Morgunblaðið - 16.02.2003, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2003 59
LEIKFÉLAG Menntaskólans í
Reykjavík, Herranótt, ku vera elsta
starfandi leikfélag landsins, en
fyrsta sýningin var sett upp árið
1846. Sýningar leikfélagsins eru af-
ar metnaðarfullar og hvergi til
sparað svo vel megi verða. Í ár set-
ur skólinn upp gaman- og hryllings-
leikritið Hundshjartað eftir Mikhail
Búlgakov (Meistarinn og Marga-
rita) í leikgerð og þýðingu Ólafs
Egils Egilssonar. Hann er jafn-
framt leikstjóri. Leikritið á sér
nokkuð ævintýralega sögu, en Sov-
étmaðurinn Búlgakov starfaði í
óþökk stjórnvalda. Meðal annars
svaf ekkja hans með handritið und-
ir koddanum sínum í 30 ár! Að sýn-
ingunni koma u.þ.b. fjörutíu nem-
endur úr skólanum. Leikgerð og
þýðing leikstjórans, Ólafs Egils Eg-
ilssonar er unnin upp úr vinsælli
leikgerð Alexanders Chervinskys
og skáldsögunni sjálfri (sem kom út
í þýðingu Ingibjargar Haralds-
dóttur árið 1992). Leikritið fjallar
um heimsfrægan og vel metinn pró-
fessor í Moskvu sem tekur að sér
flækingshund til að gera á honum
tilraunir með uppgötvun sína, lífs-
geislann. Hann græðir hjarta,
heiladingul og eistu úr nýlátnum
manni með þeim afleiðingum að
hundurinn breytist smám saman í
mann. En hundurinn/maðurinn,
sem tekur upp nafnið Snati Snata-
son, verður ekki sá fyrirmynd-
arborgari sem prófessorinn von-
aðist eftir heldur leggur hann líf
skapara síns í rúst.
Morgunblaðið sló á þráðinn til
Jóns Eðvalds Vignissonar, eins
stjórnarmanna Herranætur. Hann
var sem von er önnum kafinn við
æfingar en hann fer og með hlut-
verk í Hundshjartanu.
„Síðustu daga höfum við verið að
ganga frá lausum endum, eins og
gengur. Annars er þetta búið að
ganga stórvel,“ segir Jón, sem er
nemi í fimmta bekk. Hann segist
hafa smitast óforvarandis af leik-
listarvírusnum í fyrra og hann sjái
ekki fram á að ná sér af honum.
„Þetta er búið að vera mjög
skemmtilegt og það er gaman að
vinna þetta með Ólafi, en hann var
sem kunnugt er Herranæturstjarna
á sínum tíma.“
Frumsýnt verður í kvöld í Tjarn-
arbíói en næstu sýningar eru sem
hér segir: Þriðjudaginn 18. febrúar,
miðvikudaginn 19. febrúar, laug-
ardaginn 22. febrúar, sunnudaginn
23. febrúar, föstudaginn 28. febr-
úar, laugardaginn 1. mars, þriðju-
daginn 11. mars og miðvikudaginn
12. mars.
Herranótt MR sýnir Hundshjartað
Morgunblaðið/Golli
Það gengur ýmislegt á í Hundshjartanu.
Mannhundar í Moskvu
Nýr og betri
Búðu þig undir D-daginn 28. febrúar
Hverfisgötu 551 9000
kvikmyndir.com
Tilnefningar til Óskarsverðlauna
þ. á. m. Salma Hyaek sem besta
leikona í aðalhlutverki6
GRÚPPÍURNAR
Sýnd kl. 3 og 5.30.
SV. MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
Tilnefningar
til Óskars-
verðlauna
þ. á. m. besta
mynd
13
Frábær svört kómedía með stórleikurunum Jack
Nicholson og Kathy Bates sem bæði fengu tilnefningar
til Óskarsverðlauanna í ár fyrir leik sinn í myndinni.
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 3, 6, 7.30, 9 og 10.30. B.i. 12.
. . .
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i 12.
Tilnefningar til Óskarsverðlauna:
Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson.
Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.2
Sýnd kl. 2 og 4.
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14.
Frábær ævintýra og spennumynd
fyrir alla fjölskylduna.
Búðu þig undir D-daginn 28. febrúar
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15. B.i. 12.Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. ísl. tal. Miðaverð 400 kr.
Frábær svört kómedía með stórleikurunum Jack Nicholson
og Kathy Bates sem bæði fengu tilnefningar til
Óskarsverðlauanna í ár fyrir leik sinn í myndinni.
Stórskemmtileg
teiknimynd eftir
frábærri sögu Astrid
Lindgren. Hefur þú
einhvern tímann átt
vin sem aðeins þú
gast séð og heyrt?
SV. MBLKvikmyndir.com HK DV
Tilnefningar til Óskarsverð-
launa þ. á. m. besta mynd13
Tilnefningar til Óskarsverðlauna:
Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson.
Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.2