Morgunblaðið - 22.01.2003, Blaðsíða 8
FJALLASPORT í Noregi, útibú
samnefnds jeppabreytingafyrir-
tækis á Íslandi, hefur gert samn-
ing við Nissan í Svíþjóð um breyt-
ingar á Nissan-jeppum og
-pallbílum. Fjallasport hefur bæki-
stöðvar í Drammen í Noregi og
hefur þar samninga við Nissan,
Chevrolet, Mitsubishi, SsangYong
og Dodge.
Til gamans má geta þess að
vegna reglugerðarákvæða í Noregi
eru breytingarnar á Dodge á þann
veg að pallbíllinn frá þeim verður
að vera fimm manna til að lenda í
hagstæðari vörugjaldaflokki og
verða þrír að sitja fram í og tveir
aftur í. Fyrirkomulaginu er ein-
mitt öfugt háttað í upprunalega
bílnum og felst breytingin þess
vegna í því að fjarlægja millistokk-
inn og setja þar þriðja sætið og
fjarlægja jafnframt miðjusætið
aftur í. Fjallasport breytti á síð-
asta ári nálægt 130 bílum og stefn-
ir í enn meiri fjölda á þessu ári.
Steinar Sigurðsson, hjá Fjalla-
sporti í Noregi, segir að samning-
urinn í Svíþjóð sé fyrirtækinu afar
mikilvægur og geti tryggt því
mörg verkefni á þessu sviði. Hann
segir það mikilsverðan áfanga að
komast inn á sölunet Nissan í Sví-
þjóð sem er gríðarlega sterkt og
byggir á tugum söluumboða. Í Sví-
þjóð sé hefð fyrir breytingum á
jeppum og pallbílum meiri en í
Noregi. Þar er markaðurinn líka
þrisvar sinnum stærri.
Fjallasport hefur þegar breytt
Nissan King Cab-pallbíl fyrir 35
tommu dekk og var fjallað um bíl-
inn ítarlega í janúarhefti 4 Wheel
Drive í Svíþjóð, sem er eina tíma-
ritið sinnar tegundar í Svíþjóð,
Danmörku og Noregi og hefur
mikla dreifingu. Þar fær breyt-
ingin afar lofsverða dóma sem
Steinar segir að geti hjálpað mikið
til við markaðssetningu á breyt-
ingunum.
Steinar segir að fyrirtækið verði
áfram rekið í Drammen í Noregi
sem fyrr og væntanlega komi bílar
til breytinga frá Gautaborg með
lestum. Skammt er á milli Dramm-
en og Gautaborgar. Líklegt er að
Fjallasport verði að bæta við
starfsmönnum. Alls eru fluttir inn
um 1.700–1.800 pallbílar á ári til
Svíþjóðar og væntir Steinar þess
að fyrirtækið breyti allt að 10% af
heildarinnflutningnum. Eingöngu
er um að ræða breytingar fyrir 33
og 35 tommu dekk. Breytingin fyr-
ir 35 tommu dekk kostar í Svíþjóð
100.000 sænskar kr., tæplega eina
milljón ÍSK.
Mitsubishi í Svíþjóð er að flytja
inn litlu færri pallbíla og segir
Steinar að samningur við Mitsu-
bishi í Svíþjóð sé í burðarliðnum.
„Við erum í viðræðum við þá en
ennþá er ekki búið að negla það
niður.“
Steinar segir að það sé mun
meiri jeppamenning í Svíþjóð en
Noregi og helgast það ekki síst af
því að í Svíþjóð er heimilt að aka
utan vega.
Fjallasport semur við Nissan í Svíþjóð
Nissan King Cab á 35 tommum stóð sig vel í ójöfnu skóglendinu.
Hér má sjá upphækkunina, upp á alls
10 cm á grind.
Breyttur Nissan King Cab á hraðbraut í Svíþjóð. Bíllinn var í tólf daga reynsluakstri hjá 4 Wheel Drive í Svíþjóð og fékk úrvalseinkunn.
8 B MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
MAZDA sýndi hugmyndabílinn á bílasýning-
unni í Detroit og lýsti því jafnframt yfir að
þetta var einungis fyrsti hugmyndabíllinn af
mörgum sem sýndir yrðu á bílasýningum á
þessu ári.
Mazda segir að tilgangurinn með Washu sé
að rannsaka viðbrögð almennings við inn-
anrými bílsins. Þetta er rúmgóður sex sæta
og er með svokölluðu by-wire-kerfi, sem kem-
ur í stað hefðbundins stýris og pedala. Allt er
orðið rafrænt, jafnt inngjöf, hemlun sem stýr-
ing. Stjórntækin er komin þangað í bílinn þar
sem minnst fer fyrir þeim og allt gert til að
nýta innanrýmið sem best. Gólfið t.a.m. flatt
og þrjá tveggja sæta raðir eru í bílnum sem
auðvelt er að breyta á mismunandi hátt.
Dyrabúnaður bílsins vekur líka athygli.
Framdyrnar opnast á hefðbundinn hátt en
reyndar alveg í 90 gráður, en afturdyrnar
renna aftur með bílnum.
Washu er næstum 5 m á lengd og um 1,85
má breidd. Vélin er 3,5 l, V6, 242 hestafla.
Mazda Washu