðir eru Ulrich Winther-Hansen, Heimdal
í Noregi (46), Niels Davidsen, Nagdlunguak á
Grænland (23), Ivik Ostermann, NuK á Grænlandi
(8).
Aðrir leikmenn: Rasmus Larsen, GOG í Dan-
mörku (53), Jakob Larsen, GOG í Danmörku (47),
Siverth Johansen, Ikast í Danmörku (17), Niels
Poulsen, Ikast í Danmörku (24), Piitaraq Rosbach,
HF Odense í Danmörku (17), Hans Knudsen,
K-1933 á Grænlandi, (34), Ingo Hansen, HF
Odense í Danmörku (19), Peter Sikemsen, HF
Odense í Danmörku (46), Finn Nielsen, NuK á
Grænlandi, (45), Carsten Olsen, SAK á Græn-
landi, (43), Peter Frederik Olsen, Nagdlunguak á
Grænlandi (27), Kim Hougaard, SAK á Grænlandi
(42), Hans Peter Motzfeldt, Gelnhausen í Þýska-
landi (49). Landsliðsþjálfari Grænlendinga er
Daninn Sören Hildebrandt.
Níu leika utan Grænlands
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu er í 61. sæti á nýjum styrk-
leikalista Alþjóða knattspyrnu-
sambandsins sem gefinn var út í
gær. Íslendingar hafa fallið niður
um þrjú sæti en þeir voru í 58. sæti í
síðasta mánuði.
Staðan á toppnum hefur lítið
breyst og sex efstu þjóðirnar á list-
anum eru þær sömu og fyrir mán-
uði. Brasilía er í efsta sæti og á eftir
koma Frakkland, Spánn, Þýska-
land, Argentína og Holland. Tyrk-
land fer upp um tvö sæti og er í sjö-
unda sæti á listanum, England í
áttunda, Mexíkó í níunda sæti og
Bandaríkin í því tíunda.
Danir eru í tólfta sæti og eru efst-
ir af Norðurlandaþjóðunum, Svíar
skipa 24. sæti, Norðmenn 25. sæti,
Finnar 43. sæti og Færeyingar eru í
116. sæti.
Afganistan, sem lék sinn fyrsta
landsleik í 20 ár, skipar síðasta sæt-
ið á styrkleikalistanum – er í 204.
sæti.
Ísland
fellur um
þrjú sæti
SKÍÐASTÖKKVARAR frá Þýska-
landi, Finnlandi, Póllandi, Japan og
Noregi hafa hótað því að mæta ekki
til leiks í næstu heimsbikarkeppnir
þar sem þeir hafa enn ekki fengið að
nota sams konar keppnisbúninga og
landslið Austurríkis hefur notað í
vetur. Búningur Austurríkismanna
þykir einstakur hvað varðar loftafls-
fræðilega hönnum og hefur skilað
þeim sem hann nota miklum árangri.
Búningurinn er hins vegar illfáan-
legur og Austurríkismenn hafa ekki
verið viljugir til þess að gefa upp
„leyndarmálið“ á bak við hönnunina.
Forsvarsmenn keppenda frá áður-
nefndum þjóðum eru ekki sáttir við
stöðu mála og hafa hótað því að að-
eins keppendur frá Austurríki taki
þátt í næstu keppnum.
Í reglugerðum Alþjóðaskíðasam-
bandsins, FIS, kveður hins vegar á
um það að allir keppendur hafi sama
rétt til þess að nota nýjasta búnaðinn
hverju sinni. Næsta keppni fer fram
um næstu helgi og hefur FIS verið
tjáð að gera út um málið fyrir þann
tíma, því annars verði fámennt í
þeirri keppni.
Skíða-
stökkvarar
í verkfall?
Ólafur Ingi
til reynslu
hjá Sogndal