Morgunblaðið - 22.01.2003, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLAND DMC hefur keypt ferða-
skrifstofurekstur Íslenskra æv-
intýraferða og mun sameina rekst-
ur fyrirtækjanna. Starfsemin
verður í Umferðarmiðstöðinni við
Vatnsmýrarveg þar sem Ísland
DMC hefur rekið ferðaskrifstofuna
Destination Iceland. Að sögn
Knúts Óskarssonar, fram-
kvæmdastjóra Destination Iceland,
var aðdragandinn að kaupunum
mjög stuttur en fyrirtækin verða
sameinuð nú þegar. Hann segir
starfsmenn hjá sameinuðu fyr-
irtæki verða nálægt tuttugu. Að
hluta til verði starfsmenn Ís-
lenskra ævintýraferða ráðnir til
sameinaðs fyrirtækis, en ekki liggi
fyrir nákvæmlega hve margir.
Mikil samkeppni
Knútur segir að síðasta ár hafi
verið erfitt og fækkun hafi verið á
sumum sviðum. Einingar hafi verið
of litlar til að standa einar, en með
því að slá fyrirtækjunum saman sé
verið að styrkja reksturinn. Velta
fyrirtækjanna hafi verið svipuð og
gert sé ráð fyrir að velta samein-
aðs fyrirtækis verði um eða yfir
800 milljónir króna á þessu ári.
Knútur segir að samkeppni á
þessum markaði sé mikil og marg-
ir séu um hituna, bæði innlendar
ferðaskrifstofur og erlendar.
Stærst á þessum markaði er innan-
landsdeild Ferðaskrifstofu Íslands,
dótturfyrirtækis Flugleiða. Meðal
annarra fyrirtækja á markaðnum
má nefna Terra Nova - Sól, Heims-
ferðir, Kynnisferðir, Guðmund
Jónasson og Atlantic Travel.
Ísland DMC varð til við samein-
ingu Ferðaskrifstofunnar Come-2
Iceland, Safaríferða og Ferðaskrif-
stofu BSÍ á fyrri hluta árs 2001. Ís-
lenskar ævintýraferðir keyptu inn-
anlandsdeild Samvinnuferða-
Landsýnar úr þrotabúi þess fyr-
irtækis árið 2001. Fyrirtækið hef-
ur síðan boðið upp á afþreying-
arferðir fyrir innlenda og erlenda
ferðamenn, þar á meðal bátasigl-
ingar, jeppaferðir og vélsleða-
ferðir, auk almennrar ferðaskrif-
stofuþjónustu.
Mikill meirihluti erlendir ferðamenn
Knútur segir að ekki sé verið að
kaupa þann hluta Íslenskra æv-
intýraferða sem bjóði upp á af-
þreyingarferðir, heldur aðeins
þann hluta sem snúi að almennri
ferðaskrifstofuþjónustu. Afþrey-
ingarferðir verði keyptar af öðr-
um. Hann segir að mikill meiri-
hluti viðskiptavina fyrirtækisins sé
erlendir ferðamenn, bæði ein-
staklingar og hópar. Þessir ferða-
menn komi víða að úr heiminum,
frá Norður-Ameríku, Evrópu og
Norðurlöndunum.
Með í kaupum Ísland DMC á
ferðaskrifstofurekstri Íslenskra
ævintýraferða fylgir réttur til að
nýta nöfnin Íslenskar æv-
intýraferðir, Addís, Samvinn-
Travel og tilheyrandi vörumerki,
auk allra tiltækra viðskipta-
sambanda ferðaskrifstofurekstr-
arins við innlenda og erlenda að-
ila.
Eigendur Ísland DMC ehf. eru
stærstu sérleyfishafar ferða til og
frá Reykjavík, auk Knúts Ósk-
arssonar og nokkurra smærri hlut-
hafa.
Sameining í
ferðaþjónustu
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ísland DMC og ferðaskrifstofuhluti Íslenskra ævintýraferða verða sameinuð.
Ísland DMC kaupir ferðaskrifstofu-
rekstur Íslenskra ævintýraferða
ANNAR stærsti banki Sviss, Cred-
it Suisse, skilaði tæplega 200 millj-
arða króna tapi á síðasta ári, sem
er mesta tap í 146 ára sögu bank-
ans. Árið áður var bankinn rekinn
með 93 milljarða króna hagnaði.
Hluti tapsins, um 40 milljarðar
króna, er gjaldfærsla vegna Credit
Suisse First Boston, CSFB, fjár-
festingarbanka Credit Suisse í
Bandaríkjunum. Í Financial Times
kemur fram að skýringin á gjald-
færslunni sé lögsókn vegna ýmissa
mála sem upp hafi komið hjá
CSFB. Þar sé til að mynda um að
ræða málefni sem tengjast Enron,
spurningar um það hvort greining-
ar CSFB hafi verið vilhallar og
hvort sala hlutabréfa í frumútboð-
um hafi verið eðlileg.
Samkvæmt Financial Times er
stærsta skýringin á tapinu þó al-
mennur taprekstur CSFB og Wint-
erthur, svissnesks tryggingar-
félags sem Credit Suisse tók yfir
árið 1997. Í The Wall Street Journ-
al er haft eftir fjármálastjóra
bankans að áætlanir geri ráð fyrir
að hann verði rekinn með hagnaði í
ár.
Mesta tap í 146
ára sögu Credit
Suisse-bankans ACOTÆKNIVAL hefur veriðfært af athugunarlista Kaup-
hallar Íslands. AcoTæknival
var fært á athugunarlista 11.
desember síðastliðinn vegna
viðræðna sem þá áttu sér stað
um sölu á verslunarsviði þess.
Nú hefur félagið sent frá sér til-
kynningu um að engin áform
séu lengur uppi um sölu versl-
unarsviðsins.
Þá hefur nýr fjármálastjóri
tekið til starfa hjá AcoTækni-
vali. Nýi fjármálastjórinn er
Hlynur Jónsson Arndal, sem
áður var fjármálastjóri SR-
Mjöls.
ATV af
athugun-
arlista
ákvörðun um virkjun Kárahnjúka
og byggingu álvers við Reyðarfjörð,
aukningar í fiskeldi á svæðinu, auk
þess sem félagið hyggst veita áfram
góða og trausta þjónustu fyrir út-
gerðar- og fiskvinnsluaðila á svæð-
inu. Félagið hyggst auka þjónustu
sína með því að bjóða upp á lag-
ersölu á stáli og tengdum rekstr-
arvörum,“ segir í frétt frá fyrirtæk-
inu.
G. Skúlason vélaverkstæði ehf.
hefur starfað í Neskaupstað frá
árinu 1987 og hefur veitt þjónustu á
sviði véla og skipaviðgerða auk
stálsmíða verkefna. Framkvæmda-
stjóri og aðaleigandi G. Skúlasonar
vélaverkstæðis ehf. er Guðmundur
Skúlason vélvirki í Neskaupstað.
SÍLDARVINNSLAN í Neskaup-
stað og Sandblástur og málmhúðun
hf. á Akureyri hafa eignast hlut í G.
Skúlason vélaverkstæði ehf. í Nes-
kaupstað. Eftir hlutafjáraukningu í
félaginu á Guðmundur Skúlason í
Neskaupstað meirihluta en Síldar-
vinnslan hf. og Sandblástur og
málmhúðun hf. jafnan hlut hvort fé-
lag.
Hlutafé aukið vegna
álvers og fiskeldis
„Markmið hlutafjáraukningarinn-
ar er að auka styrk og möguleika G.
Skúlason vélaverkstæði ehf. til að
vera virkur þátttakandi í þeirri gríð-
arlegu uppbyggingu sem fyrirséð er
á Austfjörðum í framhaldi af
Brugðist við
uppbyggingu
ESSO VAL er ný þjónusta sem Olíu-
félagið býður upp á frá og með morg-
undeginum. Felst nýjungin í því að
viðskiptavinum Esso-stöðvanna á
höfuðborgarsvæðinu verður gert
kleift að greiða fyrir bensín eða olíu
við dæluna. Ekki er því lengur nauð-
synlegt að fara inn á stöðina sjálfa
heldur verður sjálfsali við hverja
sjálfsafgreiðsludælu. Þá verður
sjálfsafgreiðsludælum fjölgað en auk
þess boðið upp á þjónustudælur á öll-
um stöðvum eins og hefur verið.
Breytingin felst einkum í því að auka
þjónustuna við þá sem velja sjálfs-
afgreiðslu.
„Við verðum vör við að viðskipta-
vinir okkar eru í auknum mæli að
nýta sér sjálfsafgreiðslu og við vilj-
um koma til móts við þá með því að
hafa hana í boði á okkar stöðvum og
bjóða fólki að borga við dæluna.
Þetta er sama þróun og við sjáum
víða erlendis, algengt er að fólk nýti
sér það að geta greitt við dæluna
þegar það er eingöngu að kaupa
eldsneyti. Við erum að koma þessari
þjónustu upp í fyrsta skipti hér á
landi,“ segir Heimir Sigurðsson,
framkvæmdastjóri neytendasviðs
Olíufélagsins ehf.
Hraði, þægindi og ódýrt bensín
eru ný kjörorð Esso-stöðva á höfuð-
borgarsvæðinu. Að sögn Heimis er í
raun lagt upp með að fólk geti valið
milli hraða og þæginda. „Það er
sama á hvaða stöð þú ferð á höfuð-
borgarsvæðinu, þú getur gengið að
því vísu að fá hagstætt verð á elds-
neyti og sömu þjónustu hvar sem
er.“ Heimir segir að afsláttur til
þeirra sem kjósa að dæla sjálfur
verði 4 krónur á lítra af eldsneyti á
öllum stöðvum á höfuðborgarsvæð-
inu, en hingað til hafi afslátturinn
ýmist verið 2 eða 4 krónur. Hann
segir að þeir sem jafnframt nýti sér
Safnkort Esso fái 1 krónu til viðbót-
ar í afslátt, samtals 5 krónum lægra
verð.
Greitt við dæluna hjá Esso
Morgunblaðið/Kristinn
Viðskiptavinir Esso á höfuðborgarsvæðinu geta borgað eldsneytið við dæl-
una, „pay at the pump“, frá og með morgundeginum. Áfram verður þó
hægt að nýta sér þjónustu starfsmanna við áfyllingu.
VÍSITALA byggingarkostnaðar
hækkaði um 2,52% frá fyrri mán-
uði, eftir að hafa nánast staðið í
stað í hálft ár. Hækkun vísitölunn-
ar síðustu tólf mánuði fer hins veg-
ar lækkandi.
Jökull M. Pétursson hjá Hag-
stofunni segir að hækkunina milli
mánuða megi rekja til samnings-
bundinna launahækkana um ára-
mótin. „Byggingarvísitalan notar
samningsbundin laun til að meta
vinnuliðinn. Laun hækkuðu um ríf-
lega 3% um áramótin, tryggingar-
gjald um 0,5% og viðbótar líf-
eyrissparnaður jókst töluvert.
Samanlagt hækkaði launakostnað-
ur um sem nemur um 5%,“ segir
hann.
Hækkun vísitölunnar síðustu tólf
mánuði nemur 2,7%, en í desember
var hún 4,6%. Samsvarandi tala
hefur lækkað stöðugt síðasta árið,
en í janúar árið 2002 var hún
11,4%. Hækkun síðustu þriggja
mánaða var ríflega 11%, en fyrir
ári var hún tæplega 26%.
Byggingarvísitala
Hækkun vegna
launahækkana
um áramót