Morgunblaðið - 22.01.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr-
skurðaði á föstudag karlmann á fer-
tugsaldri í gæsluvarðhald til 21.
febrúar að kröfu lögreglunnar í
Reykjavík. Maðurinn hafði verið
handtekinn af lögreglunni í Hafnar-
firði vegna nytjastuldar, en þar sem
hann hefur nokkrum sinnum áður
komið við sögu afbrota, einkum inn-
brota í Reykjavík höfðu lögreglu-
embættin með sér samstarf um að
láta reyna á kröfu um síbrotagæslu
fyrir dómi.
Síbrotamaður í
gæsluvarðhald
FÍKNIEFNADEILD lögregl-
unnar í Reykjavík lagði hald á
120 e-töflur, 30 grömm af hassi
og eilítið af amfetamíni á föstu-
dag. Þar af var einn maður með
100 e-töflur í sínum fórum.
Flestir afbrotamannanna voru
undir tvítugu. Fíkniefnadeild
lögreglunnar var óvenju upp-
tekin á föstudag en þá komu
alls 16 fíkniefnamál og 23 aðilar
við sögu.
„Þetta er liður í auknu götu-
eftirliti okkar í lögreglunni. Þar
beinum við spjótum okkar að
sölumönnum á götunni og öðr-
um sem handfjatla efnin þar,“
sagði Ásgeir Karlsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn.
Ellefu lögreglumenn störf-
uðu upphaflega við götueftirlit
en undanfarið ár hafa fimm
menn bæst í hópinn. „Nú erum
við komnir með öfluga einingu
sem vinnur að þessum málum.
„Það er að koma mjög góð
reynsla á þetta götueftirlit og
það er farið að skila miklum ár-
angri,“ sagði Ásgeir ennfrem-
ur.
Tekinn
með 100
e-töflur
Sextán fíkniefna-
mál á einum degi
ÁRIÐ 2000 voru 11,3% prófaðra
námseininga í framhaldsskólum
verknám. Þetta jafngildir því að
1.585 nemendur hafi verið í hreinu
verknámi af 14.010 nemendum sem
stunduðu nám við framhaldsskóla
það ár. Þessar upplýsingar komu
fram í ræðu sem Guðmundur Árna-
son, ráðuneytisstjóri í menntamála-
ráðuneytinu, flutti á málþingi Sam-
taka iðnaðarins fyrir helgi.
Hagstofa Íslands heldur saman
reglulegri tölfræði yfir verknáms-
nema í landinu. Guðmundur bendir
á að tölulegur samanburður á bók-
námi og verknámi sé jafnan háður
nokkrum fyrirvörum, en engu að
síður geti slíkur samanburður leitt
ýmislegt forvitnilegt í ljós. „Sam-
kvæmt greiningu menntamálaráðu-
neytisins á rauntölum ársins 2000
má ætla að 11,3% prófaðra náms-
eininga verði árlega til í verklegum
áföngum þeirra skóla sem reikni-
líkanið tekur til (VÍ undanskilinn).
Þetta svarar til 1.585 nemenda í
hreinu verknámi (án alls annars
náms) – 1.585 af 14.010 ársnemum
á framhaldsskólastigi í heild.“
Guðmundur benti á að sama
greining leiddi í ljós að 19% af þeim
kennslustundum sem til ráðstöfun-
ar séu á framhaldsskólastigi sé var-
ið til kennslu iðn- og verknáms.
Tæplega 19% af framlögum til við-
halds húsnæðis sé varið til húsnæð-
is sem nýtt er fyrir iðn- og verk-
nám. Um 23% af framlögum til
umsjónar, skrifstofu og ræstingar
og um 40% þess fjár sem fram-
haldsskólakerfið hefur í viðhald og
endurnýjun tækja renni til sömu
námsgreina.
„Þetta er samkvæmt rauntölum
2000. Menn hafa sjálfsagt á því
misjafnar skoðanir hvort of mikið
eða lítið sé í lagt, en þessar tölur
segja okkur í það minnsta að verk-
nám er miklum mun kostnaðarsam-
ara en bóknám og að fjárveitingar
taka mið af því,“ sagði Guðmundur.
11,3% framhaldsskóla-
nema eru í verknámi
MIKILL meirihluti Íslendinga er
andvígur hernaðaraðgerðum gegn
Írak að því er fram kemur í könnun
sem Fréttablaðið birti í gær. Rúm-
lega 80% þeirra sem spurðir voru
eru andvígir hernaði, 8% eru fylgj-
andi en 12% neituðu að svara. Ef að-
eins eru teknir þeir sem afstöðu tóku
er 91% á móti en 9% fylgjandi. Tals-
verður munur er á afstöðu kynja því
15% karla eru fylgjandi en 4%
kvenna ef aðeins eru teknir þeir sem
taka afstöðu.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns og skiptist það jafnt á milli
kynja og hlutfallslega á milli kjör-
dæma.
Mikil andstaða
við árás á Írak
Forsala miða og borðapantanir alla virka daga kl. 11:00-19.00.
Sími 533 1100 - fax 533 1110 - www.broadway.is - broadway@broadway.is
T ó n l i s t a r s t j ó r n : G u ð n i B ra g a s o n
F ra m ko m a : A n n a K a r í n J ó n s d ó t t i r, K r i s t j á n
Þ ó r M a g n ú s s o n , A ð a l s t e i n n J ú l í u s s o n , L á ra
S ó l e y J ó h a n n s d ó t t i r, S ö n g va s y s t u r ( G u ð n ý ,
B y l g j a , H a r p a o g S vava S t e i n g r í m s d æ t u r ) ,
G u ð n i B ra g a s o n o g S i g u r ð u r I l l u g a s o n
a u k s j ö m a n n a s t ó r h l j ó m s v e i t a r.
G e s t a h l j ó ð f æ ra l e i k a r i : K r i s t i n n S vava r s s o n
Kynni r : Jóhann Kr is t inn Gunnarsson.
Þingeyingakvöld á Broadway
föstudaginn 31. janúar 2003
Vegna fjölda áskorana færir húsvískt
tónlistarfólk ykkur tónlistarveisluna:
Það er svo skrýtið
Söngperlur Vilhjálms Vilhjálmssonar
„Bíddu pabbi, Ég fer í nótt, SOS (Ást í neyð),
Það er svo skrítið, Vor í Vaglaskógi, Heimkoman,
Það er bara þú, Fátt er svo með öllu illt, Við
eigum samleið, Sjómannsvísa, Söknuður, Og co,
Einbúinn, Svefnljóð, Hrafninn, Lítill drengur,
Þú átt mig ein, Dans gleðinnar“
Matur-skemmtun og
dansleikur 4.900 kr.
Skemmtun og
dansleikur 2.500 kr.
Dansleikur 1.200 kr.
„Hent'í mig hamrinum!“
Kaffibrúsakarlarnir
Kr. 1.800 á skemmtun.
Kr. 3.900 þorramatur
og skemmtun.
Kr. 1.200 á dansleik.
Stórdansleikur á laugardaginn:
Í SVÖRTUM FÖTUM
sem leikur fyrir dansi
Laugardaginn
25 janúar
og laugardaginn
8. febrúar
Ennþá skemmti-
legastir eftir
30 ár
• Þau syngja, dansa og þjóna þér !
• Þau láta þig hlæja, dansa
og syngja!
• Ekki missa af þessari sýningu !
• Þau eru Le'Sing!
Næsta sýningar 31. janúar (uppselt),1.-8.(örfá sæti laus),15. febrúar.
Verð kr. 2.500 + matur
Litla sviðið opnar klukkan 19.30 .
Sýningin hefst
stundvíslega kl. 20:00.
Kvöldverður og tónleikar kr. 4.900
Geir Ólafsson
Söngvarar:
Ragnheiður Gröndal
og Harald Burr
Handrit eftir
Þorstein
Eggertsson
Hljómsveitarstjóri:
Árni Scheving
Tuttugu manna
stórhljómsveit.
Útsetningar
eftir Þóri
Baldursson
ásamt
stórhljómsveit
Vegna fjölda áskoranna föstudaginn 7. febrúaregna fjölda áskoranna föstudaginn 7. febrúar:
St
af
ræ
na
h
ug
m
yn
da
sm
ið
ja
n/
27
70
Skemmtun kr. 2.500
Stórdansleikur
með hljómsveitinni
The Hefners
að lokinni sýningu
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Allar
kápur og dragtir
á sértilboði
Útsala - útsala
Dragtir
Stórar stærðir
Klapparstíg 44,
sími 562 3614
Verð kr. 1.995
TILBOÐ
KR. 1.500
Nýkomin aftur skurðarbretti
Útsala brautir &gluggatjöld
Faxafeni 14
Sími 525 820010-50% afsláttur
Peysur á útsölu
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030.
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18,
lau. 10—15.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003 9
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930
♦ ♦ ♦