Morgunblaðið - 28.01.2003, Side 1

Morgunblaðið - 28.01.2003, Side 1
Þriðjudagur 28. janúar 2003 Prentsmiðja Morgunblaðsinsblað B Lykillinn að sparnaði, öryggi og þægindum Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu Áfram- haldandi fólksflutningar 13 Sameiginlegar framkvæmdir Hvað erbezt? Ákvarðana- taka í húsfélög- um 26 Deilt um ofnloka 43 Byggðaþróun síðustuára                                                      "# $ % & ' ## ( ) ( # ## & ( ) ( # # " $ % ' " $ '( ( # # % ' # & ) *  ! !    + ( !   +     ,-.   /   ,-.  /         !  "#$ %&$ %''& 12+3+ $3 ( 4  567  .38 94  -:! $  ;!+!< ( ;!+!< )+2  ;!+!< ( ;!+!<    !   (     .  / &  +   (+= / >>>!!      ?  3@ A B  !   !   !   ! ! !"0 !" ! # $     )*    +% 3@ A B    #' ' - "' - & ' "'" "$.#. "./0 0 #./. "%/0  &4! B   1 !  2   ! $ %'$ %0$ %''& 9    + ,  &   % %" %%  "  ! !                  ! !    $  $  „ÞAÐ er meiri bjartsýni nú hjá mönnum í atvinnurekstri og um leið meiri eftirspurn eftir atvinnuhús- næði. Það mátti greina breytingu strax í fyrrahaust, en eftirspurnin hefur farið vaxandi síðan,“ segir Magnús Gunnarsson hjá fasteigna- sölunni Valhöll. „Ég hef alltaf fundið fyrir þörf- inni, en það var eins og margir þyrðu ekki að stíga skrefið til fulls fram eftir ári í fyrra en séu reiðu- búnir til þess nú. Þess verður líka að gæta, að atvinnuhúsamarkaður- inn er miklu hægari í allri fram- kvæmd en kaup og sala á íbúðar- húsnæði. Öll viðskipti taka lengri tíma og það fer meiri tími í und- irbúning.“ Magnús Gunnarsson er nú með til leigu stórt húsnæði við Höfða- bakka 9, þar sem höfuðstöðvar Marels voru áður. „Það hefur verið mikil eftirspurn eftir húsnæði í þessari byggingu og talsverður hluti þess hefur þegar verið leigður út,“ segir Magnús. „Aðaleinkenni þessa húsnæðis eru góð lofthæð, mjög góð staðsetning, góð aðkoma og næg bílastæði.“ Byggingin er tvær hæðir. Þegar er búið að leigja út af neðri hæðinni um 1.700 ferm. „Þar er um að ræða eitt fyrirtæki í framleiðslu á búnaði fyrir fiskiðnaðinn, annað er heild- sala og þriðja fyrirtækið starfar við auglýsingaþjónustu,“ segir Magnús. „Á efri hæð er þegar komin sjúkra- þjálfarastofa í rúmlega 1.000 ferm. húsnæði.“ Á fyrstu hæð á eftir að leigja út- húsnæði, sem skiptist í þrjá sali með innkeyrsludyrum. Einn er 624 ferm. með 3,7 m lofthæð, annar er 266 ferm. með 3,7 m lofthæð og sá þriðji er 780 ferm. og með 7,6 m lofthæð. Á annarri hæð er óleigt skrif- stofuhúsnæði, sem skiptist í tvennt, annars vegar í 1.040 ferm. og hins vegar í 266 ferm. Mögulegt er að skipta framangreindum einingum í smærri einingar. „Þetta húsnæði hentar vel fyrir ýmiss konar starfsemi svo sem iðn- að, heildsölu, skrifstofustarfsemi o.fl.,“ segir Magnús. Endurbætt húsnæði „Eignin er í eigu Landsafls, sem er öflugt, sérhæft fasteignafélag,“ sagði Magnús ennfremur. „Það er boðið upp á hagstæða leigu miðað við sambærilegt húsnæði en húsið er í góðu ástandi og ætlunin að bæta það enn. Á þeirri hlið, sem snýr að Vest- urlandsveginum er búið að skipta um alla glugga og komnir áltré- gluggar í stað þeirra gömlu. Áform- að er að skipta á sama hátt um alla aðra glugga í húsinu og eins er í bí- gerð að að klæða húsið með áli. Í framtíðinni verður þarna því glæsi- legt og nútímalegt hús, sem stendur á mjög góðum stað á Höfðanum.“ „Það er mikið um fyrirspurnir um þetta húsnæði og ég geri ráð fyrir að unnt verði að fá leigutaka í það allt á næstu mánuðum,“ sagði Magnús Gunnarsson að lokum. Vaxandi eftirspurn eftir atvinnu- húsnæði einkennir markaðinn Höfðabakki 9. „Þegar er búið að leigja út drjúgan hluta af húsinu, en eftir er að leigja út tæplega 3.000 ferm.,“ segir Magnús Gunnarsson hjá Valhöll, sem sér um að koma húsinu í leigu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.