Morgunblaðið - 25.02.2003, Qupperneq 1
FULLTRÚAR Breta og Spán-
verja í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna lögðu í gærkvöld fram
með stuðningi Bandaríkjamanna
drög að nýrri ályktun um ger-
eyðingarvopn Íraka og var hún
rædd á lokuðum fundi ráðsins í
gær. Tekið er fram í drögunum
að Írakar hafi ekki nýtt sér loka-
tækifærið til að afvopnast með
friðsamlegum hætti og þeir hafi
gerst sekir um „skýlaus brot“ á
fyrri ályktunum öryggisráðsins.
Bent er á að Írakar hafi ekki
gert grein fyrir kjarnorku-,
sýkla- og efnavopnum sem þeir
hafi framleitt eða búnaði til slíkr-
ar framleiðslu. Einnig er rifjað
upp að ráðið hafi oft áður varað
Íraka við því að þeir myndu
„verða að horfast í augu við al-
varlegar afleiðingar“ ef þeir
héldu áfram að brjóta gegn sam-
þykktum SÞ.
Ekki er tekið nákvæmlega
fram hvenær afgreiða verði til-
löguna. „Við munum gefa þessu
góðan tíma, tvær vikur eða jafn-
vel aðeins meira áður en við för-
um fram á að ákvörðun verði tek-
in. Við viljum alþjóðlega sam-
stöðu,“ sagði Jack Straw, utan-
ríkisráðherra Bretlands.
Öryggisráðið saki Sadd-
am um „skýlaus brot“
Ný ályktun lögð
fram en Frakk-
ar vilja gefa
vopnaeftirliti
meiri tíma
SÞ, Washington, Berlín. AP, AFP.
Reuters
Tveir breskir hermenn við æfingar í herbúðum í norðanverðu Kúveit í gær.
Frakkar, Þjóðverjar og Rúss-
ar lögðu þegar í gær fram hug-
mynd að óformlegri yfirlýsingu
þar sem lagt er til að starf
vopnaeftirlitsmanna SÞ verði
eflt og áhersla lögð á friðsamlega
lausn. Er tekið fram að stríð
hljóti að vera „síðasta úrræðið“.
Franskur stjórnarerindreki
sagði að yfirlýsingin yrði ekki
borin undir atkvæði heldur ætti
að nota hana í umræðum um
nýju ályktunina.
Dan Rather, fréttamaður
bandarísku CBS-sjónvarpsstöðv-
arinnar, átti í gær samtal við
Saddam Hussein Íraksforseta.
Rather sagði í útvarpsviðtali í
gær að þar kæmi fram að Írakar
myndu ekki samþykkja að eyða
Samoud 2-eldflaugum sínum eins
og Hans Blix, yfirmaður vopna-
eftirlitsins, hefur krafist að gert
verði ekki síðar en á laugardag.
Flaugarnar eru langdrægari
en kveðið er á um í ályktunum
SÞ um leyfilegan vopnabúnað
Íraka.
Írak/15
Spánn
heillar
Handknattleiksmenn hafa sett
stefnuna á Spán Íþróttir 44
STOFNAÐ 1913 54. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2003 mbl.is
Í frjálsum
dansi
Um 300 unglingar kepptu í
frjálsum dansi Fólk 50
Flaututónar
í Salnum
Flautusónötur Bachs fluttar
í heild í Salnum Listir 23
STJÓRN Abdullah Gul í Tyrklandi samþykkti í
gær tillögu um að Bandaríkjamenn fengju að
senda herlið til suðausturhluta landsins en þaðan
mun það ráðast inn í norðanvert
Írak ef látið verður til skarar
skríða gegn Saddam Hussein
Íraksforseta. Tillagan verður
sennilega lögð fyrir þingið í dag.
Talið er víst að hún verði sam-
þykkt, enda þótt mikil andstaða
sé meðal almennings við árás.
Bandaríkjamenn hyggjast
veita Tyrkjum öflugan fjár-
stuðning fyrir afnot af bæki-
stöðvum í landinu. Eftir er að ganga frá nokkrum
lausum endum í samningum um bækistöðvarnar.
Í tillögunni er einnig farið fram á heimild til að
senda tyrkneska hermenn inn í norðurhéruð Íraks
og er markmiðið sagt vera að koma í veg fyrir mik-
inn flóttamannastraum frá Írak ef til stríðs kemur.
Kúrdar í Norður-Írak eru hins vegar mjög and-
vígir því að tyrkneskur her fari inn í Írak, þeir ótt-
ast m.a. að Tyrkir ætli að leggja undir sig olíulindir
við borgirnar Mósul og Kirkuk.
Ósk um bæki-
stöðvar var
samþykkt
Ankara, Washington. AP, AFP.
Abdullah Gul
STEINAR Höskuldsson, eða S. Husky
Hoskulds, fékk í gær tvenn Grammy-verð-
laun fyrir vinnu sína við plötu söngkonunnar
Noruh Jones, Come Away
With Me, þ.e. fyrir bestu
hljóðupptöku og sem að-
standandi plötunnar í
heild.
Steinar er fyrsti Íslend-
ingurinn sem fær
Grammy-verðlaunin, en
þau eru helstu verðlaun
bandarísks tónlistariðnað-
ar og sem slík ein þau mik-
ilvægustu sem veitt eru í tónlistarheiminum.
Steinar sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að hann væri afar ánægður með verð-
launin. Viðurkenningin eigi eflaust eftir að
opna honum einhverjar dyr í framtíðinni.
Á eftir að
opna dyr
Íslendingur fær
Grammy-verðlaun
Erum í sjöunda himni/4
Fer enn út með ruslið/52
Husky Hoskulds
SAMÞYKKI Íslendingar sams
konar samning og Norðmenn
hafa boðið Færeyingum og
ESB um veiðar úr norsk-ís-
lenska síldarstofninum myndi
hlutur Íslendinga minnka sem
næmi um 35.000 tonnum á ári.
Þetta segir Friðrik J. Arn-
grímsson, framkvæmdastjóri
Landssambands íslenskra út-
vegsmanna.
Gróflega áætlað myndi út-
flutningsverðmæti 35.000 tonna
af síld úr stofninum nema 500–
630 milljónum króna, en þá er
miðað við að tonnið seljist á
15–18 þúsund krónur. Aflaverð-
mæti 35.000 tonna upp úr sjó
væri um 350 milljónir króna,
eða um 10.000 kr. tonnið.
Friðrik segir að ekki komi til
álita að semja við Norðmenn á
sömu nótum og Færeyingar og
ESB. Slíkt myndi hafa í för
með sér afsal á mun meiri afla-
heimildum fyrir Íslendinga en
til dæmis Færeyinga. Verði Ís-
lendingum boðinn sams konar
samningur myndi hlutur Ís-
lands skerðast um allt að 5 pró-
sentustig, eða úr 15,54% í
10,5%, eða um ríflega 35 þús-
und tonn.
Samningurinn um skiptingu
afla úr norsk-íslenska síldar-
stofninum er frá árinu 1996, en
í honum er kveðið á um að 57%
heildarkvótans komi í hlut Nor-
egs, 15,54% í hlut Íslands,
13,62% í hlut Rússlands, 8,34%
í hlut Evrópusambandsins og
5,46 í hlut Færeyinga. Norð-
menn settu í haust fram kröfur
um breytta skiptingu aflaheim-
ilda. Vildu Norðmenn að þeirra
hlutur yrði 70%, en hlutur Ís-
lendinga færi í 8,66%.
Íslendingar hafa, lengst af
með stuðningi Færeyinga, mót-
mælt tillögum Norðmanna
kröftuglega. Íslenska sendi-
nefndin gekk af fundi aðildar-
ríkja samningsins, sem haldinn
var í Kaupmannahöfn fyrr í
þessum mánuði, enda ljóst að
Norðmenn væru ekki reiðubún-
ir til að slá af kröfum sínum.
Vilja skerða hlut Íslands úr norsk-íslenska síldarstofninum
Allt að 630 milljóna
króna tekjutap á ári
Ekki samið/13
!"
#"$$ %&"'
( ()(
) (
( (
"
&"' *+(*
(,'*-
HER Suður-Kóreu var settur í viðbragðsstöðu í
gærkvöldi eftir að Norður-Kóreumenn skutu eld-
flaug inn á alþjóðlegt svæði á Japanshafi, að sögn
talsmanns varnarmálaráðuneytisins í Seoul í
gærkvöldi.
Japanshaf er á milli Kóreuskaga og Japans.
Ekki var vitað hvaða gerð eldflaugar var um að
ræða eða hve langdræg hún var. Nýr forseti, Roh
Moo-hyun, tekur við embætti í Suður-Kóreu í
dag. Hefur hann lagt áherslu á bætta sambúð við
Norður-Kóreu.
Skutu eldflaug
inn á Japanshaf
Seoul. AFP.
♦ ♦ ♦