Morgunblaðið - 24.01.2003, Qupperneq 6
DAGLEGT LÍF
6 B FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Kringlunni, sími 588 1680,
v. Nesveg, Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
iðunn
tískuverslun
Monar i
20% AUKAAFSLÁTTUR
Á ÚTSÖLUVÖRUM
VIÐ vildum fjalla um gæludýr,“segir Brynhildur Pálsdóttir,nemi við Listaháskóla Ís-
lands. Hún á sjálf hund en hinir í
hópnum eru ekki gæludýraeigendur.
Ólafur Ólason er líka nemi við LHÍ en
Elín Auður Traustadóttir og Lilja
Gunnarsdóttir eru í HR.
„Við vildum hafa húmor í þessu og
taka þetta einu skrefi lengra en sú
vara sem er á markaðnum,“ segir El-
ín Auður. Varan heitir „Royal Din-
ner“ og yfirskriftin er „King for a
day“. Um er að ræða tvenns konar
hundamat, léttan og þyngri og mynd
af mismunandi hundategundum á
pökkunum fyrir annaðhvort „Albert“
eða „Sophiu“. Þríréttuð máltíð er í
hvorum pakka: Forréttur, aðalréttur
og kaka. Nákvæmar leiðbeiningar
eru á pakkanum og fyrsta skrefið er
að baka kökuna sem er þá tilbúin
þegar hundurinn hefur lokið tveimur
fyrstu réttunum.
„Það er mikill markaður fyrir
svona, sérstaklega í Þýskalandi og
Bretlandi. En þetta myndi varla
virka hérna heima,“ segir Brynhild-
ur. Hópurinn ákvað að markaðsáætl-
unin yrði tengd Bretlandi. Fyrsta
hugmyndin var að framleiða eitthvað
til að baka fyrir gæludýrið en eftir að
hafa skoðað amerískar vefsíður kom í
ljós að slíkt er þegar framleitt.
„Þannig að við ákváðum að fara með
þetta alla leið. Síðan eru hugmyndir
um að þróa þetta áfram yfir í sér-
stakar hátíðarmáltíðir,“ segir Elín
Auður. Þær segja að húmorinn í
verkefninu hafi gert það að verkum
að hópvinnan varð auðveldari. „Við
vorum svo mikið að leika okkur og
þetta er frekar einföld vara.“
Þær eru báðar ánægðar með nám-
skeiðið. „Þetta eru ótrúlega ólíkir
skólar og nemendurnir oft eins og
svart og hvítt,“ segir Brynhildur.
Þeim finnst markmiði námskeiðsins
hafa verið náð, þ.e. að listaháskóla-
nemar kynntust vinnubrögðum
markaðsfræðinnar og viðskiptafræði-
nemar kynntust hönnuninni. Þær eru
sammála um að námskeiðið eigi eftir
að nýtast þeim í framtíðinni. „Þetta
er framtíðin: Að vinna með fólki úr
öðrum geira en maður sjálfur.“
Þríréttuð máltíð
fyrir hundinn
S
AMSTARF nemenda úr
listaskóla og viðskipta-
skóla hlýtur að vera af
hinu góða og víkka sjón-
deildarhring beggja. Um
það eru viðmælendur Daglegs lífs á
sýningu á afrakstri samstarfins sam-
mála.
Þegar samstarf Listaháskóla Ís-
lands og Háskólans í Reykjavík
hófst, í nóvember sl., létu margir
gabbast þegar rektorar skólanna
sögðu að til stæði að sameina
skólana. Þetta þótti góð hugmynd.
Sveimhugar úr Listaháskólanum
gætu þá kynnst markaðsfræðinni og
rúðustrikuðum viðskiptafræðinem-
um gæfist færi á að kynnast skap-
andi hugsun. Eða þannig.
Ekkert hefur orðið af sameiningu
skólanna en sameiginlegt námskeið
varð að veruleika sem skilaði miklu.
Eftirtektarvert var að skólar sem við
fyrstu sýn virðast jafn ólíkir og LHÍ
og HR – „listin og viðskiptin“ – skuli
hafa tekið höndum saman um nám-
skeið af þessu tagi, eins og bent var á
þegar námskeiðið var kynnt.
Námskeiðið tók til markaðsfræði
og hönnunar og fór að öllu leyti fram
á ensku og heitir á því tungumáli
Marketing Communication and
Creative Design. Nemendum var
skipt í sextán 4–5 manna hópa sem í
voru nemendur frá báðum skólum.
Hópunum var ætlað að koma fram
með nýja og endurbætta vöru fyrir
tiltekinn erlendan markað, áætla
markaðssetningu og hanna kynning-
arefni fyrir hana.
List og viðskipti í eina sæng og afsprengin
eru m.a. fyrirmynd ungra stúlkna, sem ekki
er Britney Spears, nestiskarfa úr pappa,
skapalón fyrir konur sem raka sig að neðan,
sokkabuxur með skilaboðum og þríréttaður
hundamatur. Steingerður Ólafsdóttir skoð-
aði útkomuna hjá háskólanemum á sameig-
inlegu námskeiði Listaháskólans og Háskól-
ans í Reykjavík.
steingerdur@mbl.is
Samstarf nema úr Listaháskólanum
og Háskólanum í Reykjavík
Verkaskipting innan hópanna var
mismunandi. Stundum sáu Listahá-
skólanemendurnir alfarið um hug-
myndavinnu og sköpun og viðskipta-
fræðinemarnir um gerð
markaðsáætlana og skýrslugerð. Í
öðrum tilvikum var allur hópurinn
saman í öllu ferlinu. Hvernig sem
vinnuaðferðirnar voru, er ljóst að af-
raksturinn er góður.
Sérhannað kaffihús fyrir fjöl-
skyldur, dýna sem gerir óléttum kon-
um kleift að liggja á maganum, sessa
í líki ópals, sjálfsali sem selur t.d.
svifdiska og einnota myndavélar,
myndasaga á borðbúnaði, gjafapoki
til að selja á flugvöllum, tákn fyrir
börn til að læra að flokka föt, tölvu-
forrit fyrir fyrstu kynni barnsins af
tölvum, hjólabretti sem jafnframt er
snjóbretti, einnota borðbúnaður fyr-
ir rómantískan málsverð og golfkúla
sem þýtur lengra en aðrar eru meðal
hugmynda sem eru afrakstur nám-
skeiðsins. Samkvæmt námskeiðslýs-
ingu hafa nemendahóparnir búið til
líkön af vörunni, kynningarefni og
auglýsingar eða vefsíður. Þetta má
sjá á sýningu í matsal Háskólans í
Reykjavík sem nú stendur yfir.
Allar hugmyndirnar eru afar for-
vitnilegar og mikið hefur verið lagt í
að gera þær sem best úr garði.
Starfsfólk auglýsingastofa og kenn-
arar námskeiðsins völdu þó fimm
hugmyndir sem þær bestu og eru út-
listanir á þeim ásamt myndum hér í
kring. Þessar hugmyndir verða sjálf-
krafa sendar í forkeppni LIAA-
keppninnar sem haldin er í London
(London International Advertising
Awards) í sumar.
Guðfinna Bjarnadóttir, rektor Há-
skólans í Reykjavík, og Hjálmar H.
Ragnarsson, rektor Listaháskóla Ís-
lands, kynntu vinningshugmynd-
irnar og voru sammála um að sam-
starf skólanna hefði gengið vel. Allt
ferlið hefði verið lærdómsríkt fyrir
báða skólana og annað námskeið
væri fyrirhugað á næsta ári.
ÞAÐ var gaman aðkynnast því hvernigListaháskólinn vinnur
allt öðruvísi en við,“ segir
Dagný Jónsdóttir, nemi við
Háskólann í Reykjavík. „Já,
með því að leiða saman tvo
ólíka heima er hægt að skapa
eitthvað nýtt,“ bætir Phoebe
Jenkins, nemi við Listahá-
skóla Íslands, við. „Við höfum
bætt hver aðra upp,“ segir
Ásgerður Ósk Jakobsdóttir
frá HR. Þær stöllur, ásamt
Örnu Ævarsdóttur og Tiinu
Nurmi frá LHÍ, eiga hug-
myndina að Önnu – fyrir-
mynd fyrir unglingsstúlkur.
(„Anna - A role model for tee-
nage girls“).
Eins og sjá má er Anna
ekki eins og Britney Spears
eða aðrar söngkonur sem
unglingsstúlkur sjá oft á
Popptíví. En hvernig vaknaði hug-
myndin? „Þetta er náttúrulega
stelpuhópur. Við fórum strax að
hugsa um fyrirmyndir,“ segja Dagný
og Ásgerður. Phoebe horfir oft á
Popptíví og finnst fyrirmyndirnar
ömurlegar. „Ég var orðin svo leið á
þessum fyrirmyndum. Við fórum að
spá í hvaða áhrif þetta hefur á stelp-
ur undir 16 ára. Við vissum af því að
breska ríkisstjórnin hefði lýst
áhyggjum sínum af því að breskar
unglingsstúlkur vantaði jákvæðar
fyrirmyndir,“ segir hún. Því var það
að hópurinn ákvað að beina sjónum
sínum að Bretlandsmarkaði og
skapa jákvæða fyrirmynd fyrir
breskar unglingsstúlkur.
„Við skoðuðum náttúrulega hvaða
fyrirmyndir eru til. Það eru Oprah
Winfrey sem er með alls konar bar-
áttumál og Martha Stewart sem
kennir okkur að vera húsmæður. Við
vorum hrifnar af hugmyndinni um
fyrirmynd en breyttum henni aðeins
í að höfða til unglingsstúlkna enda
ekki vanþörf á,“ segir Ásgerður.
„Við vildum ekki hafa þetta alvöru
stelpu, heldur teiknaða fyrirmynd,
þannig er ekki eins auðvelt að gagn-
rýna hana,“ segir Dagný. Ímynd
Mörthu Stewart beið t.d. hnekki
vegna innherjasvika en slíkt
gæti ekki komið fyrir Önnu.
Hugmynd hópsins er að
Anna væri andlit vefsíðu
sem unglingsstelpur heim-
sækja. Þar væri umfjöllun
um tísku og tónlist sem
hefðbundin áhugamál ung-
lingsstelpna en líka um kyn-
líf, heilsu og menntun.
Stelpurnar gætu sett fram
spurningar og fengið svör
frá Önnu, sem í raun væru
svör frá sérfræðingum á
hverju sviði. Anna er ekki
með sérstakan fyrirsætu-
vöxt eða glansmyndaútlit,
heldur venjuleg unglings-
stelpa. Einnig gæti Anna
verið andlit tímarits eða
sjónvarpsþáttar.
Þær eru allar sammála
um að mikil þörf sé fyrir
Önnu, hvort sem það er á Ís-
landi, Bretlandi eða annars staðar í
hinum vestræna heimi. Hópurinn er
að hugsa um að sækja um styrki til
að halda áfram að þróa verkefnið í
sumar.
Dagný segir að hópurinn hafi unn-
ið vel saman og sú stefna hafi verið
tekin að hafa verkaskiptinguna ekki
skýra, heldur frekar að allir í hópn-
um væru með í öllu vinnuferlinu.
„Við lærðum mikið hver af annarri
og þetta á eftir að nýtast okkur vel í
framtíðinni,“ segir hún en segir hug-
myndaflæðið vissulega ríkara hjá
Listaháskólanemunum. „Við erum
ekkert alltaf að skapa.“
Fyrirmyndin Anna