Morgunblaðið - 20.02.2003, Blaðsíða 1
Fjarskipti
3GSM World fjarskiptasýningin stendur þessa dagana yfir í Cannes í Suður Frakklandi. Gísli Þorsteinsson
kynnti sér hvaða nýjungar eru væntanlegar á fjarskiptamarkaðnum á næstunni.
LÍKLEGT er talið að fjarskiptafyrirtækið
Hutchison, sem er í eigu Hutchison Whamopa í
Hong Kong, verða fyrst til þess að hefja rekstur
á þriðju kynslóðar farsímaþjónustu í Evrópu, en
fyrirtækið er rekið í Bretlandi. Búist er við því
að það muni hefja sölu á NEC-farsímum fyrir 3.
kynslóðartækni í næsta mánuði, bæði í Bret-
landi og Ítalíu. Ekki er talið að stærri fjarskipta-
fyrirtæki í Evrópu muni feta í fótspor Hutchison
á komandi mánuðum. Það mun því sitja eitt að
markaðinum um sinn, að sögn sérblaðs Financi-
al Times, sem gefið var út í tengslum við 3GSM
World í Cannes.
Fá send myndbrot úr íþróttaleikjum
Þá er fyrirtækið sagt það eina sem muni gera
notendum mögulegt að hlaða niður myndbands-
efni um farsíma. Til dæmis eiga notendur að
geta sótt sér brot úr knattspyrnuleikjum. Þá
ætlar fyrirtækið einnig að bjóða upp á tölvupóst
og sendingar á myndum með MMS.
Vodafone, sem sýnir starfsemi sína á 3GSM
World, ætlar að hefja rekstur á þriðju kynslóðar
farsímakerfi síðar á þessu ári. Ekki er talið að
Orange, sem einnig er til staðar á sýningunni,
muni hefja slíkan rekstur fyrr en á næsta ári, ef
marka má ummæli forsvarsmanna þess, en far-
símafyrirtæki hafa sýnt 3. kynslóðinni mismik-
inn áhuga á allra síðustu árum. Hins vegar hefur
sala á myndasímum farið vel af stað og er það
talið gefa vonir um að notendur muni fjárfesta í
þriðju kynslóðar farsímum þegar þeir streyma á
markaðinn, að því er fram kom á sýningunni.
Talið er að þriðju kynslóðar farsímaþjónusta
japanska fjarskiptafyrirtækisins NTT Do-
CoMo, sem er eitt öflugasta fjarskiptafyrirtæki
landsins, muni ná til 90% þjóðarinnar undir lok
næsta mánaðar. Þjónustan, sem nefnist FOMA
og tryggir gagnaflutningshraða sem nemur allt
að 483 kb/s (hraðinn í venjulegu GSM-kerfi er
9,6 kb/s), gerir notendum meðal annars kleift að
taka á móti hljóði og mynd frá öðrum notendum
á rauntíma. Þá geta þeir notfært sér efnisveitur
sem byggja á myndskeiðum og hljóði. Fyrirtæk-
ið er eitt af fjölmörgum tækni- og fjarskiptafyr-
irtækjum sem kynna starfsemi sína á 3GSM
World-sýningunni.
FOMA (Freedom of Mobile multimedia Ac-
cess) var kynnt til sögunnar í maí 2001 og því er
NTT DoCoMo fyrsta fyrirtækið til þess að hefja
rekstur á þriðju kynslóðar farsímakerfi. Kerfið
er viðbót við W-CDMA-staðal og gerir notend-
um mögulegt að miðla gögnum og öðru efni með
pakkasendingum. Hámarksflutningshraði er
um 40 sinnum meiri heldur en með eldri far-
símaþjónustu. Þá tryggir FOMA enn meiri
hraða með sendingum á margmiðlunarefni.
34 milljónir notenda
FOMA er viðbót við i-mode, farsímaþjónustu
NTT DoCoMo, og gerði notendum kleift að taka
við upplýsingum eða notfæra sér bankaþjónustu
um vefgátt. Þá er hægt að sækja sér leiki og
nota tölvupóst um i-mode. Um 34 milljónir eru
áskrifendur að þjónustunni í Japan. Þá hefur
fyrirtækið opnað útibú víða um heim þar sem
þjónustan er í boði.
Með FOMA er hins vegar hægt að taka á móti
hljóði og myndskeiði (streymandi mynd) frá
öðrum notendum á rauntíma. Einnig er hægt að
flytja gögn á sama tíma og notandi talar í síma
eða sækja efni frá þjónustuveitu sem hefur upp
á að bjóða hljóð og mynd. Má þar nefna fréttir
eða myndskeið frá íþróttaleikjum. Enn fremur
er hægt að notfæra sér þjónustuna fyrir gagna-
flutning og komast inn á staðarnet fyrirtækja.
Þrátt fyrir mikla möguleika til notkunar á far-
símum frá NNT DoCoMo hafa notendur tekið
seint við sér og meðal annars hefur fyrirtækið
þurft að horfa á eftir markaðshlutdeild til ann-
arra fjarskiptafyrirtækja.
Þriðja kynslóðin ber að dyrum
AP
Sýningargestur virðir úrval fjarskiptabúnaðar fyrir
sér á 3GSM World fjarskiptasýningunni í Cannes í
Suður-Frakklandi.
Búist er við því að þriðja kyn-
slóð farsímakerfa verði víða
tekin í gagnið á þessu ári. Jap-
an og Suður-Kórea nýta sér
tæknina nú þegar. Bretar ætla
að gera slíkt hið sama á kom-
andi vikum og í Evrópu er gert
ráð fyrir að tæknin komist þar
í gagnið síðar á árinu.
Skeifan 4 • Sími 585 0000 • www.aukaraf.is • Opið frá kl. 9-18 • Laugardag frá kl. 10-16
Sendum í póstkröfu
F
rá
b
æ
r
ti
lb
o
ð
:
• Magellan GPS-tæki
• GPS-aukahlutir s.s. plastpokar, tengi, loftnet o.fl.
• Talstöðvar, bíla-, báta- og handtalstöðvar
• Aukahlutir fyrir talstöðvar
• Fjarstýrðar samlæsingar
• Þjófavarnarkerfi
• Hljómflutningstæki fyrir bíla, magnarar
á frábæru verði, mikið úrval hátalara
• GSM-handfrjáls búnaður
• Radarvarar
• Hleðslutæki
15-50%
afsláttur