Morgunblaðið - 27.01.2003, Síða 1
2003 MÁNUDAGUR 27. JANÚAR BLAÐ B
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
HEIÐAR HELGUSON SKORAÐI SIGURMARK WATFORD / B4
Pólverjar eru næstu mótherjar
ÍSLENSKA landsliðið mætir Pól-
verjum í næsta leik sínum í heims-
meistarakeppninni í handknattleik.
Ísland og Katar fylgjast að úr B-
riðli keppninnar og mæta Spáni og
Póllandi úr A-riðlinum. Ísland og
Spánn eru með tvö stig þegar milli-
riðillinn hefst en hin tvö liðin eru án
stiga. Ísland tekur með sér stórsig-
urinn gegn Katar, 42:22, en Spánn
tekur með sér sigurleik gegn Pól-
landi, 34:25. Pólverjar náðu þriðja
sætinu í B-riðli með stórsigri á Kúv-
eit í gærkvöld, 36:21. Leikur Ís-
lands og Póllands fer fram í bænum
Caminha, nyrst í Portúgal, á mið-
vikudaginn en síðan er leikið við
Spánverja á sama stað á fimmtu-
dag. Sigurliðið í þessum milliriðli
fer beint í fjögurra liða úrslit og
leikur því um verðlaunasæti á
mótinu en liðið sem verður í öðru
sæti leikur um 5.–8. sæti á mótinu.
Leikur Íslands og Póllands getur
því haft úrslitaþýðingu um hvor
þjóðin kemst í hóp hinna átta bestu
og á jafnframt kost á því að komast
á Ólympíuleikana í Aþenu, en þang-
að fara sjö efstu liðin frá HM í
Portúgal.
■ Milliriðlar á HM/B7
Ólafur Stefánsson var marka-hæstur í íslenska liðinu gegn
Þjóðverjum en líkt og aðrir leik-
menn liðsins var
hann ekkert að
svekkja sig á tap-
inu. „Það er að
mörgu leyti betra
að leika gegn Þjóðverjum en mörg-
um öðrum þjóðum á mótinu þar
sem ég kann vel á þeirra takta í
vörninni. Þessi leikur var ágætur
fram að lokakaflanum. Ég er ósátt-
ur við mitt framlag á þeim kafla
þar sem ég missti einbeitinguna.
Ég geri tvenn mistök í sókn og
gleymi mér um stundarsakir í
vörninni. Það er hægt að taka með
sér ýmislegt í reynslubankann úr
þessum leik. Guðmundur þjálfari á
eftir að klippa leikinn niður í
klippitækjunum sínum og við verð-
um búnir að skoða hvað fór úr-
skeiðis fyrir næsta leik. Við vildum
auðvitað leggja Þjóðverja að velli
en markmiðið fyrir þennan leik var
kannski þokukennt fyrir okkur sem
lið þar sem við vissum að mark-
miðum okkar var náð. Það má velta
því fyrir sér hvort við hefðum nýtt
færin betur ef þessi leikur hefði
verið uppá líf og dauða.“
Hvernig hefur þú upplifað upp-
haf keppninnar?
„Þetta mót er allt öðruvísi en
EM í Svíþjóð, sem var mjög erfitt
frá upphafi. Við lítum svo á að rið-
illinn hér í Viseu hafi verið heppi-
legur fyrir okkur. Við fengum tvo
alvöruleiki og þrjá frekar auðvelda.
Menn ættu því að vera ferskir í
milliriðlinum í Caminha. Menn
mættu bara í hvern leik eins og
alla aðra og létu verkin tala. Að-
stæðurnar hafa ekki verið að pirra
mig, sumum finnst maturinn á hót-
elinu vondur en það eru ýmsar aðr-
ar lausnir hér í næsta nágrenni,“
sagði Ólafur og benti á þekkt
skyndibitavörumerki frá Banda-
ríkjunum.
Morgunblaðið/Günter Schröder
Ólafur Stefánsson sækir að marki Þýskalands í Viseu í gær.
Verðum ferskir í Caminha
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
frá Viseu
ÓLAFUR Stefánsson
skoraði 10 mörk gegn
Þýskalandi í gær og jafn-
aði þar með met Krist-
jáns Arasonar – hefur
skorað tíu sinnum tíu
mörk eða meira í lands-
leik. Ólafur er eini leik-
maðurinn sem hefur
skorað tíu mörk í leik
gegn Þýskalandi – hefur
náð því tvisvar. Ólafur
skoraði 11 mörk gegn
Þjóðverjum á EM í Sví-
þjóð fyrir ári, 29:24.
Valdimar Grímsson
hefur sjö sinnum skorað
yfir tíu mörk í leik og
Sigurður Valur Sveins-
son fimm sinnum.
Ólafur
jafnaði met
Kristjáns