Morgunblaðið - 19.01.2003, Blaðsíða 12
Rapparinn Eminem þreytir
frumraun sína í kvikmyndaleik
Kvikmyndin 8 Mile
eftir Curtis Hanson
frumsýnd hérlendis
um helgina.
NÚNA eftir helgina hefjast tökur vestra á mynd-
inni Surviving Christmas þar sem Ben Affleck
leikur auðugan yfirmann í hljómplötuiðnaðinum
sem kvíðir einmanalegu jólahaldi og ferðast þess
vegna til æskuheimilis síns og borgar fjölskyldunni
sem þar býr nú til að þykjast vera fjölskylda sín.
Christina Applegate leikur dótturina á heimilinu,
Catherine O’Hara er móðirin og James Gandolfini
faðirinn. Leikstjóri Surviving Christmas er Mike
Mitchell (Deuce Bigalow: Male Gigolo).
Affleck vill lifa jólin af
TÖKUR eru hafnar í Bretlandi á kvikmyndinni
Blind Flight, sem byggist á metsölubókinni An
Evil Cradling eftir Brian Keenan, en þar lýsir
hann því þegar hann og landi hans John
McCarthy voru í haldi mannræningja í Líbanon á
9. áratugnum. Ian Hart leikur Keenan og Linus
Roach er McCarthy. Sá síðarnefndi segir að
„samband Brians og Johns var svo náið og djúpt
að einstakt er og við Ian erum heillaðir af því ögr-
andi verkefni að flytja það upp á tjald“. Blind
Flight verður frumraun leikstjórans John Furse
sem einnig samdi handritið í félagi við Brian
Keenan. Furse segir myndina vera „í senn fang-
elsisdrama og ástarsögu um leit að einstaklings-
frelsi í óvenjulegum aðstæðum“.
Sönn gíslasaga kvikmynduð
HINIR misheppnuðu
uppvakningar Dark Castle-
fyrirtækis Joels Silver og
Roberts Zemeckis á
gömlum hrollvekjum hljóta
að hafa valdið þeim sem
öðrum vonbrigðum. Fyr-
irtækið er þó ekki af baki
dottið og er nú að hefjast
handa við dýrustu mynd
sína til þessa, yfirnátt-
úrulega spennumynd með
stjörnunum Halle Berry
og Penelope Cruz í aðal-
hlutverkum. Myndin heitir Gothika og leikur
Berry þar geðlækni sem vaknar einn vondan
veðurdag sem sjúklingur á sjúkrahúsinu þar sem
hún starfar og er ákærð fyrir morð sem hún
minnist ekki að hafa framið. Cruz leikur einn
meðsjúklinga hennar. Leikstjóri hefur enn ekki
verið ráðinn að verkinu.
Berry og Cruz til liðs við
Myrkrakastalann
Halle Berry: Hroll-
vekjandi hremming.
HINN aldni franski
meistari Alain Resnais
byrjar í næsta mánuði tök-
ur á fyrstu mynd sinni í
fimm ár, Pas Sur La Bo-
uche, sem er gamansamur
söngleikur, byggður á gam-
alli óperettu frá árinu 1925.
Resnais skrifar sjálfur
handritið sem snýst um
farsakenndan ást-
arþríhyrning og meðal leik-
enda verða Audrey Tautou
(Amelie), Sabine Azema,
Pierre Arditi, Lambert Wilson og Daniel Prevost.
Síðasta mynd Resnais, On Connait la Chanson,
sópaði til sín Cesarverðlaununum, franska Ósk-
arnum, árið 1998.
Resnais syngur og gantast
Audrey Tautou:
Syngur og leikur hjá
Resnais.
ÞEGAR Miramax ákvað að
gefa grænt ljós á myndina
Spy Kidsog fá höfundinn og
hasarmyndaleikstjórann Ro-
bert Rodriguez til að leik-
stýra handritinu sínu, hvarfl-
aði ekki að nokkrum manni að
útkoman yrði ein af vinsæl-
ustu myndum ársins 2001.
Enda er efnið harla óvenjulegt
og fjallar um barnunga
spæjara sem bjarga heim-
inum. Enn á ný í Spy Kids 2,
sem væntanleg er í bíóhúsin,
leggja ungu spæjararnir
Carmen og Juni Cortez land
undir fót og halda til eyju þar
sem eitthvað meira en lítið
dularfullt er á seyði. Ásamt
Gary og Gerti og öðrum
ungnjósnurum finna þau kol-
óðan vísindamann, sem búið
hefur um sig á eyjunni. Þaðan
hyggst hann ná heims-
yfirráðum og gengur með
heldur óhugnanlegar áætlanir
í kollinum. Undir slíkum kring-
umstæðum er ekki ónýtt að
eiga foreldra, sem eru
þrælsjóaðir í njósnabrans-
anum og líður ekki á löngu
uns Cortez-hjónin eru mætt í
slaginn, sem verður bæði tví-
sýnn og gamansamur. Betur
má ef duga skal því Cortez-
krakkarnir verða að kalla á
afa og ömmu til liðs við sig ef
heimurinn á ekki að fara í
hundana. Með aðalhlutverk
fara Antonio Banderas, Carla
Gugino, Alexa Vega, Daryl
Sabara og Steve Buscemi.
Spy Kids
í nýjum
ævintýr-
um
Spy Kids 2: Alexa Vega og
Daryl Sabara.
gerð sé að fá í magann í miðjum uppganginum.
Fréttaritari Ríkisútvarpsins í Kaupmanna-
höfn vakti máls á þessu í fréttaskýringaþætt-
inum Speglinum nýlega. Tilefnið var deila sem
nú stendur um tilteknar styrkúthlutanir
Dönsku kvikmyndastofnunarinnar til Zentr-
opa-fyrirtækis Lars von Triers og Peters Aalbæks
Jensens, sem er stórveldi í danskri kvikmynda-
gerð, og í framhaldi af því um það úthlut-
unarfyrirkomulag sem stofnunin vinnur eftir.
Auk svokallaðrar 60/40 mótvirðisreglu fara út-
hlutanir stofnunarinnar eftir ákvörðunum
starfsmanna hennar, „konsúlenta“; þeir hafa
vald til að ákveða hvaða umsækjendur fá
styrki og hversu háa. Nú hafa átta dönsk
framleiðslufyrirtæki skrifað bréf til kvik-
myndastofnunarinnar og menntamálaráðherr-
ans í tilefni af augljósum vináttu- og hags-
munatengslum viðkomandi „konsúlents“
Mikaels Olsens og umsækjandans Peters Aalbæks
Jensens; Berlingske tidende hefur vakið athygli
á því að bæði fyrir og eftir að Olsen gegndi
embætti „konsúlents“ hafi hann unnið fyrir
Zentropa sem handritshöfundur og framleið-
EKKERT lát virðist vera á uppgangidanskrar kvikmyndagerðar. Hún vinnursæta sigra víða um lönd og styrkir jafnt
og þétt stöðu sína á heimamarkaði. Danska
kvikmyndastofnunin áætlar að í fyrra, 2002,
hafi Danir keypt um 3,6 milljónir aðgöngumiða
á innlendar bíómyndir; það er álíka og 2001,
sem var algjört metár í danskri kvikmynda-
sögu. Þetta þýðir að danskar kvikmyndir hafa
milli 27 og 28% markaðshlutdeild, sem telst af-
ar gott andspænis ofureflinu að vestan. Upp-
gangur er góður, en verra er ef hann leiðir til
niðurgangs. Svo virðist sem dönsk kvikmynda-
andi og þar fyrir utan séu þeir Aalbæk Jensen
nánir vinir. Því séu háar styrkveitingar hans
til fyrirtækisins óeðlilegar eða a.m.k. tor-
tryggilegar, og er þar sérstaklega talað um
munnlegt loforð Olsens um að styrkja Dancer
In the Dark von Triers um 12 milljónir danskra
króna löngu áður en styrkumsókn hafði fengið
venjulega umfjöllun. Í bréfi fyrirtækjanna er
farið fram á að þessu úthlutunarfyrirkomulagi
sé breytt svo koma megi í veg fyrir tengsl af
þessu tagi sem leiði til mismununar og van-
hæfis. Aalbæk Jensen brást hinn versti við þessu
bréfi og hafði í hótunum við bréfritara, en það
er önnur saga.
Nú er að vísu ekki ljóst hvaða stefnu þetta
deilumál tekur hjá Dönum, en í síðustu viku
sendu danskir framleiðendur, þ.á m. Aalbæk
Jensen, sem eitthvað hefur þá róast, frá sér
sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir segjast
vilja leita allra leiða með Dönsku kvikmynda-
stofnuninni til að finna starfsgrundvöll svo
ekki einu sinni „grunur um vanhæfi“ geti
vaknað. Stjórn Dönsku kvikmyndastofnunar-
innar hefur í greinargerð til mennta-
Tökum við dönsku veikina?
SJÓNARHORN
Árni Þórarinsson
„Ég treysti honum ekki. Við erum vinir,“ sagði Bert-
holt Brecht á viðkvæmu augnabliki. Þau geta orðið
mörg, viðkvæmu augnablikin, þegar vinátta er ann-
ars vegar og hagsmunir hins vegar. Þá vakna gjarn-
an spurningar um hagsmunaárekstra, hags-
munatengsl, vanhæfi, jafnvel spillingu.
Í KJÖLFAR frumsýningarinnar
mun myndin fara á milli erlendra
kvikmyndahátíða áður en hún
verður frumsýnd á Íslandi á
næstu mánuðum.
Forsýningin í London var á
vegum breska kvikmyndasjóðs-
ins Film Council sem tók þátt í
fjármögnun myndarinnar, en
Nói albinói er með fyrstu mynd-
um á erlendri tungu sem Film
Council leggur lið; meðal nýlegra
mynda sem sjóðurinn hefur stutt
eru Gosford Park og Bend It
Like Beckham. „Þeir hafa trú á
þessari mynd og vildu fá að for-
sýna hana, okkur fannst það
gaman og gáfum okkar leyfi,“
sagði Skúli Malmquist, framleið-
andi hjá kvikmyndafélaginu Zik
Zak sem stendur að gerð mynd-
arinnar. „Þetta er mjög þekkt
kvikmyndahús í London, rétt við
Leicester Square. Hér er alls
ekki um neitt glamúr-leikhús að
ræða, sem er fínt, enda væri ann-
að úr stíl við myndina.“
Meðal meðframleiðenda Nóa
albinóa er Sol Gatty-Pasqual fyr-
ir hönd kvikmyndafyrirtækisins
The Bureau, sem starfrækt er í
London og framleiddi m.a. The
Warrior sem fjölda viðurkenn-
inga hefur fengið. Sol var við-
stödd forsýninguna og hafði
þetta að segja um samstarfið í
samtali við Morgunblaðið: „Ég
hitti Dag Kára á kvikmyndahátíð
fyrir þremur árum. Ég varð
mjög hrifin af stuttmynd hans
Lost Weekend og sagði við hann
í kjölfarið: Endilega hringdu í
mig ef þig langar að gera mynd í
fullri lengd. Nokkru síðar
hringdi svo Skúli [Malmquist] í
mig og samstarfið hófst.“
Á svipuðum tíma tók nýr fram-
kvæmdastjóri við taumum hjá
Film Council, sem að sögn Sol
kom sér vel, því hann opnaði dyr
sem áður höfðu verið lokaðar;
fjármögnun mynda sem leiknar
eru á erlendri tungu. „Þeir
sýndu þar ákveðið hugrekki og
okkur tókst að fá þá inn í verk-
efnið.“
Nói albinói er fyrsta langa
myndin sem The Bureau tekur
þátt í að framleiða, en Sol lauk
kvikmyndanámi fyrir þremur ár-
um og rekur nú fyrirtækið ásamt
frönskum félaga sínum. „Það er
talsverð samkeppni í þessum
bransa en ég held að við höfum
verið tiltölulega heppin. Okkar
áhugi liggur á sviði svonefndra
leikstjóramynda, listrænna
mynda, í stað meginstraums-
mynda eða söluvænlegri verka.
Ég hef mikla trú á Nóa albinóa
og nú þegar hefur hún verið tek-
in inn á þýðingarmiklar kvik-
myndahátíðir. Ég trúi því að hún
muni gera það gott, við erum líka
með góðan umboðsaðila sem hef-
ur jafnóbilandi trú á verkinu og
við. Það er engin spurning að
Dagur Kári er miklum hæfileik-
um búinn og þessi mynd ber list-
rænni sýn hans frábært vitni.
Á vinnslutímanum vorum við í
góðu sambandi, við ræddum
saman um verkefnið, en ég fór
hins vegar ekki á tökustaði til
þess að skipta mér af. Hugsjón
leikstjórans var sett ofar öllu og
við vissum að hann vissi alveg
hvað hann var að gera.“
Aðspurð um sérkenni Nóa alb-
inóa í samanburði við aðrar
myndir sem bjóðast áhorfendum
í bíóhúsum í álfunni, kímdi Sol og
svaraði: „Myndin er náttúrulega
á íslensku, sem er út af fyrir sig
mjög spes! En annars er styrkur
myndarinnar sá að hún er full-
komlega hún sjálf. Hún hefur
sína eigin sögu, sínar eigin skýr-
ingar á því hver Nói er, og svo
framvegis. Þessi mynd fylgir
ekki formúlu annarra og hún ber
með sér ferska sýn á tilveruna,
bæði í sjálfri kvikmyndanálgun-
inni sem og í efnistökum. Lost
Weekend hafði líka þennan eig-
inleika, sitt sérstaka andrúms-
loft, sem segir allt sem segja þarf
um Dag Kára sem leikstjóra.“
Áður en forsýningin í Prince
Charles hófst hlýddu áhorfendur
myndarinnar á lifandi flutning
raddaðra, íslenskra þjóðlaga á
tröppum bíóhússins og voru þar
á ferð vaskir, ungir menn úr Ís-
lendingakórnum í London. Vís-
uðu þeir gestum svo syngjandi
veginn inn í rauðbólstraðan bíó-
salinn þar sem við tóku á tjaldinu
vestfirsk fjöll, rammíslenskar
skipafréttir, veggfóðraður ein-
manaleiki, Nói með lopahúfuna
sína og stemmningstónlist Slow-
blow.
Menn vöknuðu ekki aftur til
heimsborgarveruleikans fyrr en
undir þróttmiklu lófaklappinu í
lokin.
Forskot á sæluna
Íslenska kvikmyndin Nói alb-
inói eftir Dag Kára Pétursson
var forsýnd í Prince Charles-
kvikmyndahúsinu í London á
mánudagskvöld, en formleg
frumsýning myndarinnar
verður á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Rotterdam
nú í vikunni og keppir hún
þar um tígurverðlaunin, ein
norrænna mynda. Sigur-
björg Þrastardóttir var á
forsýningunni.
Tomas Lemarquis í hlutverki bæjarvillingsins og albínóans Nóa: Meðal
gesta á forsýningunni í Lundúnum voru fulltrúar Miramax, New Line,
BBC og Channel 4.
Í MIÐJU eldhafi sem gæti
orðið honum að aldurtila lítur
slökkviliðsmaður um öxl og
veltir fyrir sér lífi sínu og
starfsferli. Þetta þætti ekki
gæfulegt í raunveruleikanum
en í Hollywood er allt hægt
og svona eru efnisforsendur
dramatískrar myndar frá
Disney sem fer í tökur með
vorinu. Myndin heitir Ladder
49 og verða John Travolta
og Joaquin Phoenix í aðal-
hlutverkunum. Leikstjórinn heitir Jay Russell. Það
er annars af Travolta að frétta að í apríl verður
frumsýnd myndin Basic þar sem hann leikur með
sínum gamla Pulp-Fiction-félaga Samuel L. Jack-
son undir stjórn Johns McTiernan.
Endurmat í eldsvoðanum
John Travolta: Það
brennur…