Morgunblaðið - 01.02.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 30. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2003 mbl.is
Hrappa-
rapparinn
Meistaraverk Verdis og Shake-
speares frumsýnt Lesbók 16
Hrókurinn
í sókn
Sterkir skákmeistarar á tveimur
alþjóðlegum mótum Hróksins 6
Macbeth í
Óperunni
ÍTALSKA lögreglan handtók í gær 28 pak-
istanska menn í borginni Napólí en menn-
irnir eru grunaðir um að hafa lagt á ráðin
um hryðjuverk. Mikið magn sprengiefna
fannst í fórum þeirra, auk korta af Napólí
þar sem búið var að merkja við staði, sem
lögreglan telur hafa verið líkleg skotmörk
mannanna. Voru bækistöðvar Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) og ræðismannsskrif-
stofa Bandaríkjanna meðal skotmarkanna.
Lögreglan handtók mennina í reglu-
bundinni aðgerð, sem miðaði að því að hafa
uppi á ólöglegum innflytjendum. Pakistan-
arnir reyndust hins vegar búa yfir sprengi-
efni sem hefði nægt til að sprengja í loft upp
þriggja hæða hús, að sögn lögreglunnar.
28 Pakistan-
ar handtekn-
ir í Napólí
AP
Ítalskir lögreglumenn sýna hluta sprengi-
efnisins sem fannst í Napólí í gær.
Napólí. AFP.
MIKIL snjókoma olli uppnámi í
mörgum löndum Vestur-Evrópu
í gær og víða fóru samgöngur
gjörsamlega úr skorðum. Á
þjóðveginum A-1 á milli Burgos
og Irun á Spáni lentu margir
ökumenn í vandræðum vegna
snjókomunnar, enda síst vanir
slíku veðri.
Í Englandi urðu talsverðar
truflanir á flugi, neðanjarðar-
lestum í London seinkaði og
áætlanir Eurostar-lestarinnar
milli London og Brussel fóru úr
skorðum.
Reuters
Óvanalegt Spánarveður
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í
gær að hann væri ekki mótfallinn því að leitað
yrði eftir nýrri samþykkt á vettvangi öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna ef það yrði til að
senda Saddam Hussein Íraksforseta skýr skila-
boð um að full alvara væri á bak við þann ásetn-
ing að afvopna Írak. Bush sagði nýja ályktun í
öryggisráðinu hins vegar enga forsendu þess að
hægt yrði að grípa til aðgerða. Bush átti við-
ræður við Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, í gær og mátti ráða af blaðamannafundi
leiðtoganna tveggja í gærkvöldi að þeir eru
samstiga í málinu. Ekki kom hins vegar fram
hvað þeir vildu nákvæmlega að SÞ gerðu næst.
Þrýst hefur verið á um að vopnaeftirlitsmenn
SÞ fái meiri tíma til að ljúka verki sínu í Írak,
auk þess sem margir vilja ekki að ráðist verði í
hernaðaraðgerðir gegn Írak nema öryggisráð
SÞ hafi fyrst samþykkt ályktun þar að lútandi.
Hafði Blair í viðtali á CNN-sjónvarpsstöðinni
fyrr í gær lýst stuðningi við að öryggisráðið
ályktaði um málið að nýju. Blair lagði hins vegar
áherslu á að þetta fæli í sér að SÞ yrðu að „taka
á málinu“ en ekki hlaupast undan ábyrgð. Hann
ítrekaði þessa afstöðu sína í gærkvöldi. „Þetta
er próf á staðfestu alþjóðasamfélagsins,“ sagði
hann. „Ekki er hægt að komast að annarri nið-
urstöðu á þessari stundu en að Saddam Hussein
sýni vopnaeftirlitsmönnunum ekki samstarfs-
vilja og þar af leiðandi er hann brotlegur við
ályktanir [öryggisráðsins],“ sagði Blair. „Það
mun draga til tíðinda í þessu máli innan fárra
vikna, ekki mánaða,“ sagði Bush.
Bjóða eftirlitsmönnum til Bagdad
Írösk stjórnvöld höfðu áður tilkynnt að þau
hefðu boðið yfirmönnum vopnaeftirlits SÞ til
skrafs og ráðagerða í Bagdad. Bush gaf hins
vegar lítið fyrir slíka fundi er hann var spurður í
gær um boð Íraka. Ekki yrði samið um neitt við
Íraka, þeim bæri einfaldlega að afvopnast.
Bush segir enga þörf
á nýrri ályktun SÞ
Reuters
George W. Bush og Tony Blair í gærkvöldi.
Washington. AFP, AP.
Blair vill/16
ÞÓRA Ellen Þórhallsdóttir, prófess-
or í grasafræði við Háskóla Íslands,
segir að Jón Kristjánsson, settur
umhverfisráðherra, hafi með úr-
skurði sínum um Norðlingaöldu-
veitu mótað afdráttarlausa stefnu
um að virða mörk friðlandsins í
Þjórsárverum. Líklegt sé að þar sé
um stefnumörkun til framtíðar að
ræða.
Þóra Ellen hefur unnið að vist-
fræðirannsóknum í Þjórsárverum
um 20 ára skeið
og hefur verið í
broddi fylkingar
þeirra, sem and-
vígir hafa verið
fyrri áformum
um Norðlinga-
ölduveitu. Hún
segir í samtali við
Morgunblaðið að
úrskurður ráð-
herra sé vel unn-
inn og að mörgu leyti athyglisverð-
ur. Hann feli hins vegar í sér svo
miklar breytingar á Norðlingaöldu-
veitu að velta megi fyrir sér hvort
framkvæmdin sé sú sama og áður.
Þóra Ellen segir mörgum spurn-
ingum ósvarað vegna úrskurðar ráð-
herra. Þó sé ekki vafi á að fram-
kvæmdin muni hafa mun minni
umhverfisáhrif til langframa en áð-
ur. „En mér finnst þessi afdrátt-
arlausa áhersla sem ráðherrann
leggur á að það beri að virða frið-
landsmörkin líka mjög mikilvæg og
sömuleiðis að það eigi að virða okkar
alþjóðlegu skuldbindingar sem eru
tengdar Þjórsárverum. Mér finnst
mjög jákvætt að ráðherra skuli hafa
mótað svona afdráttarlausa stefnu
hvað þetta varðar því manni finnst
líklegt að það sé stefnumörkun til
framtíðar.“
Stefna mörkuð til framtíðar
Norðlingaölduveita/4, 6, 10
Prófessor í grasafræði segir afdráttarlaust að mörk friðlands Þjórsárvera séu virt
Þóra Ellen
Þórhallsdóttir
FYRSTA beinið var lagt inn í nýstofnaðan
beinabanka Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri nú í vikunni. Beinin verða notuð við
beinfyllingar í gerviliðaaðgerðum.
Guðni Arinbjarnar, bæklunarlæknir og
bankastjóri beinabankans, segir að á bækl-
unardeild FSA séu árlega gerðar um 160
gerviliðaaðgerðir, þar af 90–100 mjaðmaað-
gerðir. „Í þessum aðgerðum er lærleggs-
hausinn tekinn og fram til þessa hefur hon-
um verið eytt, en nú höfum við fengið
heimild til að geyma þá í beinabankanum,
að fengnu leyfi sjúklinganna.“
Beinið er geymt í 70 gráða frosti í hálft
ár. Þá er tekin blóðprufa úr beingjafanum
til að ganga úr skugga um að engir sjúk-
dómar eða bakteríur séu til staðar.
Guðni segir sjúklinga hafa tekið vel í að
gefa lærleggshausa í bankann. „Það taka
flestir vel í þessa beiðni, enda eru menn
með því að hjálpa öðrum.“
70° frost í
beinabanka
♦ ♦ ♦ MAÐUR í borginni Braga íPortúgal var færður til yf-
irheyrslu á lögreglustöð
vegna gruns um að hann hefði
stolið farsíma. Er lögreglu-
maðurinn brá sér frá eitt and-
artak stal maðurinn farsíma
hans.
Þegar lögreglumaðurinn
kom aftur inn í herbergið tók
hann eftir því að síminn var
horfinn. Hann hélt sig hafa
gleymt honum einhvers staðar
og hringdi því í númerið.
Kunnuglegir tónar heyrðust
þá frá ökkla hins handtekna
sem hafði falið þýfið í öðrum
sokknum. Þjófurinn var þegar
í stað kærður.
Hringt úr
sokknum
Lissabon. AFP.
Skyggnzt bak við húfuna hjá
rapparanum Móra Fólk 66