Morgunblaðið - 22.01.2003, Blaðsíða 4
4 B MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
N
ÝR Renault Mégane II
féll í kramið hjá evr-
ópskum bílablaðamönn-
um. Hann var valinn bíll
ársins í Evrópu af þeim
evrópsku bílablaðamönnum sem
sæti eiga í dómnefndinni. Mégane
II hefur því góða forgjöf þegar
hann kemur nú á markað milli-
stórra bíla þar sem samkeppnin er
hvað hörðust, jafnt hérlendis sem
annars staðar. Hann á við ramman
reip að draga þar sem fyrir eru
bílar eins og metsölubíllinn VW
Golf, og aðrir evrópskir bílar eins
og Opel Astra, Ford Focus og
Peugeot 307 og þá ekki síður jap-
önsku keppinautarnir Toyota Cor-
olla og Nissan Almera. Allt eru
þetta bílar sem nýlega hafa verið
endurnýjaðir.
Loksins, loksins
Mégane kom fyrst á markað
1995 og hefur verið framleiddur
svo til óbreyttur síðan en þó með
andlitslyftingum. Bílnum var strax
vel tekið í Evrópu og hefur selst í
á fimmta milljón eintaka. Sjö ára
ending er mikið þegar bíll á í hlut
og það var því tímabært að sjá
nýjan svip á Mégane. Frakkarnir,
undir stjórn hönnunarstjórans,
Patrick le Quement, fara alla leið.
Útlitsbreytingin á Mégane II er
róttæk, svo mikil að bíllinn er auð-
þekkjanlegri en aðrir bílar í þess-
um flokki. Sumir myndu segja að
hér væri djarflega teflt því kaup-
endahópurinn er hin dæmigerða
vísitölufjölskylda sem helst vill
hafa sem flest í skorðum. En
margir vilja líka berast á og vera
öðruvísi en nágranninn.
Nýr Mégane II er sem sagt
kominn til landsins, hlaðinn lofi frá
erlendu pressunni og að auki með í
farteskinu fimm stjörnur af fimm
mögulegum í árekstrarprófi Euro
NCAP. Við prófuðum fimm dyra
hlaðbakinn með 1,6 lítra vél og
beinskiptan.
Tilgangur með baksvipnum
Mesta breytingin er á baksvip
bílsins. Þar er bíllinn þverskorinn
og með stórri, bogadreginni aft-
urrúðu. Le Quement sækir þarna
útlitseinkenni til Avantime, stóra
bílsins í Renault-fjölskyldunni, og
Vel Satis, lúxusfólksbílsins. Erfitt
er að henda reiður á hvaða tilgangi
þetta form þjónar öðru en því að
gefa bílnum sérstætt og róttækt
útlit. Farangursrýmið er þokka-
lega stórt og hægt að stækka það
mikið með því að leggja fram aft-
ursætisbökin í hlutföllunum 60/40,
en skottopið er fremur þröngt og
því erfiðleikum bundið að koma
stórum hlutum fyrir í farangurs-
rýminu. Þar er um að kenna ný-
stárlegu laginu á afturhlutanum og
stórum afturlugtunum.
Smekkur manna er misjafn en
undirritaður fagnar þessari breyt-
ingu og nýrri útlitsstefnu Renault,
sem sýnir að Frakkar ná svo langt
í listum og menningu vegna þess
að þeir þora.
Nýr undirvagn
Nýr Mégane er á splunkunýjum
undirvagni og hefur fengið nýtt
fjöðrunarkerfi. Hann er lengri,
(4,5 cm), og breiðari, (8 cm), en
eldri gerðin en svipaður á hæð.
Þetta helgast af því að í árslok
kemur á markað ný gerð Mégane
Scenic sem verður mun hærri til
lofts. Mégane svipar því meira til
byggingarlags Golf, Astra og Foc-
us en t.a.m. Peugeout 307, sem er
mun hábyggðari bíll og með þægi-
legra aðgengi. Engu að síður
skortir hvergi á lofthæðina í Még-
ane og ágætlega fer um tvo með-
alstóra fullorðna menn í aftursæt-
um. Ökumannssætið hefur snar-
batnað frá fyrri gerð því það
skorðar líkamann betur og afstað-
an til stjórntækjanna er betri.
Ökumannssætið er með hæðarstill-
ingu. Eitt atriði gengur aftur í nýj-
um Mégane sem arfur frá Scénic
en það er tvöfalt gólfið. Í Mégane
er það fram í og nýtist það sem
ágæt geymsla fyrir sitthvað smá-
legt, eins og t.d. gönguskó, skauta
eða hvað sem er svipaðrar stærð-
Morg
unbla
ðið/K
ristinn
1,6 l vélin er með VVT-búnaði sem gerir hana afkastameiri.
Skottið er rúmgott en opið er þröngt.
!
!"# $ #
!
%"
& "
'
&
( &&
)
*
+ $
$ ,-)
. "
/0 1)
& 0 $ 2
3
" 4
567
38
9
#!
76
: ;
$
57
</ ;
577
=
> 5
$
77
* &
*?
$
5 6
Mégane —
öðruvísi og betur búinn
Nútímalegur svipur á
millistórum bíl.
Hyundai Sonata 2,0 ´00
Ek. 60 þ., sjálfsk. Verð 1.390 þ.
eða ca 30 þ. í 60 mán.
Ford Fiesta ´99
Ek. 40 þ. 5 gíra, 3ja dyra. Verð 690 þ. kr.
eða ca 15 þ. kr. á mán. í 48 mán.
Ford Escort stw 1,4
Árg. ´97, ek. 60 þ.
Verð 490 þ. eða 17 þ. í 36 mán.
Subaru Legacy 2,0
Árg. ´96, ek. 130 þ., sjálfsk.
Verð 990 þ. eða ca 27 þ. í 48 mán.
Daewoo Nubira ´99 stw Ek. 83 þ.
Verð 880 þ. eða ca 19 þ. í 60 mán.
Renault Megane RN ´00 Ek. 44 þ.
Verð 1.090 þ. eða ca 23 þ. í 60 mán.
M. Benz 190E ´89 Ek. 280 þ., sjálfsk.
Verð 390 þ. eða ca 14 þ. í 36 mán.
Peugeot Partner 1,4 ´99 Ek 81 þ. 5 manna.
Verð 690 þ. eða ca 15 þ. í 60 mán.
Daihatsu Terios ´98 Ek. 50 þ., sjálfsk.
Verð 890 þ. eða 25 þ. í 48 mán.
Hyundai Accent ´00
Ek. 37 þ. 3ja dyra, 1500cc.
Verð 790 þ. eða ca 17 þ. í 60 mán.