Morgunblaðið - 13.02.2003, Side 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 23
Iceland and the EU enlargement
Navigating New Waters
Hótel Loftleiðum, Reykjavík, mánudaginn 3. mars 2003, 13.00-18.00.
Takmarkaður sætafjöldi - bókaðu núna á www.euphoria.is
Hvað veist þú um Evrópusambandið og áhrif þess á Ísland?
Kynntu þér málið á ráðstefnunni:
Diana Wallis þingmaður Evrópuþingsins Andrew Moore framkvæmdarstjóri Samtaka Bresks Iðnaðar (CBI)
Matthias Brinkmann frá Framkvæmdarstjórn ESB John Madeley prófessor í norrænum stjórnmálafræðum frá London School of Economics
Einar Benediktsson fyrrverandi sendiherra Gunnar Snorri Gunnarsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins.
Ræðumenn:
STEFÁN Vovka Ashkenazy, JudithIngólfsson og Bryndís Halla Gylfa-dóttir eru einleikarar kvöldsins á tón-leikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í
kvöld kl. 19.30, en þau leika með hljómsveitinni
á píanó, fiðlu og selló í Þríleikskonsert Beetho-
vens. Þau eru kampakát eftir fyrstu sam-
æfingu með hljómsveitinni og segja samvinn-
una í músíkinni ganga afskaplega vel. „Hvað
músíkina varðar, gengur þetta vandræða-
laust,“ segir Vovka, ákveðinn. „Áttu við að það
séu persónuleg vandræði í gangi?“ spyr Judith
snögg upp á lagið, og hlátur þremenninganna
bendir til þess, að þau hafi þegar náð af-
skaplega vel saman bæði persónulega og í
músíkinni. Judith og Vovka hafa hvorugt leikið
verkið áður, en Bryndís Halla hefur leikið í því
með samstarfskonum sínum í Tríói Nordica,
Auði Hafsteinsdóttur og Monu Sandström.
Þríleikskonsertar af þessu tagi eru ekki marg-
ir, og því veltir maður fyrir sér, hvort verkið sé
hugsað sem konsert fyrir eitt píanótríó og
hljómsveit – eða þrjá staka einleikara og
hljómsveit.
„Ja, alla vega í okkar tilfelli erum við þrír
stakir einleikarar,“ segir Vovka, „en þó er ekki
óalgengt að starfandi píanótríó taki að sér ein-
leikshlutverkin í þessu verki. Það er hugs-
anlegt að það sé betra,“ segir hann, en bætir
svo við: „en þó er það líka áhugavert að hafa
þrjá staka einleikara saman, það getur boðið
upp á meiri hugmyndavinnu og fleiri mögu-
leika í túlkun. Píanótríó þar sem einstakling-
arnir þekkja vel hver annan, kemur fram sem
einn hópur. Þá eru það bara tveir sem takast á
– tríóið og hljómsveitin í stað fjögurra, þar sem
eru þrír einleikarar og hljómsveit. Það síð-
arnefnda getur skapað meiri dýnamík.“ Júdith
tekur undir þetta og segir að píanótríó væri
líklegra til að mæta til leiks með fyrirfram
ákveðið samspilsmynstur. „Í okkar tilfelli hitt-
umst við hér, hvert með sína hugmynd um
verkið og við þurfum að finna leið til að miðla
fjórum skoðunum í einn farveg. Þessi leið er
mjög spennandi.“ Bryndís Halla er sama sinn-
is og segir það ekkert vandamál að samræma
sjónarmiðin.
Vovka Ashkenazy og Júdith Ingólfsson eru
bæði hálfíslensk; bæði hafa náð langt í tónlist-
inni á alþjóðavettvangi, og hafa bæði spilað áð-
ur einleik með Sinfóníuhljómsveitinni. Þau
hafa þó ekki spilað saman áður, og Júdith hef-
ur ekki fyrr spilað með Bryndísi Höllu. En
Vovka og Bryndís spiluðu saman með Einari
Jóhannessyni í Brahms-tríói á tónleikum
Kammermúsíkklúbbsins fyrir rúmu ári. „Við
unnum saman þá, og það hjálpar núna – ég er
farinn að þekkja inn á hana,“ segir Vovka. Þre-
menningarnir segja að strax fyrir fyrstu æf-
ingu, hafi hljómsveitarstjórinn, Thomas Kalb
haldið fund með þeim til að leggja línurnar fyr-
ir æfinguna. Júdith segir að hljómsveit-
arstjórar hafi ákaflega misjafnan hátt á, sumir
tali ekkert við einleikarana fyrr en á æfingu; –
rabbi kannski aðeins um veðrið eða eitthvað
fallegt baksviðs áður, meðan öðrum sé annt
um að hafa alla þræði í hendi sér fyrirfram.
Henni þyki best að fylgja bara háttum hvers
og eins þeirra. „Það er svo mikilvægt að ná
sem mestu út úr tímanum með hljómsveitinni,
og þá er best að hafa þetta svona,“ segir Jú-
dith. Eftir æfingu í gær ákváðu þau að láta
hljómsveit og hljómsveitarstjóra lönd og leið
og æfa saman þrjú: „ …til að ná enn betri til-
finningu hvert fyrir öðru, og samleik okkar,“
segir Vovka. Bryndís Halla segir það jafnvel
óttalegra að glíma við þríleikskonsertinn í ann-
að sinn en það fyrsta. „Þetta er hálfgerður
línudans fyrir sellóið. Þetta liggur mjög hátt
og sellóið stöðugt að rápa inn og út úr sam-
spilinu. Ég var jafnvel að velta því fyrir mér
hvort Beethoven hafi ætlast til þess að sellóið
spilaði áttund neðar en gert er. Í strengja-
kvartettum Beethovens spilar sellóið áttund
neðar en skrifað er, en ekki í þessu verki –
kannski að þetta sé bara langvarandi misskiln-
ingur!“ segir Bryndís Halla, mátulega vantrú-
uð á kenningu sína. Júdith segir hljómsveitina
mjög góða, og að það sé alltaf tilhlökkunarefni
og gaman að spila hér. Af æfingunni og spjall-
inu við þetta afreksfólk í tónlistinni má ætla að
hljómsveitinni ætti ekkert síður að þykja til-
hlökkunarefni að leika með þeim.
Gangur á Þorkeli
Á tónleikunum í kvöld verður einnig leikið
verk Þorkels Sigurbjörnssonr, Gangur, en það
heyrist nú í fyrsta sinn á Íslandi. Það var frum-
flutt af Tékknesku fílharmóníusveitinni í Prag í
desember 2001. Vladimir Ashkenazy stjórnaði
þá hljómsveitinni, en verkið er samið að beiðni
hans, sérstaklega til flutnings á þessum tón-
leikum sem höfðu norrænt þema. Þorkell skýr-
ir heitið með því að tiltekinn rytmi í verkinu
hafi minnt sig á gang í hesti, tölt jafnvel. Auk
þess sé í því vitnað í íslenskt þjóðlag, eitt lag-
anna sem sungið er við ljóð Kristjáns Jóns-
sonar, Yfir kaldan eyðisand. Þorkell segir að
hér sé ekki um hermitónlist að ræða, en ef til
vill sé þetta þó einhvers konar ferðalag. Vina-
félag Sinfóníuhljómsveitarinnar efnir til fund-
ar við Þorkel fyrir tónleikana, eða kl. 18 í
Sunnusal, Hótel Sögu. Þar verður boðið upp á
súpu og brauð gegn vægu gjaldi, og Þorkell
ræðir þar verk sitt, segir frá einkennum þess,
og svarar spurningum gesta. Að sögn Guðrún-
ar Nordal, formanns Vinafélagsins, verður
þetta ábyggilega mjög skemmtileg samkoma,
enda Þorkell annálaður fyrir lifandi frásagn-
argáfu. Hér gefist því einstætt tækifæri til að
spyrja hann um tónsköpunina.
Lokaverk tónleikanna í kvöld er fyrsta sin-
fónía Mahlers.
Vovka Ashkenazy, Júdith Ingólfsson og Bryndís Halla Gylfadóttir í Þríleikskonsert Beethovens
Hvert með sína hugmynd um
verkið, en ná samt vel saman
Morgunblaðið/Kristinn
Þrír einleikarar í einu verki: Júdith Ingólfsson, Bryndís Halla Gylfadóttir og Stefán Vovka
Ashkenazy á æfingu með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói í gær.