Morgunblaðið - 04.02.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.02.2003, Blaðsíða 20
20 B ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir Sími 588 55 30 Hannes Sampsted, sölumaður. Sigrún Stella Einarsdóttir, sölumaður. Pétur Pétursson, sölumaður. Sæberg Þórðarson, löggiltur fasteigna- og skipasali. Fax 588 55 40 • Netfang: berg@berg.is • Heimasíða: berg.is • Opið virka daga frá kl. 9-17.30 MOSFELLSBÆR HÖFUM KAUPENDUR AÐ ÍBÚÐUM Í LYFTU- HÚSUM Á REYKJAVÍKURSVÆÐINU Höfum kaupendur að íbúðum í lyftuhúsum á Reykjavíkursvæðinu. Til okkar hafa leitað eldri borgarar, sem óska eftir 2ja-3ja herbergja íbúðum í lyftuhúsum á Reykjavíkursvæðinu. Stóriteigur - M. bílskúr - Mos. Höfum til sölu raðhús á þremur hæðum, 240 fm ásamt 22 fm bílskúr. Á 1. hæð er rúmgott eldhús með borð- krók, stór stofa, borðstofa og gesta- snyrting. Á 2. hæð eru 4 svefnherbergi og snyrting, bað. Í kjallara eru þrjú her- bergi, stórt geymslurými. Fallegur suð- urgarður. Falleg eign með góða stað- setningu. 5186 Reykjavegur - Mos. Nýkomin í sölu 80 fm sérhæð auk 27 fm bílskúrs í járnklæddu timburhúsi. Nýendurnýjuð snyrting. Rúmgóð herbergi. Stór lóð og fallegur garður. Húsið stendur í útjaðri byggðar á friðsælum og fallegum stað. Áhv. húsbréf 6,4 m. V. 9,9 m. 5171 Álafosskvos - Mos. Höfum í einkasölu atvinnuhúsnæði, 135 fm. Möguleikar til að reka margvíslega starfsemi t.d. gallerí, handverksstofu, verslun o.fl. Frábær staðsetning, mikl- ir möguleikar. V. 11,9 m. 5159 Bjarkarholt - M. bílskúr - Mos. Höfum í einkasölu með frábæra staðsetningu einbýlishús, 136 fm að Bjarkarholti, Mosfellsbæ. Góður lagna- og skriðkjallari, tvöfaldur bílskúr, 58 fm gróðurhús og geymsluskúr. Eign með mikla möguleika og góða staðsetn- ingu. Áhv. 11,0 m. V. 20,9 m. 5152 Búagrund - Kjalarnesi Til sölu vel skipulagt 135 fm einbýlishús auk 38 fm bílskúrs á góðum stað á Kjalarnesi. 4 svefnherbergi. Nýleg eldhúsinnr. og nýtt parket á stofu, eldh. og holi. Upp- tekin loft í stofu og eldhúsi. Mjög fjöl- skylduvænt hús á góðu verði. Hagstæð áhv. lán. Byggsj. 6 m. V. 16,7 m. 5138 Helgaland - Í smíðum - Góð kaup Til í sölu fallegt 212 fm parhús með innfelldum bílskúr. Húsið er á 2 hæðum. Afhendist fullbúið að utan og fokhelt að innan. Afhending í byrjun febrúar nk. Mjög vandaður frágangur. Stór eignarlóð. Frábær staðsetning með útsýni. 5086 Byggðarholt - Mos. Snyrtilegt raðhús, 143 fm auk 21 fm bílskúrs. Stórt þvottahús inn af eldhúsi. 3 góð svefnherbergi. Útgengt úr stofu á stóran sólpall með skjólveggjum. Fallegur garður. V. 18,7 m. 2266 Rituhöfði - Mos. Glæsilegt 189 fm parhús með inn- byggðum bílskúr í einu vinsælasta hverfi Mosfellsbæjar. Sérsmíðaðar inn- réttingar. Upptekin loft með halógen- lýsingu. Eldhús með innréttingum úr mahóní. 4 svefnherbergi með vönduð- um skápum. Glæsileg snyrting með hornbaðkari og sturtuklefa. Bílskúr með mikilli lofthæð og geymslulofti. Eign í sérflokki. Áhv. Húsbréf 9,6 m. Í smíðum Lómasalir Glæsilegar og mjög vel skipulagðar 3ja-4ra herbergja íbúðir í 4ra hæða fjölbýli í Salahverfi. Íbúðirnar eru 103-122 fm ásamt stæði í bílageymslu. Eignirnar afhendast fullbúnar að utan sem innan en án gólfefna. Allar nánari uppl. á skrifstofu Bergs. Byggingaraðili tekur á sig öll afföll húsbréfa, lánar allt að 85% í kaupverði. Greiðslur úr sölu mæta kaup- um. V. 14,9-16,5 m. 5109 Blásalir Erum með í sölu vandaðar og glæsilegar 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir í 12 hæða blokk. Stórkostlegt útsýni úr öllum íbúðum yfir Suðurnes og Reykjavíkur- svæðið. Íbúðunum er skilað fullbúnum en án gólfefna. Í öllum herbergjum eru sjón- varps- og símatenglar og sérhljóðeinangr- un. Öll sameign verður fullbúin og lóð full- frágengin með leiksvæðum. Upphitað bíl- skýli er í kjallara sem selst sér. Bygging- araðili tekur á sig öll afföll af húsbréf- um, lánar allt að 85%, greiðslur úr sölu mæta kaupum. V. 12,5-19,3 m. V. 13-19 m. 2305 Ólafsgeisli - M. bílskúr Höfum í sölu nýbyggt einbýlishús á tveim hæðum, 211 fm ásamt 28 fm bílskúr. Húsið selst frágengið að utan og tilbúið undir tréverk að innan. Möguleiki er á 4 til 5 herbergjum og lítilli íbúð á 1. hæð. FALLEG OG VEL SKIPULÖGÐ EIGN MEÐ FRÁBÆRU ÚT- SÝNI. V. 22,5 m. 2029 Einbýli Grettisgata - Laus strax Lítið og fallegt 82 fm einbýli. Í risi er fallegt svefn- herbergi. Á miðhæð er forstofa, baðher- bergi, stofa og eldhús. Í kjallara er her- bergi og þvottahús ásamt geymslu. Húsið er mjög vel viðhaldið, nýjar hitalagnir og gler. Falleg eign á góðum stað. V. 11,3 m. 5140 Hlíðarhjalli - Glæsileg eign Í einkasölu glæsilegt 3ja hæða einbýlishús með tvöföldum bílskúr. Húsið er allt hið vandaðasta. Fallegar innréttingar. Parket og flísar á gólfum. Húsið er á einstökum útsýnisstað. Eign fyrir vandláta. Áhv. 8 m. Skipti koma til greina á minni eign. V. 33 m. 2017 Skipasund - Tvær íbúðir Höfum til sölu einbýlishús, jarðhæð, hæð og ris, 140,0 fm ásamt 28,0 fm bílskúr. Á jarð- hæð er 50 fm íbúð. 4 herbergi. Flísar á gólfum. MIKIÐ ENDURNÝJAÐ HÚS MEÐ FALLEGUM VEL GRÓNUM GARÐI. ÞETTA ER EIGN SEM BÝÐUR UPP Á MIKLA MÖGULEIKA. V. 22 m. 1756 Parhús Háaleitisbraut Glæsilegt 190 fm par- hús í vinsælu hverfi. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Arinn í stofu. Sólpallur og fal- legur garður. Örstutt í alla þjónustu. Vönd- uð eign í góðu viðhaldi. Ekkert áhvílandi. V. 22,9 m. 5070 Raðhús Bræðratunga - Kópavogi Ný- komið í sölu vandað raðhús á tveim hæð- um, 135 fm. Bílskúrsréttur. Eignin skiptist þannig: Stofa ásamt borðstofu og tveim svefnherbergjum. Fataherbergi og tvö baðherbergi. Barnvænt umhverfi og stutt í skóla. Áhv. byggsj. 2,8 m. V. 15,5 m. 2263 Hæðir Gnípuheiði - Kópavogi Falleg 80,5 fm 3ja herb. neðri sérhæð í litlu fjölbýli ásamt 24,6 fm bílskúr. Íbúðin er sérlega falleg með vönduðum innréttingum, park- et og náttúruflísar á gólfum. Stór verönd sem er á móti suðri. Falleg eign á góðum stað og stutt í skóla. V. 15,0 m. 5179 Lækjarfit - Garðabæ Í einkasölu snyrtileg 4ra herbergja 90 fm sérhæð. 3 góð svefnherbergi. Spónaparket á gólfum. Örstutt í skóla. Rólegt og barnvænt um- hverfi. Áhv. húsbréf 2,7 m. V. 10,8 m. 5134 Bugðulækur - Sérhæð Mjög falleg 131,6 fm sérhæð í þessu vinsæla hverfi. Íbúðin skiptist í þrjú góð svefnherbergi, stofu og borðstofu, rúmgott eldhús með nýrri eldhúsinnréttingu. Flísar og parket á gólfum. Eign á góðum stað og stutt í alla þjónustu. V. 17,3 m. 2308 4ra-6 herb. Kleppsvegur Höfum í einkasölu góða 4ra herbergja íbúð, 94 fm á þriðju hæð í fjölbýlishúsi. Þrjú svefnherbergi, stofa og suðursvalir. Ekkert áhvílandi. V. 10,8 m. 5173 Krummahólar - Gott verð Rúm- góð og vel skipulögð 4ra herbergja 113 fm íbúð á fyrstu hæð í góðu lyftuhúsi. Þrjú svefnherbergi, rúmgóð stofa ásamt yfir- byggðum svölum. Húsið er klætt að utan. V. 11,3 m. 5160 Berjarimi - M. bílageymslu - Laus strax Mjög rúmgóð 132 fm 4-5 herb. íbúð á jarðhæð í snyrtilegu fjölbýli í Grafarvoginum auk 36 fm bílageymslu. Parket á gólfum. Björt og rúmgóð stofa með útgengi út á lóð. Áhv. húsbréf 6,8 m. Laus strax. Hagstætt verð. V. 14,8 m. 5154 3ja herb. Skúlagata Snyrtileg 3ja herbergja 61,5 fm íbúð á fjórðu hæð í mjög góðu fjölbýli. Parket á gólfum, rafmagn allt yfirfarið. Bú- ið er að skipta um gler að hluta. Góð stað- setning í hjarta Rvíkur. V. 8,7 m. 5125 Háaleitisbraut - Laus strax Skemmtileg 74 fm íbúð í kjallara í þessu vinsæla hverfi. Parket og flísar á gólfum. Hagstæð áhv. lán. 4,7 m. V. 9,9 m. 2275 Möðrufell Til sölu falleg 3ja herbergja 78 fm íbúð á annarri hæð. Parket og flísar á gólfum, eldhúsinnrétting frá IKEA. Bað- herbergi allt nýuppgert með nuddbaðkari. Fallegt útsýni í austur. Snyrtileg eign í góðu viðhaldi. V. 9,6 m. 2276 Dúfnahólar - Mikið útsýni Snyrtileg 3ja herbergja 72 fm íbúð á 7. hæð í lyftuhúsi. Parket og flísar á gólfum. Stórar svalir sem eru yfirbyggðar að hluta með frábæru útsýni. Barnvænt umhverfi. Áhv. húsbréf 4,4 m. Gott verð. V. 9,4 m. 2265 2ja herb. Laugateigur Nýkomin í sölu mjög skemmtileg 77 fm kjallaraíbúð í Laugar- neshverfinu. Parket og flísar á gólfum. Snyrting flísalögð í hólf og gólf. Mjög stórt svefnherbergi. Rúmgóð stofa. Nýleg eld- húsinnrétting. Nýtt gler og gluggar. V. 9,6 m. 5151 Grettisgata - Laus strax Mjög fal- leg og í góðu viðhaldi 2-3ja herb. 62 fm íbúð í snyrtilegu húsi við Grettisgötuna. Nýtt Danfoss-kerfi. Laus strax. Ekkert áhv. Hagstætt verð. V. 7,9 m. 5157 Þekking - öryggi - þjónusta Reykjavík - Fasteignasalan Eignaval er nú með í einka- sölu sérhæð í steinsteyptu húsi í Álfalandi 14 í Reykja- vík. Húsið var byggt 1982 og er hæðin 125,9 ferm. Henni fylgir innbyggður bílskúr sem er 29 ferm. „Þetta er eign á frábæru verði á róleg- um stað. Íbúðin er neðri hæð með sérinngangi frá Álfa- landi og er aðkoma beint inn frá götu, þar sem er upphitað bílaplan,“ sagði Bjarni Ólafs- son hjá Eignavali. „Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi. Þar á hægri hönd er innangengt í bílskúrinn. Er inn er komið tekur við parketlagt miðrými sem opið er frá inn í stofu. Þá eru tvö rúmgóð dúklögð herbergi – stórt barnaher- bergi og hjónaherbergi með fataskáp upp í loft á heilum vegg. Baðherbergið var allt tekið í gegn í fyrra, þar er flísalagt gólf og flísar eru líka upp á miðja veggi. Bæði baðkar og sturta eru í baðherberginu, sem og innrétting með miklu skápaplássi og skúffum. Eldhúsið er með miklu skápaplássi. Innréttingin er úr gegnheilu beykilímtré, eldavél- in er af gerðinni Siemens. Dúk- ur er á gólfi eldhúss og þar er rúmgóður borðkrókur. Stofan er parketlögð og snýr í suður. Allar hurðir eru 90 sentimetra breiðar og engir þröskuldar. Þessi íbúð hentar því vel fyrir fatlaða. Bílskúrinn er 29 ferm. og þar er bílskúrsopnari. Inn af bíl- skúrnum er þvottahús og þaðan er gengt inn í geymslu, hurð er út í garð. Veröndin er mjög skjólsæl og snýr garður í há- suður. Ásett verð er 18,6 millj. kr.“ Álfaland 14 Eignaval er nú með í einkasölu sérhæð í þessu húsi við Álfaland 14. Hæðin er 125,9 ferm. og henni fylgir innbyggður bílskúr, sem er 29 ferm. Ásett verð er 18,6 millj. kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.