Morgunblaðið - 19.02.2003, Page 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Og þetta er víst alveg dagsatt.
Konur í fornöld – ímyndir og hugarflug
Hið kvenlega
ekki einsleitt
og afmarkað
AUÐUR Ingvars-dóttir sagnfræð-ingur hleypir í
kvöld af stokkunum fyrri
hluta fyrirlesturs sem hún
hefur tekið saman og ber
yfirskriftina „Konur í forn-
öld – ímyndir og hugar-
flug“. Fyrri fyrirlesturinn
verður haldinn í þjóðar-
bókhlöðunni í kvöld klukk-
an 20, en síðari hlutinn
verður á sama stað eftir
nákvæmlega viku, mið-
vikudagskvöldið 26. febr-
úar og hefst á sama tíma. Í
fréttatilkynningu sem til
sást kom fram að fyrir-
lestrarnir væru öllum opn-
ir og sniðnir að þörfum al-
mennings og hugsaðir
fyrir alla þá sem hafa gam-
an af því að velta fyrir sér
hugmyndum um konur og stöðu
kvenna í fortíð og nútíð.
Auður svaraði nokkrum spurn-
ingum um fyrirlestra sína, tilurð
þeirra, viðhorf og áherslur.
– Útskýrðu fyrst fyrir okkur yf-
irskrift fyrirlestrarins, Konur í
fornöld – ímyndir og hugarflug ...
„Þetta eru náttúrlega ekki
sagnfræðilegar bókmenntir svo
það er fremur hugarflugið sem ég
beini athyglinni að. Hugarflugið
sem birtist í þessum sögum getur
sagt okkur heilmikið um hvað
menn tengdu við konur, hvað var
kvenlegt og hvað var æskileg
hegðun til dæmis. Hvenær var
leitað til kvenna, hvað fengust
þær við og hvernig er þeim lýst?
Margar sögurnar hafa goðsögu-
legt efni, byggja á eddukvæðum
eða hafa einhverjar leifar um
fornan tíma, það er því ekki hægt
að nálgast það á hefðbundinn
sagnfræðilegan hátt en getur
samt gefið heilmikið til kynna um
fornan tíma. Þessar sögur voru af-
þreyingarefni þjóðarinnar um ald-
ir og voru sagðar til skemmtunar
og jafnvel ritaðar upp fram á 20.
öldina og rímur ortar upp úr þeim
í löngum bunum. Alveg eins og
sjónvarpsefni og önnur afþreying-
armenning nútímans hefur greini-
leg áhrif á það hvernig samskipt-
um kynjanna er háttað, hvernig
hið kvenlega og karlmannlega er
upplifað og um almennt geðslag
þjóðarinnar er ég sannfærð um,
að hægt er að finna lykilinn að
forníslensku skapferli í þessum
sögum.“
– Hvað þykir þér svona heill-
andi við viðfangsefnið?
„Mér finnst sérstaklega heill-
andi hvað kvenpersónurnar sem
koma við sögu eru fjölbreytilegar.
Þetta eru ekki sviplausar og
óvirkar kvenpersónur eins og
maður les um í sumum ævintýr-
um, sem bíða prúðar eftir prins-
inum. Þær eru sumar illar og
ódælar og aðrar vitrar og vænar
og svo framvegis, en hið kvenlega
er ekki einsleitt og afmarkað eins
og sést í sumum öðrum
bókmenntum. Auðvitað
eru þetta fjölbreytileg-
ar sögur og mismun-
andi fornlegar. Mér
finnst þær samt allar
gefa þessa mynd að
einhverju leyti. Svo er ævintýra-
heimurinn alveg ótakmarkaður og
til dæmis ótrúlegt að hugsa sér
alla tæknina sem menn gátu látið
sig dreyma um.“
Hver er helsti munurinn á forn-
aldarkonum og nútímakonum að
þínu viti?
„Þegar nútímakonum er lýst, er
þeim stundum lýst sem skörung-
um eða valkyrjum sem hefur nátt-
úrlega skírskotun til þessa menn-
ingarheims og hefur yfirleitt
jákvæðan blæ. Skessurnar og
bryðjurnar og brussurnar eru aft-
ur á móti í frekar neikvæðu ljósi.
Ég er ekki að velta fyrir mér öðru
en þessu huglæga og vísa því bara
til Snorra Sturlusonar sem lýsti
því hvernig konur eru kenndar í
skáldskap, þ.e. „til alls kvenbún-
aðar, gulls og gimsteina, öls eða
víns eða annars drykkjar, þess er
hún selur eða gefur, svá og til
ölgagna og allra þeirra hluta, er
henni sæmir að vinna eða veita
... við allar ásynjur eða valkyrjur
eða nornir eða dísir ... við alla at-
höfn sína eða við eign eða ætt.“
Við hvað erum við nútímakonur
svo kenndar?“
– Sérðu fyrir þér að bæði kynin
komi og hlýði á fyrirlesturinn?
„Ég hugsa að konur séu áhuga-
samari um þetta efni, því auðvitað
höfum við verið svo bældar og
bugaðar og lítið látið með okkur
að öll umfjöllun um konu vekur
áhuga. Margir karlmenn hafa
samt áhuga á fornum sögum og
gætu haft gaman af því að velta
fyrir sér mörkum hins kvenlega
og karlmannlega, samskiptum
kynjanna og hinu óhefta hugar-
flugi.“
– Hverjir eiga annars helst er-
indi á fyrirlesturinn?
„Allir sem hafa áhuga á hinu
forníslenska skapferli og stöðu
kvenna í fortíð og nútíð. Þetta er
þó sagt af fullkomnum glanna-
skap og án fræðilegrar ábyrgðar.
Af því að við erum svo fátæk, fá og
smá eins og stundum er sagt, hef-
ur þessum arfi ekki
verið sinnt sem skyldi,
ég er því enginn sér-
fræðingur í fornaldar-
sögum en ég blæs bara
á kvenlega hógværð og
sunnlenskt lítillæti og
ákvað að koma þessu á framfæri
af því að það er boðið upp á svo
mikið af leiðindum að það er bein-
línis heilsuspillandi. Svo vil ég
taka það fram að mörg önnur for-
vitnileg námskeið fræðimanna hjá
Reykjavíkurakademíunni verða í
boði í Þjóðarbókhlöðunni á næst-
unni og hvet ég fólk til þess að
gefa þeim gaum og tíma.“
Auður Ingvarsdóttir
Auður Ingvarsdóttir er fædd í
Reykjavík 1960, en ólst upp í
Biskupstungum. Hún hefur MA-
gráðu í sagnfræði frá Háskóla Ís-
lands og hefur fengist m.a. við
ýmis kennslu- og uppeldisstörf.
Auður á tvo syni, Ara og Orra
Erlingssyni, sem eru fæddir árið
1983.
… sumar illar
og ódælar en
aðrar vitrar
og vænar
mikill afsláttur á bílskúrsdögum
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
20
27
7
0
2/
20
03
Nú er verk að vinna! Komdu í næstu verslun Húsasmiðjunnar og
sjáðu hvað þú getur gert til þess að gera bílskúrinn að betri geymslu
og snyrtilegri vinnustað. Þið eigið það inni, þú og bíllinn þinn.
Hjólatjakkur í tösku
vnr. 5023991
Verð áður 3.712 kr.
Verð nú 2.899 kr.
Topplyklasett 42 stk.
vnr. 5052503
Tommu og mm.
1.495 kr.
Topplyklasett 42 stk.
vnr. 5052502
Tommu og mm.
795 kr.
Gufuhreinsir, byssa
Z35A Electrolux 900W,
vatnshólf úr ryðfríu stáli.
vnr. 1805256
Verð áður 9.989 kr.
Verð nú 5.990 kr.
Jotaproff 20, 10 lítrar,
vnr. 7119882
Verð áður 8.795 kr.
Verð nú 5.950 kr.
40% afsláttur