Morgunblaðið - 08.02.2003, Blaðsíða 1
BANDARÍKJASTJÓRN gaf í
gær út skipun um aukinn viðbún-
að vegna hættu á hryðjuverkum.
Er hættustigið nú næsthæst,
kennt við litinn appelsínugulan, en
stigin eru alls fimm, hæsta stig er
rautt. Sagði John Ashcroft dóms-
málaráðherra að „vaxandi líkur“
væru á því að hryðjuverkasamtök
Sádi-Arabans Osama bin Ladens,
al-Qaeda, myndu ráðast á banda-
rísk skotmörk, annaðhvort í land-
inu sjálfu eða utan þess á meðan
haj, pílagrímahátíð múslíma,
stendur yfir. Henni lýkur um
miðjan mánuðinn.
„Nýlega bárust upplýsingar
sem benda til þess að leiðtogar al-
Qaeda leggi nú áherslu á að skipu-
leggja árásir í Bandaríkjunum á
íbúðarhús, hótel og önnur auðveld
skotmörk þar sem öryggisgæsla
er lítil,“ sagði Ashcroft. „Einnig
hafa komið fram upplýsingar sem
hafa fengið aukið vægi vegna
handtöku [meintra hryðjuverka-
manna] í London nýverið en í fór-
um þeirra fannst rísín. Sýnir þetta
áhuga al-Qaeda á að gera árás
með efnavopnum, sýklavopnum
eða geislavirkum vopnum.“
Ashcroft sagði að hryðjuverka-
mennirnir kynnu að ráðast á efna-
hagsleg skotmörk, þar á meðal
samgöngutæki og orkuver, einnig
mannvirki sem væru táknræn fyr-
ir veldi Bandaríkjamanna. Hann
nefndi ekki sjálfur hugsanlegt
stríð við Írak sem ástæðu fyrir
auknum viðbúnaði en aðrir emb-
ættismenn sögðu að undirbúning-
ur fyrir átök hefði átt sinn þátt í
ákvörðuninni.
Talið er að al-Qaeda og fleiri
samtök reyni að búa til vopn sem
dreift geti geislavirku efni, svo-
nefnda „skítuga sprengju“, og
valdið þannig mengun sem myndi
gera stórt svæði óbyggilegt um
langa hríð.
Gripið verður til margvíslegra
öryggisráðstafana á öllum sviðum
stjórnsýslunnar en flestar verða
þær þess eðlis að þær snerta ekki
daglegt líf almennings. Sagði Ash-
croft að ekki væri mælt með því að
opinberum samkomum yrði frest-
að. Síðast var lýst yfir næsthæsta
hættustigi 10. september í fyrra,
daginn áður en rétt ár var liðið frá
árásinni á New York og Wash-
ington. Var stigið lækkað aftur í
gult tveimur vikum síðar.
Óttast nýja árás
al-Qaeda-manna
Íbúðarhús og
hótel sögð geta
orðið skotmörk
Washington. AP, AFP.
STOFNAÐ 1913 37. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2003 mbl.is
Komdu í heimsókn til okkar í
Gróður
málarans
Eggert Pétursson málar Ís-
lenska plöntuheima Lesbók 4
Færeyska stórstjarnan Brandur
Enni á Broadway Fólk 52
Bannað að
banna?
Hinn sænski dómur ekki
svo sænskur? Miðopna
VEXTIR á verðtryggðum innlánsreikning-
um Íslandsbanka og sparisjóðanna hafa ekki
verið reiknaðir á innlögn á reikningana innan
mánaðar, heldur hefur útreikningur á vöxt-
unum miðast við mánaðamót. Sérstakar
verðbætur koma hins vegar á innlagnir innan
mánaðar. Hjá Landsbanka og Búnaðar-
banka gildir hins vegar að innlagnir á verð-
tryggða reikninga bera vexti frá og með deg-
inum eftir innlögn og hefur það fyrirkomulag
verið við lýði um árabil samkvæmt upplýs-
ingum bankanna.
Mun bjóða viðskiptavinum það sama
Íslandsbanki hefur ákveðið að frá og með
næstu mánaðamótum verði vextir á verð-
tryggðum reikningum jafnframt reiknaðir
innan mánaðar. „Íslandsbanki hefur nú upp-
lýsingar um að einhverjar innlánsstofnanir
séu farnar að bjóða upp á útreikning verð-
tryggðra innlánsvaxta á hreyfingu innan
mánaðar. Mun bankinn því að sjálfsögðu
bjóða viðskiptavinum sínum slíkt hið sama,“
segir Þorgils Óttar Mathiesen, fram-
kvæmdastjóri fjárhagssviðs Íslandsbanka.
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Spari-
sjóðabankans, segir að það hafi verið almenn
regla með verðtryggða reikninga að það séu
greiddar sérstakar verðbætur innan mánað-
arins en vextir frá næstu mánaðamótum á
eftir. „Ef það er raunin að einhverjir bankar
eru að bjóða upp á einhverja reikninga þar
sem aðrir útreikningar tíðkast þá verður að
sjálfsögðu litið á það innan sparisjóðanna og
brugðist við því.“
Sigurjón Þ. Árnason, framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs Búnaðarbankans, segir að um
verðtryggða reikninga Búnaðarbankans
gildi að þeir beri vexti og sérstakar verðbæt-
ur innan mánaðar frá því daginn eftir innlögn
og þannig hafi það verið í áratug að minnsta
kosti. Sigurjón Gunnarsson, sérfræðingur í
fjárstýringu hjá Landsbanka Íslands, segir
að innlánsreikningar Landsbanka Íslands
beri dagvexti frá og með deginum eftir inn-
lögn og verðbætur frá næstu mánaðamótum.
Verðtryggðir reikningar
Íslandsbanka og sparisjóða
Innlagnir
án vaxta
innan
mánaðar
Vextir reiknaðir frá
innlögn hjá Landsbanka
og Búnaðarbanka
Misjafnt/10
STJÓRNVÖLD í Tyrklandi bönnuðu í gær læknum í
Istanbúl að binda enda á líf ungrar, þýskrar konu,
Ninu Typol, sem er meðvitundarlaus en tengd við
öndunarvél og annan tæknibúnað sem kemur í veg
fyrir að hún deyi. Drukkinn unnusti hennar særði
hana lífshættulega á höfði með byssuskoti sl. mið-
vikudag eftir rifrildi. Konan, sem er 25 ára, er barns-
hafandi.
Gert hafði verið ráð fyrir að tækin yrðu tekin úr
sambandi í gær en nokkrum klukkustundum áður en
til þess kom birtist lögfræðingur stjórnvalda í Ank-
ara á staðnum og lagði bann við að það yrði gert.
Gera yrði tilraun til að bjarga lífi barnsins ófædda en
ef tækin hefðu verið tekin úr sambandi hefði fóstrinu
fyrst verið eytt. Læknar, lögfræðingar og foreldrar
konunnar deila nú um það hvort halda beri henni á
lífi, að sögn fréttavefjar breska ríkisútvarpsins, BBC.
Foreldrarnir vilja að samband verði rofið við tæk-
in sem halda dótturinni á lífi. Þeir segja að hún hafi
ávallt sagt að hún vildi fá að deyja ef svo færi ein-
hvern tíma að eingöngu væri hægt að halda henni á
lífi með aðstoð tækja.
Fóstrinu verði bjargað
Reuters
Silvio Berlusconi (t.h.), forsætisráðherra Ítalíu, og Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, í
Chigi-höllinni í Róm í gær. Rumsfeld setur í dag ráðstefnu um öryggismál í München.
Reuters
Andstæðingar stríðs við Íraka
mótmæltu í gær í München.
ÍRAKSDEILAN er „ekki leikur“,
að því er Jean-Pierre Raffarin,
forsætisráðherra Frakklands,
sagði í gær í
framhaldi af
ummælum
George W.
Bush Banda-
ríkjaforseta
daginn áður
um að leiknum
væri lokið.
„Þetta er ekki
leikur og þessu
er ekki lokið,“ sagði Raffarin,
staddur í opinberri heimsókn á
Indlandi. „Það er til annar val-
kostur en stríð.“
Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, kom í
gær til Ítalíu en þaðan fer hann til
Þýskalands þar sem hann mun
setja ráðstefnu í München um ör-
yggismál.
Rumsfeld varaði í gær íraska
hershöfðingja við því að hlýða
fyrirmælum Saddams ef hann
gæfi þeim skipun um að beita
efna- eða sýklavopnum. Þeir
myndu iðrast þess síðar.
Ummæli mistúlkuð?
Ráðherrann sagði að nýleg um-
mæli hans, þar sem hann virtist
draga Þjóðverja í dilk með Líb-
ýumönnum og Kúbverjum vegna
andstöðu þýsku stjórnarinnar við
stríð, hefðu verið „rangfærð“ og
jafnvel mistúlkuð af ásettu ráði.
Íraksdeila
er „ekki
leikur“
París, Nýju Delhi, Aviano. AFP, AP.
Enn valda/16
Raffarin
Fínt að vera
poppstjarna