Morgunblaðið - 10.02.2003, Page 1
SPÁÐ er stormi af austri, 23–
28 metrum á sekúndu, og
slyddu eða rigningu á landinu
öllu í dag. Að sögn Haralds Ei-
ríkssonar, veðurfræðings hjá
Veðurstofu Íslands, gerir spá-
in ráð fyrir að stormurinn nái
hámarki fyrir hádegi suðvest-
anlands og um og eftir hádegi
á Norður- og Austurlandi.
Veðurofsinn, sem að lík-
indum verður sá mesti sem
orðið hefur í vetur, orsakast
af samskilum sem fara yfir
landið og þeim fylgir þessi
hvassi vindstrengur. Vind-
strengurinn er m.ö.o. í skilum
umhverfis lægðina sem gert
er ráð fyrir að verði 953–4
millibör á hádegi.
Gert er ráð fyrir hlýnandi
veðri eftir því sem líður á dag-
inn. Töluvert dregur úr vindi
síðdegis, að sögn Haralds, en
útlit fyrir að hvessi aftur suð-
vestanlands seint í kvöld eða
nótt. Veðurstofan bendir fólki
á að hafa allan vara á og huga
að lauslegum munum.
STOFNAÐ 1913 39. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2003 mbl.is
Sunna
stökk 6,28
„Maður leggur mikið á sig fyrir
árangurinn“ Íþróttir 12
Seiðurinn, krafturinn, glitrið,
eftirvæntingin Fólk 31
Glósur
Rumsfelds
Fyrr sýndi hann landi forfeðr-
anna meiri skilning Erlent 13
HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra, telur að deilur um hvort
virkja eigi varnarskuldbindingar
Atlantshafsbandalagsins (NATO) til
handa Tyrkjum
vegna hættu á
átökum við
Íraka, veiki
bandalagið að
nauðsynjalausu.
Íslensk stjórn-
völd séu, eins og
flestar aðildar-
þjóðir NATO,
ósammála Þjóðverjum, Frökkum og
Belgum sem telja slíka ákvörðun
ótímabæra. Halldór segir að afstaða
þjóðanna þriggja sé ekki í samræmi
við grundvallaratriði NATO sem sé
skuldbundið til að bregðast við ef
hætta steðjar að aðildarþjóðum
þess.
Halldór minnir á að Tyrkland
eigi landamæri að Írak og því sé
eðlilegt að rætt sé hvernig NATO
geti brugðist við ef til stríðsátaka
kemur. „Hins vegar vona ég eins og
margir aðrir að svo verði ekki, en
það er nauðsynlegt að ræða þessi
mál því hættan á átökum er vissu-
lega fyrir hendi,“ segir hann. Mik-
ilvægt sé að þjóðir eins og Frakkar
og Þjóðverjar leiti leiða til að
tryggja afvopnun Íraka án átaka en
Halldór segir að það þjóni engum
tilgangi í því sambandi að NATO
skipuleggi ekki varnir Tyrkja. Deil-
urnar veiki bandalagið að nauð-
synjalausu. Hann býst þó við að
samkomulag náist.
Klofningur í röðum
bandamanna ágerist
Reuters
Utanríkisráð-
herra segir deil-
ur veikja NATO
„Ég vil þannig leyfa mér að halda
því fram að það hafi skaðað faglega
umfjöllun um Íslenska erfðagrein-
ingu, bæði hérlendis og erlendis, að
sú skoðun er útbreidd að fyrirtækið
njóti sérstaks dálætis hjá forsætis-
ráðherranum. Það vekur upp um-
ræðu og tortryggni um að gagna-
grunnur fyrirtækisins og ríkis-
ábyrgðin byggist á málefnalegum og
faglegum forsendum en ekki flokks-
pólitískum. Sama má segja um Baug,
Norðurljós og Kaupþing. Byggist
gagnrýni og eftir atvikum rannsókn
á þessum fyrirtækjum á málefnaleg-
um og faglegum forsendum eða
flokkspólitískum?“ sagði Ingibjörg
Sólrún í ræðunni meðal annars.
Aðspurð hvort að dæmi séu um að
opinberir aðilar hafi mismunað fyr-
irtækjum segist hún ekki hafa verið
að leggja neinn dóm á það í ræðu
sinni á fundinum. Hún hefði verið að
segja, að það hvernig fjallað væri um
fyrirtæki og þau dregin í dilka vekti
upp þá umræðu og þær grunsemdir
að það sé hugsanlega ýmist verið að
umbuna fyrirtækjum eða refsa. Það
sé verið að deila og drottna og það
eitt út af fyrir sig sé nóg vegna þess
að það dragi úr trausti og tiltrú fólks
á að stjórnvöld séu óháð og að fagleg
sjónarmið liggi til grundvallar.
Hún sagðist ekki vera að meta ein-
stök tilvik heldur leggja mat á um-
ræðuna. „Þetta birtist okkur auðvit-
að mjög skýrt til dæmis í greina-
flokki Agnesar Bragadóttur,“ sagði
Ingibjörg Sólrún.
Faglegar eða
flokkspólitísk-
ar forsendur?
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, forsætisráðherraefni Samfylkingarinn-
ar, varpaði því fram á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar í gær
hvort gagnrýni og eftir atvikum rannsókn á fyrirtækjunum Baugi,
Norðurljósum og Kaupþingi byggðist á málefnalegum og faglegum
forsendum eða flokkspólitískum.
Forsætisráðherraefni Samfylk-
ingarinnar um gagnrýni og eftir
atvikum rannsókn á fyrirtækjum
Afskipti/4
Veðurofsi
um allt
land í dag
Veður/35
Frumsýning
Chicago
BANDARÍSKIR ráðamenn vönd-
uðu í gær ekki kveðjurnar í garð
væntanlegra þýzk-franskra tillagna
um nýjar leiðir til að knýja Íraka til
að fara að kröfum Sameinuðu þjóð-
anna og klofningurinn vegna Íraks-
málsins milli bandamanna beggja
vegna Atlantshafsins virðist ætla að
dýpka enn.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti lét nýjar viðvaranir frá sér fara í
garð Íraksstjórnar og Sameinuðu
þjóðanna. Á fundi með þingmönnum
repúblikana sagði Bush að Saddam
Hussein Íraksforseti hefði „haft
heiminn að fífli“ í meira en áratug og
að SÞ stæðu frammi fyrir „úrslita-
stundu“ í Íraksmálinu.
Bush lét þessi orð falla á sama
tíma og Hans Blix, yfirmaður vopna-
eftirlits SÞ í Írak, sagði í Bagdad að
hann sæi votta fyrir verulega bætt-
um skilningi meðal íraskra ráða-
manna á því að þeir fengju ekki und-
an því vikizt að taka sér tak og gera
það sem þarf til að afstýra stríði. Mo-
hammad ElBaradei, yfirmaður Al-
þjóða kjarnorkumálastofnunarinnar,
sem var með Blix á fundum með
íröskum ráðamönnum alla helgina,
sagðist vænta þess að öryggisráð SÞ
gæfi vopnaeftirlitsmönnum meiri
tíma, „svo lengi sem við skynjum að
verkinu miðar vel áfram“.
Bandaríski utanríkisráðherrann
Colin Powell og Condoleezza Rice
þjóðaröryggisráðgjafi gáfu lítið fyrir
tillögur um að stórfjölga í vopnaeft-
irlitsliðinu í Írak, sem Þjóðverjar og
Frakkar kváðu ætla að leggja fram í
öryggisráðinu og þýzka fréttatíma-
ritið Der Spiegel greindi frá. Sagði
Powell þessar hugmyndir ekki til
annars fallnar en að drepa vandan-
um á dreif, ekki til að leysa hann.
Hneyksluð á Belgum
Í sunnudags-umræðuþáttum sjón-
varpsstöðvanna sögðust þau Powell
og Rice líka hneyksluð á því að
NATO-þjóðirnar Belgar, Frakkar
og Þjóðverjar vildu hindra að beiðni
Bandaríkjamanna um að varnar-
skuldbindingar bandalagsins til
handa Tyrkjum yrðu virkjaðar,
m.t.t. þess að NATO-ríkið Tyrkland
myndi þurfa á slíkum ráðstöfunum
að halda ef til stríðsátaka í grannrík-
inu Írak kemur.
Louis Michel, utanríkisráðherra
Belgíu, lýsti því yfir í sjónvarpi í gær
að Belgíustjórn myndi fyrir sitt leyti
nýta andmælarétt sinn gegn því að
undirbúningur að því að virkja varn-
arskuldbindingar bandalagsins yrði
hafinn; það væri ótímabært. Frestur
sem Robertson lávarður, fram-
kvæmdastjóri NATO, hafði sett til
að leggja slík andmæli fram rennur
út kl. níu í dag að íslenzkum tíma.
Bush segir „úrslitastund“
fyrir SÞ og Írak nálgast
Bandaríkjastjórn gefur lítið fyrir þýzk-
franska tillögu um stóreflt vopnaeftirlit
White Sulphur Springs í Vestur-Virginíu,
München, Berlín, Bagdad. AP, AFP.
VLADIMÍR Pútín, forseti Rússlands (t.v.), og Gerhard Schröder, kanzlari
Þýzkalands, svara spurningum blaðamanna í kjölfar viðræðna þeirra í
Berlín í gær. Lýsti Pútín sig sammála tillögum sem Þjóðverjar og Frakkar
hyggjast leggja fram í öryggisráði SÞ um að stórefla vopnaeftirlitsliðið í
Írak og senda friðargæzlulið því til fulltingis, í því skyni að gera hernaðar-
íhlutun til að knýja Íraka til að hlíta kröfum SÞ um afvopnun óþarfa.
Vilja afstýra stríði í Írak