Morgunblaðið - 02.02.2003, Side 10
10 C SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri sem hér segir:
Álfabyggð 4, Súðavík, þingl. eig. Halldór Rúnar Jónbjörnsson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 6. febrúar 2003
kl. 10.00.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
31. janúar 2003.
TIL SÖLU
Styrkir til námsverkefna
í nautgriparækt
Átaksverkefni á vegum landbúnaðarráðuneytis
um ræktun íslensku kýrinnar auglýsir styrki til
námsverkefna nemenda í framhaldsnámi (BSc,
MSc og PhD) sem tengjast nautgriparækt.
Hámarksstyrkupphæð er 250 þúsund vegna
BSc verkefna og 500 þúsund vegna MSc og
PhD verkefna. PhD verkefni geta þó í ákveðn-
um tilfellum hlotið hærri styrk, ef umfang og
mikilvægi verkefnisins telst þess eðlis.
Frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð hjá
Framleiðnisjóði landbúnaðarins, Engjaási 2,
310 Borgarnesi, sími 430 4300, netfang fl@fl.is.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar um
átaksverkefnið má finna á www.fl.is.
Nuddstofa til sölu
í heilu lagi eða minni einingum.
Upplýsingar sendist til augl. deildar Mbl.
merktar: „Nuddstofa — 13299“.
Til sölu
Dagana 3. til 7. febrúar bjóðum við Mocca-
master kaffivélar með 20% afslætti.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða sem ekki
verður endurtekið. Moccamaster kaffivélarnar
verða einnig seldar með afslætti hjá nokkrum
raftækjaverslunum í Reykjavík, Hafnarfirði og
víðsvegar um landið.
Einnig bjóðum við upp á Expresso kaffivélar
með 25% kynningarafslætti. Opið er frá kl. 9.00
til 12.00 og frá kl. 13.00 til 17.00 þessa viku.
Missið ekki þetta tækifæri.
I. Guðmundsson ehf.,
Skipholti 25, 105 Reykjavík.
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Íbúð óskast til leigu
Höfum verið beðin að útvega 4ra til 5 her-
bergja íbúð til langtímaleigu á svæði 104
eða 108 fyrir einn af viðskiptavinum okkar.
Eign óskast til kaups
Höfum fjársterkan kaupanda að góðri eign
á svæði 101 eða 105 á verðbilinu kr. 20
til 30 m. Góðar greiðslur, jafnvel stað-
greiðsla, fyrir góða eign.
Allar nánari upplýsingar veitir Steinar S.
Jónsson á Lyngvík fasteignasölu í síma
588 9490 eða á lyngvik@lyngvik.is .
NAUÐUNGARSALA
TILKYNNINGAR
Menntamálaráðuneytið
Ráðstefna um mat á
óformlegu námi
Menntamálaráðuneytið og Verkefnisstjórn um
símenntun standa fyrir ráðstefnu um mat á
óformlegu námi 14. febrúar nk. á Grand Hóteli
Reykjavík frá kl. 13:00 til kl. 17:00.
Tilgangur ráðstefnunnar er að vekja umræðu
um þá starfsemi sem tengist mati á óformlegu
námi, færni og þekkingu fullorðinna.
Á ráðstefnunni munu aðilar sem búa yfir
reynslu á þessu sviði fjalla um þetta málefni
auk þess sem rætt verður um hugmyndir og
tillögur um hvað sé æskilegt að gera til þess
að koma mati á þekkingu og færni fullorðinna
til framkvæmdar.
Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni verður Bård
Pettersen, sérfræðingur í málefnum fullorðins-
fræðslu í norska menntamálaráðuneytinu.
Hann mun fjalla um verkefnið mat á raunfærni
og þekkingu fullorðinna í Noregi
(Realkompetanseprosjektet), en Norðmenn
hafa náð einna lengst í mati á óformlegu
námi.
Ráðstefnan er öllum opin og án endurgjalds.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfang rad-
stefna@mrn.stjr.is eða í síma 545 9500. Nánari
upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á
vefsíðu ráðuneytisins www.menntamalaradu-
neyti.is .
Menntamálaráðuneytið,
30. janúar 2003.
menntamalaraduneyti.is
Mosfellsbær
Hvatningarverðlaun
fyrirtækja 2002
Atvinnu- og ferðamála-
nefnd Mosfellsbæjar
óskar eftir tilnefningum til Hvatningar-
verðlauna fyrirtækja í Mosfellsbæ árið
2002.
Tilgangur hvatningarverðlaunanna er að
vekja athygli á þeim fyrirtækjum sem eru
að gera vel, bæði fyrir sig, starfsmenn
sína og íbúa Mosfellsbæjar.
Verðlaunin eru í formi farandbikars og
viðurkenningarskjals.
Til viðmiðunar á vali fyrirtækja er eftirfar-
andi haft í huga:
Nýjungar og nýsköpun
Umsvif í bæjarfélaginu
Fjölgun starfsmanna
Starfsmanna- og fjölskyldustefna
Ímynd og sýnileiki
Umhverfi og aðbúnaður
Ennfremur óskar atvinnu- og ferðamála-
nefnd eftir tilnefningum að fyrirtæki sem
talist getur Sprotafyrirtæki í Mosfellsbæ
árið 2002.
Tilnefningar sendast bréfleiðis á Bæjar-
skrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2,
270 Mosfellsbæ, eða með tölvupósti á
mos@mos.is fyrir 14. febrúar 2003.
Auglýsing
um skipulag í Kópavogi
Digraneshlíðar — Gnípuheiði 9
— Deiliskipulag
Tillaga Bæjarskipulags að breyttu deiliskipulagi
við Gnípuheiði 9 auglýsist hér með í samræmi
við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997. Í tillögunni felst að heimilt verði að
byggja tvíbýlishús í stað einbýlishúss á fram-
angreindri lóð. Tillagan er sett fram í mkv.
1:500 dags. 7. janúar 2003.
Vatnsendaland. Síminn tækjahús og
fjarskiptastaur. Deiliskipulag.
Tillaga Teiknistofunnar T.ark f.h. Fasteigna-
deildar Landsíma Íslands auglýsist hér með
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997. Í tillögunni felst heimild til
að reisa tækjahús og fjarskiptamastur við
Vatnsendaveg á mörkum F-reitar og fyrir-
hugaðrar grunnskólalóðar á Norðursvæði
Vatnsenda. Tillagan er sett fram í mkv. 1:500,
1:100 dags. 13. desember 2002.
Holtagerði/Kársnesbraut. Stígur/aðkoma.
Deiliskipulag.
Tillaga Bæjarskipulags að deiliskipulagi á ak-
færum stíg milli Holtagerðis og Kársnesbraut-
ar. Í tillögunni kemur m.a. fram aðkoma hús-
anna Holtagerði 36, 38 og Kársnesbrautar 85
og 87 og frágangur á stígnum og umhverfi
hans. Tillagan er sett fram í mkv. 1:200 dags.
20. janúar 2003.
Ofangreindar tillögur verða til sýnis á Bæjar-
skipulagi Kópavogs, Fannborg 6 II. hæð frá
kl. 9-16 alla virka daga frá 5. febrúar til 5. mars
2003. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa
borist skriflega Bæjarskipulagi eigi síðar en
kl. 15:00 föstudaginn 21. febrúar 2003.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskil-
ins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Reykjanes — Svartsengi
Háspennulína, 220 kV
Mat á umhverfisáhrifum
Hitaveita Suðurnesja hf. mun standa fyrir
kynningu á framkvæmd lagningu 220 kV
háspennustreng ásamt skýrslu um mat á um-
hverfisáhrifum. Kynningin verður haldin í Eld-
borg, Svartsengi, fimmtudaginn 6. febrúar frá
kl. 14:00—17:00.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina
og leggja fram athugasemdir.
Auglýsing
um skipulag í Kópavogi
Borgarholtsbraut/Skjólbraut
Deiliskipulag
Tillaga Bæjarskipulags að deiliskipulagi við
Borgarholtsbraut 1, 1a, 1b, 1c, 3, 5, 7, 9, 11 og
Skjólbraut 2, 4, 6, 8, 10 og 12 auglýsist hér með
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997. Í tillögunni felst m.a. að gert
er ráð fyrir nýju íbúðarhúsi, tvær hæðir og ris
með samtals 9 íbúðum austast á svæðinu,
Borgarholtsbraut 1a, 1b, 1c. Þá er í tillögunni
er sýndur svokallaður endurbyggingarréttur
á lóðunum Borgarholtsbraut 1, 3, 5, 7 og 11
sem miðar að því að í stað þeirra húsa sem
nú standa á framangreindum lóðum verði
byggð tvíbýlishús með tveimur stakstæðum
bílgeymslum. Þá er í tillögunni gert ráð fyrir
bílskúrsrétti vestan við húsið nr. 9 við Borgar-
holtsbraut. Tillagan er sett fram í mkv. 1:1000
dags. 11. nóvember 2002.
Tillagan verður til sýnir á Bæjarskipulagi Kópa-
vogs, Fannborg 6, 2. hæð, frá kl. 9-16 alla virka
daga frá 5. febrúar til 5. mars 2003. Athuga-
semdir eða ábendingar skulu hafa borist skrif-
lega Bæjarskipulagi eigi síðar en kl. 15:00
föstudaginn 21. febrúar 2003. Þeir, sem ekki
gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast
samþykkir tillögunni.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
mbl.is
ATVINNA