Morgunblaðið - 20.02.2003, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2003 49
ÁLFABAKKI
Lokabaráttan er hafin!
KRINGLAN
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.50, 8 OG 10.15. B. I. 16.
KVIKMYNDIR.IS
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 10 ára.
ÁLFABAKKI / AKUREYRI
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14. / Sýnd kl. 8 og 10.
ÁLFABAKKI / KEFLAVÍK
KRINGLAN
Sýnd kl. 5. enskt tal
Sýnd kl. 8.
KRINGLUNNI
Sýnd kl. 8 og 10.15.
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15. / Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 10.15. / Sýnd kl. 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 4 og 6. Sýnd kl. 6.
HJ MBL
FILMUNDARMYND vik-
unnar er magnþrungin bresk
spennumynd sem heitir Byrg-
ið eða The Bunker.
„Hið illa
býr fyrir
innan“ er
yfirskrift
myndar-
innar, sem
þykir
minna um
margt á mynd Michael Mann,
The Keep, en sögusviðið er
síðustu dagar þriðja ríkisins.
Herflokkur dauðuppgef-
inna og bardagaþreyttra
þýskra hermanna flýr stór-
sókn bandamanna. Þegar her-
flokkurinn uppgötvar yfirgef-
ið byrgi ákveður hann að leita
afdreps þar. Hermennirnir
eru að verða skotfæralausir
og örvita þegar enn eitt áfallið
dynur yfir er eitthvert hrylli-
legt afl af yfirnáttúrulegum
toga gerir vart við sig í
drungalegu byrginu og virðist
vera í hefndarhug gegn þegn-
um þriðja ríkisins og glæpum
þeirra.
Þessi frumraun klipparans
og tæknimannsins Rob Green
í leikstjórastólnum hefur mælst
mjög vel fyrir í heimalandinu og hafa
gagnrýnendur látið þau orð falla að
þar fari „fyrsta flokks sálfræðitryll-
ir“ sem ráðskast með huga áhorfand-
ans, teygir hann og beygir, með
kuldalegri og vel ígrundaðri spennu.
Leikstjórinn Green er kunnastur
fyrir störf sín sem klippari en und-
anfarið hefur hann gert rómaðar
stuttmyndir, þ.á m. verðlaunamynd-
ina Svarta köttinn, (The Black Cat).
Green hefur að auki fengist við gerð
auglýsingastikla fyrir stóru kvik-
myndaverin. Með aðalhlutverk í
Byrginu fara Jason Flemyng úr
Hnuplinu (Snatch) og Charley Boor-
man.
Filmundur sýnir yfirnáttúrulega spennumynd
Margt býr í byrginu
Þegnar þriðja ríkisins verða fyrir yfirnátt-
úrulegri árás í Byrginu.
Sýnd í Háskólabíói í kvöld kl. 22.15,
laugardag kl. 20.30 og sunnudag til
miðvikudag kl. 22.40.
Slett úr klaufunum
(The Craic)
Gamanmynd
Ástralía, 1999. Bergvík VHS. (86 mín.)
Öllum leyfð. Leikstjórn: Ted Emery. Aðal-
hlutverk: Jimeoin McKeown, Alan
McKee og Colin Hay.
ÞEGAR félögunum Fergusi og
Wesley verður það á að svara yfir-
gangi harðsvíraðs foringja í IRA,
með því að brjóta
tómatsósuflösku á
bíl hans, standa
þeir frammi fyrir
tveimur kostum:
Að tortímast eða
láta sig hverfa. Þeir
ákveða að velja síð-
ari kostinn og
stinga af til Ástral-
íu, þar sem þeirra
bíður fremur skrautleg tilvera sem
ólöglegir innflytjendur. Þeir taka líf-
inu með ró, bregðast við vandamálum
sem upp koma og reyna þess á milli
að aðlagast ástralskri menningu,
skemmta sér sem mest, og finna sér
eiginkonuefni. Þessi skrautlega gam-
anmynd hefur sína kosti, sem eru
einna helst léttlyndi sem ágætis til-
breyting er í. Þá verður húmorinn á
köflum sótsvartur, ekki síst þegar
grín er gert að hinum ömurlegu til-
vistaraðstæðum félaganna, hvort
sem er á Írlandi eða í Ástralíu. En
þeir láta ekki deigan síga, og láta
fyrst og fremst ekki ná sér. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Hálir
sem álar
Dönsk blágrassveit í Fjörukránni
Blágresið blíða
TENGLAR
.....................................................
www.fjorukrain.is
GÓÐ tónlist þekkir sjaldnast
landamæri. Það sannast m.a. á
því að dönsk blágrashljómsveit
ætlar að leika á Fjörukránni
vegna Danskra daga sem þar
verða haldnir 20. febrúar til 2.
mars.
Blágrastónlistin er upprunnin
vestur í Bandaríkjunum, nánar
tiltekið í Kentucky en hefur
greinilega fengið hljómgrunn hjá
frændum vorum, Dönum.
Sine Bach Rüttel Band mun
verða matargestum Fjörukrár-
innar til halds og trausts út
Dönsku dagana en auk þess mun
sveitin halda tvo dansleiki, föstu-
dags- og laugardagskvöldin 21.–
22. febrúar og 28. febrúar og 1.
mars. Auk blágrassins, leikur
sveitin rokk, sveitatónlist og blús.
Sveitin er leidd af Sine Bach
Rüttel, sem auk þess að syngja og
leika á banjóið, semur allt efni
sveitarinnar. Sine er aðeins 24
ára og er talin ein af færustu
banjóleikurum Skandinavíu. Á
síðasta ári gaf hún út fyrsta
hljómdisk sinn, auk þess að
ferðast til Nashville, Cannes og
fleiri staða.
Eftir ævintýrin í Fjörukránni
fara Sine og hennar menn svo til
Texas til að leika á SXSW-
hátíðinni þar sem landar okkar,
d.u.s.t., Ensími og Singapore
Sling verða einnig.
Hin 24 ára
gamla Sine
Bach Rüttel er
einn besti
banjóleikari
Norðurlanda.
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
BANDALAG ÍSLENSKRA LEIKFÉLAGA
Vantar þig gervi
fyrir grímuballið?
Hárkollur • Trúðanef • Gervinef • Tannlakk
Gerviskegg • Gerviaugnhár • Lithársprey
Leikhúsfarði • Gervitennur • Gervieyru
Gerviskallar • Gerviblóð • Gervihor
Sendum í póstkröfu!
Laugavegi 96 • www.leiklist.is • 551 6974