Morgunblaðið - 01.02.2003, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2003 59
DAGBÓK
Bankastræti 11
sími 551 3930
Útsala
20-50%
afsláttur
Upplýsingar í síma 552 3132 eða 866 1659
Inga Bjarnason leikstjóri
1. Ætlar þú að sækja um Leiklistarháskólann?
2. Ert þú söngnemi sem vill bæta sviðsframkomu og leik?
3. Langar þig að læra framsögn og fá meira sjálfsöryggi?
Einnig farið í leikhús.
Fyrirlestrar í listasögu.
8 vikna námskeið sem hefst 10. febrúar og lýkur 7. apríl. Kennsla fer fram
á mánudagskvöldum og eftir hádegi á laugardögum.
Kennd verður raddbeiting, framsögn, leiktúlkun, spuni og hreyfing.
Leiklist fyrir alla
Inga Bjarnason
leikstjóri
Sjálfsrækt
Í skammdeginu
Guðrún Arnalds verður með námskeið
í líföndun helgina 15. og 16. febrúar.
Skammdegið á sína fylgifiska eins
og þunga, depurð, kvíða og einmannaleika.
Tími til að rækta garðinn sinn, taka til og endurnýja kraftana.
líföndun, jóga, dans, hugleiðsla og umræður
Guðrún Arnalds, símar 896 2396 og 561 0151
ÁRNAÐ HEILLA
60 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 1.
febrúar, er sextugur Þor-
steinn S. Jónsson, Móabarði
10b, Hafnarfirði. Hann og
eiginkona hans, Lilja Krist-
insdóttir, taka á móti ætt-
ingjum og vinum í Gaflinum,
Hafnarfirði, í dag milli kl.
16-19.
60 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag-
inn 2. febrúar, verður sex-
tug Guðný Guðjónsdóttir.
Hún tekur á móti gestum í
félagsheimili hestamanna-
félagsins Skugga í Borg-
arnesi laugardaginn 1. febr-
úar kl. 15–20.
Morgunblaðið/Kristján
Þessar ungu bekkjarsystur í 4. bekk í Valsárskóla á Sval-
barðsströnd stóðu fyrir fjársöfnun fyrir Akureyrardeild
Rauða kross Íslands. Stúlkurnar smíðuðu söfnunarkassann
í smíðatíma í skólanum og söfnuðust í hann 18.827 krónur.
Þær heita f.v. Guðrún Lilja Aradóttir, Aldís Mánadóttir,
Alda María Norðfjörð, Þrúður Starradóttir og Rakel Þor-
gilsdóttir.
HLUTAVELTA
TIL ÍSLANDS
Þín fornöld og sögur mér búa í barm
og bergmál frá dölum og hörgum,
þín forlög og vonir um frægðir og harm
mér fylgja á draumþingum mörgum.
Þinn svipurinn ljúfi, þitt líf og þitt mál,
í lögum þeim hljóma, er kveður mín sál.
Ég óska þér blessunar, hlýlega hönd,
þó héðan þér rétt geti ei neina, –
og hvar sem ég ferðast um framandi lönd,
ég flyt með þá vonina eina:
Að allt, sem þú, föðurland, fréttir um mig,
sé frægð þinni að veg, – því ég elskaði þig.
Stephan G. Stephansson
LJÓÐABROT
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4.
e3 Bf5 5. Rc3 dxc4 6. Bxc4
e6 7. O-O Rbd7 8. He1 Bg6
9. e4 Rb6 10. Bb3 Bb4 11.
Bg5 Dc7 12. Bc2 Rc4 13.
Dc1 Da5 14. Hb1 O-O 15.
Bd2 c5 16. a3 Rxd2 17. Dxd2
Bxc3 18. Dxc3 Dxc3 19. bxc3
cxd4 20. cxd4
Hac8 21. He2
b6 22. Hd1
Hfd8 23. h3
Hc3 24. a4 Bh5
25. e5 Rd5 26.
Be4 Rf4 27.
Ha2
Staðan kom
upp á Skák-
þingi Reykja-
víkur sem
stendur nú yf-
ir. Anna Björg
Þorgríms-
dóttir (1530)
hafði svart
gegn Helga
Jónatanssyni
(2065). 27...Rxh3+! 28. gxh3
Bxf3 29. Bxf3 Hxf3 30. Kg2
Hc3 31. a5 b5 32. a6 b4 33.
Ha5 Hb8 34. d5 Kf8 35. d6
Ke8 36. Hb1 Hc2 37. Kg3 b3
38. f3 b2 39. Ha2 Hb4 40. h4
Kd7 41. h5 f6 42. h6 gxh6
43. exf6 Kxd6 44. f4 Kd7 45.
Kf3 Ke8 46. Ke3 Kf7 47.
Kd3 Hg2 48. Ha5 Kxf6 49.
Hh5 Kg6 og hvítur gafst
upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
ÁBENDING: Ekki gleyma
makker þótt þú fáir góða
hugmynd – hann er hugs-
andi vera líka.
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ ÁD65
♥ --
♦ KD8
♣ÁD5432
Vestur Austur
♠ 1097 ♠ K42
♥ 83 ♥ G92
♦ 1097642 ♦ ÁG3
♣96 ♣G1087
Suður
♠ G83
♥ ÁKD107654
♦ 5
♣K
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 lauf Pass 1 hjarta
Pass 1 spaði Pass 4 grönd
Pass 5 spaðar Pass 6 hjörtu
Pass 6 spaðar Pass 7 hjörtu
Pass Pass Dobl Allir pass
Suður fékk góða hug-
mynd. Hann sá strax
möguleika á slemmu og
þegar norður sýndi spaða í
öðrum hring ákvað suður
að spyrja um lykilspil með
SPAÐA sem tromplit.
Hjartaliturinn var þéttur
og það var forgangsatriði
að komast að því hvað
makker ætti í spaða – eða
það hélt suður. Norður
kvaðst eiga tvö lykilspil og
drottninguna í spaða og
suður hugðist ljúka sögn-
um með sex hjörtum.
En þá fór norður að
hugsa! Skiljanlega leit
hann svo á að spaði væri
samþykktur tromplitur og
breytti í sex spaða. Suður
sá sitt óvænna og hrökkl-
aðist í sjö hjörtu, sem
austur kraftadoblaði.
Sagnþokan lagðist yfir
vestur eins og fleiri og
hann reyndi fyrir sér með
laufníunni, sem gaf suðri
tækifæri til að vinna al-
slemmuna. Það tækifæri
nýtti hann þó ekki. Hann
tók slaginn heima, af-
trompaði AV og svínaði
spaðadrottningu og fór því
tvo niður.
Ef sagnhafi gefur sér að
austur eigi spilin sem máli
skipta getur hann byggt
upp skemmtilega þving-
unarstöðu:
Norður
♠ ÁD
♥ --
♦ K
♣ÁD5
Vestur Austur
♠ 1097 ♠ K4
♥ -- ♥ --
♦ 109 ♦ Á
♣6 ♣G108
Suður
♠ G83
♥ 54
♦ 5
♣ --
Næst síðasta trompinu
er spilað og spaðadrottn-
ingu hent úr borði. Austur
þvingast í þremur litum.
Sennilega hendir hann
spaða, en þá verður spaða-
gosinn þrettándi slagurinn.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags-
blað. Samþykki afmæl-
isbarns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir góðum gáfum
og viljastyrk. Þú ert einnig
með báða fætur á jörðinni.
Árið framundan verður eitt
það kraftmesta á ævi þinni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Í dag er gott að setjast niður
og gera lista yfir helstu
markmið þín í framtíðinni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ættir að hugsa vel um
hvert þú vilt stefna í starfi.
Hvar vilt þú verða eftir fimm
ár? Hvað þarft þú að gera til
að ná því markmiði?
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þér finnst gaman að ferðast.
Nýtt tungl er að fæðast í dag
og þá er rétti tíminn til að
gera áætlanir um ferðalag
síðar á árinu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú verður að stilla saman
gildismat þitt og þinna nán-
ustu. Þú veist vel að þú hefur
reynt að slá því á frest en það
gengur ekki lengur.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Næsta mánuð munu sam-
skipti við aðra kenna þér
margt um þig. Hugsaðu vel
um hvernig þú gætir bætt
samskipti þín við aðra.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Stundum einbeitir þú þér svo
mikið að smáatriðum að þú
sérð ekki heildarmyndina. Í
dag er heppilegt að reyna sjá
fyrir hverju þú vilt fá áorkað í
vinnunni næsta mánuð.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú þarft stundum að nýta þá
listrænu hæfileika sem þú
býrð yfir og ættir að reyna
það í dag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Nýtt tungl býður upp á
möguleika á að nálgast hluti
úr nýrri átt. Hugsaðu um
hvernig þú vilt bæta sam-
skipti þín við fjölskylduna og
hvernig þú getur bætt að-
stöðuna á heimilinu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Í dag ættir þú að skoða
hvernig þú tjáir þig við aðra.
Ert þú vingjarnleg(ur) við
aðra og sýnir þeim áhuga?
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Nýtt tungl gefur möguleika á
að reyna nýjar leiðir til fjár-
öflunar. Það er í lagi að
dreyma stóra drauma og
sýna af sér djörfung öðru
hvoru.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þetta er í eina skiptið á árinu
sem nýtt tungl er í þínu
merki. Það þýðir að í dag átt
þú að setjast niður og hugsa
um hverju þú vilt fá áorkað á
árinu. Skrifaðu niður 10 at-
riði.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú vilt ljúka samningum við
stofnanir eða fyrirtæki í dag.
Þú vilt einnig hafa frumkvæði
að nýjum samningum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Gullsmári
Bridsdeild FEBK Gullsmára
spilaði tvímenning á tólf borðum
mánudaginn 20. janúar. Miðlungur
220. Beztum árangri náðu:
NS
1.-2. Helga Helgad. og Þórh. Magnúsd.
260
1.-2. Karl Gunnars. og Ernst Bachman 260
3. Haukur Bjarnas. og Sigurj. H. Sigurj.
253
4. Jóna Kristinsd. og Sveinn Jensson 239
AV
1. Páll Guðmundsson og Haukur Guðm.
305
2. Einar Markúss. og Sverrir Gunnarss.
268
3. Guðjón Ottóss. og Guðm. Guðveigss. 264
4. Viðar Jónss. og Sigurþór Halldórss. 238
Bridsdeild FEBK Gullsmára
efnir til eldriborgarabrids alla
mánudaga og fimmtudaga kl. 12,45
á hádegi.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélags kvenna
Nú er lokið Barómeter 2003.
Spilaðar var 21 umferð. Röð efstu
para er eftirfarandi:
Unnar A. Guðmundss. – Helgi Samúelss.
133
Jón Stefánss. – Magnús Sverrisson 68
Kristjana Steingr. – Halla Bergþórsd. 62
Anna G. Nielsen – Guðlaugur Nielsen 57
Soffía Daníelsd. – Óli Björn Guðmundss.36
Bestu skor þ. 27. jan. sl.
Guðm. K. Steinbach – Bjarni Guðnason 56
Unnar A. Guðmundss. – Helgi Samúelss.
51
Soffía Daníelsd. – Óli B. Guðmundsson 44
Gísli Tryggvas. – Heimir Tryggvason 40
Baldur Bjartmarss. – Steindór Ingim. 40
Mánudaginn 3. feb. 2003 hefst
Aðalsveitakeppni 2003. Spilað
verður eftir Monrad útreikningi og
stendur keppnin í 4–6 kvöld en það
fer eftir þátttöku. Þátttaka er öll-
um heimil.
Laugardagsmót hjá
Bridsfélagi Suðurnesja
Staðan í aðalsveitakeppni eftir 3
umferðir af sjö.
Sv. Sparisjóðsins 67
Sv. Sigríðar Eyjólfs 58
Sv. Kjartans Sævars 52
Næsta laugardag stendur brids-
félagið fyrir dagsmóti. Spiluð verð-
ur sveitakeppni, 6–8 spila leikir.
Munið: laugardagur 1. febr. kl. 13
að Mánagrund.
Bridsfélag SÁÁ á
sunnudögum á ný
Bridsfélag SÁÁ hóf reglulega
spilamennsku á ný eftir nokkurt
hlé sl. sunnudagskvöld, 26. janúar.
Efstu pör urðu þessi:
Guðlaugur Sveinss. – Baldur Bjartmarss.
75
Bergljót Aðalst. – Björgvin Kjartanss. 64
Jóna Samsonard. – Kristinn Stefánsson 64
Óskar Kristinsson – Kristinn Óskarsson64
Í Bridsfélagi SÁÁ verða spilaðir
eins kvölds tvímenningar í þægi-
legu og afslöppuðu andrúmslofti,
alltaf á sunnudagskvöldum kl.
19.30.
Spilastaður er Lionssalurinn að
Sóltúni 20, en það er nánast sama
hús og Bridssambandið var í áður,
en hét þá Sigtún 9.
Allir spilarar eru hjartanlega
velkomnir og vonandi tekst að
koma félaginu strax á þann stall
sem það á skilið. Umsjónarmaður
er Matthías Þorvaldsson (sími 860-
1003) og veitir hann aðstoð við
myndun para, sé þess óskað.