Morgunblaðið - 23.02.2003, Blaðsíða 4
4 B SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
TÓMAS Lemarquis er 25 árasonur Kristínar Unnsteins-dóttur kennara og GerardsLemarquis, frönskukenn-
ara við Háskóla Íslands og Mennta-
skólann í Hamrahlíð. Hann leikur
titilhlutverkið í kvikmynd Dags
Kára Péturssonar, Nói albínói, sem
frumsýnd verður hérlendis í þessari
viku. Tómas hefur vakið athygli fyrir
leik sinn í myndinni enda eiga hann
og Nói albínói ýmislegt sameiginlegt
að eigin sögn.
„Við erum kannski ekki svo ólíkir.
Nói er til dæmis bæði sérvitur og
misskilinn og það getur hugsanlega
átt við mig líka,“ segir Tómas sem er
útskrifaður leikari úr leiklistarskól-
anum Cours Florent í París. Þar var
hann meðal annars í bekk með leik-
konunni Audrey Tautou sem lék hina
ráðagóðu Amélie í samnefndri kvik-
mynd.
Í bíó í bakpoka
Áhugi Tómasar á leiklist og kvik-
myndum nær þó lengra aftur.
„Pabbi hefur alla tíð verið með mikla
kvikmyndadellu og ég var ekki nema
nokkurra mánaða þegar hann fór
fyrst með mig í bíó í bakpoka aftan á
sér. Síðan fór ég nánast vikulega
með honum í bíó alla mína barn-
æsku. Föðurafi minn rekur svo kvik-
myndafélag í París svo ég á ekki
langt að sækja kvikmyndaáhugann,“
segir Tómas og segir mér að pabbi
hans leiki jafnframt í Nóa albínóa:
„Pabbi leikur hlutverk frönsku-
kennara í myndinni. Þar leikur hann
atriði sem átti sér raunverulega stað
í frönskutíma hjá honum, nánar til-
tekið þegar leikstjórinn, Dagur Kári,
nam hjá honum frönsku í MH. Þegar
verið var að sýna myndina í London
heyrðist mikill hlátur í salnum þegar
pabbi birtist á tjaldinu og reyndist
hann koma frá fyrrverandi nemend-
um pabba.“
Hjálpar til að standa út úr fjöldanum
Tómas fékk fyrst áhuga á leiklist
þegar hann var í grunnskóla en um-
sjónarkennari hans lét bekkinn ár-
lega setja upp leikverk. Hann tók
aftur upp þráðinn í Menntaskólanum
við Hamrahlíð og tók ávallt þátt í
uppfærslum leikfélagsins. Að loknu
menntaskólanámi vann hann á heim-
ili fyrir þroskahefta og tók að sér
ýmis verkefni. „Á þessum tíma
kynnti ég meðal annars Söngva-
keppni framhaldsskólanna með Ólafi
Egilssyni sem er „hinn sköllótti leik-
arinn“. Við erum jafngamlir og okk-
ur er mikið ruglað saman. Það vill
þannig til að við erum með sama
sjúkdóm, sem er sjálfsofnæmissjúk-
dómur og veldur því að við erum ekki
með hár. Það sem gerist er að hvítu
blóðkornin halda að hár séu óvinir
sínir og ráðast á þau. Sjúkdómurinn
er skaðlaus að öllu leyti nema hann
gerir það að verkum að maður missir
hárið.
Ég var þrettán ára þegar ég missti
hárið sem er út af fyrir sig viðkvæm-
ur aldur. Ég gekk alltaf með húfu og
tók hana aldrei niður. Þegar ég var í
MH lék ég eitt sinn persónu sem var
öll rauðmáluð og þá tók ég húfuna of-
an í fyrsta sinn. Þá fór fólk að segja
að þetta væri töff og upp frá því
hætti ég að nota húfuna. Sjúkdóm-
urinn háir mér ekki að neinu leyti og
núna myndi ég segja að þetta sér-
kennilega útlit mitt hjálpi mér frekar
en hitt, að minnsta kosti í leiklistinni
þar sem ég stend út úr fjöldanum.
Ég myndi að minnsta kosti ekki vilja
hár ef mér væri boðið það núna,“
segir Tómas.
Í framhaldinu segir hann sögu
sem sýnir að það getur verið hentugt
að eiga tvífara: „Fyrir nokkrum ár-
um gerðum við Óli Egils atriði á
Halló Akureyri þar sem við vorum í
eins fötum, svona bleikum krumpu-
göllum. Ég fór ofan í kistu og komst
ekki út. Þá birtist Óli og enginn
skildi hvernig mér tókst að galdra
mig upp úr kistunni. Það tók enginn
eftir því að við vorum tveir!“
Velgengni kvikmyndarinnar Nóa
albínóa erlendis hefur væntanlega
ekki farið fram hjá mörgum en
myndin hefur hlotið sex verðlaun á
erlendum kvikmyndahátíðum. Tóm-
as segir að upptökurnar á myndinni
fyrir vestan hafi verið eitt skemmti-
legasta tímabil sem hann hefur upp-
lifað. „Við tókum mest í Bolungarvík,
á Ísafirði og Þingeyri. Það var frá-
bær stemning í hópnum og við vor-
um eins og ein stór fjölskylda. Við
bjuggum á Ísafirði og ekki skemmdi
fyrir að Ísfirðingar eru mjög
skemmtilegt fólk. Þeir eru opnir og
til í að spjalla. Ég lærði líka heilmikið
af þeim og hvernig það er að lifa í sí-
felldri baráttu við veðrið og náttúru-
öflin.“
En hvernig fékk Tómas, tiltölu-
lega óþekktur leikari, aðalhlutverkið
í myndinni?
„Það var eiginlega röð tilviljana
sem á rætur sínar í lítilli ákvörðun
sem ég tók þegar ég var tíu ára. Ég
er fæddur og uppalinn í Grjótaþorp-
inu og var vanur að labba niður
Fischersundið og beygja inn Mjó-
stræti þegar ég var að leika mér.
Dag einn ákvað ég að halda áfram
niður Fischersund út af því að ég sá
að það var eitthvað að gerast þarna
niðurfrá. Það reyndist vera Ásgrím-
ur Sverrisson að taka upp myndband
við lagið Feitar konur með hljóm-
sveitinni Kátir piltar. Ég spurði
hvort ég mætti vera með og fékk að
lokum hlutverk í myndbandinu. Ell-
efu árum síðar mundi Ásgrímur eftir
mér og fékk mig til að leika í sínum
hluta í kvikmyndinni Villiljósi. Þar sá
Dagur mig og fékk mig til að leika
Nóa,“ segir Tómas.
Nói fylgir ávallt sannfæringu sinni
Persónan Nói albínói er unglingur
sem er á skjön við allt og alla í sam-
félaginu. Hann lifir einföldu lífi í litlu
þorpi úti á landi og dreymir um að
komast burt. Tómas segir að persón-
an Nói hafi haft mikil áhrif á sig:
„Ég lærði ýmislegt af Nóa. Hann
fylgir alltaf sinni sannfæringu jafn-
vel þótt það sem hann gerir sé ekki
viðurkennt af samfélaginu. Ef hann
langar að baka pönnukökur og telur
það gera sér gott þá gerir hann það
frekar en að mæta í skólann og láta
sér leiðast. Mér finnst þetta um-
hugsunarvert þar sem margt í okkar
skólakerfi er þannig að ekki er ætl-
ast til nógu mikils af einstaklingun-
um sjálfum. Það gengur frekar út á
að mata nemendur á upplýsingum en
að virkja það sem einstaklingarnir
hafa fram að færa. Nói er eiginlega
eins og þegar maður var krakki, þá
gerði maður það sem manni datt í
hug, en nú er eiginlega búið að drepa
það niður því það er svo margt sem
ekki má,“ segir Tómas. Hann er nú
að ljúka fjórða ári í myndlist við
Listaháskóla Íslands og útskrifast í
vor. „Önnur fyndin tilviljun er að El-
ín Hansdóttir, sem leikur á móti mér
í myndinni, er bekkjarfélagi minn í
Listaháskólanum,“ segir Tómas.
Mikil sjálfskoðun í leiklist
Myndlist hefur alltaf verið áhuga-
mál Tómasar og þótt það hljómi
þversagnakennt þá segist hann hafa
lært miklu meira í leiklist eftir að
hann sneri sér að myndlistinni: „Í
leiklistarnámi er maður í sífelldri
sjálfskoðun og þó að gagnrýni á per-
sónurnar sem maður leikur eigi ekki
að beinast að manns eigin persónu
þá gerir hún það alltaf. Það er ein-
mitt það sem má ekki, í leiklist má
maður ekki vera of upptekinn af
sjálfum sér. Eftir að ég byrjaði í
myndlistinni, þar sem maður vinnur
sífellt með verk eða afurð, tókst mér
betur að aðskilja persónuna sem ég
leik frá sjálfum mér,“ segir Tómas.
Framtíðin blasir við þessum unga
hæfileikaríka manni. Tómas stefnir
að því að halda sig við myndlistina en
ætlar að nýta sér tækifærin sem vel-
gengni Nóa albínóa býður upp á.
Hann stefnir að því að fá sér um-
boðsmann í Frakklandi í sumar og
sjá hvort sér bjóðist fleiri tækifæri.
Þar sem hann er frönskumælandi
getur verið að hann eigi möguleika í
Frakklandi: „Mig langar í fram-
haldsnám í myndlist en ef ég fæ frá-
bær tilboð um kvikmyndahlutverk
þá verður myndlistin aðeins að bíða,“
segir hinn ungi Tómas Lemarquis að
lokum.
Morgunblaðið/Sverrir
Tómas Lemarquis leikur Nóa albínóa í samnefndri kvikmynd. Röð tilviljana allt frá því er hann var tíu ára olli því að hann fékk hlutverkið.
Neðri mynd: Nói verður ástfanginn af sjoppudömunni Írisi sem leikin er af Elínu
Hansdóttur. Svo vill til að í raunveruleikanum eru Tómas og Elín bekkjarsystkin
í myndlistardeild Listaháskóla Íslands.
Lærði margt af Nóa
Fjöldi manns erlendis hefur fengið innsýn í líf Nóa
albínóa í kvikmyndahúsum og hefur myndin sóp-
að til sín verðlaunum. Nú geta forvitnir íslenskir
kvikmyndaunnendur loksins fengið að kynnast
hinum uppátækjasama Nóa en myndin verður
frumsýnd hérlendis á föstudaginn kemur. Ragna
Sara Jónsdóttir hitti aðalleikara myndarinnar,
Tómas Lemarquis, að máli.
rsj@mbl.is
’ Pabbi hefur allatíð verið með mikla
kvikmyndadellu og
ég var ekki nema
nokkurra mánaða
þegar hann fór fyrst
með mig í bíó í bak-
poka aftan á sér. ‘
Efri mynd: Tómas í hlutverki Nóa sem hér sést ásamt föður sínum sem leikinn
er af Þresti Leó Gunnarssyni.