Morgunblaðið - 13.02.2003, Qupperneq 52
SAMKVÆMT niðurstöðum könn-
unar Verðlagseftirlits ASÍ getur
munur á hæsta og lægsta fiskverði
ákveðinna vöruflokka verið meira
en 90% á milli verslana. Í könn-
uninni sem fór fram 29. janúar sl.
var verð 37 vöruflokka kannað í
sextán fiskbúðum og matvöru-
verslunum á höfuðborgarsvæðinu.
Af þeim 25 vöruflokkum sem voru
til í meira en helmingi verslana,
var munur á hæsta og lægsta verði
í 19 tilvikum yfir 50% og í fjórum
tilvikum meiri en 90%. Minnstur
var munurinn á ýsu í sósu, eða
17,4%.
11 lægstir einhvern tímann
Töluverð dreifing var á milli
verslana varðandi hæsta og lægsta
verð ef miðað er við aðrar mat-
vörutegundir. Af þeim 16 versl-
unum sem voru í könnuninni voru
ellefu einhvern tímann með lægsta
verð og tólf voru með hæsta verð í
einhverju tilviki.
Fjarðarkaup í Hafnarfirði var
oftast með lægsta verð eða átta
sinnum. Fiskbúð Einars kom næst,
með lægsta verð á fjórum teg-
undum. Melabúðin Hagamel var
oftast með hæsta verðið, eða fjór-
um sinnum. Fiskbúðin Hófgerði,
Nóatún við Hringbraut og Fisk-
búðin Vör voru allar með hæsta
verðið fjórum sinnum.
Fiskur hækkað um 1,9%
Í frétt frá Alþýðusambandi Ís-
lands segir að samkvæmt neyslu-
vísitölu Hagstofunnar hefur liður-
inn „matur og drykkjarvörur“
lækkað um 4,6% frá febrúar 2002
til febrúar á þessu ári. Hins vegar
hefur undirliðurinn „fiskur“ hækk-
að um 1,9%. Liðurinn „fiskur salt-
aður reyktur og fleira“ hefur t.d.
hækkað um 5% á tímabilinu.
Þar sem verðlagseftirlit Alþýðu-
sambands Íslands hefur ekki gert
sambærilega könnun áður er ekki
hægt að bera saman verðbreyt-
ingar en tækifæri gefst til þess í
kjölfar næstu könnunar.
Þess skal getið að um beinan
verðsamanburð var að ræða í
könnun ASÍ. Í könnuninni var ekki
lagt mat á gæði eða þjónustu sölu-
aðila.
50 til 90% munur á
fiskverði milli verslana
AUGLÝSINGASTOFAN Hvíta
húsið hlýtur flestar tilnefningar í
samkeppni um athyglisverðustu
auglýsingar ársins 2002.
Hvíta húsið
hlýtur nú 18 til-
nefningar, Gott
fólk McCann
Ericsson kemur
þar næst með
11 tilnefningar
og Fíton þar á
eftir með átta tilnefningar. Veitt eru
verðlaun í 13 flokkum og er það ein-
um flokki meira en í fyrra. Tveir nýir
flokkar hafa bæst við síðan í fyrra;
Almannaheillaauglýsingar og Raf-
auglýsingar.
Það er Félag íslensks markaðs-
fólks – ÍMARK í samstarfi við Sam-
band íslenskra auglýsingastofa, SÍA,
sem stendur fyrir samkeppninni sem
nú er haldin í sautjánda sinn.
Verðlaunin verða afhent við hátíð-
lega athöfn á Íslenska markaðsdeg-
inum sem haldinn verður í Háskóla-
bíói föstudaginn 21. febrúar.
Hvíta húsið
með flestar
tilnefningar
Auglýsingaverðlaun
Útnefningar/B6–7
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Sími 588 1200
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
www.isb.is
Allt fyrir
flá sem
vilja spara!
Þú átt það inni ...
„DROTTNING drepur Gunnar 7, mát,“ sagði
Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari í skák, þeg-
ar hann bað um leik og lagði fyrsta mótherj-
ann á leið sinni að Íslandsmeti í blindskák-
arfjöltefli í gær, en þá tefldi hann við 11
skákmenn í höfuðstöðvum Olís við Sundagarða
í Reykjavík. Helgi Ólafsson tefldi við 10 skák-
menn árið 1977 og 1997 endurtók Dan Hansson
leikinn, en Helgi Áss þurfti rúmlega tvo og
hálfan tíma til að ljúka öllum 11 skákunum í
gær og slá metið.
Það er ekki sjálfgefið að kunna að tefla og
hvað þá blindskák, að ekki sé talað um 11
blindskákir í einu. „Hvernig er þetta hægt?“
spurði einn áhorfandinn í gær og eflaust hugs-
uðu allir það sama. Helgi Áss sat úti í horni
með lokuð augu og lengst af fól hann andlitið í
höndum sér, spenntur og einbeittur, en lagaði
bindishnútinn eftir um 100 mínútna setu. Hins
vegar gátu mótherjarnir staðið upp á milli
leikja en Andri Áss Grétarsson greindi frá
leikjum þeirra hverju sinni og sá um að færa
taflmennina fyrir hönd bróður síns í kjölfarið.
Helgi Áss stýrði hvítu mönnunum og hafði 90
mínútur til að ljúka hverri skák en fékk 30 sek-
úndur fyrir hvern leik og mátti aðeins leika
þrisvar ólöglegum leikjum í hverri skák. And-
stæðingarnir höfðu 45 mínútur til að ljúka
skákinni og höfðu ótakmarkaðan tíma fyrir
hvern leik.
Herbragðið misheppnaðist
„Þetta gekk ekki alveg eins og ég átti von
á,“ sagði Helgi Áss, en hann hafði betur gegn
fimm mótherjum, gerði tvö jafntefli og tapaði
fyrir fjórum andstæðingum, þar af tveimur
krökkum. „Í fyrsta lagi hafði ég of skamman
tíma og í öðru lagi ætlaði ég mér að sigra
krakkana sex tiltölulega fljótt og örugglega til
að geta einbeitt mér að hinum fimm fullorðnu,
en herbragðið misheppnaðist hrapallega.
Krakkarnir voru mjög sleipir við að rugla mig
í ríminu með því að tefla óhefðbundið og þeir
voru útsjónarsamari en ég átti von á. Ég tapaði
tveimur skákum á móti þeim og fékk aðeins
þrjá og hálfan vinning af sex mögulegum þar
sem ég ætlaði mér mun stærri hlut. Hallgerður
Helga Þorsteinsdóttir, sem er 10 ára, tefldi
mjög vel og vann mig sannfærandi. Ég átti
enga möguleika á móti henni en var annars alls
staðar kominn með vænlega stöðu á tímabili.“
Árið 1994 tefldi Helgi Áss við átta skákmenn
í blindskákarfjöltefli og segir að síðan hafi
hann gælt við að slá metið. Hann segir að þar
sem hann hafi átt eftir lítinn tíma á mörgum
stöðum í einu í lokin hafi þetta verið mjög erf-
itt enda hafi hann tapað einni skák á tíma, á
móti Helga Brynjarssyni, 11 ára. „Eftir á að
hyggja er frábært að hafa náð að halda þetta
út,“ segir hann, „en ég held að andstæðingar
mínir hafi verið sterkari en þeir sem öttu
kappi við Helga og Dan á sínum tíma.“
Stórmeistarinn segir að álagið hafi óneit-
anlega verið mikið en hann hafi hug á að gera
betur og verði engin klukka notuð sé ljóst að
hann geti teflt við mun fleiri. Í því sambandi
má nefna að Norðurlandametið í blindskák-
arfjöltefli er 28 mótherjar og heimsmetið 45
mótherjar. „Ég er samt mjög ánægður með að
hafa getað barist í erfiðum stöðum og náð að
ljúka öllum skákunum, en við þessar aðstæður
er erfiðast að tefla vel. Það er minna vandamál
að muna stöðuna en ég lærði mikið af þessu og
sem formaður Taflfélagsins Hellis er ég mjög
stoltur af því að eiga svona efnilega krakka.“
Morgunblaðið/Sverrir
Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson kúrir sig úti í horni en Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Elsa María Þorfinnsdóttir eru í viðbragðsstöðu.
„Drottning drepur Gunnar 7, mát“
Helgi Áss Grétarsson setti í gær Íslandsmet í blindskákarfjöltefli
AÐ meðaltali greiðir hver
Hafnfirðingur 40% hærri fast-
eignagjöld í ár en hann gerði
árið 2000, sem er 22% raun-
hækkun ef verðbólga, sem var
15% á tímabilinu, er tekin með
í reikninginn. Hækkunin er
33% á hvern Kópavogsbúa,
þegar ekki er tekið tillit til
verðbólgu, 27% á hvern
Garðbæing og 25% á hvern
Seltirning.
Minnst er hækkunin í
Reykjavík eða 19%, sem er 3%
raunhækkun.
Hafa fasteignagjöld hækkað
um 9.560 krónur að meðaltali
á hvern Hafnfirðing frá árinu
2000, um 9.225 á hvern Kópa-
vogsbúa, 7.867 krónur á hvern
Garðbæing, 6.080 krónur á
hvern Seltirning og 4.830
krónur á hvern Reykvíking.
Fasteigna-
gjöld Hafn-
firðinga
hækka mest
Fasteignagjöld
í Hafnarfirði/11
STÓRFYRIRTÆKIÐ Microsoft
Corporation mun á næstu mánuðum
setja á fót eigin skrifstofu hér á
landi. Elvar Steinn Þorkelsson, fyrr-
verandi forstjóri Teymis hf., hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Microsoft Ísland og verður hann
ábyrgur fyrir starfsemi Microsoft
hér á landi. Til að byrja með verður
starfsemi Microsoft Ísland stýrt frá
Microsoft í Danmörku, og eins og
þar í landi verður fyrirtækið alfarið í
eigu Microsoft.
Elvar segir að ástæðan fyrir því að
Microsoft vilji koma sér fyrir á Ís-
landi sé sú að fyrirtækið vilji styrkja
stöðu sína hér á landi, með sam-
hæfðu og öflugu samstarfi við sam-
starfsaðila sína. Horft verði til nú-
verandi samstarfsaðila jafnt sem
nýrra, sem séu tilbúnir að bjóða
fram krafta sína og virðisauka til
handa viðskiptavinum Microsoft hér
á landi. Í annan stað sé mikill vilji
fyrir því að reyna að koma höfund-
arréttarmálum í viðunandi horf fyrir
Microsoft, en þau séu alls ekki í góðu
lagi hér á landi, að sögn Elvars.
Microsoft
vill styrkja
stöðu sína
á Íslandi
Microsoft/B1
♦ ♦ ♦