Morgunblaðið - 10.02.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2003 9
Laugavegi 4, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
Stór-
útsalan
í fullum gangi
30-70%
afsláttur
Síðustu dagar
FLOTTAR VORVÖRUR
Stærðir 36—42 & 44—46
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—15
Snorrabraut 38, sími 562 4362
Stórútsala
30-70% afsláttur
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Verðhrun
Síðasta útsöluvika
Engjateigi 5, sími 581 2141.
ÚTSALA
Yfirhafnir í úrvali
Opið virka daga frá kl. 9-18
Laugardaga frá kl 10-15
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Febrúartilboð
Þú getur grennst....(Ámundur St.) 40% afsláttur
Seiður lands og sagna (G. Sig.) 30% afsláttur
Tímarit 10% afsláttur við kassa
Listhúsinu, Engjateigi 17-19.
Síminn er 552 5540 • bokabud@simnet.is
Opið mán.-fös. frá kl. 11-18.30, lau. frá kl. 11-15.30.
LANG ÓDÝRASTA BÓKABÚÐIN
LANG ÓDÝRASTA BÓKABÚÐIN
Laugavegi 56, sími 552 5980
Allt
á að seljast
verslunin hættir
v. Nesveg, Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
iðunn
tískuverslun
Lagersala
á Nesinu
50-90%
afsláttur
Auglýst eftir
forstöðumanni
Rannsókna-
miðstöðvar
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur auglýst laust til umsóknaremb-
ætti forstöðumanns Rannsóknamið-
stöðvar Íslands. Stofnunin verður til
með gildistöku laga um opinberan
stuðning við vísindarannsóknir og
heyrir undir menntamálaráðherra.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir
að hlutverk hennar verði að veita fag-
lega aðstoð og þjónustu við undirbún-
ing framkvæmd vísinda- og tækni-
stefnu Vísinda- og tækniráðs. Í því
felst m.a. að annast umsýslu rann-
sóknarsjóðs, tækjasjóðs, rannsóknar-
námssjóðs og tækniþróunarsjóðs;
gangast fyrir mati á árangri rann-
sókna, þróunar og nýsköpunar í land-
inu og annast kynningu á rannsókn-
arstarfsemi í landinu fyrir almenning.
Menntamálaráðherra mun skipa
forstöðumanninn til fimm ára í senn.
Stefnt er að því að skipa í embættið
ekki síðar en 1. apríl nk.
JEPPI stórskemmdist þegar hann
fór út af í Gatnabrún við bæinn Göt-
ur í Mýrdalnum síðdegis á laugar-
dag. Tveir voru í bílnum og kenndu
þeir báðir eymsla en voru ekki alvar-
lega slasaðir. Að sögn lögreglunnar í
Vík var bíllinn ekki á miklum hraða
þegar hann fór út af veginum og valt
á toppinn. Skemmdirnar urðu engu
að síður miklar en bíllinn valt ofan á
barð.
Nokkuð var um umferðaróhöpp á
landinu í gær. Bíll fór út af veginum
um Mjóafjörð um hádegisbil og ann-
ar bíll fór út af í Borgarfirði síðdegis.
Þá varð árekstur á Bláfjallavegi um
kl. hálfþrjú og stuttu síðar valt jeppi
út af Suðurlandsvegi. Ekki urðu slys
á fólki í þessum óhöppum.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Þakið lagðist nánast saman að framanverðu þegar jeppinn skall á barði.
Jeppi á
hvolfi í
Mýrdalnum
Fleiri tilvik ofbeldis á
börnum en tilkynnt er um
Nýjar verklags-
reglur um tilkynn-
ingarskyldu heil-
brigðisstarfsfólks
GRUNUR leikur á að fleiri tilvik, þar
sem ofbeldi er beitt gegn börnum,
reki á fjörur heilbrigðisstarfsfólks en
það tilkynnir til barnaverndarnefnda.
Vegna þessa hafa Landspítali Ís-
lands, Barnavernd Reykjavíkur og
Barnaverndarstofa látið vinna verk-
lagsreglur fyrir starfsfólk heilbrigð-
isþjónustunnar er lúta að því hvernig
þeim ber að snúa sér í slíkum málum.
Að sögn Sigurðar Guðmundssonar
landlæknis koma u.þ.b. 4000 ábend-
ingar á ári hverju til barnaverndar-
nefnda um allt land. „Tiltölulegar fáar
þeirra koma frá heilbrigðisstarfs-
mönnum eða u.þ.b. 5 prósent og án
þess að við höfum miklar upplýsingar
um það þá höfum við grun um að
hugsanlega sé þetta undirmetið.
Ástæðan gæti meðal annars verið sú
að heilbrigðisstarfsmenn telji sig
jafnvel bundna þagnarskyldu sem
skv. lögum þeir eru ekki í barna-
verndarmálum.“
Hann segir að því hafi þótt ástæða
til að semja slíkar reglur. „Við vildum
einfaldlega hjálpa okkar fólki að losa
sig frá þessari klemmu. Þarna leggj-
um við fram nokkur atriði sem gætu
bent til þess að barn væri beitt of-
beldi. Þessar leiðbeiningar eru unnar
með hliðsjón af hliðstæðum tilmælum
frá öðrum löndum, ekki hvað síst
Bandaríkjunum. Það er búið að reyna
þessa nálgun annars staðar og hún
hefur gefist þokkalega vel.“
Reglunum er beint til allra heil-
brigðisstarfsmanna að hans sögn
enda komi börn víða við sögu í heil-
brigðiskerfinu þó flest þeirra séu á
barnadeild Landspítalans. Því miður
séu ofbeldismál gegn börnum að
koma upp aftur og aftur. „Sem betur
fer erum við farin að hafa meiri
áhyggjur af ofbeldi gegn börnum því
það er mjög líklegt að það sé meira
um það en við vitum af. Þetta er mál
sem við þurfum kannski að taka betur
á og þessar reglur eru hluti af því.“
♦ ♦ ♦