Morgunblaðið - 26.01.2003, Blaðsíða 10
10 B SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sælkerar á sunnudegi
Steingrímur Sigurgeirsson Hanna Friðriksdóttir Áslaug Snorradóttir
STOKKHÓLMUR er aðmargra mati hin einasanna matarhöfuðborgEvrópu. Líklega geturengin önnur norræn
borg státað af jafnfjölbreyttri flóru
vandaðra veitingastaða og höfuð-
borgin sænska við Eystrasalt. Í
Stokkhólmi má finna eitthvað við
allra hæfi. Allt frá einföldum fjöl-
þjóðlegum stöðum til stór-
glæsilegra franskra veitingastaða
á borð við Franska matsalin á
Grand Hotel (að flestra dómi besta
veitingahús Svíþjóðar) eða Opera-
källaren í kjallara óperuhússins
glæsilega í miðborginni. Í þeirri
byggingu eru raunar þrír góðir
veitingastaðir. Auk kjallarans má
þar finna Café Opera, stóran og
glæsilegan veitingastað í nútíma-
legum anda og svo auðvitað „rass-
vasa“ óperunnar eða Bakfickan,
þar sem boðið er upp hefðbundna
en vandaða sænska matargerð,
kjötbollur og fisk.
Ekki spillir heldur fyrir að það
er að jafnaði um helmingi ódýrara
að fara út að borða á veit-
ingastöðum í Stokkhólmi en í
Reykjavík og á það jafnt við um
mat sem vín.
Staður í miklu uppáhaldi hjá
mér er Fredsgatan 12, staður í
eigu Melker Andersson, sem hlaut
silfurverðlaunin á Bocuse d’Or í
Lyon árið 1995. Veitingastaðurinn
er gegnt Rosenbad, forsætisráðu-
neytinu sænska, og er veisla fyrir
öll skynfæri. Glæsilega hannaður
niður í minnsta smáatriði, jafnvel
brauðkarfan er lítið listaverk. Mat-
urinn vel útfærður þar sem bland-
að er saman sígildri evrópskri mat-
argerð og nútíma straumum. Í
forrétt fékk ég þunnskornar and-
arbringur með salati og í aðalrétt
fullkomlega eldaðan og góðan lax
með pilaf og grænni sósu (salsa
verde). Vínlistinn vandaður og
hægt að fá toppvín í glösum. Fyrir
valinu varð Albarino frá Galisíu á
Spáni, sem smellpassaði við laxinn.
Yfirleitt er mikið að gera í hádeg-
inu en strax um klukkan 13 fer að
róast. Þriggja rétta hádegisseðill
kostar 299 krónur sænskar en á
kvöldin er m.a. hægt að fá sjörétta
sælkeraseðil með öllu því besta
sem húsið hefur upp á að bjóða á
799 krónur. Fredsgatan 12 hefur
eina stjörnu frá Michelin og ekki
spillir fyrir að íslensk stúlka (sem
margir ættu að þekkja frá Grillinu)
þjónar til borðs.
Stokkhólmur skiptist í mörg
hverfi og eru margir af bestu stöð-
unum í kringum miðborgina á
Norrmalm og Östermalm. Mikið
úrval veitingahúsa er til dæmis í
kringum Stureplan á Östermalm.
Má nefna eitt vinsælasta brasserie
borgarinnar, Sturekompagniet
við Stureplan eða þá hinn litla en
vandaða veitingastað Bistro Jarl
við Birger Jarlsgatan. Bistro Jarl
er vinsæll staður meðal kaupsýslu-
manna og hefur á síðustu árum
gengið í endurnýjun lífdaga sem
kampavínsbar. Í nokkurra mín-
Veitingahús í Stokkhólmi
Morgunblaðið/Áslaug
Matur
S t e i n g r í m u r S i g u r g e i r s s o n
NÝR veitingastaður, Hereford steikhús,var opnaður að Laugavegi 53b á föstu-dag. Staðurinn tekur 136 gesti í sæti og
er byggður upp að danskri fyrirmynd. Er mark-
miðið að bjóða mat og vín á eins lágu verði og
mögulegt er. Eigendur eru þeir Hannes Hall-
dórsson og Bragi Ólafsson en yfirkokkur er Jón-
as Jónasson, sem starfað hefur á Hereford
Beefstouw-veitingahúsi í Danmörku.
Hannes segir að eitt af því sem muni aðskilja
Hereford frá öðrum veitingahúsum sé að verð á
víni verði í lægri kantinum. Flutt er inn vín frá
Frakklandi, sem síðan er hellt á karöflur. Verður
„flaskan“ af rauðvíni (0,75 lítra karafla) seld á
1.290 krónur. Þá verður einnig boðið upp á vín
hússins í glösum eða hálfum flöskum á hagstæðu
verði. Dýrasta flaska vínseðilsins er hins vegar
Chateau Petrus á 170 þúsund krónur og segir
Hannes að allt þar á milli verði til.
Gestir merkja sjálfir á blað hvaða steik þeir
vilja fá, hversu stóra og með hvaða meðlæti. Hins
vegar kostar ekki aukalega að bæta við meðlæt-
inu.
Einn veggur veitingasalarins er lagður undir
Armagnac og annar undir viskí og segir Hannes
að þar sé margt forvitnilegt að finna.
„Markmiðið er að halda verði á öllu niðri eins
og hægt er þannig að fólk geti farið út að borða
án þess að það sé farið með það út í vitleysu.
Verðlag á veitingahúsum er orðið plága á Norð-
urlöndum,“ segir Hannes.
Morgunblaðið/Sverrir
Rauðvín á
1.290 kr.
matur@mbl.is
Lesendur eru hvattir til að senda sælkerum
hugmyndir, athugasemdir eða ábendingar.
Um getur verið að ræða ábendingar um
áhugavert efni, atburði eða uppákomur,
stuttar sögur tengdar efninu eða þá óskir
um að eitthvað sérstakt verði tekið fyrir. Ef
efni er sent með ósk um birtingu áskilur
Morgunblaðið sér rétt til að velja og hafna,
stytta og breyta. Netfang sælkerasíðunnar
er matur@mbl.is.
VÍN vikunnar að þessu sinni koma
frá nýja heiminum, annars vegar
frá Nýja-Sjálandi og hins vegar
Chile.
Babich
Vínum frá Nýja-Sjálandi fjölgar
stöðugt hér á landi. Þau voru lengi
vel sjaldséð og
eru nokkrar
ástæður fyrir
því. Í fyrsta lagi
er ekki langt síð-
an að nýsjá-
lensku vínin
slógu í gegn og
þá fyrst og
fremst hvítvínin
úr þrúgunni Sau-
vignon Blanc
sem fljótlega
varð eins konar
þjóðarþrúga
þeirra. Í öðru
lagi urðu vin-
sældir nýsjá-
lensku vínanna svo miklar, þegar
neytendur í Evrópu byrjuðu að
uppgötva þau, að framleiðendur
önnuðu hreinlega ekki eftirspurn.
Það hefur breyst á síðustu árum
með miklum fjárfestingum í nýj-
um ekrum, sem eru nú farnar að
bera ávöxt.
Framleiðandinn Babich er með
betri fyrirtækjum landsins og
nokkur vín fyrirtækisins eru nú á
sérlista. Babich Pinotage-
Cabernet Sauvignon er nokkuð
óvenjuleg blanda frá Nýja-
Sjálandi en blendingsþrúgan Pino-
tage hefur fyrst og fremst verið
notuð í Suður-Afríku. Dæmið virð-
ist hins vegar einnig ganga upp á
Nýja-Sjálandi. Þykkur og feitur
rauður ávöxtur, heitur og sætur,
eik er áberandi og gefur víninu
súkkulaðitóna. Í munni er vínið
bjart, mjög feitt sem rjómi og
bragðmikið, með þykkum og sult-
uðum ávexti. Kannski ögn þung-
lamalegt vegna skorts á sýru en
engu að síður mjög gott. Mikið vín
fyrir 1.260 krónur. Hvítvínið Ba-
bich Sémillon-Chardonnay 2001 er
ekki síðra. Ferskur ilmur, hitabelt-
isávextir, ferskjur, feitt og þægi-
legt, mjög vel uppbyggt, þykkt
með hressandi sýru. Kostar 1.170
krónur.
Það eru hins vegar Sauvignon
Blanc vínin frá Babich sem standa
upp úr en þau eru aðeins dýrari.
Babich Sauvignon Blanc Wine-
makers Reserve er dúndur Sauv-
ignon, allt að því ýktur, grösugur
ilmur og hitabeltisávextir, djúpur
og þroskaður ávöxtur. Þetta vín
kostar 1.810 krónur.
Nokkuð einfaldara í klassískum
nýsjálenskum stíl er hefðbundna
Sauvignon Blanc-vínið frá Babich.
Grænar perur og aspas með sítrus-
ávexti. Verulega gott og nokkuð
ódýrara eða á 1.470 krónur.
Caliterra
Merlot Caliterra er eitt af nýju
og athyglisverðu fyrirtækjunum
frá Chile, sprottið upp úr sam-
starfsverkefni chilesks framleið-
anda og Mondavi-fjölskyldunnar
kalifornísku. Gífurlegar fjárfest-
ingar í nýjum ekrum og víngerð
hafa skilað af sér traustum og góð-
um vínum. Caliterra Merlot 1998
er nú í reynslusölu, mjög dökkur,
heitur ávöxtur, töluvert bit í
munni, sýra og þykkur svartur
ávöxtur. Ávaxtadrifið í alla staði,
engin eik sem maður finnur. Það er
helst að vínið er farið að missa
æskublómann og sýna aldur. Kost-
ar 1.090 krónur.
Carmen Reserve
Carmen er hins vegar eitt af
eldri fyrirtækjunum í Chile og hef-
ur aðsetur í Maipo-dalnum, elsta
víngerðarsvæði Chile, skammt frá
höfuðborginni Santiago. Carmen
Reserve 2000 Cabernet Sauvignon
er dæmigert Maipo-vín, mikill og
hreinn sólberjaávöxtur, fersk
mynta, eik. Tannín eru mjúk og
áferð þægileg. Vín í hæsta gæða-
flokki frá Chile. Mjög góð kaup á
1.490 krónur.
La Palmeria
Ódýrara og einfaldara Chile-vín
er vínið La Palmeria frá framleið-
andanum Vina la
Rosa en það er
framleitt úr
Cabernet Sauv-
ignon þrúgum
úr Rapel daln-
um. Ávöxturinn
mildur, vínið
hlutlaust en
þægilegt. Létt
og gott vín á þokkalegu verði án
þess að sýna mikinn karakter.
Kostar 1.290 krónur.
Vín
S t e i n g r í m u r S i g u r g e i r s s o n
ÖLGERÐIN Egill Skallagrímsson
hefur sett á markað nýja tegund af
bjór, Egils þorrabjór, bragðmikinn
lager-bjór sem þykir minna á þýska
framleiðslu, að því er segir í tilkynn-
ingu.
„Bruggmeistarar Ölgerðarinnar
hafa unnið að þróun bjórsins und-
anfarin misseri. Framleiðsla á Egils
þorrabjór tekur um það bil einn
mánuð og er fylgst náið með lög-
uninni á öllum stigum framleiðsl-
unnar.
Egils þorrabjór verður til sölu í
verslunum ÁTVR í um sex vikur.
Einnig mun Ölgerðin selja þorrabjór-
inn til veitingastaða og veislusala.“
Þorrabjór frá Agli