Morgunblaðið - 02.02.2003, Blaðsíða 5
Á að skreppa í stórborgarferð
með skömmum fyrirvara?
Slóðin www.laterooms.com
getur þá komið að góðum not-
um þegar leita á að gistingu.
ÞRÍR aðilar í ferðaþjónustu bjóða
flug án gistingar til Alicante á Spáni í
ár, Heimsferðir, Plúsferðir og Sum-
arferðir. Andri Már Ingólfsson, for-
stjóri Heimsferða, segir að flogið
verði til Alicante alla miðvikudaga í
sumar en þá hefst að hans sögn oft
vikuleiga á íbúðum. Andri segir að
verðið hafi lækkað um 10–20% frá í
fyrra og hann býst við að farþega-
fjöldinn verði svipaður og þá eða um
6.000 manns. Andri segir að ferða-
skrifstofan sé með samning við Fé-
lag húseigenda á Spáni og því fái þeir
afslátt og viðskiptavinir geti einnig
nýtt sér ávísanir upp í verðið frá Atl-
as og VR. Viðskiptavinir Plúsferða
og Sumarferða geta reyndar einnig
lækkað verð á farseðlum með því að
nýta ávísanir frá Atlas eða VR.
Laufey Jóhannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Plúsferða, tekur í
sama streng og Andri og segir að
fargjöldin hafi lækkað frá í fyrra og
búið sé að bóka margfalt meira í
sumar en undanfarin ár en sumar-
húsaeigendur á Spáni eru einnig
með samning við Plúsferðir og njóta
sérkjara.
Hún segir að enn fremur hafi sum-
arhúsaeigendur á Spáni tekið þeirri
nýbreytni vel að fá að kynna hús sín
á vefnum hjá Plúsferðum þar sem
fram koma upplýsingar um sumar-
húsin eða íbúðirnar og leigutímann.
Helgi Jóhannsson, forstjóri Sum-
arferða, segir að sala á flugsætum til
Alicante hefjist í febrúarbyrjun.
Hann segir að viðskiptavinum standi
til boða ýmis tilboð eins og að kaupa
fargjald aðra leiðina í september en
fargjaldið verður selt á 9.900 krónur
með sköttum.
Þá verða einnig í boði tilboðsferðir
í apríl, maí og september. Helgi seg-
ir að almennt fargjald verði í þremur
verðflokkum en fyrstu tvö þúsund
sætin verða seld á 29.950 krónur sé
bókað á Netinu en 31.400 krónur ef
bókað er í síma. Ef fleiri sæti seljast
þá verður verðið aldrei hærra en
34.500 krónur. Hann bendir á að
önnur þjónusta Sumarferða verði
kynnt á vef félagsins nú í febrúar á
slóðinni www.sumarferdir.is.
! #
!
!
"
! $
$
!"#
!"#
!"#
$
% &
'
)((
)((
* * *
(
(
* + ,-
*((
+ ,-
*((
+ ,-
*((
,-
,-
+ ,-
+ ,-
' , .
/ .
,,,0),
,
(,)% 12 (.
+3 +3 & !'
4"
4&04& (&
(
+3 +3 & !' ( 5
4" 6
4" !((( 8
&
)
)
*
(*
*
*
((
)((
0
(*
)0(
(
0(
) ((
(
(
))((
))(
)(
Mikil verðsamkeppni í
flugi til Alicante á Spáni
Ljósmynd/Kjartan Þorbjörnsson
Flogið er bæði á miðvikudögum og fimmtudögum til Alicante í sumar.
Nánari upplýsingar
Heimsferðir
Sími: 5951000
www.heimsferdir.is
Plúsferðir
Sími: 5352100
www.plusferdir.is
Sumarferðir
Sími 5751515
www.sumarferdir.is
Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.gistinglavilla16.com
sími 004532975530 • gsm 004528488905
Kaupmannahöfn - La Villa
Bílaleigubílar
Sumarhús
í Danmörku
og Mið-Evrópu
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975 á viku.
Innifalið í verði:
Ótakmarkaður akstur, allar
tryggingar. (Afgrgjöld á
flugvöllum.)
Aðrir litlir og stórir bílar, 6-7
manna, minibus og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
Norðurlönd og Mið-Evrópa.
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Heimasíðan www.fylkir.is
með fjölbreyttar upplýsingar.
Nýjustu verðlistarnir komnir.
Hringið og fáið sendan.
Dancenter, Lalandia,
Novasol/Dansommer.
Fylkir Ágústsson,
Fylkir — Bílaleiga ehf.,
ferðaskrifstofan
sími 456 3745.
Netfang fylkirag@fylkir.is
Heimasíða www.fylkir.is