Morgunblaðið - 02.02.2003, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2003 C 3
Bókasafns- og
upplýsingafræðingur
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið aug-
lýsir stöðu bókasafns- og upplýsingafræðings
lausa til umsóknar. Starfið heyrir undir skjala-
og upplýsingastjóra og er fullt starf. Æskilegt
er að starfsmaður hefji störf í mars nk.
Starfið felst í þátttöku og vinnu við eftir-
farandi verkþætti:
Daglegan rekstur skjalasafns ráðuneytisins.
Uppbyggingu og rekstur bókasafns.
Fræðslu fyrir starfsmenn um skjala- og upp-
lýsingastjórn þ. á m. um notkun Lotus Notes
skjalastjórnarkerfisins Málaskrár.
Ýmis verkefni sem tengjast upplýsingamál-
um ráðuneytisins.
Þróunarvinnu varðandi uppbyggingu skjala-
og bókasafns ráðuneytisins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Leitað er að bókasafns- og upplýsingafræð-
ingi með BA-próf að lágmarki.
Þekking og reynsla af skjalastjórn og rafræn-
um skjalastjórnarkerfum nauðsynleg.
Góð kunnátta í ensku og einu Norðurlanda-
máli nauðsynleg.
Sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð eru
nauðsynleg ásamt hæfni í mannlegum
samskiptum.
Launakjör eru samkvæmt samningi Félags há-
skólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Ólafsdóttir
skjala- og upplýsingastjóri í síma 545 8700.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykja-
vík eigi síðar en 24. febrúar nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð-
un um ráðningu hefur verið tekin.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
Reykjavík, 23. janúar 2003.
Grettistak ses
Húnaþing vestra
Auglýst er til umsóknar staða framkvæmda-
stjóra Grettistak ses. Grettistak er menningar-
og ferðaþjónustuverkefni í Húnaþingi vestra
sem að standa m.a. sveitarfélagið Húnaþing
vestra, Byggðasafn Húnvetninga og Stranda-
manna og Ferðamálafélag V-Hún.
Markmið verkefnisins er að vinna með menn-
ingararf og sögu Húnaþings og nýta til að efla
svæðið á fjölbreyttan hátt. Verkefni fram-
kvæmdastjóra á næstu árum eru m.a. að stýra
framkvæmdum við uppbyggingu fyrirhugaðrar
menningarmiðstöðvar. Rannsóknir á menning-
arsögu svæðisins og fræðileg skrif. Vinna við
samstarfsverkefni innan héraðs og utan, upp-
bygging menningartengdra ferðaþjónustuverk-
efna, þróun Grettishátíðar, þátttaka í Evrópu-
verkefninu Destination Viking og annað
Evrópusamstarf. Auk vinnu við fjármögnun
og gerð rekstraráætlana.
Hæfniskröfur:
— Háskólamenntunar eða álíka menntunar
er krafist. Menntun á sviði menningarsögu,
svo sem í íslensku, bókmenntum, sagn- og
þjóðfræði er æskileg.
— Tungumálakunnátta, enska og Norðurlanda-
mál.
— Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og
metnaður til árangurs.
— Geta unnið fræðilegar rannsóknir og komið
að fræðilegu samstarfi.
— Reynsla af framkvæmdastjórn er æskileg.
Um er að ræða framtíðarstarf í 100% starfshlut-
falli frá 1. maí 2003.
Umsóknarfrestur er til 1. mars 2003.
Nánari upplýsingar veitir formaður stjórnar
Grettistaks, Pétur Jónsson, í síma 451 0040,
netfang peturjo@simnet.is .
Umsóknir sendist til Grettistak ses, Höfða-
braut 6, 530 Hvammstangi.