Morgunblaðið - 08.02.2003, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
"
!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
EFTIR grónum
völlum í sunnan-
blænum komu
þau hátíðleg í
fasi með Guð
vors lands í
fanginu. Sér-
hvert orð var
grópað í stein.
Ferðinni var
heitið að Eyja-
bakkafossi. Þög-
ul sem bæru
þau helga dóma gróðursetti söfn-
uðurinn lausnarsteina, eilífðar
smáblóm, í móðurskaut jarðar og
báðu dróttir og alvald að þyrma
Austurlandi. Þar sem blindir þurs-
ar hyggjast flytja jökulfljótin og
reisa fjallháa stíflugarða morgun-
dagsins er þjóni musteri mamm-
ons. Hvar hreimur hundruð fossa
hljóðnar, bergvatnsár hverfa úr
farvegi og fjallavötnin fagurblá
umhverfast í kolgrá jökullón.
Laufvana járnskógar nema land og
þramma líkt og tröllauknir Orkar í
fylkingum yfir víðerni Héraðsbúa.
Þar sem hringur tígulegra eld-
fjalla blundar og turnar tveggja
heimsálfa mætast í þjóðargarði
Vatnajökuls.
Við skulum ei raska ró öræfanna
völundarsmíð meistarans mikla,
svo að svanasöngur nýrra kyn-
slóða verði ekki fjallháir stíflu-
garðar eins og Kínamúrar utan um
kolgrá jökullón uppi á hálendi Ís-
lands!
Vitum vér enn eða hvað?
ÓLÖF STEFANÍA
EYJÓLFSDÓTTIR,
Viðjugerði 2, Reykjavík.
Gerist Hringa-
dróttinssaga á
Íslandi?
Ólöf Stefanía Eyjólfsdóttir, aust-
firsk útivinnandi húsmóðir og ljóð-
skáld, skrifar:
Ólöf Stefanía
Eyjólfsdóttir hús-
móðir, ljóðskáld.
VEGNA fyrirhugaðrar álversbygg-
ingar ameríska álfyrirtækisins Alcoa
á Reyðarfirði hafði ég samband við
samtök í Texas sem kalla sig Neigh-
bors for Neighbors og spurði hvort
þeir hefðu heyrt um áætlun Alcoa hér
á landi. Svarið var:
„Já, við vitum af þessari áætlun Al-
coa á Íslandi. Ég hef þegar sent mót-
mæli inn á vefsíðu þeirra. Ég hef
einnig séð myndir af svæðinu sem á
að sökkva. Þvílík sóun á ægifögru
svæði. Það lítur út fyrir að þið eigið
við sama vandamál að stríða og við.
Ríkisstjórnin vill viðskiptin, hvað sem
það kostar, og almennir borgarar
mótmæla.
Allar okkar upplýsingar eru á vef-
síðu okkar, www.neighborsforneigh-
bors.com, eða www.stopalcoa.org. Við
erum lítill hópur, u.þ.b. 15 manns,
sem erum virkust í starfinu, af u.þ.b.
850 meðlimum. Við höfum þurft að
sanna að Alcoa hefur undanfarin 15 ár
verið að brjóta bæði ríkis- og alrík-
islög um mengun. Þetta gerðum við
með því að nota skjöl frá sjálfum
stjórnvöldum. Ég get sagt ykkur að
þegar Alcoa kemst af stað munu þeir
menga loft ykkar og grafa úrgang í
jörðu. Við höfum verið að berjast
gegn Alcoa síðastliðin fjögur ár og
tekist að tefja áætlun þeirra (ekki tek-
ið fram hvaða áætlun við er átt).
Ég óska ykkur alls hins besta í að
stöðva komu Alcoa.
Með vinsemd, Brad Stafford nfnin-
fo@egroups.com.“
ÞÓRDÍS B.
SIGURÞÓRSDÓTTIR,
Dofrabergi 9, 221 Hf.
Bréf frá Texas
Frá Þórdísi B. Sigurþórsdóttur,
sem skrifar frá Texas-ríki í Banda-
ríkjunum:
KVEÐJA til Bjarkar Guð-
mundsdóttur í tilefni Kastljóss
föstudaginn 3. janúar 2003:
Frelsi þitt
dáð þín
þú hin fegursta meðal kvenna
þú skarar framúr
þú flýgur vítt
þú ert vor draumur
þú lyftir oss hátt
ég óska þér velfarnaðar
ég geymi þér bænir
fljúðu vítt
far vel
vertu oss nær
ERNA MARÍA
RAGNARSDÓTTIR,
Grandavegi 36, Reykjavík.
Til Bjarkar
Frá Ernu Maríu
Ragnarsdóttur:
DILBERT mbl.is
Allt efni sem birt ist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áski lur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirt ingu eða á annan hátt . Þeir sem afhenda blaðinu efni
t i l birt ingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi .