Morgunblaðið - 22.02.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 22.02.2003, Blaðsíða 27
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2003 27 MEÐALVERÐ á fiski er nánast óbreytt milli ára samkvæmt verð- könnun Samkeppnisstofnunar. Kannaði stofnunin verð á fiski í 19 fiskbúðum og 13 matvöruversl- unum á höfuðborgarsvæðinu um miðjan febrúar. Hefur Samkeppnis- stofnun gert sambærilegar kannanir árlega um nokkurt skeið. 70% verðhækkun á ýsu „Niðurstöður könnunarinnar sýna að fiskverð hefur staðið í stað á síð- asta ári eftir miklar verðhækkanir á árunum 1998–2002. Á þessu tímabili hækkaði meðalverð á ýsuflökum til að mynda um 70% á meðan vísitala neysluverðs hækkaði um 21,4%,“ segir í niðurstöðum verðkönnunar- innar. Fiskverð í einstökum verslunum ásamt lægsta og hæsta verði og með- alverði á flestum þeim tegundum sem könnunin náði til er birt á heimasíðu Samkeppnisstofnunar. Sjá: www.samkeppni.is.                              !   "                                                             !  "        # $    # $                                     %&' (&) (*+ (() ,,+ ()& -./-+ -./-, )'' (&+ ('/ &(' (%, )(( %,, (&-                                                 .0 .0 .0 .0 .0 .0 .0 .0 .0 .0 .0 .0 .0 .0 .0 .0 Fiskverð nánast óbreytt milli ára SVOKÖLLUÐ „megavika“ hjá Dominos Pizza stendur nú sem hæst en fyrirtækið býður allar píts- ur á matseðli á 1.000 krónur fyrir þá sem sækja sjálfir, fram til 23. febrúar. Þá er allt gos á 200 krónur hjá Dominos. Þórarinn Ævarsson, fram- kvæmdastjóri Dominos, segir loks- ins „fjörugt“ á pítsumarkaði. „Það var kominn tími til að eitthvað gerðist eftir ládeyðu undanfarinna ára. Slagurinn var talsverður á markaðinum 1993–1996 en eftir það virtist sem menn væru sáttir við sitt,“ segir hann. Þórarinn segir að Dominos hafi byrjað á að efna til „megaviku“ á um það bil þriggja mánaða fresti um mitt ár 2001 og að fimm slíkar tilboðsvikur hafi liðið áður en keppinautarnir byrjuðu að svara fyrir sig. „Það gerðist í raun ekki mikið fyrr en síðasta haust en þá byrjuðu menn líka að svara hver um annan þveran,“ segir hann. Þórarinn telur „hollt fyrir pítsu- geirann“ að samkeppni harðni og hreyfing komist á markaðinn. „Að mínu mati eykur þessi hreyfing sölu á pítsum. Pítsan hef- ur liðið fyrir lækkun á svína- og kjúklingakjöti og segja má að við höfum verið í mikilli samkeppni við stórmarkaðina af þeim sökum. Lækkanir á kjötverði hafa ekki skilað sér til okkar.“ Verð á mörgum grænmetisteg- undum hefur lækkað um tugi pró- senta síðastliðið ár og segir Þór- arinn aðspurður hvort sú lækkun eigi ekki að skila sér til neytenda, að aukinn launakostnaður vegi hana upp. „Laun hafa hækkað umfram taxta hjá okkur. Síðasta hækkun var síðastliðin áramót en verð á okkar pítsum er enn það sama. Við höfum ekki velt þeim kostnaði út í verðlagið, svo þetta jafnar sig út,“ segir hann. Aðspurður hvort aukinn fjöldi tilboða á pítsastöðum sé til marks um örvæntingu einhverra fyr- irtækja segist Þórarinn telja að svo sé. „Hún er talsverð og að mínu mati mun eitthvað skolast til á markaðinum á þessu ári,“ segir hann. Þórarinn vill ekki meina að um undirboð á pítsum sé að ræða af hálfu stærri fyrirtækjanna. „Stærstu kostnaðarliðir fyrirtækj- anna eru hráefni og laun og þegar viðskiptavinum fjölgar skyndilega lækkar launakostnaður hlutfalls- lega.“ Kveðst hann verða var við að hluti viðskiptavina kaupi einvörð- ungu pítsur af fyrirtækinu þegar „megavika“ stendur yfir, en leyfi sér ekki slík innkaup þar fyrir ut- an. „Gaman fyrir neytendur“ Stutt er síðan Pizza Hut bauð hvaða stærð af pítsu sem er af mat- seðili á 1.100 krónur fyrir þá sem sækja sjálfir, á svokölluðum „dúnd- urdögum“. Jón Garðar Ögmunds- son, framkvæmdastjóri Pizza Hut, segir „gaman fyrir neytendur“ hve hörð samkeppnin er um þessar mundir. Jón Garðar segir kostnað við heimsendingar hafa aukist mikið og því sé eðlilegt að fleiri pítsu- staðir reyni að fá viðskiptavini til þess að sækja sjálfa. Minnir hann á að kostnaður við rekstur bifreiða hefur aukist til muna undanfarin misseri, einkum vegna hækkana á bensínverði og tryggingum. „Heimsending á pítsu kostar 350– 500 krónur og þá er launakostn- aður undanskilinn. Þess vegna er það í raun glórulaust fyrir fyr- irtækin að færa viðskiptavinum minni sendingar heim,“ segir hann. „Hrópa á gott verð“ í janúar og febrúar Jón Garðar segir að Pizza Hut hafi til skamms tíma aðallega ein- beitt sér að rekstri veitingastað- anna sjálfra. „Undanfarið höfum við síðan fært okkur inn á markað fyrir sóttar pítsur og heimsending- ar. Við erum ekki að breyta við- skiptaháttum með aukinni áherslu á þennan þátt, heldur að bæta við okkur.“ Einnig segir hann viðskiptavini pítsustaða „hrópa á gott verð“ í janúar og febrúar. „Við erum líka að bregðast við þessum rólegu mánuðum. Hins vegar er ekki mögulegt að bjóða þetta verð nema stuttan tíma í einu. Við þurfum 20–25.000 manns á einni viku til þess að mæta kostn- aði,“ segir hann. Jón Garðar segir venju að efna til „dúndurdaga“ hjá Pizza Hut fjórum sinnum á ári. Kveðst hann telja að mikið verði um nýjungar og góð verðtilboð á árinu. Einnig er hann þeirrar skoðunar að í framtíðinni muni pítsustaðir ein- ungis bjóða heimsendingar fyrir stærri pantanir. „Það er ekkert vit í að senda heim pítsu sem kostar 1.500 krónur ef 600–900 krónur fara í kostnað,“ segir hann. 50% afsláttur til 1. apríl Högni Jökull Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Hróa hattar, segir ekki óeðlilegt að mikið sé af til- boðum hjá pítsustöðum fyrstu mánuði ársins þegar almenningur sé enn að súpa seyðið af „visa- flippi“ jólanna, eins og hann tekur til orða. Hrói höttur býður nú 50% afslátt af sóttum pítsum til 1. apríl. Kostar 16 tomma pítsa með þremur álegg- stegundum 1.075 krónur, tólf tomma pítsa með þremur álegg- stegundum 825 krónur og níu tomma pítsa með sama fjölda áleggstegunda 573 krónur. Níu tomma Margaríta kostar 348 krón- ur og 16 tomma kostar 595 krónur, svo dæmi séu tekin. Aukinn kostnaður við heimsend- ingar er ein ástæða þess að pítsu- staðir vilja fá viðskiptavini til þess að sækja sjálfa, segir Högni eins og aðrir viðmælendur. „Þetta er líka ein tegund mark- aðssetningar. Við viljum sporna við því að matvara sé dýr. Samkeppnin hefur ennfremur aukist nokkuð og litlum pítsustöðum hefur fækkað,“ segir hann. Högni segir sölu á pítsum hafa staðið í stað frá því í fyrra og hægt sé að lækka verð stuttan tíma í senn með því að semja sérstaklega við birgja, eða „kreista þá“ eins og hann segir sjálfur. „En þetta er ekki verð sem við getum lifað á,“ segir hann. Harðnandi verðstríð Pizzahöllin býður sextán tomma pítsur með fjórum áleggsteg- undum á 1.000 krónur fyrir þá sem sækja sjálfir fram á fimmtudag í næstu viku. Gunnar Guðjónsson framkvæmdastjóri segir verðstríð milli pítsustaða hafa „harðnað mjög mikið“ að undanförnu. „Pizza Hut byrjaði á tilboðum á sóttum pítsum og einnig hefur Dominos fjölgað „megavikum“. Dominos hefur líka boðið pítsur á 1.000 krónur í tilteknum hverfum þar sem þeir eiga í samkeppni og auglýst með dreifimiðum í hús,“ segir hann. Gunnar segir eðlilegt að barátta pítsustaða harðni þegar sam- dráttur verður í samfélaginu. „Hver og einn reynir að styrkja sig og litlu staðirnir hafa fundið nokk- uð fyrir því.“ Spurður hversu lengi hægt sé að selja 16 tomma pítsu með fjórum áleggstegundum á þúsundkall seg- ir Gunnar markmiðið að vega lækkunina upp með aukinni sölu. Halda viðskiptavinir ekki að sér höndum milli tilboða, eða flakka á milli staða í kjölfarið? „Jú, við sjáum meiri sveiflu í sölu nú en áður,“ segir Gunnar Guð- jónsson framkvæmdastjóri Pizza- hallarinnar að síðustu. Fleiri gylliboð fyrir þá sem sækja sjálfir Samkeppni á pítsu- markaði er sögð harðari nú en áður Reuters Stór pítsa kostar í kringum þúsund krónur á pítsustöðum um þessar mundir, það er ef maður kemur og sækir hana sjálfur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.