Morgunblaðið - 13.02.2003, Síða 34
KIRKJUSTARF
34 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Sönghóp-
ur undir stjórn Kára Þormars organista.
Kaffi og með því eftir sönginn. Allir vel-
komnir. Biblíulestur kl. 20 í safnaðar-
heimilinu. Lúkasarguðspjall lesið og
skýrt. Allir velkomnir. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12 í umsjá Lovísu Guðmundsdóttur.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 14–16 í safnaðarheimilinu Lækj-
argötu 14a. www.domkirkjan.is.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Laufey Sigurðardóttir leikur á fiðlu
og Hörður Áskelsson á orgel. Léttur
málsverður í safnaðarheimili að stund-
inni lokinni.
Háteigskirkja. Taizé-messa kl. 20. Eldri
borgara starf. Á morgun kl. 13.30 sam-
vera í Setrinu (bridsaðstoð).
Landspítali-háskólasjúkrahús, Grensás.
Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Gunnar Rúnar
Matthíasson.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Gunnar Gunnarsson leikur á orgel
kirkjunnar frá kl. 12–12.10. Að stundinni
lokinni er léttur málsverður á kostnaðar-
verði í safnaðarheimilinu. Einfalt, fljót-
legt og innihaldsríkt. Alfa-fundur í safn-
aðarheimilinu kl. 20. (Sjá síðu 650 í
Textavarpi.)
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra laugar-
daginn 15. febrúar kl. 14. Óvissuferð.
Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu. Þátt-
taka tilkynnist í síma 511 1560 kl. 10–
13 til föstudags. Allir velkomnir. Sr.
Frank M. Halldórsson. Nedó, unglinga-
klúbbur, kl. 17. 10. bekkur og eldri. 8. og
9. bekkur kl. 19.30. Munda og Hans.
Breiðholtskirkja. Biblíulestrar á vegum
Leikmannaskóla kirkjunnar og Reykjavík-
urprófastsdæmis eystra sem bera heitið
Ábyrgð og frelsi í boðun ritningarinnar.
Kennari á námskeiðinu er sr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson héraðsprestur dr.theol. Á
námskeiðinu verður farið í nokkra grund-
vallartexta Biblíunnar og skoðað hvernig
hin ýmsu rit hennar fjalla um frelsi og
ábyrgð mannsins. Í samhengi við þá um-
fjöllum verður greint frá nokkrum þeim
fyrirmyndum sem menn hafa viljað sjá í
Jesú frá Nasaret. Áhersla verður lögð á
nýlegar rannsóknir um hinn sögulega
Jesú. Kennt verður í Breiðholtskirkju kl.
20–22 fimmtudaga frá 30. janúar til 3.
apríl. Skráning fer fram í síma 535 1500
eða á vef Leikmannaskólans: www.kirkj-
an.is/leikmannaskoli.
Digraneskirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Kirkjustarf aldraðra, leikfimi ÍAK
kl. 11.15. Bænastund kl. 12.10. Ung-
lingakór Digraneskirkju kl. 17–19. (Sjá
nánar: www.digraneskirkja.is.)
Fella- og Hólakirkja. Biblíulestur og
helgistund í Gerðubergi kl. 10.30–12.
Starf fyrir 8–10 ára stúlkur kl. 16.30.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl.
10–12. Fræðandi og skemmtilegar sam-
verustundir, ýmiss konar fyrirlestrar. Allt-
af heitt á könnunni, djús og brauð fyrir
börnin. Kirkjukrakkar í Húsaskóla fyrir
7–9 ára börn kl. 17.30–18.30. Kirkju-
krakkar í Grafarvogskirkju kl. 17.30–
18.30 fyrir 7–9 ára. Æskulýðsfélag í
Grafarvogskirkju fyrir 8. bekk kl. 20–22.
Æskulýðsfélag í Engjaskóla kl. 20–22
fyrir 9. og 10. bekk.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Samvera eldri borgara í
dag kl. 14.30–17 í safnaðarheimilinu
Borgum. Kyrrðar- og bænastund í dag kl.
17. Fyrirbænaefnum má koma til sókn-
arprests eða kirkjuvarðar.
Seljakirkja. Alfa-námskeið kl. 19.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 22. Gott er að ljúka deginum
og undirbúa nóttina í kyrrð kirkjunnar og
bera þar fram áhuggjur sínar og gleði.
Bænarefni eru skráð í bænabók kirkj-
unnar af prestum og djákna. Boðið er
upp á molasopa og djús að lokinni stund-
inni í kirkjunni.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið
hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheim-
ilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–
18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund í dag kl.
13. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi
foreldra með ung börn að koma saman í
notalegu umhverfi og eiga skemmtilega
samverustund. Barnastarf fyrir 10–12
ára börn í dag kl. 17.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10–
12 ára kl. 16.30–18.
Lágafellskirkja. Barnastarf Lágafells-
kirkju, kirkjukrakkar, er í Varmárskóla í
dag fyrir 6–7 ára börn kl. 13.15 og 8–9
ára börn kl. 14.30. Umsjón Þórdís
djákni. TTT-starf Lágfellskirkju er í dag,
fimmtudag, kl. 16. Mikið fjör, mikið gam-
an. Allir krakkar á aldrinum 10–12 ára
velkomnir. Safnaðarstarf Lágafellskirkju.
Æskulýðsstarfið Sound. Æskulýðshópur-
inn okkar er með fundi alla fimmtudaga
kl. 17. Frábær hópur fyrir frábært ungt
fólk í 8.–10. bekk. Safnaðarstarf Lága-
fellskirkju.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl.
20.
Keflavíkurkirkja. Fermingarundirbúning-
ur í Kirkjulundi kl. 16–16.45 8. MK í
Heiðarskóla og 8. KÓ í Heiðarskóla. Guð-
finna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í
Reykjavík, fjallar um málefni þjóðkirkj-
unnar kl. 20.30 í Kirkjulundi. Starfsfólk
og áhugafólk um málefni þjóðkirkjunnar
boðið sérstaklega velkomið. Guðfinna
mun m.a. fjalla um SVÓT-könnunina,
sem kemur inn á styrkleika, veikleika,
tækifæri og það sem ógnar þjóðkirkj-
unni, en eins og mönnum er kunnugt er
unnið að stefnumótun þjóðkirkjunnar á
vormisseri. Kaffiveitingar og umræður.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Stoð og styrking,
fundur fimmtudaginn 13. febrúar kl. 13.
Fyrirlestrafundur. Ingólfur Sveinsson
læknir ræðir um þunglyndi, streitu o.fl.
Fyrirspurnir og eru allir hjartanlega vel-
komnir. Helgistund að loknum fyrirspurn-
um. Spilakvöld aldraðra og örykja
fimmtudaginn 13. febrúar kl. 20 í umsjá
félaga úr Lionsklúbbi Njarðvíkur, Ástríðar
Helgu Sigurðardóttur og sr. Baldurs
Rafns Sigurðssonar. Natalía Chow org-
anisti leikur á orgel við helgistund að
spilum loknum. Baldur Rafn Sigurðsson.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 10
mömmumorgunn í safnaðarheimilinu.
Arna Skúladóttir hjúkrunarfræðingur
kemur í heimsókn og ræðir svefntruflanir
barna. Sr. Kristján Björnsson. Kl. 14.30
helgistund á sjúkrahúsinu. Sr. Kristján
Björnsson. Kl. 16.30 Litlir lærisveinar,
yngri hópur. Kórstjóri Guðrún Helga
Bjarnadóttir.
Kletturinn. Kl. 19 alfa-námskeið. Allir
velkomnir.
Aðaldeild KFUM. Fundur í kvöld kl. 20. Á
kafi í umsjón Harðar Kjartanssonar lag-
erstjóra.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Léttur hádegisverður á
vægu verði í safnaðarheimili eftir stund-
ina.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 17.15
krakkaklúbbur, 4. og 5. bekkur. Kl.
19.30 söngæfing fyrir unglinga. Kl.
20.30 unglingasamvera.
Safnaðarstarf
STOÐ og styrking eru samtök sem
hafa aðstöðu í Ytri-Njarðvík-
urkirkju og eru fyrir fólk sem hefur
átt við erfið veikindi og verki að
stríða.
Í dag, fimmtudaginn 13. febrúar,
kl. 13 mun Ingólfur Sveinsson
læknir ræða um gigt, þunglyndi,
streitu o.fl sem getur tengst erf-
iðum veikindum. Einnig mun hann
svara fyrirspurnum. Ingólfur hefur
skrifað m.a. greinar um vöðvagigt,
heilsufræði, streitu o.fl.
Allir eru hjartanlega velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Baldur Rafn Sigurðsson.
Foreldramorgnar í
Grafarvogskirkju
FORELDRAMORGNAR eru alla
fimmtudagsmorgna kl.10-12. Kom-
ið með börnin og eigum skemmti-
legar stundir saman. Í dag 14. febr-
úar ætlum við að föndra hjörtu með
börnunum. 20. febrúar kemur
hjúkrunarfræðingur í heimsókn.
27. febrúar verður ávaxtapartý,
tökum með okkur ávexti. Allir vel-
komnir.
Stoð og styrking
í Ytri-Njarðvík-
urkirkju
Grafarvogskirkja
FRÉTTIR
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Barnafataverslun
Hálft starf + 2 laugardagar í mánuði
Óskum eftir glaðlegum og þægilegum starfs-
krafti til þjónustu og sölustarfa á aldrinum
20—50 ára. Helst vanan. Vinnutími frá kl.
10—14 aðra hvora viku og 14—18 hina vikuna.
Umsóknir óskast sendar til augldeildar Mbl.,
merktar: „Reyklaus — 13349“, fyrir 17. feb.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Verslunarhúsnæði
í Skeifunni
Eitt glæsilegasta og best staðsetta verslunar-
húsnæði í Skeifunni til leigu, 820 m². Næg bíla-
stæði. Áberandi staðsetning í glæsilegu ný
endurbættu húsi. Möguleiki á lager og skrif-
stofum í sama húsi.
Upplýsingar í símum 588 2220 og 894 7997.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Hins íslenska biblíufélags verður haldinn
fimmtudaginn 20. febrúar kl. 21.00 í safnaðar-
heimili Langholtskirkju og hefst með tónlistar-
flutningi í kirkjunni kl. 20.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
KENNSLA
Námskeið á vegum
Brunamálastofnunar
Brunamálastofnun mun standa fyrir eins dags
námskeiði um reglubundið eftirlit og viðhald
handslökkvitækja þann 28. febrúar nk.
Námskeiðið verður haldið á Iðavöllum 3,
Reykjanesbæ, og hefst kl. 8.15.
Nánari upplýsingar og skráning þátttakenda
er í síma Brunamálastofnunar, 591 6000,
fram að 25. febrúar nk.
Reykjavík, 12. febrúar 2003.
Brunamálastofnun, Skúlagötu 21.
TIL SÖLU
Til sölu
Breiðamörk 25, Hveragerði, þar sem áður var
Hótel Ljósbrá. Húsið var byggt 1930 úr steypu,
eignin telur um 471,6 fm. Húsið er innréttað
sem krá að hluta, en einnig fylgir gamli bíó-
salurinn þessum hluta.
Ásett verð 15,0 og áhv. 0.
Upplýsingar á skrifstofu Lögmanna Suðurlandi
og í síma 480 2900.
STYRKIR
Kirkjubyggingasjóður
Reykjavíkurborgar
Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr
Kirkjubyggingasjóði Reykjavíkurborgar
Hlutverk sjóðsins er að styrkja byggingar kirkna
og safnaðarheimili sókna í Reykjavík. Þá má
veita styrki til endurbóta og meiri háttar við-
halds kirkna í Reykjavík.
Ráðstöfunarfé sjóðsins í ár eru 20 millj. kr.
Umsóknum, sem greini frá fyrirhuguðum verk-
framkvæmdum, kostnaðaráætlun og öðrum
upplýsingum sem skipta máli, skal skila til
formanns sjóðsstjórnar, Jónu Hrannar Bolla-
dóttur, Ráðhúsi Reykjavíkur, fyrir 1. mars nk.
Frekari upplýsingar um sjóðinn má fá hjá for-
manni sjóðsstjórnar, tölvupóstfang:
midborgarprestur@kirkjan.is .
SMÁAUGLÝSINGAR
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag
Íslands,
stofnað 1918,
sími 551 8130,
Garðastræti 8, Reykjavík
Opið hús: Nemendur úr hópum
verða með heilun og ýmislegt
annað áhugavert í opnu húsi í
kvöld, 13. febrúar í Garðastræti
8. Húsið opnað kl. 19.00 og
lokað kl. 20.00. Aðgangseyrir kr.
300 fyrir félagsmenn og kr. 500
fyrir aðra. Allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
SRFÍ.
KENNSLA
CRANIO-NÁM
2003-2004
A-hluti 22.-27.feb. Námsefni á
ísl. Ísl. leiðbeinendur. Uppl.
Gunnar, s. 564 1803/699 8064.
www.canio.cc
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 5 1832138 5.H-Ky.
Landsst. 6003021319 VII
I.O.O.F. 11 1832138½ II.*
Í kvöld kl. 20.00.
Lofgjörðarsamkoma.
Umsjón Aslaug Haugland.
Allir hjartanlega velkomnir.
Fimmtudagur 13. febrúar
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20.00.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Prédikun: Randall Leroy Motz.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá næstu viku:
Föstudagur 14. febrúar
Opinn AA-fundur kl. 20.00.
Mánudagur 17. febrúar
ungSaM kl.19.00.
www.samhjalp.is
STOFNAÐUR hefur verið minning-
arsjóður um Mínervu Jónsdóttur
íþróttakennara. Markmið sjóðsins er
að styrkja nemendur og kennara í
fimleikum, listrænum og þjóðrænum
dönsum.FF
Mínerva útskrifaðist sem íþrótta-
kennari árið 1953 úr Íþróttakenn-
araskóla Íslands. Hún vann að efl-
ingu og kynningu á listrænum og
þjóðrænum dönsum í áratugi.
Frumkvöðlar og upphafsmenn
þessa sjóðs eru m.a. Fræðasetur ÍKÍ
á Laugarvatni, Fimleikafélagið
Björk, Þjóðdansafélag Reykjavíkur,
Íþróttakennarafélag Íslands og Fé-
lag áhugafólks um íþróttir aldraðra.
Undirbúningsnefnd hvetur áhuga-
sama til að styrkja sjóðinn með því
að leggja inn á reikningsnúmer
sjóðsins: 1101-18-910052.
Minningar-
sjóður í
þágu fimleika
og dans
BÆNDUR og jarðeigendur í Skafta-
fellssýslum halda fund um kröfugerð
fjármálaráðherra f.h. ríkisins fyrir
Óbyggðanefnd og dómstólum laugar-
daginn 15. febrúar kl. 16 í Hofgarði í
Öræfum.
Frummælendur verða: Sigurður
Líndal lagaprófessor, Ragnar Aðal-
steinsson hrl., Reynir Sigursteinsson
bóndi og Gunnar Sæmundsson, vara-
formaður Bændasamtakanna. Á vef-
síðu samtakanna, bondi.is, segir að
þingmönnum og frambjóðendum til
Alþingis á Suðurlandi verði boðið að
sækja fundinn, ásamt ráðherrum úr
ríkisstjórninni. Allir eru velkomnir.
Bændafundur
í Öræfum