Morgunblaðið - 19.01.2003, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2003 C 15
S M Á A U G L Ý S I N G A RI
TILKYNNINGAR Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur,
Síðumúla 31,
s. 588 6060.
Miðlarnir, spámiðlarnir og hug-
læknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen, Ingibjörg Þeng-
ilsdóttir, Erla Alexanders-
dóttir og Garðar Björgvins-
son michael-miðill starfa hjá
félaginu og bjóða félagsmönn-
um og öðrum upp á einkatíma.
Upplýsingar um félagið, einka-
tíma og tímapantanir eru alla
virka daga ársins frá kl. 13—
18. Utan þess tíma er einnig
hægt að skilja eftir skilaboð á
símsvara félagsins.
Netfang: mhs@vortex.is .
Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur
starfar í nánum tengslum við Sál-
arrannsóknarskólann á sama stað.
SRFR.
Sálarrannsóknarfélag
Íslands,
stofnað 1918,
Garðastræti 8, Reykjavík
Huglæknarnir Erna Jóhanns-
dóttir, Hafsteinn Guðbjörnsson
og Kristín Karlsdóttir starfa hjá
félaginu og bjóða upp á einka-
tíma. Einnig miðlarnir Birgitta
Hreiðarsdóttir, Guðrún Hjör-
leifsdóttir, Laufey Egilsdóttir,
Lára Halla Snæfells, María Sig-
urðardóttir, Oddbjörg Sigfús-
dóttir, Rósa Ólafsdóttir, Skúli
Lórenzson og Þórunn Maggý
Guðmundsdóttir.
Dulspekingurinn Amy Engil-
berts starfar líka hjá félaginu.
Gjafabréf frá SRFÍ er kærkomin
og skemmtileg tækifærisgjöf og
fæst á skrifstofunni Garðastræti
8, þar eru líka seld minningar-
kort félagsins.
Upplýsingar og bókanir eru í
síma 551 8130. Breyttur opn-
unartími á skrifstofu í Garða-
stræti 8. Opið mánudaga, þriðju-
daga og miðvikudaga frá kl. 9—
13, fimmtudaga frá kl. 12—16,
lokað á föstudögum .Heimasíða:
www.salarrannsoknarfelagid.is .
SRFÍ.
KENNSLA
CRANIO-NÁM
2003-2004
Skráning hafin. 6 námsstig.
A-hluti 22.-27.feb. Námsefni á
ísl./ísl.leiðbeinendur.Uppl.
Gunnar, s.564 1803/699 8064.
AIKIDO
- ný námskeið að hefjast
Unglinga- og fullorðinshópar
— Faxafeni 8. Uppl. í s. 822
1824 og 897 4675. Mán.-mið.
18.00-19.15, lau. 11.00-12.15.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 3 1831208
GIMLI 6003012019 I
MÍMIR 6003012019 III
I.O.O.F. 10 1831208 M.T.W.
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í dag kl. 14.00.
Í kvöld kl. 19.30 Bænastund
kl. 20.00 Hjálpræðissamkoma.
Aslaug Langgård stjórnar.
Brigader Ingibjörg Jónsdóttir
talar.
Mánudag 20. janúar kl. 15.00
Heimilasamband. Majór
Elsabet Daníelsdóttir talar.
kl. 17.30 Barnakór.
Brauðsbrotning kl. 11:00.
Ræðum. Ásmundur Magnússon.
Almenn samkoma kl. 16:30.
Ræðum. Vörður L. Traustason.
Allir hjartanlega velkomnir.
Mið: Mömmumorgnar kl. 10:00.
Fjölskyldusamv. kl. 18:00.
Lau: Bænastund kl. 20:00.
Bænastundir alla virka morgna
kl. 6:00.
Morgunguðsþjónusta kl. 11.00.
Fræðsla fyrir börn og fullorðna.
Friðrik Schram kennir.
Samkoma kl. 20. Mikil lofgjörð
og fyrirbænir. Pétur Ásgeirsson
hefur upphafsorð. Friðrik Schram
predikar.
Kynning á Alfa-námskeiði
verður 21. janúar kl. 20. Nám-
skeiðið byrjar 28. janúar kl. 19.
www.kristur.is .
Samkoma í dag kl. 16.30.
Gunnar Þorsteinsson predikar.
Þriðjudagur:
Samkoma kl. 20.00.
Miðvikudagur:
ALFANÁMSKEIÐ kl. 19.00.
Laugardagur:
Samkoma kl. 20.30. Ashley
Schmierer verður gestur okkar.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Bænastund kl. 16:00.
Samkoma kl. 16:30, Högni Vals-
son predikar, lofgjörð, krakka-
kirkja, ungbarnakirkja, fyrirbæn-
ir og samfélag.
Allir hjartanlega velkomnir.
Athugið að skráning á Lækn-
ingadaga, á Alfanámskeiðið og
námskeiðið Að sættast við for-
tíðina, er hafin.
Kynningarkvöld Alfa er miðviku-
daginn 22. jan.
Bókabúðin er opin alla virka
daga frá kl. 13:00 til 16:00, mikið
úrval erlendra og innlendra bóka
svo og dvd og geisladiska.
mbl.is
ATVINNA
MEIRIHLUTI líkams-
árása, innbrota og bíl-
þjófnaða er framinn um
helgar og lögreglu-
menn verða helst fyrir
ofbeldi í febrúar, mars,
apríl og maí. Þetta er
meðal þess sem kemur
fram í nýrri skýrslu
ríkislögreglustjóra um
afbrotatölfræði árið
2001.
Um 73% allra af-
brota sem voru skráð í
málaskrá árið 2001 eru
umferðarlagabrot en
hlutfallið er 10–30%
annars staðar á Norð-
urlöndum.
„Það sem kom mér helst á óvart
var hvað er mikill stöðugleiki í af-
brotum. Bæði í Reykjavík og á land-
inu í heild eru yfirleitt mjög litlar
breytingar milli ára, að minnsta
kosti minni en ég bjóst við,“ segir
Rannveig Þórisdóttir, félagsfræð-
ingur hjá ríkislögreglustjóra, en hún
tók skýrsluna saman. Reyndar hafi
kynferðisbrotum fjölgað umtalsvert
og sveiflur verið í auðgunarbrotum
og skjalafalsi. Rannveig bendir á að í
skýrslunni komi fram að fölsun á
ávísunum hafi dregist saman enda
notkun þeirra minni en að sama
skapi hafi greiðslukortasvikum fjölg-
að með aukinni notkun þeirra. „Það
sem er að gerast í þjóðfélaginu end-
urspeglast í afbrotunum,“ segir
Rannveig.
Meirihlutinn umferðarlagabrot
Árið 2001 voru 90.729 brot skráð í
málaskrá lögreglunnar, þar af voru
rúmlega 73% umferðarlagabrot,
20% voru hegningarlagabrot og um
6% féllu undir önnur brot. Aðspurð
segir Rannveig að hjá öðrum Norð-
urlandaþjóðum sé hlutfall umferðar-
lagabrota ekki nándar eins hátt, yf-
irleitt um 10–30%.
Þetta þýði þó ekki endilega að Ís-
lendingar fari síður eftir umferðar-
lögum en íbúar annarra Norður-
landaþjóða. „Ég held að þetta
skýrist frekar af ólík-
um áherslum í lög-
gæslu,“ segir hún.
Spurð um hvort afbrot
séu hlutfallslega fleiri
eða færri á Íslandi en
annars staðar á Norð-
urlöndum, segir hún að
þegar litið sé til heild-
arfjölda afbrota séu
þau fleiri á Íslandi,
miðað við mannfjölda.
Sé á hinn bóginn aðeins
litið til hegningarlaga-
brota standi Íslending-
ar mun betur að vígi.
Hegningarlagabrotin
séu mun færri. Rann-
veig tekur þó skýrt
fram að slíkur samanburður sé erf-
iður enda reglur um skráningu og
flokkun afbrota afar mismunandi
eftir löndum. Mesta samræmið í
skráningu sé þó í hegningarlaga-
brotum. „Það eru ekki færri afbrot á
Íslandi en annars staðar en hlutfall
alvarlegra brota er mun lægra,“ seg-
ir hún.
Í skýrslu ríkislögreglustjóra um
afbrotatölfræði kemur einnig fram
að sum afbrot eru algengust um
helgar. Sérstaklega á þetta við um
líkamsárásir en um 60% af alvarleg-
um líkamsárásum verða um helgar
og ofbeldi gegn lögreglumönnum er
líka algengast þá. Rannveig telur lík-
legustu skýringuna vera þá að þessi
afbrot séu oft tengd áfengisneyslu
og skemmtunum þar sem margt fólk
kemur saman. Líkamsárásir voru al-
gengastar á sumrin og lögreglumenn
voru helst beittir ofbeldi í febrúar,
mars, apríl og maí árið 2001. Rann-
veig sér enga augljósa skýringu á
þessu en bendir á að málin séu ekki
ýkja mörg og því þurfi ekki mikið til
að skekkja myndina.
Meta aðferðir og þróun
Aðspurð hvernig afbrotatölfræði
nýtist lögreglunni segir Rannveig að
hún komi m.a. að gagni við að meta
árangur af ákveðnum verkefnum.
„Hjá ríkislögreglustjóranum hefur
þetta líka verið notað til að meta
starfsaðferðir og árangur lögreglu
og til að sjá betur þróun í ákveðnum
málaflokkum. Stundum má líka sjá
hvað má betur fara hjá einstökum
lögregluembættum. Afbrotatölfræði
er einnig mikilvæg til að skoða og
meta þróun brota yfir lengra tímabil.
Slíkar upplýsingar eru ekki síst at-
hyglisverðar í samanburði við t.d.
spurningalistakannanir sem geta
veitt viðbótarupplýsingar um stöðu
og þróun mála. Þannig hafa rann-
sóknir bent til þess að meirihluti inn-
brota og þjófnaða sé tilkynntur til
lögreglu en aðeins um helmingur of-
beldisbrota. Þekking á ástæðum
þess að sum afbrot eru kærð en önn-
ur ekki er mikilvæg fyrir lögreglu
meðal annars til að lögregla geti gert
sér grein fyrir hvað vel er gert og
hvað má betur fara,“ segir hún.
Skýrsla ríkislögreglustjóra um afbrotatölfræði 2001
Um 73% afbrota eru
umferðarlagabrot
Rannveig Þórisdóttir
félagsfræðingur.
EFTIRFARANDI tölur miðast
við fjölda afbrota á 10.000
íbúa sem skráð voru í mála-
skrá lögreglunnar. Árið 2001
voru hegningarlagabrot flest í
Reykjavík, tæplega 900, og í
Kópavogi, um 730. Íbúar í um-
dæmi lögreglunnar í Hólma-
vík virðast með eindæmum
löghlýðnir því aðeins voru
skráð tæplega 47 hegning-
arlagabrot á 10.000 íbúa.
Landsmeðaltal var 655,7.
Hlutfallslega flestir voru
stöðvaðir fyrir umferð-
arlagabrot innan umdæmis
lögreglustjórans í Borgarnesi,
eða um 7.500. Blönduós var
næst í röðinni með 7.435 brot
og þar á eftir kom lögreglan á
Hvolsvelli með um 3.500 um-
ferðarlagabrot á hverja
10.000 íbúa. Landsmeðaltal
var 2.353,6.
Afbrot á
10.000 íbúa
alltaf á sunnudögumBÍLAR
FULLTRÚI Alcoa, Ástralinn
Wade Hughes sem er yfirmaður á
umhverfis-, heilbrigðis- og örygg-
issviði álfyrirtækisins, átti á
fimmtudag fund með talsmönnum
Náttúruverndarsamtaka Íslands,
þeim Árna Finnssyni og Ólafi S.
Andréssyni. Hughes hefur verið
hér á landi síðustu daga ásamt að-
altalsmanni Alcoa, Jake Siewert, til
viðræðna við ýmsa aðila.
Hughes segir við Morgunblaðið
að fundurinn með Árna og Ólafi
hafi verið góður. Opinskáar og
hreinskiptar viðræður hafi farið
fram um fyrirhugaðar álversfram-
kvæmdir í Reyðarfirði og virkjana-
áform við Kárahnjúka. Fundurinn
hafi vonandi verið upphaf að frek-
ari samskiptum og kynnum því Al-
coa vilji hafa samtök á borð við
Náttúruverndarsamtök Íslands
með í ráðum við hönnun fyrirhug-
aðs álvers og koma til móts við sem
flestar óskir á sviði umhverfismála.
Árni Finnsson segir fundinn hafa
verið ágætt tækifæri til að koma
sjónarmiðum samtakanna frekar á
framfæri. Þeir Ólafur hafi hitt
Hughes áður að máli, hann sé
„hinn vænsti maður“ en ekki sam-
mála þeim um framtíðina. Samræð-
ur séu þó skárri en einhverjar ill-
deilur. Aðspurður hvort samtökin
séu reiðubúin til samráðs eða frek-
ari samskipta við Alcoa segir Árni
að þau hafi ekki mikla möguleika á
að veita tæknilega aðstoð. Samtök-
in muni áfram koma á framfæri
þeim sjónarmiðum sem þau telji
best fyrir umhverfið.
Samþykki borgarstjórnar
mikilvægt
Hughes er mjög ánægður með
árangur viðræðna hér síðustu daga.
Sömuleiðis hafi verið mjög mikil-
vægt að fá samþykki borgarstjórn-
ar Reykjavíkur varðandi ábyrgð á
lántöku vegna Kárahnjúkavirkjun-
ar. Nú sé aðeins beðið eftir sam-
þykki Alþingis vegna álversins í
Reyðarfirði.
Aðspurður hvort mótmælin við
Ráðhúsið hafi komið honum á óvart
segir Wade það eðlilegt að fólk tjái
skoðanir sínar í lýðræðisríki eins
og Íslandi. Hann virði ávallt þann
rétt.
Hughes fór af landi brott í gær
en nokkrir fulltrúar frá Alcoa verða
áfram hér á landi, m.a. vegna fund-
ar um skipulagsmál sem haldinn
verður á Reyðarfirði eftir helgi fyr-
ir íbúa Fjarðabyggðar. Þar stendur
til að kynna tillögu að breyttu
starfsleyfi álvers Fjarðaáls sf. Aug-
lýst verður eftir athugasemdum við
tillöguna og frestur til þess rennur
út 18. febrúar næstkomandi.
Fulltrúi Alcoa um fund með
Náttúruverndarsamtökum Íslands
Vonandi upp-
haf að frekari
samskiptum