Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 42. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 mbl.is
Þrír
einleikarar
Vovka Azhkenazy, Judith
Ingólfsson og Bryndís Halla
Gylfadóttir | Listir 23
Afturelding
áfram
Spenna í bikarnum í handknatt-
leik | Íþróttir 41/43
Gettu
betur
Flensborg og MR ríða
á vaðið | Fólk 51
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
boðaði skattalækkanir í ræðu sinni á
Viðskiptaþingi Verslunarráðs Ís-
lands í gær. Í samtali við Morgun-
blaðið sagði hann að fastmótuð áætl-
un um skattalækkun yrði lögð fram á
næstu vikum en meðal þess sem
þyrfti að huga að væri lækkun á
beinum sköttum fólks, afnám eigna-
skatts og lækkun skatta á helstu
nauðsynjar. Lækkanirnar muni
koma til framkvæmda á næsta kjör-
tímabili.
Raunhæfar væntingar
„Sterk staða ríkissjóðsins nú og
tekjuaukinn sem sannarlega mun
fylgja hagvextinum gerir það að
verkum að það er engin goðgá að
huga að breytingum á sköttum í
rétta átt, til lækkunar, en ekki hækk-
unar,“ sagði Davíð á viðskipta-
þinginu í gær.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Davíð að þó svo að ýmsir skattar
hefðu verið lækkaðir undanfarið, s.s.
hátekjuskattur, eignaskattur og
tekjuskattur, þá væri staða ríkis-
sjóðs nú svo sterk að ekki væri óeðli-
legt að gera áætlun um hvernig
lækka mætti skatta í áföngum á
næsta kjörtímabili. „Ég tel að staðan
sé orðin slík að það sé hægt að gefa
raunhæfar væntingar um það. Og
jafnframt tryggja sterka stöðu rík-
issjóðs og möguleika okkar á því að
halda hér uppi þeirri þjónustu og vel-
ferð sem við öll viljum,“ sagði Davíð.
Aðspurður hvaða skattar yrðu
lækkaðir sagði Davíð að nákvæm
áætlun um það yrði birt innan nokk-
urra vikna. Hann nefndi sem dæmi
beina skatta fólks og um leið þyrfti
að huga að persónuafslættinum.
Einnig þyrfti að taka á erfðafjár-
skattinum sem væri gamaldags og
sköttum á mestu nauðsynjar hverrar
fjölskyldu. Þá mætti afnema eigna-
skattinn. „Það er þegar búið að
minnka eignaskattinn um rúmlega
helming og það er ekkert mál að af-
nema hann,“ sagði Davíð og bætti við
að flestar þjóðir væru þegar búnar
að því. „Ég held að það þurfi að
skoða skattkerfið í heild sinni og
sýna með fastmótaðri áætlun fram á
hvernig hægt sé að gera skattkerfið
öllum landsmönnum hagstæðara,“
sagði Davíð.
Í ræðu sinni á viðskiptaþingi gagn-
rýndi forsætisráðherra Seðlabanka
Íslands og sagði hann hafa byrjað
vaxtalækkunarferil sinn of seint. Það
væri ein af ástæðunum fyrir því að
gengi krónunnar væri óþarflega
hátt. Lækkandi vextir myndu þó
stuðla að betra jafnvægi í gengismál-
um þegar fram í sækir. Við þessar
aðstæður hlyti ríkisstjórnin að velta
því fyrir sér hvort hún geti breytt er-
lendum skuldum í innlendar skuldir.
„Alltof háir“ vextir og
óstöðugt gengi
Bogi Pálsson, formaður Verslun-
arráðs Íslands sagði í ræðu sinni að
stjórnendur í íslensku atvinnulífi
hefðu helst áhyggjur af stöðu gengis-
og vaxtamála. Þar yrði að ná viðun-
andi jafnvægi. Vextir væru hér „allt-
of háir“ sem skerti samkeppnisstöðu
íslenskra fyrirtækja verulega og hin
sterka staða krónunnar kæmi hart
niður á útflutningsfyrirtækjum.
Nauðsynlegt væri að lækka vexti
enn frekar.
Skattar verði lækkaðir
Forsætisráðherra segir að áætlun um skattabreytingar verði kynnt á næstu vikum
Vill afnema eignaskatt, lækka beina
skatta og skatta á helstu nauðsynjar
Engin goðgá/26
GEORGE Tenet, yfirmaður bandarísku
leyniþjónustunnar CIA, sagði í gær að
sérfræðingar hennar væru að rannsaka
hljóðupptöku, sem
sögð er geyma nýtt
ávarp frá Osama bin
Laden, til að ganga úr
skugga um hvort þar
væru vísbendingar um
að samtök hans, al-
Qaeda, hygðust fremja
hryðjuverk á næstu
dögum.
„Ef þetta er merki
um að árás sé yfirvofandi, erum við að
rannsaka það,“ sagði Tenet á fundi með
hermálanefnd öldungadeildar Banda-
ríkjaþings. Hann bætti við að sérfræðing-
ar CIA í arabísku væru að kanna hvort í
ávarpinu kynnu að vera dulin skilaboð til
liðsmanna al-Qaeda.
Tenet benti á að slík ávörp frá bin Lad-
en hefðu áður verið send út skömmu fyrir
árásir al-Qaeda.
Tengsl við Íraka sönnuð?
Talsmaður þýsku stjórnarinnar sagði í
gær að í ávarpi bin Ladens væri ekkert
sem benti til tengsla milli al-Qaeda og
stjórnar Saddams Husseins Íraksforseta
og lýsti ávarpinu sem „lið í fjölmiðlaher-
ferð“ samtakanna. Talsmaður George W.
Bush Bandaríkjaforseta sagði að þessi
ummæli væru „óskiljanleg“ og bentu til
þess að þýska stjórnin væri „í afneitun“
þar sem ávarpið sannaði að tengsl væru á
milli Íraksstjórnar og al-Qaeda.
Gæti verið
merki um
yfirvofandi
hryðjuverk
Sérfræðingar CIA rann-
saka ávarp bin Ladens
Washington. AFP.
Höfðust við í skotgröfum/16
Osama bin Laden
STARFSMAÐUR byggingavöruverslunar í Falls
Church í Virginíu afgreiðir viðskiptavini sem keyptu
ýmsan varning til að verjast hugsanlegum hryðju-
verkum.
Biðraðir mynduðust í bandarískum verslunum eft-
ir að yfirvöld hvöttu almenning til að birgja sig upp
af vatnsflöskum, rafhlöðum, plastklæðningu, sterku
límbandi og öðrum varningi vegna hættu á árásum
með efna- og sýklavopnum eða geislasprengjum.
Bandarískir embættismenn segja að hættan á slíkum
árásum sé nú meiri en nokkru sinni fyrr frá hryðju-
verkunum 11. september 2001. Hermenn voru á
varðbergi við mikilvægar byggingar í Washington,
herþotur flugu yfir borgina og loftvarnaratsjám og
búnaði til að skjóta flugskeytum var komið fyrir í
grennd við hana.
Reuters
Mikill öryggisviðbúnaður
í Bandaríkjunum
STJÓRN Alþjóðakjarnorkumála-
stofnunarinnar, IAEA, lýsti því yfir í
gær að stjórn Norður-Kóreu hefði
gerst brotleg við alþjóðasáttmála
sem miðast að því að hindra út-
breiðslu kjarnavopna.
Stofnunin vísaði málinu til örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna og það
gæti orðið til þess að ráðið sam-
þykkti efnahagslegar eða pólitískar
refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreu.
Yfirmaður stofnunarinnar, Moha-
med ElBaradei, sagði þó að stjórn
hennar væri andvíg því að gripið yrði
strax til slíkra aðgerða.
Stjórn Rússlands, sem sat hjá við
atkvæðagreiðsluna í stjórn IAEA
ásamt Kúbu, sagði að ekki væri
tímabært að öryggisráðið tæki málið
fyrir.
George Tenet, yfirmaður banda-
rísku leyniþjónustunnar CIA, sagði í
gær að Norður-Kóreumenn ættu að
öllum líkindum eitt eða tvö kjarna-
vopn og gætu nú þegar skotið kjarn-
orkueldflaugum á vesturströnd
Bandaríkjanna.
Reuters
Yfirmaður CIA telur N-Kóreu geta
skotið eldflaugum á Bandaríkin.
Brutu
kjarnorku-
sáttmála
N-Kóreumálinu vísað
til öryggisráðs SÞ
Vín. AFP.
RONALD Asmus, sem stýrði Evr-
ópudeild bandaríska utanríkisráðu-
neytisins í forsetatíð Bills Clintons,
telur að sundrungin í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna vegna Íraks-
deilunnar kunni að vera svo mikil að
ekki verði lögð fram ný ályktun um
málið.
Þetta kemur fram í viðtali við Asm-
us í Morgunblaðinu í dag. „Hugsan-
legt er að sundrungin sé í reynd svo
mikil að ekki verði gengið til atkvæða
um þetta mál; að engin ný ályktun
verði lögð fram. Staðreyndin er sú að
það hefði mun alvarlegri afleiðingar
fyrir Sameinuðu þjóðirnar ef lögð
væri fram ályktun, sem einhver
myndi síðan beita neitunarvaldi gegn,
heldur en ef menn verða sammála um
að vera ósammála í Íraksmálunum,“
segir Asmus.
Sendiherrum ríkja Atlantshafs-
bandalagsins tókst ekki í gær að leysa
deiluna innan bandalagsins um und-
irbúning hugsanlegs stríðs í Írak.
Engin ný
ályktun
lögð fram?
Sambandið/15
♦ ♦ ♦