Morgunblaðið - 13.02.2003, Side 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 33
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
GUÐMUNDUR ÖRN GUÐMUNDSSON,
Hátúni 12,
Reykjavík,
sem lést laugardaginn 8. febrúar, verður
jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
föstudaginn 14. febrúar kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra.
Magnús Þ. Guðmundsson, Sólveig J. Karlsdóttir,
Björk Guðmundsdóttir, Kristinn S. Axelsson,
Elísabet Margrét Kristinsdóttir,
Íris Hrönn Magnúsdóttir,
Svanhvít Mjöll Aradóttir.
Alúðar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
hlýju og samúð við andlát og útför okkar ást-
kæra,
HÖSKULDAR BJARNASONAR
frá Burstafelli,
Drangsnesi.
Anna Guðrún Halldórsdóttir,
Gunnhildur Höskuldsdóttir, Erling Birkir Ottósson,
Jóhanna Björk Larsen, Hans John Larsen,
Bjarnveig Höskuldsdóttir, Ragnar Sigbjörnsson,
Friðgeir Höskuldsson, Sigurbjörg H. Halldórsdóttir,
Anna Guðrún Höskuldsdóttir, Guðmundur Ingvarsson,
Auður Höskuldsdóttir, Jón Anton Magnússon,
Halldór Höskuldsson, Sunna Jakobína Einarsdóttir,
afa- og langafabörn.
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
EBENESER ÞÓRARINSSON,
verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugar-
daginn 15. febrúar kl. 14.00.
Elísabet Agnarsdóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Systir okkar,
DAGNÝ HANSEN,
Hátúni 10b,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstu-
daginn 14. febrúar kl. 10.30.
Systkini
og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
RANNVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Dvalarheimili aldraðra,
Stykkishólmi,
áður til heimilis á Austurgötu 3,
Stykkishólmi,
sem lést fimmtudaginn 6. febrúar, verður jarð-
sungin frá Stykkishólmskirkju laugardaginn
15. febrúar kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á líknarstofnanir.
Börn og tengdabörn.
Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka,
KARLY BJÖRG KARLSDÓTTIR,
Hafnarstræti 15,
Akureyri,
sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri fimmtudaginn 6. febrúar, verður jarðsung-
in frá Akureyrarkirkju föstudaginn 14. febrúar
klukkan 13.30.
Systkini og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURLEIFUR GUÐJÓNSSON,
Safamýri 48,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 14. febrúar kl. 13.30.
Sigríður Gísladóttir,
Unnar Þór Sigurleifsson,
Margrét Sigurleifsdóttir, Elías Hartmann Hreinsson,
Elísa Sirrý Elíasdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
UNNUR SIGURÐARDÓTTIR
frá Svæði,
sem lést á dvalarheimilinu Dalbæ, Dalvík,
miðvikudaginn 5. febrúar, verður jarðsungin
frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 15. febrúar
kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Styrktarsjóð dvalarheimilisins
Dalbæjar.
Snjólaug Guðjónsdóttir,
Kjartan Guðjónsson, Þórunn Héðinsdóttir,
Ragnheiður Guðjónsdóttir, Ágúst Óskarsson,
Sigurbjörg Guðjónsdóttir,
ömmubörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir,
tengdadóttir, systir og mágkona,
HALLA SVEINSDÓTTIR,
Brekkubæ 6,
Reykjavík,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 12. febrúar.
Svanþór Þorbjörnsson,
Þorbjörn Svanþórsson,
Sveinn Teitur Svanþórsson,
Bjarki Dagur Svanþórsson,
foreldrar, tengdaforeldrar og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
JÓN KALDAL
Laugarásvegi 18
Reykjavík
lést á heimili sínu þriðjudaginn 11. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Steinunn Kaldal
Jón Kaldal Ragna Sæmundsdóttir
Guðrún Kaldal Jóhann G. Jóhannsson
Steinar Kaldal Soffía Erla Einarsdóttir
Sóley Kaldal
Anna Kaldal Henrik Lörstad
og barnabörn.
Þið afi voruð í Ólafsfirði í tvö ár eft-
ir að þið giftuð ykkur. Þaðan fluttuð
þið að Steinhóli í Fljótum 1938 og
voruð þar með lítið bú í 20 ár. Sök-
um þess hve búið var lítið þurfti afi
að sækja vinnu frá heimilinu. Hann
sótti sjóinn, var í vegagerð, brúar-
smíði o.fl. Ábyrgðin hvíldi mikið á
þér gagnvart því sem þurfti að gera
heima við og það hefur ekki alltaf
verið auðvelt en þér fórst það vel úr
hendi. Ég vildi stundum tala um
hvernig þetta var í Fljótunum en
mér fannst sem þú vildir sem
minnst tala um þennan tíma. Und-
antekningin var þó hestarnir og út-
reiðartúrarnir, um það gastu alltaf
talað og það var gaman að fylgjast
með frásögn þinni. Þér fannst nú
gaman að hleypa á gott tölt.
Árið 1958 fluttuð þið til Akureyr-
ar og voruð í leiguhúsnæði í Helga-
magrastræti og síðan í Aðalstræti.
Þið reistuð ykkur framtíðarheimili í
Langholti 5, dugnaður og atorku-
semi einkenndi ykkur. Já þær eru
margar ljúfar minningarnar en þó
líka sárar. Höggvið hefur verið
stórt skarð oftar en einu sinni í litlu
fjölskylduna okkar og hver tilgang-
urinn er vitum við ekki en þú spurð-
ir þig: Af hverju börnin mín en ekki
ég, þetta gamla hró? Þú stóðst eins
og klettur ef eitthvað bjátaði á og
sóttir styrk þinn í trúna, biblían þín
var alltaf við hliðina á rúminu þínu.
Þú ortir heilu sálmana og hvílík
snilld, þú gefur Hallgrími Péturs-
syni og fleirum ekkert eftir í þeim
efnum. Þú tjáðir oft tilfinningar þín-
ar í bundnu máli hvort heldur sem
það var gaman eða alvara. Einu
sinni sýndirðu mér fjársjóðinn þinn,
þarna voru gamanvísur, tækifæris-
vísur, ljóð og sálmar. Ég spurði þig
af hverju þú gæfir ekki út ljóðabók,
hvað þetta væri að gera í lokuðum
hirslum. Svarið var: Ég sýni þetta
nú ekki hverjum sem er. Þú hélst
þessu svo mikið út af fyrir þig. Með
góðri hjálp Dísu var fyrsta og eina
ljóðabókin þín; Ljósblik, gefin út
þegar þú varst komin á níræðisald-
urinn og það var svo sannarlega
dýrmæt jólagjöf.
Nú er kveðjustundin upp runnin,
stund sem ég er búin að kvíða og
hugsa um lengi. Ég hélt ég væri vel
undir þetta búin en svo er ekki. En
þú varst sátt við að fara og það fyrir
þó nokkru. Þú varst orðin frekar
veik og máttfarin og vildir ekki vera
byrði á neinum en þú varst sífellt að
hugsa um velferð annarra. Þar var
sko engin eigingirni á ferð, þú
kvartaðir aldrei, sama hvað gekk á.
Þú annaðist móður þína og Pöllu
systur þína til þeirra æviloka. Aldr-
ei töluðuð þið afi illa um nokkurn
mann, hvað þá að ég hafi heyrt ykk-
ur blóta, og ef eitthvað bjátaði á var
unnið úr því á skynsaman hátt. Það
var aldrei skammast ef manni varð
á heldur voru gefin góð ráð. Þú tal-
aðir um hvað börnin þín voru þér
góð og reyndust þér vel, þú ættir
bestu börn í heimi, og það eru orð
að sönnu. Það eru forréttindi að
hafa fengið að kynnast þér og afa
og hafa fengið þann tíma með ykkur
sem við áttum saman. Fyrir það
megum við þakka, við sem eftir lif-
um.
Minningin um þig mun lifa vel og
lengi elsku amma mín. Hafðu þökk
fyrir allt og allt sem þú hefur gert
fyrir mig, Elfu, Hauk og Bjarkeyju.
Elsku Erla, Raggi, pabbi, Lóa,
Dísa, Harry og ástvinir, söknuður
ykkar er mikill og ég votta ykkur
mína dýpstu samúð og vona að Guð
styrki ykkur alla tíð. Þín
Aðalbjörg Guðrún (Didda).
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti eða á disklingi (netfangið er
minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um
leið og grein hefur borist). Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi
með. Þar sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina, enda þótt
þær berist innan hins tiltekna frests. Nán-
ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát-
inn einstakling birtist formáli og ein aðal-
grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300
orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50
línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til
þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín-
ur, og votta virðingu án þess að það sé gert
með langri grein. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.