Morgunblaðið - 08.02.2003, Qupperneq 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2003 37
Ó, Jesú bróðir bezti
og barnavinur mesti,
æ, breið þú blessun þína
á barnæskuna mína.
(P. Jónsson.)
Þín
Sævar og Ásrún.
Elsku afi Simmi. Það er erfitt fyrir
okkur að skilja að þú ert farinn til
Guðs og við sjáum þig aldrei aftur.
Við sýndum ömmu Laugu nýju
stígvélin okkar þegar við komum á
Sauðárkrók. Þú sérð þau bara þegar
þú kíkir í gegnum skýin og þá ætlum
við að vinka þér. Við ætlum að vera
duglegar að skoða allar myndirnar af
þér í albúmunum hennar mömmu.
Mamma og pabbi ætla að segja okkur
sögur af þér svo við gleymum þér
ekki.
Elsku amma Lauga, við ætlum líka
að vera duglegar að passa þig.
Vertu nú yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson.)
Elsku afi Simmi, nú ert þú orðinn
einn af englunum sem passa okkur.
Þínar
Linda Ósk og Sandra Ósk.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt,
hafðu þar sess og sæti,
signaður Jesús mæti.
Kveðja.
Þitt langafabarn
Guðbjartur Þór.
Sigmundur Pálsson fór svo skyndi-
lega að ekki vannst tími til að kveðja
og þakka samveruna. Þegar samvist-
um okkar lauk, síðasta haust, var
hann ekki að fara neitt, hætti að vísu
að koma í vinnuna en sýndi sig hér
annað slagið til að hressa okkur við og
fylla kaffistofuna með notalegheitum
og brosi. Við „kallarnir“ í kjallara
Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðár-
króki (þetta nafnskrípi var framleitt í
Reykjavík) búum við mikið konuríki.
Aldrei kvörtum við upphátt, en hvað
okkur fer á milli þegar næði gefst
verður ekki rakið hér. Engan mann
veit ég sem gæti stjórnað svona
kvennafans af eins sprungulausri ljúf-
mennsku og áfallalaust eins og Simmi
gat og gerði í áratugi. Geðprýðin og
æðruleysið brást honum aldrei enda
datt mér oft í hug að sá hefði ekki ver-
ið nein smásmíði, sekkurinn með
þessum eiginleikum, sem kall hafði á
baki sér þegar hann lagði af stað í
upphafi – en Simmi var þrekskrokkur
og vissulega var bakið breitt. Hús-
vörður á sjúkrahúsi á landsbyggðinni
verður að leysa þúsund óskyld verk-
efni og finna svör við spurningum sem
bæði eru lífsnauðsynlegar og líka hin-
um sem ekki eru svaraverðar. Þetta
gat Sigmundur Pálsson. Þegar hann
mætti brosandi á vettvang, þá lægði
vindinn og sólin gægðist fram. Ég
fullyrði að öllum þótti svo vænt um
hann, vegna efalausrar ljúfmennsku
og geðprýði, að „stóru málin“ urðu vel
viðráðanleg og sum hreinlega gufuðu
upp. Margoft varð ég vitni að því að
hann virkaði eins og gangandi áfalla-
hjálp og bara með því að bera bros um
húsið bætti hann tilveru okkar allra.
Nú sakna fleiri en ég vinar í stað. Ég
votta fjölskyldunni einlæga samúð.
Sigmundar vinir sakna,
sumt er ei hægt að dylja.
Sorgina þungt að sefa,
sárt er alltaf að skilja.
Geymast mun lengi gleði
genginna daga saman.
Oft var þá sól í sinni,
saklaust og einlægt gaman.
Þegar nú þögnin ríkir,
þökkum við kynninguna.
Áfram ókomna daga,
eigum við minninguna.
Hilmir Jóhannesson.
Fleiri minningargreinar
um Sigmund Birgi Pálsson bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
✝ Snæbjörn GunnarGuðmundsson
fæddist á Skjaldvarar-
fossi hinn 9. marz 1924.
Hann lést á heimili sínu
2. febrúar síðastliðinn.
Sonur Guðmundar
Jónssonar og Friðgerð-
ar Marteinsdóttur og
var þriðji yngsti í átta
systkina hópi. Hin voru:
Hafsteinn, f. 1912, Unn-
ur, f. 1914, Gyða, f.
1917, Guðmundur Frið-
geir, f. 1918, Þórarinn
Fjeldsted, f. 1920, Lúð-
vík, f. 1925 og
Kristín, f. 1927.
Eru þau öll látin
nema Unnur, sem
býr á Stað í Reyk-
hólasveit á Reykja-
nesi.
Gunnar var
ókvæntur og barn-
laus.
Útför Gunnars
verður gerð frá
Hagakirkju á
Barðaströnd í dag
og hefst athöfnin
klukkan 14.
Elsku Gunni minn, nú ert þú far-
inn frá okkur. Kominn til forfeðra
þinna, kominn á þann stað sem ég
veit að þér líður vel. Þú varst sem
einn af fjölskyldunni, alltaf boðinn og
búinn að hjálpa, og máttir ekkert
aumt sjá.
Kynni okkar urðu fyrst sumarið
1971 þegar ég var hér á Barðaströnd
við að leggja raflínu í sveitina á veg-
um RARIK. Við bjuggum hjá þér á
Skjaldvarafossi um tíma meðan á því
verki stóð. Seinna fluttist ég suður
en samband okkar slitnaði aldrei
meðan ég bjó þar. Þú varst mér stoð
og stytta þegar við réðumst í að
stofna Klöpp hf., verslunar- og út-
gerðarfélag Barðstrendinga, fullur
bjartsýni og lagðir alltaf gott til
þeirra mála. Þegar ég svo flutti á
Barðaströnd 1984 varðstu heima-
gangur og fluttir til okkar skömmu
seinna í Stóra-Krossholt enda orðinn
einn af heimilisfólkinu. Þar var
margt brallað saman m.a. í að gera
upp gamla báta og gera þá út á grá-
sleppu. Ógleymanlegar eru stund-
irnar sem við áttum saman úti á
Breiðafirði og inn við eyjar í rjóma-
blíðu, innan um ósnortna náttúruna
sem þú kunnir manna best skil á og
hvernig ætti að umgangast. Gömul
mið og siglingaleiðir þekktir þú
manna best og ratvísi þinni mátti
treysta, það þurfti ekki tæki til.
Þekkingu þinni á ætt og högum fólks
úr byggðum Breiðafjarðar var við-
brugðið, enda ófáir sem leituðu til
þín um upplýsingar í þeim efnum og
kom þar enginn að tómum kofunum,
enda var alltaf viðkvæðið ef gest bar
að garði og þú varst ekki heima:
„Spurðuð þið ekki hver væru afi og
amma“? Ættfræði og saga voru þín
hjartans mál. Á margt lagðir þú
gjörva hönd og eru þær ófáar ferð-
irnar sem þú fórst hér um sveitirnar
til að hjálpa mönnum. Gilti þá einu
hvort um var að ræða húsbyggingar,
bátasmíðar eða annað sem þurfti að
laga. Skýrustu dæmin í þeim efnum
eru kirkjan í Saurbæ á Rauðasandi
og víkingaskipið sem þú smíðaðir
fyrir Vestfirðinga þjóðhátíðina 1974 í
Vatnsfirði sem nú stendur við
byggðasafnið á Hnjóti. Þetta og
margt annað ber vitni hagleik þínum
Gunnar minn, hvort heldur það hét
járn eða tré.
Ófáar voru ferðirnar sem farnar
voru yfir Kleifaheiði fótgangandi ef
mikið lá við til að sækja meðul eða
annað fyrir þurfandi sveitunga, og
gilti þá einu hvernig á stóð með veð-
ur eða færð. Sýndi sig þar best hug-
arþel manns til meðbróður síns. Nú
seinni ár komst þú að uppbyggingu
fiskeldisins á Þverá og er það víst að
það munaði um minna, þvílík var elj-
an, áhuginn og samviskusemin
Gunnar minn. Ekki voru síðri hand-
tökin og góð ráð við uppbyggingu
ferðaþjónustu á Krossholtum.
Heima varst þú sem afi barnanna og
hændust þau að þér, þú fylgdist með
þeim frá fæðingu og áttir stóran þátt
í uppeldi þeirra, aldrei varstu svo
upptekinn að þú gæfir þér ekki tíma
til að hlusta á þau og taka þátt í því
sem þau voru að gera, s.s. smíða
kofa, fara að veiða, í fjöruferð, ganga
á reka o.s.frv. Á ferðalögum sagðir
þú þeim frá atburðum og kennileit-
um og urðu þau margs vísari um
sveitina sína. Eru ógleymanlegar
jólaferðirnar þegar við fórum með
heitt kókó út að Siglunesi eða inn í
Gíslahelli. Þín mun verða sárt sakn-
að við tækifæri sem þessi. Það er
eins og Gunnar Steinn litli sagði:
Hver á nú að elda hafragrautinn á
morgnana? – en þið hafið borðað
saman hafragraut á morgnana und-
anfarin 10 ár. Þarna er afa sárt sakn-
að. Missir afabarnanna er mikill og
sár. Það er þó huggun harmi gegn að
þú fékkst að fara kvalalaust. En þín
verður sárt saknað úr Stóra-Kross-
holti og það skarð verður aldrei fyllt.
Vertu sæll Gunni minn við munum
sjást síðar.
Hann er sem tré, gróðursett hjá rennandi
lækjum, er ber ávöxt sinn á réttum tíma,
og blöð þess visna ekki.
Allt sem hann gjörir lánast honum.
(Sálm. 1–3.)
Torfi.
Elsku Gunni afi.
Mikið er allt tómt síðan þú fórst.
Takk fyrir allt það góða sem þú gafst
mér af elsku þinni.
Á kertinu mínu ég kveiki í dag
við krossmarkið helgi og friðar
því tíminn mér virðist nú standa í stað
en stöðugt þó fram honum miðar.
Ég finn það og veit að við erum ei ein
að almættið vakir oss yfir,
því ljósið á kertinu lifir.
Við flöktandi logana falla nú tár,
það flýr enginn sorgina lengi.
Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár,
hún brýtur þá viðkvæmu strengi,
er blunda í hjarta og í brjósti hvers manns.
Nú birtir, og friður er yfir,
því ljósið á kertinu lifir.
Sá einn þekkir gleðinnar gáska og fjör
sem gist hefur þjáning og pínu.
Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl
sem eygir í hugskoti sínu,
að sorgina við getum virkjað til góðs,
í vanmætti sem er oss yfir,
ef ljósið á kertinu lifir.
(Kristján Stefánsson frá Gilhaga.)
Hvíldu í friði elsku afi.
Þinn
Halldór.
Elsku Gunni afi minn.
Ég gleymi því aldrei hvað þú varst
mér alltaf góður.
Alltaf þegar ég og Gunnar Steinn
vorum lítil þá eldaðir þú alltaf hafra-
graut fyrir okkur. Alltaf þegar þú
fórst til Reykjavíkur þá sváfum við í
rúminu þínu og svo þegar þú komst
til baka þá varstu búinn að kaupa
eitthvað fyrir okkur. Svo einu sinni
þá spurðir þú hvort við myndum
halda að þú kæmist í gegn um lítið
blað og allir sögðu nei en svo braust
þú það saman og klipptir og þá kom
út úr því stór hringur og þú komst í
gegn. þú gast breytt tárum í bros. Þú
varst mjög stór hluti af fjölskildunni.
Ég var svo heppin að fá þig sem afa.
Þú munt alltaf vera í hjarta mér og
ég elska þig svo rosalega mikið. Ég
gleymi aldrei hversu ljúfur og góður
þú varst.
Þú þurrkaðir tárin með brosi og
komst mér alltaf til að hlæja.
En nú ert þú kominn á stað sem
bestur er og sé ég þig seinna þegar
minn tími kominn er.
Saknaðarkveðja þín
Melkorka.
Elsku afi minn.
Nú ertu farinn frá okkur svo
snögglega og ég er ekki alveg búin
að átta mig á því. Allt er svo tómlegt
án þín. Ég hitti þig seinast viku áður
en þú yfirgafst þennan heim og þá
varstu hress. Ég á svo margar minn-
ingar um þig og allar koma þær mér
til að brosa.
þó svo að þú hafir ekki verið „al-
vöru“ afi minn varstu samt besti afi
minn og sá eini sem ég hef þekkt.
Þú varst svo góður og vildir öllum
vel og börnin hændust að þér.
Takk fyrir öll árin sem þú varst
hluti af lífi mínu.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Með söknuði kveð ég þig afi minn
og megi englar Guðs umvefja þig.
Þín
Auður.
Nú er runnin upp stundin sem ég
óttaðist og í eigingirni minni vonaði
að við þyrftum aldrei að upplifa. Ást-
kæri hjartans vinurinn er dáinn.
Eins fallega og hann lifði þannig dó
hann, sofnaði út af í rúminu sínu með
ættfræðimöppu við hlið sér. Mikil
hefur sorgin verið síðan og svo
hræðilega sár. Ég var mér alltaf
mjög meðvitandi um það hversu
mikil forréttindi það voru að búa
undir sama þaki og Gunnar og þakk-
aði Guði fyrir það.
Gunnar var einstaklega heilsteypt
persóna, hreinlyndur, hreinskilinn
og fórnfús maður sem gerði aldrei
kröfur til neins en gaf af sér stöðugt.
Aldrei mátti hafa neitt fyrir honum
en sporin sín og handtök sparaði
hann ekki náunga sínum til handa.
Já hans var alltaf já og nei hans nei.
Hann var hægur og dulur og lét
sjaldan tilfinningar sínar í ljós.
Gunnar var einstakur barnavinur og
gerðist talsmaður þeirra ef hann
taldi á rétti þeirra brotið og skipti þá
engu máli hvort hann þekkti þau
persónulega eða ekki.
Ég stend í mikilli þakkarskuld við
Gunnar. Torfa var hann ómetanleg-
ur trúfastur vinur og honum afar
kær. Börnunum mínum og barna-
börnum opnaði hann ástríkan faðm
og umvafði þau umhyggju og hlýju.
Þeim var hann besti afi sem hægt er
að hugsa sér. Sömu umhyggju sýndi
hann öllum þeim fósturbörnum sem
hér hafa búið, svo hann er stór
barnahópurinn sem á um sárt að
binda.
Svo lengi hef ég dáðst að þessum
manni með sjálfri mér, fylgst með
hvernig hann talaði við börnin, upp-
fræddi og leiddi þau til aukins
þroska af svo mikilli visku og djúpu
innsæi. Fegurri fyrirmynd er ekki
til. Hjá honum fékk ég að vera ég
sjálf og það er ómetanlegt. Tóma-
rúmið er mikið þar sem allt hér
heima minnir á hann en það huggar
að vita að aðeins gott var á milli okk-
ar alla daga. Hann vissi hversu vænt
mér þótti um hann og ég veit að það
var gagnkvæmt.
Kristur gaf okkur öllum leiðbein-
ingar um það hvernig við eigum að
lifa. Þannig lifði Gunnar. Megi okkur
öllum samferðamönnum hans veitast
sú gæfa að taka okkur líf hans til fyr-
irmyndar, greiða götu náungans en
bregða ekki fæti fyrir neinn, því eins
og við skömmtum öðrum uppskerum
við í lífi okkar.
Ég kveð minn kæra vin og vel-
gjörðamann eins og börnin mín
kvöddu hann daglega: Sofðu vel, Guð
geymi þig, ég elska þig.
Helga.
Gunni afi þú varst besti afi sem
hægt var að hugsa sér.
Ég hef elskað þig allt mitt líf og
takk fyrir að leyfa mér alltaf að
koma upp í til þín þegar ég var lítill.
Mér finnst gott að heita í höfuðið á
þér, þú varst alltaf svo góður. Ef
maður hugsar um alla dagana sem
maður lifði með þér þá varstu alltaf
góður.
Þú vaktir okkur alltaf og þú gafst
mér alltaf hafragraut á morgnana.
Þú nenntir alltaf að skutla okkur allt
og út um allt.
Ég elskaði þig alltaf og ég veit þú
elskaðir mig.
Þetta er aðeins
örstutt leið,
ekki svipstund
milli dauðans
og lífsins,
en gjarna hefði ég
viljað fylgjast með þér
þann spöl.
(Þorgeir Sveinbjarnarson.)
Þinn alltaf
Gunnar Steinn.
SNÆBJÖRN
GUNNAR
GUÐMUNDSSON
Alúðarþakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför bróður
okkar, mágs og frænda,
KRISTJÁNS M. JÓHANNESSONAR.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks
hjartadeildar Landspítala Hringbraut.
Guðleif K. Jóhannesdóttir, Þorsteinn S. Sigvaldason,
Magnús Jóhannesson, Guðríður Guðmundsdóttir,
börn þeirra og barnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og jarðarför
HELGU HJÁLMARSDÓTTUR,
Vagnbrekku,
Mývatnssveit.
Freysteinn Jónsson,
Áslaug Freysteinsdóttir, Guðmundur Þórhallsson,
Hjálmar Freysteinsson, Sigríður Þórðardóttir,
Guðrún Freysteinsdóttir, Húnn Snædal,
Egill Freysteinsson, Dagbjört Bjarnadóttir
og fjölskyldur.